Tíminn - 25.11.1983, Side 3

Tíminn - 25.11.1983, Side 3
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1983 Einn afkastamesti íslenski fíkniefnasmyglarinn: Atti yfir höfðj sFr dóm EN VAR SLEPPT ÚR LANDI! — og situr nu af sér nær 3 ára dóm í Þýskalandi áður en hann kemst heim til að sitja af sér Hæstaréttardóminn ■ Hæstiréttur hefur dæmt Sig- urö Þór Sigurðsson í tveggja og háifs árs fangelsi fyrir fíkniefna- misfeli og auk þess 20.000 króna sekt. Sigurður Þór situr nú í fangelsi í Vestur-Þýskalandi og afplánar þar tveggja ára og níu mánaða dóm vegna fíkniefna- misferlis þar í landi. Sigurður var dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi hjá Sakadómi í ávana og fíkniefnamálum í desember í fyrra, og var þeim dómi áfrýjað til Hæstaréttar. Skömmu seinna vitnaðist að Sigurður ætlaði sér að fara úr landi og var þá gerð krafa af hálfu lögreglustjóra Tilmæli sjávarútvegsráðherra til Landhelgisgæslunnar: Varðskip fylgi loðnuflotanum — af öryggisástæðum og læknir verði um borð ■ Sjávarútvegsráðherra hefur farið fram á að Landhelgisgæslan sendi skip til aðstoðar loðnuflotanum norður í höfum og að læknir verði um borð til að tryggja öryggi sjómanna svo sem kostur er á, en flotinn er að veiðum langt norður af landinu á þeim árstíma sem allra veðra er von. Pétur Sigurðsson kvaddi sér hljós utan dagskrár á Alþingi í gær og var tilefnið fregn um að sjómaður hafi látið lífið af slysförum og var engri aðstoð hægt að koma við vegna veðurs og ölduróts. Hann benti á að á fimmta hundrað manns væri um borð í 40 skipum langt norður í hafi og væri fyllsta ástæða til að láta varðskip með lækni innanborðs fylgja flotanum af öryggisástæðum. Hafi hann heyrt að sjávarútvegsráðherra hafi beitt sér til að ráðstafanir yrðu gerðar til að bæta hér úr. Halldór Ásgrímsson sagði að Land- helgisgæslan væri ekki einvörðungu til að verja fiskveiðilögsöguna heldur einn- ig til að stuðla að öryggi á sjónum og í dreifðum byggðum. Hann kvaðst hafa haft samband við dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar þegar í gærmorgun og spurt hvort möguleiki væri á að skip væri látið fylgja loðnuflot- anum af öryggisástæðum en nú fer í hönd tími vályndra veðra og skammdeg- is. Halldór kvaðst einnig hafa haft sam- band við heilbrigðisráðherra og beðið hann að athuga hjá landlækni hvaða möguleiki væri á að hafa lækni um borð í varðskipinu. Verið væri að athuga þessi mál. Skip Landhelgisgæslunnar hafa verið upptekin af ástæðum sem öllum eru kunnar en í gærmorgun voru tvö skip úti, annað fyrir Vestfjörðum og hitt fyrir Austulandi. -O.Ó. Aukatrygging hjá Ábyrgð fyrir far- þega í aftursæti sem nota bílbelti ■ Ábyrgð hf. hefur ákveðið að bjóða aukatryggingu vegna bílslysa þar sem farþegar bifreiða nota bílbelti í aftursæti. Framyfir aðrar tryggingar greiðir félagið 50.000 krónur við dauðsfall og allt að 150.000 krónur við örorku ef farþegar í aftursæti í einkabílum, tryggðum hjá Ábyrgð, slasast alvarlega þrátt fyrir notkun bílbelta. Þessi aukatrygging gild- ir einnig um ökumann og framsætisfar- þega slasist þeir alvarlega þrátt fyrir notkun bílbelta. í frétt frá Ábyrgð segir að þetta sé gert til að örva notkun bílbelta í aftursætum þar sem kannanir Umferðarráðs og er- lendar rannsóknir hafa leitt í Ijós að jafnmikil þörf er á að farþegar í aftursæti noti bílbelti og ökumaður og farþegi í framsæti. í fréttinni segir að árið 1981 hafi 270 farþegar í bílum slasast og látist þar af 141 í aftursæti og 129 í framsæti. Árið 1982 slösuðust 275 far- þegar, 124 í aftursæti og 151 í framsæti, og fyrstu 9 mánuðu þessa árs hafi 166 farþegar i bílum slasast eða látist, þar af 79 í aftursæti og 87 í framsæti. Ljóst þykir að margir hefði sloppið við meiðsl ef þeir hefðu notað bílbelti. - GSH. Barnaheimili Rlkisspitalanna: Börn ófaglærðra fá ekki vistun — „Forkastanlegt” segir Starfsmannafélagið Sókn ■ Fundurinn „fordæmir harðlega það óréttlæti, sem ríkir innan ríkisspítalanna hvað varðar vistun barna á barnaheimil- um spítalanna, þar sem börnum ófag- lærðs fólks er meinuð vistun meðan börn hærri launaðra stétta sbr. hjúkrunar- fræðinga hafa þar allan forgang“, segir á ályktun frá Starfsmannafélaginu Sókn. Að mati Sóknar er mismunum þessi forkastanleg og felst í þessu sú staðreynd að hærra launaðar stéttir innan ríkisspít- alanna' . eru gerðar að forréttindastéttum í þessum efnum sem öðrum. Pví hlýtur það að verar réttmæt krafa að ófaglært fólk innan ríkisspítalanna og annarra sjúkrastofnanna sitji við sama borð í þessum efnum og faglært fólk. - BK. í Reykjavík og dómsmálaráðuneytisins að hann yrði settur í varðhald þar til Hæstiréttur hefði fjallað um mál hans. Sakadómur í ávana og fíkniefnum stað- festi varðhaldskröfuna sem síðan var kærð til Hæstaréttar og þar var henni hnekkt. Sigurður fór þá úr landi og í apríl síðastliðinn var hann handtekinn með rúmlega kíló af hassi í fórum sínum í V-Þýskalandi. Dómurinn sem Sigurður á yfir höfði sér hérlendis er vegna fíkniefnamisferlis sem komst upp þegar hann var handtek- inn í gistihúsinu Hotel 5 svaner í Kaupmannahöfn í mars 1979. Þá lagði lögreglan í Kaupmannahöfn hald á nokkuð magn kókaíns og hass sem var i fórum Sigurðar og einmg talsverða pen- ingaupphæð sem var ágóði af fíkniefna- sölu. Eins og kunnugt er strauk Sigurður úrVestre fangelsinu í Kaupmannahöfn og fór huldu höfði í talsverðan tíma þar til hann gaf sig fram við íslcnsk yfirvöld á síðasta ári. Þrír dómarar af fimm kváðu upp ofangrcindan dóm í Hæstarétti, þeir Þór Vilhjálmsson, Guðmundur Jónsson og Halldór Þorbjörnsson, Ármann Snævarr skilaði sératkvæði þar scm hæfileg rcfs- ing var talin 2 ár og Sigurgeir Jónsson skilaði einnigsératkvæði þarsem hæfileg rcfsing var talin 3 ára fangelsi. -GSH Magnús Reynir Gud- mundsson sestur á þing ■ Magnús Reynir Guðmundsson bæjarritari á ísafirði hefur tekið sæti á Alþingi. Hann er fyrsti varamaður Fram- sóknarflokksins í Vestfjarðakjördæmi og tekur sæti Steingríms Hermannsson- ar. sem farinn cr til útlanda í opinberum erindagjörðum. Magnús hefur ekki setið á Alþingi áður. RAWLPLUG Allar skrúfur, múrfestingar draghnoð og skotnaglar éggggxa psras® f&sm SAMBANDIÐ BYGGINGAVORUR SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.