Tíminn - 25.11.1983, Side 12

Tíminn - 25.11.1983, Side 12
Dagur í lífi Ármanns Þorvaldssonar, nemanda í 9. bekk í starfskynningu ■ I síðustu viku voru, sem oftar, tveir ungir menn í starfskynningu hjá okkur hér á Tímanum. Þeir eru báðir í 9. bekk í Hólabrekkuskóla og þar sem sjaldan heyrist í 'þessum aldurs- hópi á opinberum vettvangi, fannst okkur tilvalið að leita til þeirra um að segja frá degi í lífi sínu. Annar þeirra, Armann Þorvalds- son, varð fúslega við bón okkar og fylgir frásögn hans hér á eftir. væri komin út, önnur um Sinfóníu- hljómsveit íslands. „Blaa lonið“ og íþróttafréttir Þegar þetta var búið fór ég með Baldri blaðamanni og Guðjóni Ijós- myndara til að taka viðtal við hóteleig- anda sem rekur gistiheimilið við „Bláa lónið“ Þegar við vorum komnir þangað fórum við fyrst að skoða lónið og hittum þar manninn sem hafði upgötv- að lækningamátt þess. Þar tók Guðjón nokkrar myndir og síðan fórum við til fundar við eigandann. Þegar við komum þangað biðu okk- ar veitingar og var okkur sýnt hótelið og ekki er hægt að segja annað en að það sé vistlegt og fallegt, sjónvarp og sturta í öllum herbergjum. Síðan fórum við í bæinn aftur og þegar þangað var komið áttum við Jónas að gera grein um myndaflokkinn „Úr fórum Chaplins.“ Við fengum nokkur blöð á ensku þar sem sagt var frá myndaflokknum og þurftum við að þýða hann. Þegar þessu var lokið tókum við okkur það fyrir hendur að skrifa um íþróttir helgarinnar. Þar var verkefnunum skipt á milli okkar og átti ég að skrifa um badminton, körfubolta og handbolta og gekk það ágætlega. Þar sem ekki var meira að gera fyrir okkur á Tímanum þennan daginn fór ég bara heim þegar ég var búinn með íþróttafréttirnar. Keppir með Ármanni nafna sínum. Þegar ég var kominn heim fékk ég mér að borða. Síðan fór ég niður í Laugardalshöll þar sem ég átti að keppa í handknattleik. Ég er í Ármanni (nafna mínum) og áttum við að keppa við Fylki. Leikur- inn gekk mjög vel, það er að segja fyrir okkur, og unnum við með tveggja marka mun. Eftir þann leik fór ég heim. Þar sem ég var í þreyttara lagi eftir leikinn og amstur dagsins leit ég aðeins rétt á Tomma og Jenna, enda það eina sem horfandi er á í sjónvarpinu, og síðan fór ég að sofa. Þar með er þessari frásögn lokið. „Þar sem faðir minn er afar mikill fram- sóknarmaður...“ Ég heiti Ármann Þorvaldsson og á heima í Breiðholti og er í 9. bekk í Hólabrekkuskóla. Það er venja í skólanum að nemend- ur í 9. bekk fari í starfskynningu á síðasta ári sínu í skólanum til að búa sig undir lífið. Ég var búinn að reyna að komast í tölvudeild Háskóla íslands en þeir gátu ekki tekið við fleiri nemendum og þar með var sá draumur úr sögunni. Og þar sem faðir minn er afar mikill framsóknarmaður lét ég hann beita áhrifum sínum innan flokksins og koma mér á Tímann. Þar var mér tekið opnum örmum og ætla ég að segja frá einum deginum þar. Fariðá blaðamannafund hjá Líf og land Ég vaknaði kl. 11.00 og fékk mér morgunmat. Síðan fór ég í strætó og g Ármann Þorvaldsson fór létt með að skrifa íþróttafréttimar, enda sjálfur keppnismaður í badminton og handknattleik (Tímamynd Róbert) „Hafa sjálfsagt marg- ir furðað sig á því hvað þessi strákur væri að gera þarna“ var kominn niður á Tímann um kl. 13.00. Þegar þangað var komið hitti ég Jónas skólabróður minn sem er með mér í starfskynningu. Við biðum að- eins en síðan var-farið á fund með blaðamönnunum. Þar var sagt hvað hvcr ætti að gera og var ákveðið að ég færi með Agnesi blaðamanni og Guðjóni Ijósmyndara á blaðamannafund út í bæ og Jónas færi með Skafta á annan fund. Blaðamannafundurinn sem ég fór á var hjá samtökum sem heita Líf og land. Voru þau að kynna ráðstefnu á sínum vegum sem heitir Þjóð í kreppu. „Feginsandvörp þegar við fórum út“ Fundurinn fór fram í einhverri smá- skonsu á Hótel Borg þar sem átti að troða 30 manns. Ég var í horni þar sem fór lítið fyrir mér en þrátt fyrir það lágu á mér augnagoturnar allan fund- inn og hafa sjálfsagt margir furðað sig á því hvað þessi strákur væri að gera þarna. Á fundinum var kjaftað reiðinnar ósköp og skildi ég lítið af því sem sagt var. Agnes reifst og skammaðist (eða því sem næst) fundinn út í gegn og mátti heyra feginsandvörp þegar við Ioksins fórum út. Ég var manna fegn- astur enda var ég stundum á því að hoppa niður af 4. hæð til að Iosna við þetta rugl. Engin smámenni þar á ferð. Eftir þessa • kjaftasamkomu fórum við út í Alþingishús þar sem taka átti viðtal við Steingrím Hermannsson forsætisráðherra. Biðin varð löng eftir ráðherranum enda á hann sjálfsagt annríkt svona merkur maður. Á meðan við biðum eftir honum var mér starsýnt á suma af þeim sem gengu þarna fram hjá enda engin smámenni þar á ferð og suma hafði ég bara séð í sjónvarpinu. Þegar forsætisráðherra loksins kom var farið inn í næsta horn og Agnes tók viðtalið. Síðan fórum við niður á Hótel Sögu þar sem Agnes átti eitthvert erindi. Fréttatilkynningar „brotnar niður“ Nú fórum við upp á Tímann þar sem tekið var til við að „brjóta niður" fféttatilkynningar sem felst í því að taka fréttatilkynningarnar og stytta og endursemja þær. Voru þetta allmargar fréttir og vorum við, það er að segja ég og Jónas, dágóðan tíma að gera þetta. Fyrsta fréttin var um það að ný plata ■ Stjórn samtakanna Líf og land kynnir blaðamönnum ráðstefnuna Þjóð í kreppu? lét lítið fara fyrir sér. en Ármann sat einmitt þann fund og (Tímamynd GE)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.