Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 19&3
á vettvangi dagsins
■ Það er mér, sem ráðherra félags-
mála, sérstakur heiður og ánægja að fá
tækifæri til að vera hér viðstaddur og
ávarpa ykkur í upphafi landsþings
Þroskahjálpar.
Ég flyt öllum þeim sem að landssam-
tökunum Þroskahjálp standa heillaóskir
og þakkir fyrir hið mikla og árangursríka
brautryðjendastarf í þágu þroskaheftra
hér á landi. - Þetta fórnfusa starf verður
seint metið að verðleikum, en jákvæður
árangur starfsins er jú mesta gleði þeirra
sem vinna að slíkum velferðarmálum.
í afmælisriti Styrktarfélags vangefinna
ljóst er að framkvæmd laganna kallar á
stóraukið fjármagn, að sjálfsögðu verður
að framkvæma þessi mál í áföngum.
Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand og sam-
drátt í ríkisfjármálum vona ég að hægt
verði að þoka þessum málum fram á við.
- Víðs vegar um land er hafinn marg-
víslegur undirbúningur og aðgerðir til að
skapa aðstöðu til hagsbóta fyrir fatlað
fólk, verkefnin blasa hvarvetna við,
koma þarf upp heimilum fyrir þroska-
hefta, auka atvinnumöguleika fatlaðra,
koma uppvernduðumvinnustöðum, lag-
færa húsnæði, með tilliti til aðgengis
Tillögur nefndarinnar skal leggja fyrir
Alþingi til staðfestingar.
Þessi nefnd er að störfum, tillögur
hennar munu verða lagðar fyrir Alþingi
sem tekur síðan ákvörðun um hvenær og
hvernig ráðist verður í þessa miklu
framkvæmd.
Ég vil.láta það koma fram hér, að ég
tel að við eigum að vanda vel til um
ákvörðunártöku í þessum málum - ekki
síst með tilliti til aðstæðna í efnahags-
málum þjóðarinnar. - Ég tel að við
eigum að beina því fjármagni sem við
höfum yfir að ráða í næstu framtíð að
Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra:
með daggjöldum. í fjárlögum ’84 er
reiknað með 331,3 stöðugildum sem er
fjölgun um 84,55 stöðugildi frá árinu í
ár. Á ný heimili eru 44,9 stöðugildi, á
heimili sem áður nutu daggjalda 34,55
og fjölgun starfsliðs hjá svæðisstjórnum
um 5,2 stöðugildi.
Af nýjum stofnunum sem komust inn
á fjárlög 1984 til rekstrar vil ég nefna:
Sambýli: að Víðihlið 11 Reykjavík, á >
Akranesi, Siglufirði og Egilsstöðum.
Skammtímavistun: Víðihlið 9, Reykja-
vík, Egilsá, Skagafirði og í Keflavík.
Verndaðir vinnustaðir: Bjarg, Akureyri,
Vestmannaeyjum og Kópavogi.
Þjónustumiðstöð: Bræðratunga, ísa-
firði.
Fjárveiting til Framkvæmdasjóðs fatl-
Ræða flutt við setningu landsþings Þroskahjálpar
1978 voru lokaorð Magnúsar Kristins-
sonar þáverandi formanns samtakanna:
„Við skulum vona, að sá tími komi, að
við þurfum ekki að tala um baráttumál,
heldur að vangefnir einstaklingar njóti
sama réttar og aðrir þjóðfélagsþegnar".
Vissulega hefur vel miðað í rétta átt í
málefnum þroskaheftra síðan þessi orð
voru skrifuð, en baráttan heldur áfram.
Ég er sannfærður um að hin opna
umræða í þjóðfélaginu og jákvæð um-
fjöllun fjölmiðla, hefur orðið til að auka
og glæða skilning landsmanna fyrir
högum fatlaðra og knýjandi nauðsyn á
samfélagslegu átaki til að tryggja fötluð-
um jafnrétti og sambærileg lífskjör á við
aðra þegna þjóðfélagsins - skapa skilyrði
þeim til handa til að lifa eðlitegu lífi og
nýta starfskrafta þeirra og hæfileika fyrir
þjóðfélagið við ýmis störf.
Ég var svo lánsamur, er ég tók sæti á
Alþingi 1978 að tengjast strax félagsmál-
um og kynnast sérstaklega málefnum
fatlaðra með þátttöku í félagsmálanefnd
Alþingis - og taka þannig virkan þátt í
löggj afarstarfi við að koma þessum mál-
efnum til betri vegar sbr. lög um aðstoð
við þroskahefta 1979 og ný lög um
málefni fatlaðra s.l. vor.
Ég sagði lánsamur, ég vil undirstrika
það sérstaklega, vegna þess, að ég tel
mig hafa öðlast dýrmæta reynslu við það
eitt að kynnast gegnum þessi félagsmála-
störf hversu víðtæk og aðkallandi þörf er
á raunhæfum félagslegum umbótum fyrir
mikinn fjölda samborgara okkar sem
eiga við ýmis konar fötlun að stríða - og
eiga sannarlega fullan rétt á slíkum
umbótum. - Og í annan stað, að kynnast
því mikla fórnfúsa starfi fjölda fólks,
jafnt einstaklinga sem samtaka, sem
berjast fyrir rétti fatlaðra til framfara.
Á síðasta Alþingi voru samþykkt ný
lög um málefni fatlaðra nr. 41/1983.
Þessi lög taka gildi 1. janúar n.k.
Með lögum þessum er steypt saman í
einn lagabálk með ýmsum lagfæringum
og betrumbótum, lögum um aðstoð við
þroskahefta, lögum um endurhæfingu
og lögurn um ráðstöfun erfðafjárskatts
og erfðafjár ríkissjóðs til vinnuheimila.
Með þessum nýju lögum er nú í fyrsta
sinni komð á heildarskipulagningu fé-
lagslegrar þjónustu opinberra aðila, ríkis
og sveitarfélaga, við fatlað fólk í öllu
landinu, án tillits til þess hver fötlunin
er, þar sem markmiðið er að stuðla að
jafnrétti og fullkominni þátttöku fatl-
aðra í daglegu lífi.
.Enginn vafi er að þessi lög marka
tírrfamót í málefnum fatlaðra, sérstök
deild í félagsmálaráðuneytinu vinnur nú
að undirbúningi á framkvæmd laganna.
Þessi nýju lög gera ráð fyrir stóraukn-
um framkvæmdum og aukinni starfsemi
í þágu fatlaðra, verksvið svæðisstjórna
er aukið og gerðar verða áætlanir um
land allt til að mæta þörfum fatlaðra,
fatlaðra, stóraukin og bætt heilsugæsla
og heilbrigðisþjónusta o.fl.
Ég vil trúa því að jákvæður skilningur
sé fyrir hendi hjá stjórnvöldum, aðilum
vinnumarkaðar og meðal allra iands-
manna að fylgja fast fram tilgangi laga
um málefni fatlaðra í næstu framtíð, það
er heillarík ákvörðun fyrir þjóðina í
heild.
Eitt fyrirferðarmesta ákvæði laganna
er kaflinn um Greiningarstöð ríkisins -
í ákvæðum til bráðabirgða í þessum
lögum var ákveðið að félagsmálaráð-
herra skuli þegar í.stað skipa 5 manna
nefnd, sem hafi það verkefni að gera
tillögur um fyrirkomulag á framtíðar-
skipan Greiningarstöðvar ríkisins í sam-
ræmi við ákvæði 16. gr. Menntamálaráð-
herra skipar einn fulltrúa frá Athugunar-
og greiningardeildinni Kjarvalshúsi,
heilbrigðisráðherra einn fulltrúa frá ný-
buradeild Landspítalans, félagsmálaráð-
herra einn fulltrúa að fenginni tillögu
svæðisstjórna, Landssamtökin þroska-
hjálp og Öryrkjabandalag íslands einn
fulltrúa hvort.
úrlausnum sem hægt er að ná fram
víðsvegar um land á tiltölulega stuttum
tíma og koma strax að fullum notum
fyrir fjölda einstaklinga sem hafa litla
sem enga aðstöðu í dag.
Ég nefni sem forgangsverkefni, sam-
býli, aðstöðu fyrir skammtímafóstur-
heimili, leikfangasöfn, sumardvalar-
heimili og síðast en ekki síst verndaða
vinnustaði. - Þá er mikilvægt að vel sé
búið að þeim stofnunum og heimilum sem
fyrir eru.
Ég sé að samkvæmt dagskrá þingsins
munu öll þessi mál tekin til meðferðar.
Það er mikilvægt að landsþing ykkar
komi fram með ábyrga og raunhæfa
stefnu í þessum málum.
Ég er persónulega andvígur uppbygg-
ingu á stórum stofnunum fyrir fatlað
fólk. Við höfum á undanförnum árum
byggt upp fullkomnar skólastofnanir og
heilsugæslustöðvar og íþróttaaðstöðu
víðs vegar um landið. - Er ekki sjálfsagt
að vinna að því að aukin þjónusta við
fatlað fólk fari fram á þessum stöðum og
slíkir einstaklingar njóti jafnréttis á
þessum stofnunum?
Við eigum einnig að nýta samstarf og
samvinnu við félagasamtök í landinu
sem vilja leysa þessi mál á hagkvæman
hátt, þar sem því verður viðkomið.
Það má ekki skilja orð mín svo, að ég
sé á móti byggingu greiningarstöðvar
ríkisins - svo er ekki, en ég vil nýta fyrst
fjármagn til að leysa vanda margra víðs
vegar sem ekki væri hægt ef fjármagn til
framkvæmda er fest um of í fjárfrekar
fjárfestingar sem tekur mörg ár að
byggja upp.
í sambandi við gildistöku nýrra laga
um málefni fatlaðra 1. janúar n.k. náðust
fram verulegar breytingar við gerð fjár-
lagafrumvarps fyrir árið 1984.Skilningur
var jákvæður fyrir því að auka verulega
fjármagn til þessa málaflokks umfram
aðra.
Heildarkostnaður hækkar úr 70,8
millj. í fjárlögum þessa árs í 148 millj.
eða 108%. Tekin er inn fjarveiting til 15
nýrra heimila fyrir fatlaða þar af fjögur
sem áður hafa fengið rekstrarfé greitt
aðra skv. nýju lögunum verður verulega
skert, gera má þó ráð fyrir að framlög til
sjóðsins þ.m.t. erfðafjársjóður verði
rúmar 60 millj. á næsta ári.
Eftir er að setja reglugerðir vegna laga
um málefni fatlaðra - aðeins er komin út
reglugerð um verndaða vinnustaði.
Ég nefni hér tilnefningu Landssam-
bands Þroskahjálpar og Óryrkjabanda-
lagsins á 3 mönnum í stjórnarnefnd og
svæðisstjórnir. Æskilegt er að þessi sam-
tök komi sér sanian um fyrirkomulag
tilnefningar.
Ég mun á næstu dögum skipa vinnu-
nefndir til þessa verkefnis, verða frum-
drög að reglugerðum síðan send viðkom-
andi aðilum svo sem Alþingi, svæðis-
stjórnum, Samtökum sveitarfélaga o.fl.
til umsagnar. En nauðsynlegt er að vel
sé vandað samnitigu reglugerða um
framkvæmd laganna.
Um leið og ég endurtek heillaóskir til
samtakanna óska égeftirgóðu samstarfi,
ráðuneyti félagsmála mun ekki liggja á
liði sínu til að reyna að þoka málefnum
fatlaðra til betri vegar.
Fatlaðir einstaklingar njóti
jafnréttis í þeim stofnunum
sem öllum eru ætlaðar