Tíminn - 03.11.1983, Page 12
'■•ý; 'v':>
.”D°ndadniir
ein)', þelta n!c
vortískunm Wiw.
• • má ó bessan m\nd-
■ „Hér meA er kvaddur líkaniinn.
mjaömir. brjóst, mitti og sér í lagi
hnakkimi, sá staöur líkamans, sent
Japanirnir leggja mesta áherslu á i
samhandi við kynþokkann. Glæsileg
eymdardyrkun rykkir efnin saman með
kílómetralöngum teygjum, sem ráða
vídd, handvegum og hálsmálum. Þegar
einn kjóll hefur verið litinn augum,
höfum við scð þá alla."
Þannig lýsir franskur tískusérfræð-
ingur vortískunni 19X4, en sýningar á
henni hafa staðiö yfir í höfuðborg
tískunnar, París.aðundanförnu. Flest-
um öðrum tískusérfræðingum kemur
þó saman um, að erfitt sé að henda
reiður á ákvcðnum línum í vortískunni.
Kenna þeir því um, að bæði sé
fjölhreytnin alveg gifurleg, og ekki
síöur hinu, að oft virðist boðskapurinn
stangast á. Það er einna helst, að þeir
koniist að þeirri niðurstöðu, að stcfnan
sé í átt til mýkri lína, margbreytilegra
skyrtna, kyrtla og víðra buxna. Jap-
önsk áhrif eru sögð áherandi.
Skýringar franskra tískuframleið-
enda, sem látnar eru fylgja vortískunni
1984, eru ekki síður ruglingslegar og
frumlegar en fatnaðurinn sjálfur. Sam-
kvæint þeim cinkennist tískan af
stríðsótta og óskinni um frið. Annars
vegar eru krossfararnir á leið til heims
án stríðs og deilna. Því til áréttingar
eru hoðherar friðarins klæddir herbún-
inguni undir afríkönskum áhrifum.
Hins vegar eru svo hrjálæðislega bjart-
sýnir ferðamenn, á ferðalagi um eigin
sögu, sem láta sér lynda áframhald
þróunar sjöunda áratugarins og vísa
heiminum í dag á bug mcð því að sýna
lífsgleði og ótæmandi lífsorku. Borgar-
búar verða ráðsettari og horgirnar
kyrrlátari. 1984 er injög óstööugur
tími. Nútiminn er vitni að afturhvarfi
til hreintrúarstefnu!
F.f einhver er enn í óvissu um
hrcinar og skýrar línur vorfískunnur
1984, eins og hún birtist í tískuhúsum
Parísar, getur verið að hún koniist að
einhverri niðurstöðu mcð því að líta á
myndirnar!
VORTÍSKAN1984
■ Jamaicatertan er falleg með
uiisniunandi ávöxtum. Kiwi-
ávöxtur cr ekki alltaf
fáanlegur, en þá er bara
að finna upp á einhverju
öðru í staðinn. Líka má
nota vexti úr dós
á tertuna.
rá Jamaica
Botnar
Byrjið á að mýkja smjörið og hrærið
ásamt sykri þar til er mjúkt og létt.
Hrærið eggin sér í skál og hrærið þau
síðan smátt og smátt saman við smjör-
sykurhræruna, og hrærið vel á milli.
Sigtið nú hveitið varlega saman við
deigið og hrærið varlega þar til allt er
hlandað vel saman. Setjið deigið í eitt
djúpt form, eða tvo tertuform og bakið
í 160 gr. heitum ofni (hitaður fyrirfram)
í um 45 mín.
Setjið tertubotnana á kökugrind eða
bökunarpappír og látið kólna. Hrærið
nú saman appelsínusafanum og flórsykr-
inum í skaftpotti yfir hita. Gerið smá-
rifur í botnana og hellið appelsínusykur-
bráðinni yfir og látið standa a.m.k. í
klukkutíma.
Krem og skreyting
Hrærið saman smjör. flórsykur. romm
(eða mjólk) og rommdropana þar til
kremið er mjúkt. Sctjið svolítið af
krcminu á niiili tcrtubotnanna (eða sker-
ið þykka botninn í sundur og setjið á
milli). Setjið afganginn af kreminu yfir
tertuna og á hliðarnar ef það er nóg til
þess. Setjið kókosmjöl utan á hliðar
tertunnar.
Sykurhuðin
Setjið ávaxtasafann, arrow root og
sykur í lítinn skaftpott. Hrærið stöðugt
í yfir meðalhita. Látið sjóða í u.þ.b. 2-3
mínútur. meðan þetta kólnará aðsneiða
ávextina og raða þeim ofan á tertuna.
Þegar sykurleðjan hefur kólnað svolítið
er henni smurt yfir ávextina.
Efni í botnana
175 gr sinjör eða smjörlíki
175 gr flórsykur
3 egg
175 gr hveiti
’A-l tesk lyftiduft
safi úr 2 appelsínum
125 gr flórsykur
Efni í krem
og ávaxtaskreytingu
75 gr smjör eða smjörlíki
175 gr flórsykur
1-2 matsk romm (dökkt) eða mjólk
Vi tesk rommdropar
50 g þurrkuð kókóshneta
Nýir ávextir i skraut, svo sem bananar,
Kiwiávöxtur, appelsínur, mandarínur,
vínber o.fl. eftir því sem til er.
Efni í sykurhúð
100 ml ávaxtasafi, t.d. appelsínusafi
1 Vi tesk arrowroot (má sleppa)
2 tesk sykur.