Tíminn - 12.11.1983, Síða 10
Toppslagur
og botnslagur
- í körfunni um helgina
■ Um helgina eru tveir allmerkilegir leikir í
úrvalsdeild íslandsmótsins í körfuknattleik,
Annars vegar mætast botnlið deildarinnar, og
hins vegar toppliðin. Valsmenn keppa við
Njarðvíkinga á toppnum, og Haukar fá IR-inga
í heimsókn.
Leikur Vals og Njarðvíkur er á morgun
klukkan 14.00 í íþróttahúsi Seljaskóla. Vals-
menn eiga þar harma að hefna, því Njarðvík-
ingar sigruðu þá í fyrsta leik liðanna í Njarðvík
á dögunum í miklum baráttuleik.
Valur og Njarðvík eru nú efst og jöfn í
úrvalsdeildinni, og því líklegt að barist verði til
þrautar.
ÍR-ingar fara í Hafnarfjörð og eiga þar við
Hauka. Haukar sigruðu í fyrri viðureign lið-
anna, en í síðasta leik sínum unnu ÍR-ingar sér
það til frægðar að sigra topplið Njarðvíkinga,
um leið og þeir kræktu í sinn fyrsta sigur. Allt
útlit er því fyrir hörkuviðureign. Leikurinn er í
dag klukkan 14.00 í Hafnarfirði.
í fyrstu deild karla eru tveir leikir í dag og á
morgun, Laugdælir keppa við Pór frá Akureyri
á Selfossi í dag klukkan 15.00, og á morgun
keppa Framarar við Þór í Hagaskóla klukkan
14.00.
{ fyrstu deild kvenna keppa Snæfell og ÍS í
dag í Borgarnesi kl. 15.30, og á morgun eru
tveir leikir, báðir klukkan 15.30. KR og
Njarðvtk í Hagaskóla, og ÍR og Haukar í
Seljaskóla.
í annarri deild karla keppa í dag Snæfell og
Breiðablik í Borgarnesi klukkan 17.00, og ÍA
og Tindastóll á Akranesi klukkan 14.00.
-SÖE
rvemenaur lprottakennaraskola lslands
Reykjavíkur um hádegisbilið í gær, þá
að varpa kúlu alla leið frá Laugarvatni.
var framið til styrktar þeim íslensk-
ttamönnum sem fara munu á Ólympíu-
á næsta ári. Ferðin tók í heild tæpan
en langferðabíl fylgdi unga fólkinu
leið. Engin þreytumerki var að sjá á
sem tóku sig til og skokk-
þeir sem ekki vörpuðu, í gegnum
til Laugardalsvallar, þar semkúlu
É-SÖE
Tímantynd Rdbert
Þórssigur
í Eyjum
■ Frá Sigfúsi G Guðmundssyni í Vest*
mannaeyjum:
Þórsarar sigruðu Gróttu naumlega í
annarri deOdinni í handbolta í gærkvöld
21-20, í spennandi leik. Staðan var 10-8
Gróttu í hag í hálfleik, en í síðari hálfleik
tókst Þór að gera út um leikinn.
Gylfi Birgisson og Sigmar Þröstur
markvörður voru bestu menn Þórs í
leiknum, en Þorbergur Aðalsteinsson
var tekinn úr umferð. Gylfi skoraði 9
mörk, Þorbergur 5, Þór Valtýsson 3, og
Herbert, Sigbjöm Óskar og Ragnar 1
Fyrsti sigur
Skagastúlkna
■ Skagastúlkumar unnu sinn fyrsta
sigur í ár í fyrstu deild kvenna í
handknattleik í gærkvöld, er þær
sigruðu KR verðskuldað á Akranesi
15-14. Staðan í hálfleik var 8-4 í A í
hag.
Laufey var atkvæðamest Skaga-
stúlknanna skoraði 5 mörk, Ragn-
heiður Jónas sömuleiðis knatt-
spyrnukona 4, Hrefna 2, Ágústa 2 og
Karitas 2. Hjördis skoraði mest KR-
stúlknanna, 4 mörk, Sigurbjörg 3,
Jóhanna 2, Valdís 2 og Kristbjörg 1.
-SÖE
hver. Sigmar Þröstur varði 15 skot, þar
af eitt víti. Sverrir Sverrisson var atkvæða-
mestur Gróttumanna, skoraði 7 mörk, 2
úr vítum. Svavar Magnússon skoraði 4,
Gunnar Lúðvíks 3(1), Jóhannes Benja-
mínsson 3, Kristján Guðlaugsson 3 og
Gunnar Halldórsson markvörður varði
13 skot.
■ Margt bendir nú til að Óli Þór
Magnússon, framherji Keflvíkinga og
íslenska landsliðsins í knattspymu muni
skipta um félag fyrir vorið, og fara til
Þórs á Akureyri. Þegar Óli Þór var
spurður um þetta, sagðist hann ætla að
hugsa málið yfir helgina.
Þór á Akureyri gerði Óla Þór tilboð
fyrir nokkru um að koma norður og taka
stöðu Helga Bentssonar. Óli hefur ekki
enn svarað tilboði Akureyringanna, en
margt bendir til að Óli slái til. Óli Þór
sagði í samtali við Tímann, að hann
hefði ekki ákveðið sig, en sig langaði
■ Óli Þór Magnússon á leið til
Akureyrar?
óneitanlega að breyta aðeins fil.
Það er ljóst að ef Óli Þór fer norður,
verður það mikil blóðtaka fyrir Keflavík-
urliðið. Óli hefur verið einn burðarása
liðs ÍBK um nokkurt skeið, og að auki
staðið sig með prýði með 21 árs landslið-
inu.
Talið er að Akureyringar muni þurfa
að geta boðið Óla gott starf, þvt' hann er
í vellaunuðu starfi fyrir í Keflavík.
Margt bendir þó til að Óli fari norður,
því hann mun eiga unnustu nyrðra, svo
fleira spilar inn í en fótboltinn.
-Tóp/SÖE
SGG -SOE
Fer Óli Þór
til
ISHIDfl
________vogir, fyrir verksmiðjur,
frystihús, sláturhús, kjötvinnslustöðvar,
vöruafgreiðslur o.fl.
MEÐ EÐA
ÁN PRENTARA
Vatnsvarðar
Miða-
prentari
DAP-20
Vogarpallar
afýmsum gerðum
Strimil-
prentari
Skýrirstafir í Ijósaboröi.
Þægilegt takkaborð.
Auðvelt að þrífa.
* Vogarþol. 5 stærðir: 6 kg, 30 kg,
150 kg og 300 kg.
* Vogargerð. 4 gerðir: Fyrir raf-
hlöður, með verðútreikningi, check-
vigtun, eingöngu vigtun.
Barðvogir, gólfvogireða vogirsem
passa inn í færibönd.
PLASTPOKAR
O 82655
PLASTPOKAR
O 82655
ÓSTAÐFESTAR PANTANIR OSKAST STAÐFESTAR STRAX
„VIÐ MÆTUM
0HRÆDDIR - STAÐ-
RAÐNIR í AD SIGRA”
— Segir Jóhannes Stefánsson, sem leikur með
KR í dag gegn HC Berchem
■ „Við mætum óhræddir til leiks,
staðráðnir í að sigra HC Berchem. Við
erum ákveðnir í að komast í átta liða
úrslitin", sagði Jóhannes Stefánsson,
línumaðurinn eitilharði í KR-liðinu í
samtali við Tímann í gær. „Það verður
ekkert gefið eftir. - Við höfum verið að
skoða þessa kalla á vídeóspólum og það
er ekkert leyndarmál, að þetta virðist
ekki ætla að verða létt,“ sagði Jóhannes.
„Menn mega ekki taka þetta lið eins
og hvert annað Lúxemborgarlið, eins og
þau hafa komið fram undanfarin ár.
Framfarirnar í Luxemborgarlið, eins og
þau hafa komið fram undanfarin ár.
Framfarirnar í Luxemborg virðast ver
alveg ótrúlegar. Mér sýnist þessir menn
vera meira en hættulegir. Lúxemborgar-
ar kunnu ekki að spila handbolta fyrir
6-7 árum, þegar við tókum „Red boys“
þaðan til dæmis. En þetta er bara allt
annað. Þarna eru þrír Pólverjar sem
virðast bera þetta uppi. Einn þeirra er
örvhentur, spilar fyrir utan og virðist
vera dálítið þungur. En hann er mikil
skytta og gefur grimmt á línuna. Svo er
þjálfarinn stjórnandi miðjumaður.
Bogdan segir okkur að hann sé mjög
góður, og hann vann fyrir þá seinni
leikinn gegn Hollendingunum. Mark-
vörðurinn er pólskur líka og er mjög
sterkur, að sögn Bogdans. - Það er engin
spurning að það þarf átak til að vinna þá
og þetta verður að mínu áliti mjög
erfitt," sagði Jóhannes.
Jóhannes sagði að spurningin væri sú,
hvort hinir ungu og efnilegu útispilarai
KR mundu halda út. „Sóknarleikurinn
hefur ekki tekist sem skyldi hjá okkur í
vetur. Til dæmis á móti FH og Víkingi,
þá töpuðum við leikjum sem við í ráun
vorum búnir að vinna, með óöguðu spili
í lokin, allt of stuttum sóknum og því
umlíku. Á meðan við höldum okkur frá
því, eigum við að vinna þetta. Ef
sóknarleikurinn gengur upp, ætti þetta
að ganga. Ég er ekki hræddur við
varnarleikinn, við höfum mjög góða
vörn. Og við stefnum óhræddir til
sigurs", sagði Jóhannes Stefánsson að
lokum.
- SÖE
■ Jóhannes Stefánsson á fullri ferð á linunni. Hann þarf áreiðanlega að taka á eins
og aðrir KR-ingar í dag gegn HC Berchem.
Stórleikur
í blakínu
- Þróttur og ÍS mætast í dag
■ Stórleikur eru í blakinu í dag. Blakrisamir
svonefndu, ÍS og Þróttur, hittast í dag i íþrótta-
húsi Hagaskóla klukkan 14.00. Verður þar
væntanlega um hörkuviðuretgn þeirra stóru að ræða
eins og venjulega og má reikna með fimm hrinu
leik. Strax á eftír keppa nýliðar i deildinni, Fram
og HK. Þar ætti einnig að geta orðið hörku-
viðureign, bæði liðin sterkari en þegar þau
mættust síðast, en það var á síðasta ári. Framarar
em eina liðið sem heftir sigrað Þrótt í vetur, náðu
því í Reykjavikurmótinu, en HK kom sterkt til
leiks gegn IS á dögunum og sigraði örugglega.
I fyrstu deild kvenna keppa Völsungsstúlkur
við Víking og er áætlað að lcikurinn hefjist
klukkan 16.40 í íþróttahúsi Hagaskóla...
-SÖE
Handboltinn
j um helgina:
■ Auk stórleiks KR og HC Berchem í
/ Evrópukeppni bikarhafa, sem fjallað er um
annars staðar á síðunni, em tveir leikir í fyrstu
deild karla í handknattleik um helgina. KA og
Stjaman keppa á Akureyri í dag klukkan 14.00,
og Þróttur og Haukar eigast við í Höllinni á
morgun klukkan 14.00.
í annarri deild karla er einnig helgi minni
spámanna, ef frá er skilið toppuppgjör Fram og
Breiðabliks á morgun í íþróttahúsinu við Skála-
heiði. Leikur sá hefst klukkan 15.15. í dag
keppa Fylkir og HK í íþróttahúsi Seljaskóla
klukkan 15.15 og á morgun ÍR og Reynir á
sama stað Idukkan 20.15.
í dag keppa Fylkir og FH ■ 1. deild kvenna ■
handboltanum, klukkan 16.30 í Seljaskóla. Á
morgun keppa ÍR og Valur í Seljaskóla klukkan
19.00.
í þriðju deild karla keppa Ögri og Selfoss
klukkan 14.00 í Seljaskóla í dag og Skallagrímur
og Ármann á sama tíma í Borgamesi.
-SÖE I
ENN STEINIAGU
KEFLVÍKINGAR
— og nú 61-97 fyrir KR í Keflavík
Frá Þórði Pálssyni í Keflavík:
■ I annað sinn á rúmri viku vora
Keflvíkingar jarðaðir á eigin heima-
velli í körfuboltanum, þegar KR kom
til leiks hingað í úrvalsdeildinni. Ekki
stóð steinn yfir steini í Keflavikurlið-
inu, meðan KR-ingar léku á uis oddi í
rústunum og skoraðu hverja körfuna
af annarri, og hverja annarri glæsilegri.
Úrslit urðu 97-61 KR í hag.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn vel,
komust í 4-0 og 10-6. KR-ingar jöfn-
uðu 14-14, og jafnt var þar til staðan
var 20-20. Þá tóku KR-ingar flugið
meðan Keflvíkingar blökuðu gagns-
lausum vængjum. KR komst í 29-23,
37-27, og í hálfleik var staðan 43-35
KR í hag.
í síðari hálfleik vonuðust dyggir
stuðningsmenn Keflvíkinga eftir nýj-
um krafti, en svo fór ekki. Að vísu
héldu heimamenn í horfinu upp í
41-51, en þá fór í hönd einhver alléleg-
asti kafli sem fyrir augu hefur borið
hjá einu liði í körfuknattleik á Suður-
nesjum. í heilar átta mínútur skoruðu
ekki Keflvíkingar, en KR raðaði hverri
körfunni á fætur annarri niður. Sama
var úr hvaða færum Keflvíkingar
skutu, ekkert fór ofaní, og liðið náði
engu frákasti að heldur.
Staðan var 41-75 KR í hag, þá höfðu
KR-ingar skorað 24 stig í röð, þegar
Óskari Nikulássyni tókst að koma niður
einu vítaskoti af þremur við áköf
fagnaðarlæti. Náðu svo Keflvíkingar
rétt að klóra í bakkann, en KR-ingar
héldu sínu striki, 89-48, 93-59 og loks
97-61.
Enginn stóð upp úr Keflavíkurlið-
inu, allir voru hörmulegir. Ekki bætti
úr sú árátta þjálfarans Brad Miley, að
skipta helst ekki inná varamönnum
svo neinu nemi, og var Jón Kr. Gísla-
son látinn leika stóran hluta leiksins á
annarri löppinni, meiddur í hné. Þá
var Guðjón Skúlason einnig meiddur,
og var látinn leika í samræmi við það
(skrýtið samræmi).
Jón Sigurðsson, Geir Þorsteinsson
og Páll Kolbeinsson voru frábærir í
mjög góðu KR-liði, sem veiktist ekkert
þó Kristján Rafnsson, sem hafði átt
góðan leik, væri borinn útaf vegna
krampa í fæti fljótlega í síðari hálfleik.
-Tóp/SÖE
Dala Yrja er afbrlgðl af danska Castello-ostlnum og
hlnum franska Bresse Blue. Osturlnn er mildur meö
hvítri mygluskán aö utan og bláýróttur aö Innan. Hann
er mjög Ijúffengur djupsteiktur eöa grillaöur t.d. ofan
á kjötsnelö auk þess sem hann er góöur sem forréttur
eöa ábætlsréttur og á ostabakkann.
Bragögæöi ostsins njóta sín best sé hann látlnn
standa utan kælls 11—2 klst. fyrir neyslu.
Lúövik Hermannsson er ostameistari Mjólkursamlagsins
í Búöardal. Hann lauk námi I Danrnörku árlö 1977 og hefur
starfaö að iön slnni slöan.