Tíminn - 04.11.1983, Síða 4
4
r-
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983
Ákveðið hefur verið
félag er standi að útgs..
Áskrifendum Tfmans,
öðrum velunnurum
gefst nú kostur í
htutabréf f fétaginu.
lillllll
wœmrné
111«
Staðgreitt við stofnun félagsins
Verðtryggð skulda-
bréf til eins árs
Verðtryggð skulda-
bréf til tveggja ára
Verðtryggð skulda-
bréf til þriggja ára
Mánaðarlegar greiðslur
Ársfjórðungslegar greiðslur
Mánaðarlegar greiðslur
Arsfjórðungslegar greiðslur
Mánaðarlegar greiðslur
Arsfjórðungslegar greiðslur
NAFN OG NAFNNÚMER
HEIMILI: SÍMI
PÓSTNÚMER OG STAÐUR
sem fyrst til
svar yðar
4?.
POSTHOLF 5531
125 REYKJAVÍK
fréttir
Ný umferðar-
Ijós sett upp
■ Kveikt verður á tvennum nýjum,
hnappastýrðum umferðarljósum fyrir
gangandi vegfarendur laugardaginn 5.
nóvember. Önnur ijósin eru í Elliðavogi
sunnan Sægarða á móts við Kleppsspít-
ala en á þessum" stað var áður zebra-
braut. Hin ljósin eru á Hverfisgötu rétt
vestan Frakkastígs.
Þessi Ijós eru gangbrautarljós þannig
að fótgangendur geta kallað á grænt Ijós
yfir göturnar með því að ýta á hnapp en
að öðru jöfnu logar grænt ljós móti
ökumönnum.
Berjast við
krabbameinið:
Fjársöfnun á
laugardaginn
■ Á laugardaginn kemur fer fram al-
menn fjársögnun á Suðurlandi til kaupa
á Sonar-tæki, sem gefa skal Sjúkrahúsi
Suðurlands. Búið er að panta tækið og
verður það tilbúið til afgreiðslu í lok
nóvember. Tæki sem þessi eru mjög
notuð við greiningu á ýmiskonar æxlum
í kviðar- og grindarholi og eru ómetanleg
við rannsóknir á nýrum, briskirtli, lifur
og gallvegum.
Það er Samband sunnlenskra kvenna
sem á frumkvæðið að söfnuninni og
margir einstaklingar og félagasamtök
hafa þegar lagt þessu máli lið. Tækið er
gefið til minningar um Guðmund Jó-
hannesson, lækni, en hann var einn
aðalhvatamaður að stofnun krabba-
meinsleitarstöðvar við Sjúkrahús Suður-
lands.
Á Iaugardaginn ganga kvenfélagskon-
ur í hús, hver á sínu félagssvæði. Þá
munu formenn kvenfélaganna veita
framlögum viðtöku og hægt er að leggja
fé inn í sparisjóðsbók nr. 16774 í
Landsbankanum á Selfossi.
Álafossverk-
smidjan:
Athugað
verdi með
hvaða starfs-
fólk geti
hlutafé
■ Á fundi í stjórn Framkvæmdastofn-
unar s.l. þriðjudag var tekið fyrir erindi
frá Starfsmannafélagi Álafoss þess efnis
að athugað verði hvort og með hvaða
hætti starfsfólk fyrirtækisins fengi keypt-
an hlut í fyrirtækinu, komi til sölu
hlutabréfa þess, sem eru í eigu Fram-
kvæmdasjóðs ríkisins.
Stjórnin samþykkti að mæla með því
að kannað yrði til hlítar með hvaða hætti
mætti koma þessum kaupum í kring, og
hvaða skilyrðum þyrfti að fullnægja í því
sambandi. Jafnframt ítrekaði stjórn
Framkvæmdastofnunar að sala hluta-
bréfa í Álafossi væri hennar málefni, þar
sem hún hefði með höndum stjórn
framkvæmdasjóðs og þar heyrði ráð-
stöfun á fjármunum hans, þar með
töldum hlutabréfum í eigu hans. JGK
Veitir aðstoð
vegna jarð-
skjálftanna f
Tyrklandi
■ Rauði kross íslands hefur gert ráð-
stafanir til að unnt verði að veita fé úr
hjálparsjóði til stuðnings þeirra sem búa
nú við neyð vegna jarðskjálftanna í
Tyrklandi. Hefur Alþjóðarauðikrossinn
sent út hjálparbeiðnir til aðildarland-
anna um skjóta hjálp. Þegar hafa verið
send 6000 tjöld og 35000 teppi til jarð-
skjálftasvæðanna af hálfu Alþjóða-
rauðakrossins. Óttast er að fjölmargir
deyi úr kulda næstu daga berist ekki
skjót hjálp.
íslandsdeildin minnir í þessu sam-
bandi á að gírónúmer hjálparsjóðsins er
90 000-1 og hvetur íslendinga til að
leggja sitt af mörkum til hjálparstarfsins.
JGK