Tíminn - 04.11.1983, Qupperneq 20
Opiö virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA.
ARMULA3 SIMI 81411
ú \xabriel
HHÖGGDEYFAR
y OSvarahlutir . Sími 36510.
Cttttiutl Rftstjorn 86300 - Augfysingar 18300 - Afgreiðsla og askritt 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Föstudaeur 4. nóvember 1983
Stórhugur hjá Kattavinafélagi íslands:
HYGGST BYGGJA KATTAR-
HÖTEL FYRIR 109 KETTI
— „Höfum enga kostnaðaráætlun gert — treystum á Guð og lukkuna”
FRIÐSÆUR
LAUGARDAGAR
FRAMUNDAN
— Stórmark-
aðirnir ætla
ekki að
brjóta reglur
um opnunar-
tíma verslana
■ Þótt svartsyni og barlómur
setji mestan svip á þjódlífíð um
þessar mundir er ekki allur stór-
hugur úr þjóðinni ennþá. Það
sést m.a. á umsvifum Kattavina-
félags íslands, sem hefur sótt um
leyfi til borgaryfirvalda til að fá
að byggja þjónustumiðstöð fyrir
ketti á 19652 lóð sem félagið
hefur fengið úthlutaö við Stang-
arhyl í Reykjavík. Þjónustumið-
stöðin á að vera á tveim hæðum,
neðri hæðin 459.52 og sú efri
222.22 eða alls 6822 að gólffleti.
„Nei við höfum enga kostnaðar-
áætlun gert, við treystum bara á
guð og lukkuna,“ sagði Svanlaug
Löve formaður Kattavinafélags-
ins í samtali við blaðið í gær.1
„Það liggja hins vegar fyrir full-
gerðar teikningar, sem húsa-
meistari ríkisins gerði.“
- Hvað gerið
geta hý:
nýja húsnæði?
; „109.“
- Og hvaða hlutverki gegnir
svona þjónustumiðstöð?
„Hún á að vera fólgin í því að
þarna á að vera kattageymsla,
sérstaklega fyrir dýr sem ein-
hverra hluta vegna hafa lent á
götunni; svo að þau séu ekki að
þvælast úti köld og glorsoltin.
Það er ólíðandi og við höfum
alltaf lagt sérstaka áherslu á
þetta hjá Kattavinafélaginu. Svo
verðum við með þjónustu við
fólk sem þarf að koma köttum í
geymslu af ýmis konar ástæðum,
vegna sjúkdóma, heimilis-
ástæðna eða ferðalaga. Katta-
vinafélagið er bráðum 8 ára
gamalt og hefur rekið gistiheimili
í 61Ó ár og það hefur verið mikil
eftirspurn.
Auk þessa verður svo þarna
dýralæknisþjónusta. Dýralæknir
Kattavinafélagsins, Brynjólfur
Sandholt, héraðsdýralæknir
verður þar með aðstöðu."
- Er þetta ekki dálítið ríflegt
húsnæði fyrir 109 ketti?
„Það er geysilega stórt hús-
næði og við ætlumst til að þarna
verði tvær íbúðir, vegna þess að
það verður að vera hægt að hafa
skiptivaktir og þá þurfa að geta
búið þarna tvær fjölskyldur. Það
verður alltaf að vera einhver við
til að ansa um nætur ef með þarf.
Nú svo er dýralæknisaðstaðan
og pláss til að geyma dýr eftir
uppskurði og mikið pláss þarf að
vera fyrir þá ketti sem verða í
geymslu, síðan þarf auðvitað að
vera eldhús, þar sem hægt er að
elda handa þeim. Það verður
geysileg vinna við þetta, hirða
kettina og þrífa í kringum þá.“
- Þetta er geysilega stór lóð.
Ætlið þið að skipuleggja útivist-
arsvæði fyrir kettina.
„Það má vel vera, en við
viljum geta stækkað við okkur.
Það verður örugglega þörf fyrir
það þegar fram líða stundir."
Samkvæmt því sem blaðamað-
ur kemst næst kemur kostnaður
við byggingu þjónustumiðstöðv-
arinnar til að nema 12-15 millj-
ónum króna, eða rúmlega 100
þúsund krónum á hvern kött,
sem þar á að vera aðstaða fyrir.
Slagar það hátt upp í kostnað við
nýja heilsugæslustöð af meðal-
stærð. JGK
bbHHI
■ Húsið á myndinni hefur’Tiklégir veriö orðið þreytt á
aðgerðaleysinu og virðist vera á leiðinni a stefnumót „fyrir
sunnan Fríkirkjuna“. Hugsast gæti að fólkið sem erá leið yfir
götuna hafi einhvern tíma lent þar á stefnumóti líka.
Tímamynd Árni Sæberg
ISLENMNGAR FA
ALLAN KVÓTANN
■ „Niðurstaðan var sú að | um að veiða það allt saman,", I niðurstöður fundar í norsk-ís-
Norðmennirnir samþykktu sagði Jón L. Arnalds, ráðuncyt- lensku fiskveiðinefndinni, sem
þennan kvóta, það cr að segja isstjóri í sjávarútvegsráðuneyt- fjallaði um skiptingu loðnukvóta
375 þúsund tonn og að við fengj- | inu, þegarhann var spurður um | í Osló.
Nordmenn
eiga inni 33
þúsund tonn
af loðnu
Jón sagði, að Norðmennirnir
ættu þá inni hjá okkur 33 þúsund
tonn sem þeir væntanlega myndu
veiða næsta sumar eða haust ef
ástand loðnustofnsins leyfði.
■ Hagkaup, JL-húsið
og Kjötmiöstöðin ætla að
fylgja reglum um lokun-
artíma verslana á laugar-
daginn. Það þýðir að þær
loka ki. 12 á hádegi eins
og aðrar verslanir.
Þessar verslanir viija brjóta
upp þær takmarkanir sem eru
á opnunartíma. Þær höfðu náð
samkomuiagi við starfsfólk sitt
um að hafa opið til kl. 16 á
laugardögum og reyndu það
fyrir nokkrum vikum en þá
stöðvaði lögreglan tiltækið.
Gildandi regium um opnunar-
tíma verslana eru háðar sam-
þykki borgarstjórnar, og þess-
um reglum hefur ekki verið
breytt þrátt fyrir það að meiri-
hluti borgarfulltrúa hefur iýst
sig samþykka því að rýmka
Mlf,* • •UOlUtV ----
Kaupmannasamtökin eru
andvíg því að rýmka af-
greiðslutímann og sðmuleiðis
brýtur það í bága við kjara-
samning Verslunarmannafél-
ags Reykjavíkur, þar sem inn í
sjálfum kjarasantningnum er
ákvæði um afgreiðslutíma
verslana og er það ákvæðf
samhljóða þeirri reglugerð sem
cr í gildi. Við því ákvæði
kjarasamningsins er ekkert
hægt að hrófla við fyrr en eftir
1. febrúar vegna bráðabirgða-
laga ríkisstjórnarinnar sem
■banna allar breytingar á kjara-
samningum. Þar af leiðir að
starfsfólk verslana má ekki
vinna eftir hádegi á laugar-
dögum fari það eftir samning-
unt. Það eru því mörg ljón á
veginum sem hindra það að
afgreiðslutími verslana í
Reykjavík verði rýmkaður. Á
mcðan verslar fólk í nágranna-
byggðunum, segja forsvars-
menn ofangreindra verslana,
og eftir því sem það ástand
vurir lengur því örðugra verður
að fá fólk til þess að beina
vcrslun sinni til Reykjavíkur
aftur.
- BK
dropar
Óvæntur heiður
■ Kftirfarandi klausa úr
Þjóðviljanum skýrir sig sjáif:
„Stefán Edelstein kom að máli
við blaðið og þakkaði þann
óvænta heiður sem sér hefði
hlotnast í viðtaii á 2. síðu
blaðsins í gær, þar sem honum
er bæði eignaður doktorstitill
og sagður eiga hugmyndina að
íslensku menningarvikunni í
Vestur-Berlín. Þetta væri lofs-
verður velvilji í sinn garð, en
engu að síður værí það nú svo
að hann hefði ekki doktors-
gráðu og ætti ekki hugmynd-
Óskabarn á
villigötum
■ Yfirleitt er það af hinu
góða þegar gott og náið sam-
starf tekst á milli ólíkra aðila
þannig að hvor aðili um sig geti
skarað eid að sinni eigin köku.
Öðru máli gegnir þegar aðilar
hafa skyldum að gegna gagn-
vart fleiri en einum aðila, og
hampa einurn á kostnað ann-
arra, þrátt fyrir gefin loforð
um að standa óðruvísi að
málum.
Þannig háttar, að því er
virðist, samstarfi milli „óska-
bams þjóðarinnar“, þ.e. Eim-
skips, og Morgunblaðsins hins
vegar. Til að mynda kemur
það ótrúlcga oft fyrir að atvik
eða atburðir sem fréttatengdir
eru Eimskip birtast á síðum
„blaðs allra landsmanna“ en
tveimur dögum seinna er send
orðrétt fréttatilkynning í sömu
veru til annarra fjölmiðla.
Sama virðist eiga sér stað
þegar myndir eiga í hlut. Ekki
þarf að rílja upp fyrir iesendum
þann óhugnalega atburð er
leiguskip Eimskipafélagsins,
Kampen fórst fyrir Suðurlandi
fyrr í vikunni. Sama kvöld og
atburðurinn gerðist lofaði fél-
agið að útvega fjölmiðlum
myndir af skipinu eins og það
leit út áður en ósköpin dundu
yfir. Mynd af ms. Kampen yrði
framkölluð í Myndmót hf. í sex
eintökum og værí ijölmiðlum
frjálst að nálgast eitt eintak.
Við hér á Tímanum sendum
mann niður eftir og alitaf var
myndin á leiðinni, en allt kom
fyrir ekki, og klukkan eitt eftir
miðnætti var ákveðið að bíða
ekki lengur eftir henni. Hún
birtist hins vegar á forsíðu
Morgunblaðsins daginn eftir,
enda fór myndin aldrei í Mynd-
---------------------|gpy:
mót hf. sem er til húsa í
margnefndu Morgunblaðshúsi
eins og upphaflega var talað
um, heldur beint inn á rit-
stjórnarskirfstofur Moggans.
Úr því þetta er stefna Eim-
skipafélagsins í samskiptum
við Ijölmiðla, þá ætti félagið
að sjá sóma sinn í því að
opinbera hana og hætta að
þreyta aðra fjölmiðla, úr því
„málgagnið“ gengur fyrír.
Krummi . . .
...trúir að ekki væsi um þá í
nýju Kattarhöllinni