Tíminn - 03.11.1983, Side 5
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1983
fréttir
Skuldum Þormóðs ramma við ríkissjód breytt í hlutafé?
„MÐ MA SEGJA A0 PENNA-
STRIKSADFERDIN SÉ HAFIN
— segir Albert Guðmundsson, f jármálarádherra
■ „Það má segja það, að pennastriks-
aðferðin sé hafin, ef það verður sam-
þykkt í ríkisstjóminni að breyta skuldum
Þormóðs ramma við ríkissjóð í hlutafé,"
sagði Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra í samtali við Tímann.
Fjármálaráðherra sagði jafnframt:
„Skuldum hefur áður verið breytt í
hlutafé, en geta þeir sem eru hluthafar
með ríkinu lagt fram hlutfallslega saman
á móti? Við erum ekkert að gefa öðrum
hluthöfum, þannig að hlutafjáreign
hlýtur að raskast verulega og getur
náttúrlega endað með því að ríkið standi
uppi sem eini eigandinn, ef hlutafjár-
aukning á sér stað og aðrir hluthafar
leggja ekki fram hlutfallslega miðað við
sína eign.“
Albert benti á að mikill hluti þeirra
skulda sem fyrirtækið skuldaði nú, væru
lán sem útveguð hefðu verið fyrirtækinu
með ríkisábyrgð áður en hann varð
fjármálaráðherra, sem hlyti að hafa
verið gert með aðstoð fyrirrennara hans
í fjármálaráðuneytinu, því engin lán
með ríkisábyrgð væru veitt án vitundar
og heimildar ráðherra.
Albert var spurður hvort ríkið gæti
ekki átti von á heilli runu fyrirtækja, sem
myndu fara fram á fyrirgreiðslu eitthvað
í þessari mynd og sagði hann þá: „Nei,
nei, nei" Ríkið rekur ekki nema þetta
fyrirtæki í þessari grein. Ríkið er þarna
einungis að gegna sínum eigenda-
skyldum. Það eru allt aðrar skyldur, en
ríkið hefur við önnur fyrirtæki. Hluthaf-
arnir verða að taka sínar ákvarðanir, og
því miður erum við svona stórir hluthaf-
ar þarna.”
- AB
Breiðafjörður:
haldið áfram
■ í gær var haldið áfram leit að þeim
sem saknað er af Haferninum SH-122.
Aðstæður til leitar voru slæmar, lítið 70f
skyggni vegna snjókomu og haugabrim.
Gengnar voru fjörur og leitað á bátum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom til leitar
kl. 13:00. Leitin varð árangurslaus. 1
fyrradag var haldið sjópróf í málinu og
samkvæmt heimildum Tímans kom ekk-
ert það fram sem varpað gæti nánara «t
ljósi á atburði. - BK
Framkvæmda-
stjóraskipti
hjá Úrval
■ Framkvæmdastjóraskipti verða hjá
ferðaskrifstofunni Úrval 8. nóvember en
þá mun Karl Sigurhjartarson taka við
því starfi af Steini Lárussyni sem nú
hefur ráðist til sölustjórastarfa hjá Flug-
leiðum í Osló. Steinn hefur gegnt fram-
kvæmdastjórastarfi hjá Úrval frá stofnun
1970.
Karl Sigurhjartarson hefur starfað
hjá Flugfélagi íslands og síðar Flug-
leiðum í 23 ár, þar af síðastliðin 3 ár sem
sölustjóri á íslandi. Karl tekur við starfi
framkvæmdastjóra Úrvals 8. nóvember
og munu þeir Karl og Steinn starfa
saman til áramóta. - GSH
ÞETTLEIKI
k/k> samfrosta 'is | | |-|-|1|
7-a/io þettur is |--:|
4-6/0 GISINN is | jj M |
1-3/10 MJÖG QISINN is |°0QqO|
< l/lO ÍSDREIFAR |%JV|
IS I MYNDUN
BORGARISJAKI
---- 200 SJOMILNA
EFNAHAGSLÖGSAQA
ISKORT
2.11.1983
Kampen var sjó-
Llk Kjartans
Erlendssonar
fannst f gær
■ Kafarar frá Könnun hf. fundu lík
Kjartans Erlendssonar í flaki Sandeynn-
ar í gær en Kjartan var vélstjóri á
Sandey þcgar skipinu hvolfdi. Líkið
fannst í dæluhúsi skipsins.
Hjálmkafarar hafa undanfarið leitað
í skipinu en jafnframt kannað aðstæð-
ur til björgunar flaksins og farið um
skipið með síma og sjónvarpsmynda-
vélar. í'dag verður fundur með vá-
tryggingarfélagi skipsins og björgunar-
aðilum um framhaldsaðgerðir, við
björgunina. - GSH
í janúar!
verðmæti farmsins nú nam
um átta milljónum
■ Stórflutningaskipið ms. Kampen,
sem fórst við suðurströnd íslands í
fyrrakvöld var í eigu þýska útgerðarfyrir-
tækisins Schulz og Klemensen í
Hamborg. Það var sjósett í janúar sl. í
Zhonghua skipasmíðastöðinni í Shang-
hai í Kína, en byggt samkvæmt þýskum
teikningum og eflir kröfum fyrirtækisins
Germanische Lloyds, að sögn Þórðar
Sverrissonar hjá Eimskip, en það félag
var með skipið á leigu.
Skipið var leigt til sérstakra tímabund-
inna stórflutningaverkefna. Til flutninga
á vikri, brotajárni, kolum og öðru slíku.
Það var á leið frá Amsterdam með 5.300
tonn af kolum fyrir Sementsverksmiðju
ríkisins á Akranesi þegar það fórst.
Verðmæti farmsins nam liðlega átta
milljónum króna. Burðargeta skipsins
var um 6.150 tonn og það var um 280
þúsund rúmfet að stærð.
Að sögn þeirra Eimskipsmanna var
skipið búið öllum fullkomnustu sigling-
artækjum og reyndist í alla staði hentugt
í þeim flutningum sem það var notað til
á vegum félagsins.
- BK
■ Utbreiðsla
hafíss var um mánaða-
mótin október/nóvember um það bil
eins og sést á þessu korti frá Hafísrann-
sóknardeild.
Haffsinn er f
medallagi
■ Haft's við ísland um mánaðamótin
október/nóvember 1983 virtist vera í
meðallagi samkvæmt rannsóknum
Hafísrannsóknardeildar Veðurstofu
íslands. í frétt frá Hafísrannsóknar-
deildinni segir að hafisjaðarinn milli
íslands og Grænlands hafi þó verið um
90 sjómílur norðvestur af Vestfjörð-
um, handan miðlínu. Jaðarinn var
'mjög þéttur og ís samfrosta þaöan og
til Grænlands. ísdreifar voru þá á
nokkurra sjómílna breiðu belti með-
fram jaðrinum.
! fréttinni segir að upplýsingar um
hafís á íslandshaft fáist með veður-
tunglamyndum og flugi Landhelgis-
gæslu yfir ísinn. Auk þess eru ísathug-
anir frá skipum mikilvægar og því sé
mjög brýnt, og jafnvel skylda að hver
sent siglir um ís eða eygir ís tilkynni
það til Veðurstofu íslands. - GSH
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar
„Um 80 til-
búnir að
skrá sig fyr-
ir hlutafé”
segir Jens
Valdimarsson,
stjórnarfor-
maður fyrir-
tækisins
■ „Við erum búnir að fá upp undir
80 aðila sem eyu tilbúnir að skrá sig
fyrir hiutafé í Hraðfrystihúsi Patreks-
Qarðar. Það er kannski ekki um stórar
upphæðir að ræða enda er fólk yfírleitt
með til að sýna hug sinn fyrst og
frenist," sagði Jens Valdimarsson,
stjórnarformaður Hraðfrystihúss Pat-
reksfjarðar, sem uni skeið hefur verið
lokað vegna rekstrarörðugleika, í sam-
taii við Tíntann.
Um síðustu helgi var haldinn á
Pátreksfiröi fjölmennur fundur um
málefni frystihússins. Á honum var
itrekuð slæm staða hússin^og talað um
að ef ekkert yrði að gert á næstunni til
að bæta hag fýrirtæksisins yrði um
tvennt að ræöa a’ð bjóða fyrirtækið upp
eða selja það.
Jens kvaðst bjartsýnn á að hægt yröi
að hefja rekstur að nýju innan
skamms. Landsbankinn, viðskipta-
banki fyrirtækisimj, hefði gcfið vilyröi
um að veita aðstoð cf fram kæmi vilji
heimamanna til að halda rekstrinum
áfram. Jens vildi ekkert gefa upp um
hversu mikla peninga vantaði til að
hefja rcksturinn að nýju>
-Sjó
Sinfónm-
tónleikar
í kvöld
■ Þriðju tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands á þessu starfsári verða í kvöld
í Háskólabíói og hefjast kl. 20.30. Á
tónleikunum verður flutt Sinfónía í
D-dúr eftir Bach; fagottkonsert eftir
Vivaldi, fagottkonsert eftir Atla Heimi
Sveinson en það er frumflutningur á
Islandi á því verki, og Rapsodie Espag-
nole eftir Ravel. Stjórnandi á tónleikun-
um er Jean-Pierre Jaquillat sem hefur
verið aðalstjórnandi hljómsveitarinnar
sl. þrjú ár.
Einleikari kvöldsins, Per Hannisdal,
er ungur norskur fagottleikari sem num-
ið hefur fagottleik í Osló og Genf. Hann
hefur verið fyrsti fagottleikari í Fílharm-
óníuhijómsveitinni í Osló síðan 1978.
Hann hefur komið fram með fremstu
hljómsveitum í Noregi og Danmörku og
einnig tekið mikinn þátt í flutningi
kammertónlistar. Hannisdal fór með
einleikshlutverkið þegar „Trobar clus“
fagottkonsert Atla Heimis Sveinssonar
var frumfluttur í Osló í fyrra. _ GSH
Hafskip kaupir banda-
ríska vöruflutningamiðlun
■ Hafskip hf. hefur fest kaup á banda-
rísku flutningamiðlunarfyrirtæki, Cosm-
os Shipping Company, sem hefur skrif-
stofu í fimm borgum Bandaríkjanna,
New York, Baltimore, Miami, Chicago
og New Orleans, en starfsmenn fýrir-
tækisins eru rúmlega 50.
Flutningavelta Cosmos á ársgrundvelli
er milli 20 og 25 milljónir Bandaríkjadal-
ir, en fastir viðskiptaaðilar eru um 400
og óreglulegir viðskiptaaðilar milli 150
og 200. Aðalskrifstofan er í New York,
þar sem starfsmenn eru nú 25, en félagið
var sett á stofn 1919. Vöruflutningar
Cosmos á sjó eru um 90%, en með flugi
10%, semskiptist þannig milli heimsálfa:
til Evrópu um 40%, Suður-Ameríku
30% og Afríku og Austurlanda um 40%.
„Það sem vakir fyrir forráðamönnum
Hafskips hf. með þessum kaupum er
meðal annars að auka umsvif íslendinga
erlendis, fjölga atvinnutækifærum ís-
lenskra starfsmanna og um leið skapa
betri grundvöll til að auka þjálfun og
þekkingu í alþjóðlegum viðskiptum.
Þannig má einnig tryggja íslenskum
skipafélögum vöruflutninga milli N-
Ameríku og Evrópu og þar með stuðla
að ódýrari flutningum til og frá íslandi,
svo dæmi séu nefnd,“ segir í frétt frá
skipafélaginu.
- Sjó
Pað borgar sig að koma við hjá okkur
Bækur við allra hæfi. Ritföng, hljómplötur heimilistölvur
(Dragon 32 og Oric 1).
Skrifstofubúnaður.
Umboð fyrir Facit og Brother. Erlend blöð og vasabrots-
bækur vikulega.
Bókaskemma Hörpuútgáfunnar
sími 2840 Akranesi Stekkjarholti 8-10,