Tíminn - 04.11.1983, Page 5
■ Þrír fulltrúar Samtaka herstöðvaandstæðinga gengu á miðvikudag á fund Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra
og afhentu honum samþykkt samráðsfundar norrænna friðarhreyfinga um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum sem
haldinn var 23.-24. aprfl s.l., en samþykktin hefur verið þýdd og gefln út í bæklingi. Jafnhliða var ráðherra afhent áskorun
um að Island leiti samstöðu með Norðurlandaþjóðunum um kjarnorkuvopnalaust svæði og fríðlýsingu Norður-Atlantshafs-
ins. F.v. Steingrímur Hermannssoon, Arnþór Helgason, Rósa H. Steingrímsdóttir og Atli Gíslason. Tímamynd GE
taka þátt 24 sveitir, þar af 11 utan af
landi og keppt verður um farandbikar
sem Flugleiðir hafa látið gera. Auk þess
eru fleiri verðlaun í boði, jafnt til
skáksveita sem einstaklinga innan
þeirra.
Fram að þessu hefur sveit Búnaðar-
banka íslands sigrað þrisvar með á
Flugleiðaskákmótum en sveit Útvegs-
banka íslands einu sinni.
Flugleiðaskákmótið hefst kl. níu á
laugardagsmsorgun, 12. nóvember í
Kristalssal Hótel Loftleiða og verða
tefldar 23 umferðir. Mótinu lýkur með
verðlaunaafhendingu á sunnudagskvöid.
Skákstjórar verða Hálfdán Hermanns-
son og Andri Hrólfsson.
■ Flugleiðaskákmótið 1983 fer fram
dagana 12. og 13. nóvember að Hótel
Loftleiðum. Þetta er í fimmta sinn sem
Flugleiðir efna til stórmóts af þessu tagi
en hið fyrsta fór fram árið 1979. í mótinu
Höfn í Hornafirdi:
BÆNDUR LATA GUEPJ-
AST AF GULLKALFINUM
— „en hirðaekki nægilega um eigin kálfa’%
segir f ritstjórnargrein Eystra-horns
■ Og nú er fólksflóttinn að hefjast.
Það verður að bregðast hart við“ segir í
leiðara Eystra-horns, blaðs sem gefið er
út á Höfn í Homaflrði og við svipaðan tón
hefur kveðið í leiðurum blaðsins áður.
„Það hefur komið fram sú hugmynd að
fá togara til Hafnar“, segir ennfremur
„til að útvega hráefni til vinnslu í
frystihúsinu þegar það vantar milli ver-
tíða. Það kann að hljóma undarlega að
togari geti gert gagn á tímum ofveiði og
ofvaxins skipastóls, en eitthvað verður
að gera til þess að koma í veg fyrir
fólksflóttann, og það þarf að flnna
svigrúm til að koma hér á fót fram-
leiðslufyrirtækjum, sem standa á traust-
um fótum og veita örugga atvinnu. Ekki
stórgróðafyrirtæki heldur fyrirtæki sem
skapa þau verðmæti sem eru öllum
fremri, öruggt og rótgróið samfélag.“
Byggðin á Höfn hefur verið í hægum
uppgangi undanfarinn framsóknarára-
tug. Fjölgunin þar verið stöðug og jöfn,
mikið byggt og segja má að „smjör hafi
dropið af hverju strái1', en svo vitnað sé
í leiðarann „Hornfirðingar hafa lifað um
efni fram rétt eins og aðrir landsmenn.
Þeir hafa ekki hirt um það að safna forða
til mögru áranna heldur eytt og sólund-
að fengnum í innihaldslausu lífsgæða-
kapphlaupi. Verslanir hafa risið upp í
öðrum hverjum bílskúr og ýmislegt fleira
gert í þeim dúr til þess að krækja í sem
mest af hagnaðinum. Bændur í nágrenni
Hafnar hafa látið glepjast af gulikálfin-
um, en ekki hirt nægilega um eigin kálfa,
enda búskapur á undanhaldi í Nesjum
og víðar", segir m.a. í leiðara Eystra-
hornsins.
-BK
Gítartónlist
í Selfosskirkju
Símon H. ívarsson leikur spænska
tónlistp klassiska og flamengo
■ Kvenfélagið Hringurinn heldur sinn árlega handavinnu og kökubasar í Vörðu-
skóla á Skólavörðuholti laugardaginn 5. nóvember og hefst hann kl. 14. Allur ágóði
af basarnum rennur til líknarmála, sem og aðrar fjáraflanir Hringsins, síðustu árin
hefur félagið safnað fé til tækjakaupa fyrir allar deildir Barnaspítala Hringsins og
meðal annars gaf félagið lessjónvarp ásamt fjölritara fyrir blind og sjónskert börn á
síðasta ári.
Á myndinni sjást nokkrar félagskonur tneð sýnishorn af handavinnunni sem verður
á boðstólum á basarnum. Tímamynd GE
■ Gítarleikarinn Símon H. ívarsson
heldur tónleika í Selfosskirkju á
morgun, laugardag, klukkan 17:00. Á
efnisskrá, sem er tvíþætt, er spænsk
tónlist. Fyrri helming tónleikanna leikur
Símon klassísk verk, meðal annars eftir
Albeniz, Turina, Taggerga og fleiri. Svo
verður leikin flamenco tónlist, en Símon
er eini íslendingurinn sem leikur flam-
enco og hcfur hann sótt námskeið hjá
prófessor Andreas Batista í Madrid og
lært þaðsérstaklega. Klassiskan gítarleik
stundaði Símon hjá Tónskóla Sigur-
sveins undir leiðsögn Gunnars H. Jóns-
sonar, og síðan við Tónlistarháskólann í
Vínarborg, hjá hinum fræga prófessor
karls Scheit.
Einstæðir
foreidrar:
Meðlags-
greiðslur
ættu að
hækka
■ Félagsfundur hjá einstæðum for-
eldrum telur nú að meðlagsgreiðslur
hrökkvi nú aðeins fyrir 1/4 af fram-
færslukostnaði bams og skorar fund-
urinn á meðlagsgreiðendur að hækka
meðlagsgreiðslur að eigin frunikvæði
það mikið að þær nálgist það að vcra
hehningur af framfærslukostnaði
barns, en hann er 77.520 krónur á ári
sé mark takandi á nýlegri könnun
félagsins.
A sanm tima og framfærslukostn-
aður hcfur hækkað langt umfrain
laun hefur barnsmeðlag aðeins
hækkað til samræmis við laun. Sá
aðili sem aðeins greiðir lágmarks-
meðlag með börnum sínum hefur því
sloppið við kjaraskerðingu hvað
varðar framfærslu harna sinna. Því
mcira óréttlæti felist í þessu sé að því
gætt að það foreldr! sem ekki hcfur
forsjá barnsins hefur meiri mögu-
leika til þess að mæta kjaraskcrðing-
unni mcð aukinni vinnu. þ.e. á máli
möppudýra: „aflahæfi" þess sé
meira, en í 15. grein barnalaga segir
„Framfærslueyrir skal ákveðinn með
hliðsjón af þörfum barns og fjárhags-
stöðu beggja foreldra, og öðrum
aðstæðum, þ.á.m. aflahæfi".
tíK
Flugleiðaskák-
mótið í 5. sinn
■ Þrír af forsvarsmönnum Flugleiða-
skákmótsins með verðlaunabikarinn sem
keppt er um. Frá vinstri eru: Andrí
Hrólfsson, Björn Theodórsson og Hálf-
dán Hermannsson.