Tíminn - 09.12.1983, Qupperneq 6
6______________
í spegli tímans
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
raunveruleikanum
■ Það urðu margir hissa þegar
Elizabeth Taylor lét sig hafa
það, að leika einu sinni enn á
móti fyrrverandi eiginmanni sín-
um (tvisvar sinnum giftust þau,
sem menn muna) honum Ric-
hard Burton í leikritinu „Private
Lives“, eða Einkalíf. Samstarfið
gekk víst bara vel, enda segir
sagan að það sé eins og alltaf lifi
■ kolunum hjá þeim tveim, svo
líklega er þeim ekki svo leitt að
starfa saman, þótt þau geti ekki
búið saman.
Richard býr nú með stúlku,
sem er töluvert yngri en Eliza-
beth, og er sambúðarkona hans
sögð með barni, en þau Liz
eignuðust ekki barn. Richard á
þó nær uppkomin börn af fyrsta
hjónabandi sínu.
Elizabeth Taylor sést hér á
myndinni með nýjustu ástinni
sinni, mcxíkanska lögfræð-
ingnum Victor Luna. Þau eru
sögð mjög ánægð í sambúðinni,
en það kemur sér vel að maður-
inn er vel stæður, því að hann
hefur nóg að gera við að fylgja
Liz sinni hvert sem hún fer
skemmta henni og dekra við
hana, - en kunnugir segja að það
sé „full-time-job“.
■ Á veggnum má sjá hvar Elizabeth Taylor og Richard
Burton eru auglýst í leikritinu Einkalíf (Private Lives), en fyrir
framan auglýsinguna cr leikkonan t sínu núverandi einkalifi
með ástvininum.
EMKAUF EUZft
BETARTAYLOR
í auglýsingunni og
■ Töluverður aldursmunur
er á þeim Roddy McDowall og
Shirley Maclaine, (hún er sko
töluvert eldri - þótt það sjáist
ekki), en bæði hafa þau verið
kvikmyndastjörnur áratugum
saman, en Roddy varð frægur
sem barnaleikari, t.d. í Lassy
og Grænn varstu dalur.
HVAÐA
APA-
KATTA-
LÆTI
■ Hann Roddy Mc-
Dowail iék í kvikmynd-
inni Apaplánetan (Piant
of the Apes), en það er
ekki þar fyrir- maðurinn
þarf ekki ailtaf að vera
með þessi apakattaiæti,
sagði Ijósmyndarinn
ergiiegur, sem ætiaði að
ná hátíðlegri mynd af
honum með leikkonunni
Shirley Maclaine. Þau
voru að fara saman út að
borða á veitingahús í
London, þegar Ijós-
myndarinn „skaut“ á
þau. Shirley, kát og hress
eins og alltaf, brá á Ieik
líka.
Breska kattavinafélagið:
2000 KETTIR Á SÝNINGU
í L0ND0N í ÞESSARIVIKU
■ Sagt er að London sé „katta-
höfuðborg heimsins", að minnsta
kosti var talið að þar væru saman
komnir flestir fínustu og best
ættuðu kettir heims þessa vikuna
7.-13. des. í sambandi við bresku
kattasýninguna Crystal Palace
Cat Show. SUk sýning var fyrst
haldin fyrir meira en 100 árum, og
meira að segja Victoria drottning
mætti þar, svo þetta þótti fín
samkoma.
Um 2000 kettir verða á sýning-
unni í Crystal Palace þessa viku,
og má þar sjá Burma-ketti, Síams-
ketti, Manx-ketti og margar fleiri
kattategundir, sem við kunnum
ekki að nefna.
Margir koma þama þessa daga
til að líta á kettina, þ.c.a.s. - eins
og einn kattavinurinn sagði: „Við
komum ekki bara til að skoða,
heldur til að dást að og dýrka
kettina, því þetta em dásamleg
dýr.“
Frú Grace Pond, 73 ára ekkja,
hefur séð um 29 síðustu sýning-
amar, en alls hafa þær verið
haldnar 87 sinnum á rúmri öld.
Fyrir mörgum kattavinum í Bret-
landi er frú Pond sú sem allt veit
um ketti, og hún er sjálf eins
konar persónugervingur Crystal
Palace -sýningarinnar, sem hún
hefur svo lengi staðið fyrir. Hún
hefur skrifað 20 bækur um ketti,
séð um útgáfu 10 aimarra bóka
um sama efni og komið oft fram í
sjónvarpi vegna málefna katta og
kattavina, einkum í bamatimum
sjónvarpsins.
■ Frú Pond, aðaldriffjöðrin í
kattaklúbbnum, er hér með sinn
eigin kött, sem er auðvitað há-
ættaður
viðtal dagsins
Hjálparstofnun kirkjunnar:
MARKMHNÐ ER:
EIN MILLIÓN FISK-
PILLA TIL EÞÍÓPÍU
■ „Við áætlum að senda eina með blaðamönnum. „Þessi pilla kosti 2 krónur í framleiðslu og 4
milljón dagskammta af eggja- er unnin úr malaðri skreið og krónur þegarflutningskostnaður
hvíturíkri fæðu til þurrkasvæð- öðrum sjávarafurðum og inni- og dreifing hafa verið reiknuð
anna í Eþíópíu og fiskipillan er heldur dagskammt af eggjahvítu inn. Söfnun okkar beinist að
aðferð okkar til þess“ sögðu þeir fyrir fullorðinn mann. Pillan er í þessu verkefni í Eþíópíu, þar
Guðmundur Einarsson fram- mjög samþjöppuðu formi, raka- sem ríkir algert neyðarástand,
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar innihald mjög lágt og það gerir vegna mikilla þurrka á síðustu
kirkjunnar og Gunnlaugar Stel'- hana auðvelda í flutningum. árum og að óbreyttu þá vofir
ánsson fræðslufulltrúi á fundi; Við reiknum með að hver tafla ekkert annað en dauðinn yfir
■ Gunnlaugur Stefánsson fræðslufulltrúi Hjálparstofnunar og Guðmundur Einarsson framkvæmda-
stjóri. Tímamynd Róbert
þúsundum og þá einkum
börnum. Við vonumst til að geta
safnað fyrir þessum milljón dag-
skömmtum, en til þess þarf hver
fjögurra manna fjölskylda á
landinu að láta af hendi rakna
sem svara rúmum 50 krónutn.
Þá kaupir hún dagskammt fyrir
fjórar manneskjur". Hér kom
t.d. kona í morgun og gaf 2000
krónur og það samsvarar hvorki
meira né minna en 500 matar-
skömmtum".
Lágu máttlaus
og hreyfingarlaus
„Það er eggjahvítuskorturinn
sem hrjáir þetta fólk mest, á
þurrkasvæðum Afríku", héldu
þeir félagar áfram, „Við höfum
þegar sent út nokkur hundruð
kíló og árangurinn er satt að
segja undraverður. Haraldur
Ólafsson, sem er okkar maður í
hjálparstarfinu í Eþíópíu segir
okkur að börn sem lágu máttlaus
og hreyfingarlaus af bætiefna-
skorti á sjúkrahúsum, hafi verið
farin að hlaupa um og leika sér
eftir að hafa fengið eina pillu á
dag í eina viku.“