Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 11
10
fþróttir
Evrópukeppni meistaraliða:
UVERPOOL AFRAM
- EN HAMBORG FÉU
verður breskur úrslitaleikur?
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1983
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1983
19
Úrslit
umsjón: Samúel Öm Eriingsson
- Frá Magnúsi Ólafssyni íþróttafréttarilara
Tímans í V-Þýskalandi:
■ Óvænt en örugglega tókst ensku
meisturunum Liverpool aö sigra spönsku
meistarana Atletico de Bilbao á útivelli
1-0 og komast þannig áfram í Evrópu-
keppni Meistaraliða.
Pað var Alan Kennedy sem átti allan
heiðurinn af markinu, sem kom í seinni
hálfleik. Hann lék upp kantinn, gaf vel
fyrir og Ian Rush skoraði léttilega.
Týpiskt enskt mark. Það var annars
fyrirliðinn Graeme Souness sem var
mikilvægasti maður Liverpool í leiknum.
Hann lagði alla sína reynslu í leikinn, og
stjórnaði mönnum sínum af festu í
þessum mikilvæga sigri.
Eftir 4-0 sigur Dundee á gamla liðinu
hans Ásgeirs Sigurvinssonar, Standard
Liege, tala Bretar nú um breskan úrslita-
Evrópukeppni bikarhafa:
Stórsigur
Aberdeen
leik, Liverpool -Dundee United, og þá
sérstaklega þar sem HSV er fallið úr
keppninni.
HSV spilaði stórkostlega knattspyrnu
í fyrsta sinn í fleiri vikur en því miður
aðeins fyrstu 85 mínúturnar í leiknum
gegn rúmesnku meisturunum. Boltinn
var látinn ganga, og sóknirnar dundu á
■ Graeme Souness stjórnaði Liver-
pool til sigurs í gær á Spáni.
Dýnamó. Eftir 63 mínútur var staðan
líka orðin 3-0 svo HSV var búið að vinna
upp tapið í Búkarest. - En þá tók hið
góða rúmenska lið lokst við sér, og
skoraði gott mark á 85. mínútu. Seinna
mark þeirra var aðeins formsatriði.
MÓ/SÖE
UEFA-keppnin:
Frá Magnúsi Ólafssyni, íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Aberdeen, andstæðingar Akraness í
fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa,
unnu stórsigur á Beveren, sem eru nú í
efsta sæti í Belgíu. Gordon Strachan
skoraði tvisvar, og var annað markið
sérlega fallegt, þrumuskot frá vítateigs-
línu. Neil Simpson og Peter Weir bættu
síðan við.
Manchester United tók lítið á í
leiknum gegn Varna. Það var Frank
Stapleton sem skoraði mörk Englend-
inganna.
Köln komst í 3-1 gegn ungversku
bikarmeisturunum, og var tapið í Búda-
pest talið unnið upp. Mark gestanna var
reyndar sjálfsmark þýska landsliðsmið-
varðarins Strach. Þrátt fyrir að einn
Ungverjanna hafi fengið brottvísun af
leikvelli, tókst Ungverjunum samt að
skora mark á síðustu mínútum leiksins,
og slá þannig Þjóðverjana út.
-Mól/SÖE
Soffia Iá
f Watf ord
Frá Magnúsi Ólafssyni, iþróttafrétlamanni
Tímans í V-Þýskalandi:
■ LS Softa, liðið sem sló Ásgeir Sigur-
vinsson og félaga í VFB Stuttgart út úr
fyrstu umferðinni, tapaði óvænt á heima-
velli fyrir liði Eltons John, Watford.
Eftir venjulegan leiktíma var staðan
jöfn, 1-1, eftir að Callaghan hafði jafnað
úr víti seint í leiknum. I framiengingunni
skoruðu síðan fyrirliðinn Willie Foster og
Ian Richardsson fyrir Watford.
Þrátt fyrir góða frammistöðu í Rotter-
dam tókst FC Jena, andstæðingum Vest-
mannaeyinga í fyrstu umferðinni ekki að
' komast áfram í þriðju umferð UEFA-
keppninnar. Annað austurþýskt lið,
FC Leipzig gerði óvænt en sanngjarnt
1-1 jafntefli við Werder Bremen. Vestur-
þýsku leikrnennirnir fundu enga leið
gegnum frábæran markvörðinn Múller.
Fjörutíu þúsund áhorfendur sáu gestina
komast yfir á 17- mínútu eftir eina af
fjölmörgum skyndisóknum Leipzig. -
Völler skoraði síðan fyrir Bremen í
seinni hálfleik.
Nottingham Forest marði sigur með
marki nýliðans Peter Davenport, á 52.
mínútu. Annar nýliði, hinn 22ja ára
markvörður Steve Sutton varði oft stór-
glæsilega í leiknum.
Þrjátíu þúsund öskrandi Skotar sáu
Celtic sigra Portútgalina örugglega, 5-0
í Glasgow.
Mól/SÖE
Atletico Bilbao, Spáni - Liverpool, Englandi ......
H.S.V., Þýskal. - Dynamo Bukarest, Rúm.............
Rapid Wien, Austurr. - Boheminas Prag..............
(Wien fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli)
Dynamo Minsk. Sovétr. - Raba Eto Györ, Ungverjal.
Dundee United, Skotl. - Standard Liege, Bclgíu . .. .
A.S. Roma, ítahu - CSKA Sofia, Búlgaríu............
Partigan Belgrad, Júgósl. - Dynamo Beriín, A-Þýskal.
.0:1 (0:1)
, . 3:2 (3:5)
, . 1:0 (2:2)
.. 3:1 (9:4)
.4:0 (4:0)
..4:0 (2:0)
. 1:0 (1:2)
. . . 4:1
. . 2:1
. . 1:2
, . . 0:0
. . 2:0
. . 2:0
1. FC Köln, V-Þýskal. - Ujpet Dosza, Ungv.........
(Dosza áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli)
Aberdeen, Skotlandi - Beveren, Belgíu.............
Haka Valkeakoska, Finnl. - Hammarby, Svíþjóð......
Servette, Sviss - Shakhtyar Donetsk Sovétr........
Juventus, Ítaiíu - Paris St. Germain, Frakkl......
(St. Germain áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelii)
Barcelona, Spáni - Nijmegen, Hollandi.............
Man. Utd. Englandi - Spartak Vama Búlgariu .......
UEFA-keppnin:
Antwerpen, Belgíu - Lens, Frakkl..........................2:3
Aston Villa, Engl. - Spariak Moskva, Sovétr...............1:2
Cari Zeiss Jena, A-Þýskal. - Sparta Rotterdam. Holl.......1:1
Sparta Prag, Tékkó - Widzew Lodz, Póllandi................3:0
Nott. Forest. Engl. - PSV Eindhoven, Ilollandi ...........1:0
Banik Ostrava, Tékkó - Anderlecht, Belgíu.................2:2
Laval, Frakklandi - Austria Wien..........................3:3
Sturm Grag, Austurríki - Verona, Ítalíu ..................0:0
(Sturm Grag áfram á fleiri mörkum skorðum á útivelli)
Haiduk Split, Júgósl. - Honved Budapest, Ungvcrjal........3:0
Fcyenoord, Hollandi - Tottenham, Englandi ................0:2
Bremen, V-Þýskal. - Leipzig, A-Þýskal.....................1:1
LS Sofia Búlgaríu - Watford, Englandi ....................1:3
Inter Bratislava, Tékkó - Radnicki NIS, Júgósl............3:2
Bayem Munchcn. V-Þýskal. - PAOK Salon, Grikkl.............0:0
(Baym vann 9-8 j vítaspyrnukeppni)
Inter Milanó, Ítalíu - Groningen, Hollandi................3:1
Glasgow Celtic, Skotlandi - Sporting Lissabon, Portúgal...5:0
(Svigarnir merkja samanlögð úrslit)
.4:2 (5:5)
(4:1)
(3:2)
(1:3)
(2:2)
(5:2)
(4:1)
(4:5)
(3:4)
(3:4)
(3:1)
(3:1)
(2:4)
(3:5)
(2:2)
(5:3)
(2:6)
(1:2)
(2:4)
(3:6)
(0:0)
(5:3)
(5:2)
„Nll UGGUR LEIÐIN
UPP A VW”
— segir Teitur Þórðarson sem
skoraði tvö mörk fyrir
Cannes um slðustu helgi
■ TeRur Þórðarson, knattspymumaður frá Akranesi átti
stórleik með liði sínu, Cannes í annarri deild frönsku
meistarakeppninnar um siðustu helgi. Teitur var maðurinn bak
við sigur liðsins og skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Befanson.
Teitur hefur átt við mikla erfiðleika að stríða vegna meiðsla
síðastliðið eitt og hálft ár, en nú virðist vera heldur að rofa til
hjá honum. - Hann kom til Lens eftir að hafa gert garðinn
frægan með Öster í Svíþjóð, byrjaði vel með franska fyrstudeild-
ariiðinu, en meiddist síðan illa, og náði ekki að jafna sig fyrr
en síðastliðið vor. Þá kom harkan i heimi atvinnumennskunnar
berlega í Ijós, Teitur fékk ekki tækifæri með liðinu. Hann gerði
þá samning við Cannes, annarrardeildarlið í samnefndrí borg,
Hollywood Frakklands, og leikur þar stöðu miðframherja, í liði
sem rekið er af forríkum aðilum í kvikmyndaborginni.
- ' ■■■' ■. §Sjl
■ Teitur Þórðarson á fullri ferð með íslenska landsliðinu. Teitur hefur verið frá
keppni í langan tíma, og sér nú loks fram á betri tíð. Það er vonandi að meiðsli séu
liðin tíð hjá Teiti, hann hefur fengið nægilegan skammt af slíku.
■ „Það má segja að nú liggi leiðin
aðeins upp á við, ég var frá keppni í
næstum ár, og slíkt er náttúrulega mjög
niðurdrepandi fyrir mig sem
knattspyrnumann. Eg gekk í gegnum
mikla byrjunarörðugleika hér, komst
síðan af stað, meiddist og missti nokkra
leiki, en er nú kominn í fasta stöðu inni
í liðinu,“ sagði Teitur í samtali við
Tímann í gær.
Teitur sagði að Cannes væri í 5 sæti í
sínum riðli í annarri deildinni, en þrjú
lið flytjast milli deilda í Frakklandi.
Efsta lið í hvorum riðli fer beint upp í
aðra deild, en liðin í öðru sæti leika sín
á milli, og svo sigurvegarinn við þriðja
neðsta lið fyrstu deildar, „Hér er lögð
mikil áhersla á að koma liðinu upp í
fyrstu deild, það er bara verst að hér
kemur lítið af áhorfendum, kvikmynda-
leikarar og þess háttar fólk, sem er í
miklum meirihluta íbúa hér, kann ekki
nógu vel að meta knattspyrnu", sagði
Teitur.
„Ég náði mér loks af nárameiðslunum
í lok síðasta tímabils, síðan þegar ég
kom hingað niður eftir voru geysileg
viðbrigði vegna hitamismunarins. Þegar
ég kom hingað var allt upp í 40 til 45 stiga
hiti á æfingu, og það þoldi ég afskaplega
illa, léttist um 4 kílógrömm og missti
allan kraft. - Vegalengdin héðan norður
til Lens er nefnilega svipuð og frá Lens
upp til Svíþjóðar þar sem ég var. - Mér
var svo farið að ganga þokkalega, en
slasaðist þá aftur, fékk heiftarlegt spark,
og takki reif stærðar skurð á fótlegginn
á mér. -Ég átti nokkuð lengi í því, fékk
bakteríu í sárið - þær þrífast vel hér í
hitanum-og missti því úr nokkra leiki."
-Nú eru tvær vikur síðan ég kom inn
aftur, og þetta er loks að lagast. - Ég
náði að skora tvö mörk gegn Befanson í
3-1 sigri okkar um helgina og nú vonar
maður að leiðin liggi upp á við.“
Teitur sagði að í annarri deild í
Frakklandi væri leikin miklu grófari
knattspyrna. - „Það var harka í fyrstu
deildinni líka, en ekki nærri svonagróft.
Það eru talsvert mörg áhugamanna-
lið hér í annarri deildinni, og það er
hrcint eins og að mæta nautum. Að auki
eru Frakkarnir nokkuð blóðheitir,"
sagði Teitur.
Teitur sagði að hann stefndi á fullri
ferð áfram í knattspsyrnunni. -„Meðan
ég er í þessu legg ég mig allan í þetta,
það kemur náttúrulega að því að maður
snýr sér að einhverju öðru, fótbolti er
ekki það eina sem til er í lífinu, en nú er
stefnan upp“, sagði Teitur að lokunt.
Unglingamót
Ægis í sundi
■ Unglingainót Ægis i sundi verftur haldift
næstknmandi sunnudag, 6. nóvember í Sund-
hóll Reykjavíkur. Kcppt verður i cftirtöldum
greinum:
2(IOm skriftsund stúlknu
lOOm flugsund pilta
100 m bringusund telpna
lOOm bringusund drengja
50m skriðsund sveinu
5flm skriftsund meyja
_200m bringusund stúlkna
lOOm skriftsund pilta
lOOm baksund telpna
4\50m fjórsund pilta
4\50m fjórsund stúlkna
Þátttókutilkynningar eiga aft licrasf i dag
til Krislins Kolhcinssonar Granaskjóli 17,
sími 10963, efta til Gunnars Guftmundssonar
l.imlarbraul 5, sími 18134. Þálttökugjald er
krónur 30 fyrir liverja grein og 60 krónur fyrir
boftsund. Mótift hefst klukkan 15.00, en
upphitun klukkan 14.00. -SÖE
Stúdentar og
Laugdælir
■ í kvöld cr einn leikur í fyrstu deild
karla i körfuknattleik. Þar eigast viö
Stúdentar og Laugdælir, og verður
leikurinn í íþróttahúsi Kcnnaraháskól-
ans og hefst klukkan 20.00. Þá munu
Reynir og Fram lcika í öðrum flokki
pilta í Sandgerði á santa tíma.
-SÖE
UEFA-keppnin:
Aston Villa
dottið ut
Pfaff skoraði sigurmark Bayern!
- Frá Magnúsi Ólafssyni, íþróttafréttamanni
Tímans í V-Þýskalandi:
■ Eina breska liðið af tíu í EM-keppn-
unum sem féll í annarri umfcrðinni, var
Aston Villa. Þeir spiluðu þó á heima-
velli, og voru komnir með 2-2 jafntefli
frá Moskvu. Peter Withe skoraði í fyrri
hálfleik og allt lcit vel út. Á 46. mínútu
jöfnuðu Rússamir og sóttu síðan stíft.
Ekkert gekk, svo á síðustu sekúndum
leiksins reyndu gestirnir vonlaust
markskot. Boltinn rakst í varnarmann
Aston Villa og skoppaði þaðan í markið.
Nokkrum sekúndum síðar var flautað til
leiksloka. - Ægilegt áfall fyrir Birming-
ham-liðið.
Ekki var dramatíkin minni i Múnchcn,
þegar eina þýska liðið komst áfram.
Þegar venjulegum leiktíma og framleng-
ingu í leik Bayern Múnchen og PAOK
Saloniki var lokið var staðan 0-0. í víta-
spyrnukeppninni byrjuðu Grikkir, og eftir
níu umferðir var staðan 8-8. I tíundu
tilrauninni varði belgíski landsliðsmark-
vörðurinn Pfaff gæsilega, og síðan lét
þjálfari Bayern, Udo Lattek Pfaff sjálfan
taka næsta víti. Pfaff skoraði síðan af
öryggi, og Bayern marði þátttöku í
þriðju umferðina. Karl Heinz Rummen-
igge meiddist í leiknum, og var tekinn
útaf á 36. míoútu. Litli bróðir hans,
Michael misnotaði ein tíu dauðafæri í
leiknum.
-MÓ/SÖE
| — en Þjód-
| verjar lélegir
- Frá Magnúsi Ólafssyni íþróttafrétta-
manni Timans í V-Þýskalandi:
■ Þýsk lið hafa aldrei fengið jafn
Ihörmulega útreið í EM-keppnununt
í knattspyrnu og nú. Aðeins eitt lið,
jBayern Múnchen, komst áfram í
iþriðju umferð, og var stálheppið.
ISex þýsk lið hófu keppni.
| Breskum liðum hefur hins vegar
vegnað mjög vel. Af tíu liðum sem
léku í annarri umferð féll aðeins
Aston Villa út, og var þrælóheppið
-MÖ/SÖE
I
I
KA að fá G0ÐUR ARANGUR KR14.FL0KKI
m JUJnc rui furr h#»fnr LrnmifS from nrAii OF»rAi F»itt iufntr»fli r\n tonaAi ninnm Inih hrinn SvÓ mnrk;iWnnoiir í íclpnclrri Irnott-
liðsauka
— Hafþór og Sigurjón koma
um borð
Eins og fyrr hefur komið fram urðu
KR-ingar íslandsmeistarar í 4. aldurs-
flokki í knattspyrnu 1983. Strákarnir
létu ekki þar við sitja heldur bættu um
betur með sigri í haustmóti Reykjavíkur-
félaganna. Fyrr um sumarið hafði liðið
einnig sigrað i Reykjavíkurmótinu.
Árangur þessa liðs er með því besta
sem um getur á þessu sviði. Til marks
um það má nefna, að liðið lék alls 27
leiki á keppnistímabilinu, vann 25 leiki,
gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik.
Samtals skoraði liðið 145 mörk, en fékk
aðeins á sig 7. I Islandsmótinu lék liðið
á A-riðli með öllum sterkustu liðum
landsins í þessum aldursflokki og þar
gerði KR-liðið 65 mörk og er úrslita-
keppnin raunar þá talin með.
Einn leikmaður liðsins, Steinar Ingi-
mundarson skoraði hvorki meira né
minna en 64 mörk á keppnistímabilinu
og verður að telja ólíklegt annað en að
hann sé markakóngur í íslenskri knatt-
spyrnu 1983.
Ástæðan fyrir þessum góða árangri er
sú, að allir leikmenn hafa lagt sig fram
bæði við æfingar og í leikjum og því
hefur árangurinn orðið eins og að ofan
er greint. Þjálfari liðsins er Atli Helga-
son, margreyndur knattspyrnuþjálfari
og honum til halds og trausts hefur verið
Sigurður Ægir Jónsson, stjórnarmaður í
knattspyrnudeild KR. - SH
RÚSSAR LÁGU
Portsmouth
sigraði
■ Tveir leikir voru í annarri deildinni í
cnsku knattspyrnunni í lyrrakvöld.
Porismouth vann Camhridge 5-0, og
Cardiff vann Fulham 2-0. -SÖE
Frá Magnúsi Ólafssyni íþróttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Sovétmenn töpuðu sínum fyrsta leik
i handknattleik síðan þeir urðu heims-
meistarar í handknattleik síðast, í sínum
fyrsta leik í Super-Cup keppninni hér í
Þýskalandi, gegn Rúmenum. Úrslit í
keppninni hafa orðið þessi:
1. Umferð:
A-riðill:
V-Þýskal. (Ungl)-A-Þýskal
Rúmenía-Sovétr.............
16-28
22-19
B-riðUI:
V-Þýskal.-Svíþjóð...............19-18
Júgósl.-Tékkósl................20-20
2. Umferð:
A-riðill:
A-Þýskal.-Rúmenía...............19-21
Sovétr.-V-Þýskal.(Ungl)........26-24
B-riðill:
Júgósl.-Svíþjóð.................21-18
V-Þýskal.-Tékkósl...............13-16
Athygli vekur og slöpp frammmistaða
Sovétmanna gegn unglingaliði V-Þjóð-
verja. -MóFSÖE
Breiðablik vann
■ Einn leikur var leikinn „í felum“ í
annarri deild Islandsmótsins í hand-
knattleik um síðustu helgi. Þá léku Breiða-
blik og Reynir Sandgerði á heimavelli
þeirra síðarnefndu, og marði Breiðablik
sigur 22-21. Staðan í annarri deildinni er-
nú þessi:
ÞórVe......... 4 4 0 0 91:58 8
Fram ......... 4400 94:74 8
Grótta ....... 4 3 0 1 93:78 6
Breiðablik.... 4 3 0 1 80:68 6
HK ........... 4 1 0 3 72:83 2
ÍR............ 4 1 0 3 50:72 2
Fylkir........ 4 0 0 4 66:89 0
Reynir S .... 4 0 0 4 82:106 0
-SÖE
■ KA á Akureyri, sem orðið hefur
fyrir allmiklum mannskaða frá síðasta
sumri, þegar liðið vann sig upp í fyrstu
deild, hefur nú fengið allmikla bót á því.
Hafþór Kolbeinsson, sóknarmaðurinn
sterki úr liði Siglfirðinga hefur gengið til
liðs við Akureyringana, Sigurjón Krist-
insson Eyjamaður einnig. Áður höfðu
Gústaf Baldvinsson sem þjálfa mun
liðið, og Njáll Eiðsson Valsmaður geng-
ið til liðs við KA.
KA hafði misst úr herbúðum sínum
þá Gunnar Gíslason, sem leikur í V-
Þýskalandi, Jóhann Jakobsson, sem
fluttur er til Reykjavíkur, Ásbjörn
Magnússon og Eyjólf Ágústsson.
Mestur missir er KA líklega Gunnar
Gíslason, en þó er ekki öll von úti með
að hann styrki liðið næsta sumar, þar eð
Gunnar er á mjög opnum samningi við
v-þýska liðið Osnabruck. Mun samning-
urinn vera til eins árs, en uppsegjanlegur
eftir 3 mánuði. Þá er liðinu missir að
Jóhanni Jakobssyni, sem var ein megin-
stoð liðsins sl. sumar.
Hafþór Kolbeinsson vakti athygli sem
leikmaður síðastliðið sumar með KS.
Hann er stór og sterkur, fljótur sóknar-
maður. Þá er Sigurjón Kristinsson eld-
fljótur, og hefur hlotið haldgóða reynslu
með ÍBV. Ekki þarf að fara mörgum
orðum um þá Njál og Gústaf, það er
Ijóst að þeir styrkja liðið. KA-liðið
virðist því ætla að verða sterkt næsta
sumar. -gk/SÖE
Essen í
5 sæti
Frá Magnúsi Ólafssyni,iþrótta-
fréttaritara Tímans í V-Þýskalandi:
■ Essen, lið Alfreðs Gíslasonar er nú
í 5. sæti í Búndeslígunni í handbolta,
eftir sigurinn á Dankersen um síðustu
helgi.
Staða 5 efstu liða er þessi:
Grosswallstadt......, 162-131 15
Schwabing ........... 164-150 13
Göppingen ........ 180-164 12
Gummersbacl..........io3-135 11
Essen................133-118 10
Kiel er með 8 stig í 7. sæti, en Lemco
'er í neðsta sæti með 2 stig, eiga þó leik
til góða. Flest önnur félög hafa leikið 8
leiki. -MóL/SÖE
Aðalfundur
■ Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar ÍR
1983 verður haldinn flmmtudaginn 10.
nóvember næstkomandi á Hótel Sögu.
Fundurinn hefst klukkan 20.30.
■ Fjórði flokkur KR 1983, Reykjavíkurmeistarar, haustmeistarar og íslandsmeistarar. Á myndinni eru:
Fremsta röð frá vinstri: Sigurður Ægir Jónsson, liðsstjóri og umsjónarmaður, Hilmar Björnsson, Ingi Guðmundsson,
Viðar Halldórsson, Rúnar Kristinsson, Atli Helgason, þjálfari.
Miðröð frá vinstri: Ölafur Magnússon, Þorsteinn Guðjónsson, Gunnar Gíslason, Heimir Guðjónsson, Jóhann Lappas,
Stefán Guðmundsson og Þorsteinn Stefánsson.
Aftasta röð frá vinstri: Njáll Friðbertsson, Þormóður Egilsson, Steinar Ingimundarson, Guðni Hrafn Grétarsson,
Þorlákur Árnason, Hlynur Leifsson og Hörður Felix Harðarson, Ljósmynd Guðmundur Kr. Jóhannesson
Leiðbeinenda-
námskeið
- í almenningsíþróttum og
trimmi á vegum ÍSÍ
■ íþróttasamband íslands mun, dag-
ana 11-13 nóvember næstkomandi gang-
ast fyrir námskeiði fyrir leiðbeiné'ndur í
almcnningsíþróttum-trimmi. Markmið
námskeiða sem þessara er aö veita
þátttakendum undirstöðuþekkingu til að
leiðbeina og stjórna örvunaræfingum á
vinnustað og/eða í frítímum. Hugmyndin
er aö fyrirtæki og stofnanir hvetji áhuga-
samt stárfsfólk sitt að sækja námskeið,
og jafnvel greiða kostnað þess, með
nýtingu viökomandi til leiðbeininga á
staönum síðar. - ÍSÍ hélt slikt námskeið
siðastliðið suinar mcö góðum árangri.
Vænlanlégir þáttlakendur eru hcönir
að skrá sig sem allra fyrst, á skrifstofu
ÍSÍ, eða í síma 83377, en þar eru
upplýsingar veittar þeim sem ahuga hafa
á aö taka þátt, eða senda þátttakanda
eða þátttakcndur.
— SÖE
Strákarnir
töpuðu fyrir
Englendingum
■ íslenska unglingalandsliðið, skipað
leikmönnuni 18 ára og yngri tapaði
siðari leik sínum í Evrópukcppninni í
knattspyrnu gegn Englendingum í fyrra-
kvöld 0-3. Leikið var á Selhurst Park í
Lundúnum. Liðið er þar með úr kcppn-
inni, en strákarnir töpuðu á Melavellin-
um á dögunumjneð sömu tölum.
^SÖE