Tíminn - 09.12.1983, Page 7
■ Enginn karlmaður stenst töfra Joan Collins, ekki einu
sinni hinn veraldarvani Henrj' Kissinger.
JOAN COLLINS
TALAÐIHENRY
KISSINGER TIL
hann hefur nú lofað að
koma fram í „Dynasty"
■ Henni Joan Collins er ekki
fisjað saman. Ekki nóg með það
að henni hefur tekist að halda
sér á toppnum sem kyntákn í
leikbransanum allt til þessa dags,
en hún stendur nú á fimmtugu,
heldur hefur hún nú sýnt og
sannað, að hún uppfyllir þá
ímynd, sem hún hefur skapað á
hvíta tjaldinu, í einkahTinu líka.
Hún vefur sem sagt hvaða karl-
manni sem er um fingur sér.
Nýjasta dæmið um það, að
karimenn standast ekki töfra
Joan, er loforð, sem hún togaði
út úr Henry Kissinger, þeim
vcraldarvana diplomat. Fundum
þeirra bar nýlega saman á dans-
leik, sem haldinn var í góðgerð-
arskyni í borginni Denver, og
þótti mjög við hæfi, að Joan væri
heiðursgestur þar, þar sem sjón-
varpsþættirnir, sem nú halda
nafni hennar hvað hæst á loft,
Dynasty, eru kallaðir öðru nafni
Denver-þættir. Fjölskyidan, sem
þeir fjalla um og er einhvers
konar ýkt mynd af Ewingunum í
Dallas, er nefnilega búsett í
Denver. Joan settist að Henry
Kissinger og linnti ekki látunum
fyrr en hún hafði fengið hann til
að lofa að koma f'ram í þessum
alræmdu þáttum. Þótti mörgum
henni þar hafa tekist hið ómögu-
lega.
En Joan er lítillát og lét lítið
yfir þessu afreki sínu. - Henry er
ágætis karl, sagði hún aðeins og
brosti út í annað.
■ Henry Kissinger hefur til
þessa látið það vera að taka að
sér hlutverk í vinsælum „sápuóp-
erum". En nú hefur hann látið
tilleiðast.
„Fyrirkomulag söfnunarinnar
er þannig að við sendum inn á
hvert heimili á landinu lítinn
söfnunarkassa ásamt plakati og
gíróseðli og við beinum því til
fólks að það leyfi börnum sínum
að sjá um að safna, því að
aðallega eru þetta börn í Eþíó-
píu sem standa frammi fyrir
dauðanum. Við höfum orðið
varir við það að það er beinlínis
liður í jólaundirbúningi margra
heimila að láta eitthvað af hendi
rakna til þeirra sem utan nægta -
borðsins sitja.“
„Hjá hjálparstofnun starfa
yfirleitt ekki nema 3 manneskj-
ur, en sem betur fer erum við 5
núna meðan á þessari söfnun
stendur. Við erum að vinna að
ýmsum öðrum verkefnum. Tveir
menn fara á okkar vegum til
Erítreu á næsta ári til þess að
kenna netagerð og fiskveiðar.
fslenskur jarðborunarmaður fer
til Úganda til þess að hjálpa til
að leita að vatni. Þá höfum við
verið með kennslu í fiskeldi og
fiskirækt í Kína og Hong Kong
og tvo starfsmenn í Súdan í
alhliða þróunarverkefni þar. Þá
má nefna að til Póllands sendum
við um daginn 60 tonn af síld og
sendum 40 tonn af þurrkuðum
saltfisk til Ghana. Þarríkirmikill
skortur, en svo mikil óreiða í
flutningum og dreifing að við
vorum beðnir að doka við, en nú
höfum við fengið beiðni um að
senda þangað nokkur hundruð
tonn“.
„Hjálparstofnun hefur þá
reglu að fylgjast sjálf með dreif-
ingu á matvælum, til þess að
tryggja að allt fari rétta boðleið.
Þannig mun maður frá okkur
fara tif Eþíópíu þegar við getum
farið að senda þangað, vonandi
í janúar“.
„Við viljum þakka þá gjafa-
skreið sem við höfum fengið og
skipafélögunum, Flugleiðum og
Arnarflugi fyrir mikinn velvilja
sem þau hafa sýnt okkur í
flutningum. Þá má ekki gleyma
föstum styrktarmönnum Hjálp-
arstofnunar sem eru 700 og
greiða þeir ársfjórðungslega eftir
efnum og ástæðum".
„Á meðan forðabúr þjóðar-
innar er fullt af matvælum",
segja þeir Guðmundur og Gunn-
laugur að lokum, „þá rennur
okkur blóðið til skyldunnar að
koma einhverju af þessum mat-
vælum til þeirra sem hunera oe
svelta í heiminum.“ - BK
■ UM HELGINA fóru fram
forsetakosningar í Venezuela.
Þær voru hinar sjöttu í röðinni
síðan lýðræðisstjórn komst þar
á fyrir 25 árum. Allar hafa þær
farið vel fram. Jafnhliða þeim
hafa farið fram kosningar til
þingsins.
Á umræddum aldarfjórðungi
hafa tveir flokkar skipzt á um að
fara með völdin, Jafnaðarflokk-
urinn og Kristilegi flokkurinn.
Samkvæmt evrópskum mæli-
kvarða myndu þeir helzt teljast
miðjuflokkar, enda ber þeim
ekki mikið á milli.
Til viðbótar eru bæði hægri
flokkar og vinstri flokkar í Ven-
ezuela. Ekki færri en tólf flokkar
buðu fram í forsetakosningun-
um. Meginfylgið skiptist milli
stóru flokkanna tveggja.
Þótt frambjóðendum þessara
flokka beri yfirleitt ekki mikið á
milli, er kosningabaráttan í Ven-
ezuela jafnan sótt af kappi og
miklu til kostað. Að því leyti
líkjast kosningar í' Venezuela
kosningum í Bandaríkjunum.
Það hefur líka komið fyrir, að
flokkarnir hafa fengið færustu
kosningaráðgjafa í Bandaríkjun-
um til að leggja á ráðin um
hvernig haga skuli baráttunni.
Forseti Venezuela er kosinn
til fimm ára og má ekki gegna
embættinu nema í eitt kjörtíma-
bil í senn. Hins vegar má hann
bjóða sig fram aftur eftir að 10
■ Lusinchi hylltur eftir kosningasigur
Lýðræði hefur haldizt í
Venezuela í aldarf jórðung
Það er algert met í Suður-Ameríku
ár eru liðin frá því að hann lét af
embættinu.
Aðeins einn forseti hefur leit-
að endurkjörs samkvæmt þess-
um reglum. Það er Rafael Cald-
era, sem nú var í framboði fyrir
Kristilega flokkinn. Hann var
kosinn forseti 1968.
Mikill ágreiningur var í
flokknum um framboð hans, en
það mun þó ekki hafa verið
meginorsökin til þess, að hann
beið ósigur, heldur óvinsældir
fráfarandi forseta og flokksbróð-
ur hans, Luis-Herrera Campins.
Caldera, sem er 67 ára, reyndi
sem mest að beina athyglinni frá
flokksbróður sínum, sem sat í
forsetaembætti. í staðinn lagði
hann áherzlu á, að állt hefði
gengið vel, þegar hann hefði
sjálfur verið forseti.
Hann skírskolaði jafnframt til
reynslu sinnar, en keppinautur
sinn, Jaime Lusinchi, frambjóð-
andi Jafnaðarflokksins, væri
reynslulaus sem stjórnandi.
NJÐURSTAÐAN varð samt
sú, að Lusinchi bar sigur úr
býtum með yfirburðum. Kjós-
endur vildu bæði skipta um mann
og flokka, enda var það sam-
kvæmt venju.
í þau sex skipti, sem forseta-
kosnngar hafa farið fram í Venez-
uela, hetur Jafnaðarflokkurinn
unnið fjórum sinnum, en kristi-
legi flokkurinn tvisvar.
Þegar undan eru skildir flokk-
arnir til hægri og vinstri, ein-
kenndist kosningabaráttan ekki
af miklum skoðanamun. Þeir
Lusinchi og Caldera voru í stór-
um dráttum sammála um megin-
stefnuna í innanlandsmálum og
utanríkismálum.
Báðir vildu þeir, að Venezuela
væri áfram í Contadora-
hópnum, en svo nefnast ríkin
fjögur, sem hafa tekizt á hendur
að reyna að koma á friði í
Mið-Ameríku. Auk Venezuela
eru það Mexíkó, Kólombía og
Panama.
Þá vildu báðir, að Venezuela
yrði áfram í samtökum olíu-
framleiðsluríkja (OPEC).
Lusinchi lagði meginkapp á
að gagnrýna stjórnina vegna
versnandi efnahags þjóðarinnar
og stóraukinnar skuldasöfnunar.
Hann lofaði því að rétta við
fjárhaginn.
Þetta ætlaði hann m.a. aðgera
með því að beita sér fyrir félags-
málasamningi, sem ríkisstjórnin,
atvinnurekendur og launþegar
stæðu að. Félagsmálasamningur-
inn eða félagsmálapakkinn var
eitt helzta atriðið í kosninga-
ræðum hans.
Lusinchi vitnaði til þess í
þessu sambandi, að hann væri
búinn að eiga sæti á þingi í 25 ár
og hefði mikla reynslu af því að
sætta ólík sjónarmið, m.a. sem
formaður þingflokks jafnaðar-
manna.
Það styrkti þennan áróður
hans, að hann nýtur viðurkenn-
ingar sem laginn samningamaður
og er honum jafnvel oft líkt við
Lyndon Johnson forseta, sem
var flestum lagnari í því að koma
erfiðum málum gegnum þingið.
Að öðru leyti eru þeir ekki taldir
líkir. Lusinchi er sagður varfær-
inn og hann verði líklegur til
þess sem forseti að kunna fótum
sínum forráð.
Caldera reyndi að bregðast við
árásum á ríkisstjórnina með því
að segja Herrera forseta hafa
tekið við slæmum arfi frá fyrir-
rennara sínum í forsetastólnum,
Carlos Andres Perez, sem var úr
flokki jafnaðarmanna.
Þetta var á vissan hátt rctt. því
að Perez hafði ráðizt í stórfram-
kvæmdir á sviði olíuvinnslunnar
og treyst á að hátt olíuverð
myndi haldast.
Þegar olíuverðið féll bitnaði
það á stjórn Herrera, sem varð
■ Caldera tókst ekki aö vinna
í annaö sinn.
að taka við mikilli skuldasúpu og
minnkandi hagvcxli vegna verð-
fallsins á olíúnni, en olía er
helzta útflutningsvara Vcnez-
uela.
JAIME Lusinchi er 59 ára,
kominn af fátækum bændaætt-
um. Hann brauzt samt til há-
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar itfl
skólanáms og lagði stund á
barnalækningar. Hann tók mik-
inn þátt í stjórnmálum á háskóla-
árum sínum.
Það féll þá í hlut hans að halda
móttökuræðu, þegar Romulo
Betancourt, stofnandi Jafnaðar-
flokksins, hcimsótti háskólann
og fylgismenn sína . Þetta gerð-
ist 1945, eða þremur árum áður
cn herstjórnin tók völdin og fór
með þau næstu 10 árin.
Lusinchi tók þátt í mótmælum
gegn henni og starfaði fyrir jafn-
aðarmenn neðanjarðar, eins og
það er kallað. Árið 1952 tókst
lögreglunni að klófesta hann og
setja hann í fangelsi, þar sem
hann sætti pyntingum. Að því
loknu var hann scndur í útlegð
og varsamtalssexár í útlegðinni.
Hann stundaði þá barnalækning-
ar í ýmsum löndum, eins og
Chile og Argentínu og í New
York.
í New York tók hann þátt í
útlagahreyfingu jafnaðarflokks-
ins, sem starfaði þar undir for-
ustu Betancourts, sem einnig
hafði orðið að flýja land.
Þeir héldu svo heimleiðis
1958, þegarhershöfðingjastjórn-
inni hafði verið steypt af stóli og
unnu saman að því að skipu-
leggja kosningabaráttu jafnað-
armanna, jafnhliða því að koma
lýðræðisstjórn á laggirnar.
Þetta bar þann árangur, að
Betancourt var kjörinn forseti,
en Lusinchi var kjörinn á þing.
Venezuela er nú það ríki
Suður-Ameríku, sem lengst hef-
ur búið við lýðræðisstjórn. Lík-
legt er að það geti haldizt meðan
stóru miðjuflokkarnir tveir halda
velli og skiptast á um að fara
með völdin.
Kona Lusinchi er barnalæknir,
eins og maður hennar, og eiga
þau fimm börn. Fjölskyldulífið
er gott. Lusinchi er sagður laginn
á að hafa gott andrúmsloft í
kringum sig, og er það ekki sízt
þakkað glaðlegu brosi hans.
Á því getur hann þurft að
halda, þegar hann tekur til við
að endurreisa efnahag Venez-
uela.