Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1983
■ í 22 ár hefur Luisa hin ítalska haft góða og stranga stjórn á
manni sínum Roger Moore. I'au eiga saman 3 börn og með þeim
á myndinni eru tvö þeirra, Deborah, 19 ára og Christian, 9 ára.
■ Michael Caine er í skattaútlegð frá Bretlandi. Hann býr
ásamt konu sinni Shakira og 9 ára gamalli dóttur þeirra í hinni
sólríku Kaliforníu. Það er einna hclst, að Michacl kvarti undan
matargerð konu sinnar, en hún er vön krydduðum suðrænum
mat. Hann segist aftur á móti sakna óbreytts, ensks matar.
■ Marlene hinni áströlsku tókst að koma lagi á Joe Bugner, sem
kann vel að meta stjórnsemi konu sinnar.
LEYNDARDOMUR LANGS OG
HAMINGIUSAMS HJONABANDS?
■ Hver er leyndardómur langs og hamingjusams hjóna-
bands? Þó nokkur fjöldi Breta, sem komist hafa til vegs
og virðingar, halda því fram að hann liggi einfaldlcga í því
að krækja sér í útlenda konu. Til eru nefndir leikaramir
Roger Moore og Michael Caine, hnefaleikameistaramir
Henry Cooper og Joe Bugner og Bítlarnir John Lennon
og Paul McCartney meðal annarra, sem gripið hafa til
þess ráðs með góðum árangri. Enda segja þeir algilda
reglu í þessum hjónaböndum að eiginkonurnar fari
með „húsbóndavaldið.“
í 22 ár liafa Roger Moore og
ítaLska fegurðardísin og fyrrum
kvikmyndastjama, Luisa, þolað
saman súrt og sætt, og í 14 ár liafa
þau verið gift. Þar áður átti
Rogcr 2 hjónabiind að baki.
Þessu hjónabandi var ckki licldur
spáð vel í upphali, því að Roger
var þá, sem endranær, mikið
kvennagull og hafði lítinn frið
fyrir ásókn fagurra kvenna, enda
sífellt umkringdur þeim í vinn-
unni. en I.uLsa tók inálið frá
upphali fiistum tökum. Hún
ákvað að fylgja manni sínuin
hvert sem hann færi og iylgjast í
eigin persónu með vinnu við
kvikmyndimar hans. Þegar fyrir
dymm hefur staðið upptaka á
einhvcrju æsilegu ástaratriði
James Bond, gefur hún manni
sínum einfiild og skýr fyrirmæli:
- Þú skalt alveg láta vera að hafa
liina ininnstu nautn af þvi.
Luisa gefur nianni sinum líka
auga í veislum og gætir þess vel,
að liann drekki ekki of mikið. -
I augum Lui.su er hver sá, sem
lætur ofan í sig brennt vín alk-
óhólóLsti, segir Roger og sættir
sig vel við eltirlit konu sinnar. -
Það skynsamlegasta, sein ég hef
gert á ævinni, er áreiðanlega það
að giftast Luisu, segir hann. - Þó
að ekki værí annað kemur það í
veg fyrir aö ég þurfi að gangast í
gegnum skilnað einu sinni enn.
Luisa myndi drepa mig áður en
það kæmist svo langt!
Annar hamingjusamur
þekktur Brcti, sem giftur er
erlendri konu, er hnefaleikam-
eistari í þungavikt Joe Bugner.
Hann var kominn í lægð, þegar
fundunt hans og áströlsku
blaðakonunnar Marlene bar
santan. Fyrra hjónaband hans
var farið út um þúfur og farið
að halla undan fæti í hnefaleik-
ahringnum. En Marlene var
ekki lengi að koma honum á
réttan kjöl. Hún hefur tekið að
sér algjöra stjórn á lífi hans.
Hann lætur ekki bita upp í sig
af ncinu tagi, nema kona hans
hafi lagt blcssun sína yfir hann.
40 vífanún skal hann taka á
dag. Með þessu móti liefur
hann komist aftur i bctra form
og fengið þar með aukið sjálfs-
traust, enda situr kona hans á
öllum hans kappleikjum og
hvetur hann óspart áfram. En
hún sér jafnframt utn það, að
hann sé ekkcrt að tjá sig á
opinberum samkundum, eins
og blaöamannafundum. Þar
tekur hún sjálf oröið og heldur
því. Oll þessi umönnun virðist
falla Joe Bugner vel og hcfur
hann aldrei verið betur á sig
kominn en nú.
Enn eitt dæmi um frægan
Breta, sem krækti sér í erlenda
konu og hefur síðan lifað í sátt
og samlyndi við umhverfi sitt,
er Michael Caine. Hann próf-
aði sig fyrst áfram á hjóna-
bandsmarkaðnum með brcskri
stúlku, en það gafst ekki vel.
Eftir skilnað og niargra ára
piparsveinastand giftist hann
fyrrum Ungfrú heimi, Shakira
Baksh, sem upprunnin er í
Guyana. Hún hefur síðan tekið
sér fyrir hendur að stjórna
Michael og lífi hans og það
líkar honum vel.
■ Það hefur löngum verið álitið að 3 væru ekki heppileg tala í
félagsskap. Hvort hér er eitthvert deilumál á ferðinni, skulum við
ekkert um segja, en greinilegt er að Tommy Steele þarf að beita
meiri sannfæringarkrafti við Ringo Starr en konu hans, Barbara
Bach.
Iijarta og er mikiö í mun að sannfæra
Ringo Starr um réttmæti fullyrðinga
sinna. Ringo er hins vegar vantrúaður á
svip og ætlar bersýnilega að selja sann-
færingu sína dýru verði.
En engu er líkara en að Tommy hafi
þegar tekist að sannfæra Barbara Bach,
konu Ringos, uin að liann hafi rétt fyrir
sér. Hún virðist a.m.k. horfa á hann í
blindri aðdáun!
„Pú hlýtur
að skilja
þetta
maður“
Tommy Stele liggur
greinilega mikið á
viðtal dagsins
Salome Þorkelsdóttir forseti efri deildar:
/ ■■
EROFTAVORPUB
VIRDULEGIF0RSET1
— en þó heyrist það einnig að hún sé ávörpuð herra forseti.
■ I fyrsta skipti í sögu Alþingis
gegnir kona störfum forseta efri
deildar, en konan er Salóme
Þorkelsdóttir, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins. Tíminn leit
við hjá Salóme í efri deild og
spurði hana m.a. í hverju störf
forseta efri deildar væru fólgin:
„Störf forseta eru fyrst og
fremst þau, að gæta þess að
störfin í deildinni fari fram eftir
þingsköpum. eða með öðrurn
orðum að halda uppi reglu á
þingfundum. Forseti ber ábyrgð
á deildinni sem slíkri, tekur við
erindum og sér um að mál séu
afgreidd frá henni einnig. Þetta
ásamt stjórn á funduni dcildar-
innar er nú meginmálið varðandi
störf forseta efri deildar, eins og
reyndar hjá öðrum forsetum
þingsins. Sameiginlega fara for-
setarnir með yfirstjórn þingsins.
og er forseti Sameinaðs þings að
sjálfsögðu æðstur í því samb-
andi. Auðvitað njótum við að-
stoðar starfsmanna þingsins í
því, því starfsmenn Alþingis eru
okkar undirmenn, bæði skrif-
stofustjóri og annað starfsfólk."
■ Salonie Þorkelsdóttir, for-
seti efri deildar.