Tíminn - 09.12.1983, Page 14
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1983
14
bækur
Húsdýrin okkar
2. útgáfa
Komin er út hjá Bjöllunni 2. útgáfa .af
Húsdýrin okkar.
Þessi glæsilega barnabók seldist upp á örfáum
vikum í fyrra. Textahöfundur er Stcfán
Aöalstcinsson, en Kristján Ingi Einarsson
tók myndirnar. Um 70 litmyndir eru í
bókinni.
Bókin erskrifuöáskýruogauöskildu máli
Sérstök áhersla er lögö á aö láta rétt heiti
koma tram a öllum hlulunt, en þau orö, sem
ungir lesendur hafa ekki kynnst áöur, eru
skýrö ítarlega þar sem þau koma fyrir. Bókin
er þess vegna fróðleiksbrunnur fyrir þau
börn, sem ekki hafa kynnst húsdýrunum
nema úr fjarlægð.
( bókinni er lýst 8 húsdýrum: kúnni,
kindinni, geitinni, svíninu, hestununm,
hundinum, kettinum og hænunni. Um öll
• þessi dýr er þess getið hvaö pabbinn, mamma
og afkvæmið heitir. Þá kemur líka fram á
hverju dýrin lifa og til hvcrs þau eru notuð
hvert um sig.
Lesmál bókarinnar er aö öðru leyti
skemmtilegur og alhliða fróðleikur um hús-
dýrin og sniðinn við áhugasviö barna á
aldrinum 6-10 ára.
Myndirnar í bókinni eru kapítuli út af fyrir
sig. Aldrei hefur birst á prenti á Islandi jafn
glæsilegt safn litmynda af húsdýrunum og í
þessari bók. Allar myndirnar segja sögu, og
þær höfða til allra barna sem farin eru að
þekkja dýr á bók.
„Húsdýrin okkar" er 63 bls. Uppsetningu
annaðist Kristján lngi Einarsson. Litgrein-
ingu vann Prentmyndastofan. Prentstofa G.
Benediktssonar sá um setningu og filmu-
vinnu. Bókin er prentuð í Belgíu.
„Öldin okkar“, minnisverð
tíðindi 1971-1975, komin út
Iðunn hefur sent frá sér nýtt bindi í hinum
kunna og vinsæla bókaflokki sem nefndur er
„Aldirnar". Nýja bókin er Öldin okkar,
minnisvcrö tíðindi 1971-1975. Gils Guð-
mundsson tók saman. Þetta er fimmta bindi
sem gerir skil tuttugustu öldinni, en tólfta
bindi bókaflokksins. „Aldirnar" rekja í
aðgengilegu formi nútíma fréttablaðs sögu
þjóðarinnar frá byrjun sextándu aldar, eða
nú samfellt í 475 ár. Gils Guðmundsson
hefur að mestu tekið saman bindin um
nftjándu öld og hina tuttugustu, en Jón
Helgason ritstjóri annaðist þau bindi sem
segja frá hinum fyrri öldum.
Öldin okkar 1971-1975 er eins og fyrri
bindi flokksins prýdd miklum fjölda mynda.
Meginþorra þeirra tók Gunnar Andrésson
ljósmyndari. Hildur Helga Sigurðardóttir
tók saman efni um íþróttir og æskulýðsmál.
- Hér er að sjálfsögðu sagt rækilega frá helstu
stóratburðum þessara ára: eldgosinu í Vest-
mannaeyjum, útfærslu landhelginnartvívegis.
og þorskastríðum við Breta, heimsmeistara-
einvíginu í skák, þjóðhátíð í minningu ellefu
alda búsetu í landinu, pólitískum sviptingum
sem náðu hámarki í þingrofinu 1974 og
deilum út af uppsögn varnarsamningsins við
Bandaríkjamenn, kvennafrídeginum mikla,
svo nokkuð sé nefnt. Ekki er heldur gleymt
hinum smáu og einatt spáugilegu atvikum
sem krydda þjóðlífið á hverri tíð. Allt
speglar þetta söguna í margvíslegum litbrigð-
um sínum eins og samtíðarmenn lifa hana frá
degi til dags.
Aftast í bókinni er rækilegt efnisyfirlit.
Hún er 253 blaðsíður. Oddi prentaði, en
Auglýsingastofa Kristínar gerði kápu.
Ókunn öfl
Er heimur handan
skilningarvita okkar?
í bókinni Ókunn öfl sem er prýdd fjölda
mynda er fjallað um ýmis furðuleg fyrirbæri
svo sem: Stól Busbys sem veldur dauða allra
sem í han setjast. Uri Geller sem beygir
skeiðar o.fl. með hugarorku, sálrænar lækn-
ingar Einars Jónssonar á Einarsstöðum,
Leiftur úr lífi eftir dauðann Dr. Elisabets
Kúbler Ross, hvort guðimir voru geimfarar,
hugsanaflutninga á milli fjarlægra staða,
stjörnuspádóma Jeane Dixon, spádóma
Nosterdamusar, hvort stórveldin undirbúa
sálræna styrjöld.
Á bókarkápu segir:
Er heimur handan skilningarvitanna? Það
er að minnsta kosti einasta skýringin á þeim
sönnu fyrirbærum sem þessi bók greinir frá.
Samkvæmt ýmsum virtum lögmálum geta
vissir hlutir ekki gerst - en gerast samt.
Þau öfl, sem fram koma hjá sumu sálrænu
fólki um víða veröld sýna, að við erum afar
fáfróð um dulin öfl, sem í manninum búa og
sýna okkur, svo ekki verður um villst, að
ýmsum er miklu fleira fært, en hin venjulegu
skilningarvit gefa til kynna.
Það sem gefur þessari bók sérstakt gildi er
að jafnvel það sem höfundur sér með eigin
augum ber hann undir lærðustu menn í
dulsálarfræðum.
Höfundur hefur ferðast víða um heim til
að hafa tal af sálrænu fólki. Hann kom
hingað til lands til þess eins að heimsækja
Einar á Einarsstöðum, huglækni.
Það búa dularöfl í okkur öllum. Öfl, sem
bíða þess að losna úr læðingi. Hver skyldu
þín vera.
Sögusteinn
Bókaútgáfan Bjallan hefur sent frá sér bók-
ins Sögusteinn eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Myndir eftir Önnu eynthiu Leplar.
Vilborg er kennari og hefur um árabil
fjallað um efni fyrir börn í sjónvarpi, útvarpi
og blöðum.
Fyrir nokkrum árum gaf Bjallan út kross-
gátur eftir Vilborgu, sem reyndust mjög
vinsælar.
Sögusteinn er safnrit. Þar er að finna
frumsamdar og þýddar sögur, Ijóð, leiki,
gátur og skrítlur. Pennateikningar Önnu
Cynthiu Leplar undirstrika hinn ævintýralega
blæ bókarinnar.
Prentstofa Guðmundar Benediktssonar sá
um setningu, filmuvinnu og prentun bókar-
innar. Arnarfell annaðist bókbandið.
«♦»0« AQuStSðcUH
«yftd»ltr*yt»ftð ÓHif Knudsen
Krókópókó
Út er komin bókin Krókópókó eftir Helgu
Ágústsdóttur.
Þetta er barnabók sem gefur ímynd-
unaraflinu byr undir báða vængi, ætluð
yngstu lesendunum. Hún hentar einnig mjög
vel til lestrar fyrir börn á leikskólaaldri.
Sögurnar í bókinni fjalla um litla kródódílinn
Krókópókó, sem er hvorki mjög stór né
vitur. Hann lærir margt af lífinu í skóginum
og umgengni sinni við hin dýrin. Hann lærir
um hjálpsemi, að hrekkja ekki minnimáttar
o.s.frv.
Bókin hefur þá sérstöðu, að öðru hverju
eru erfið orð, sem koma fyrir í textanum,
útskýrð en hvergi svo að söguþráðurinn slitni.
Krókópókó er prentaður með stóru letri
og skreyttur fjölda litmynda, sem Ólöf Knud-
sen hefur gert og birst hafa með sögunni í
Stundinni okkar að undanförnu.
Höfundur gefur bókina út, en vinnsla var
í umsjá Prenttækni h.f. í Kópavogi. Litgrein-
ing var unnin hjá Korpus.
Inga
opinská lífsreynslusaga
ungrar stúlku eftir
nýjan höfund
Út er komin hjá Bókaútgáfunni Skaldborg
sagan Inga; opinská lífsreysnlusaga ungrar
stúlku. Höfundur er Birgitta Hrönn Hall-
dórsdóttir og er þetta hennar fyrsta bók.
Birgitta er ung húsmóðir í Húnavatnssýslu.
Atburðarásin í sögunni er hröð og því
spennandi og lýsir vel lífi aðalsöguhetjunnar,
Ingu, bæði ástum hennar og þrám og svo eins
og gengur og gerist í hinu daglega lífi,
vonbrigðum og sorgum, segir m.a. á bókar-
kápu. Þar segir ennfremur. Sagan gerist í
sjávarplássi á Suðurlandi og í Reykjavík, og
koma sjómenn nokkuð við sögu, en pabbi
Ingu er útgerðarmaður, sem á tvo báta, og
tekur hann dóttur-sína með á sjóinn, m.a. í
siglingu til Hull, þegar erfiðleikar steðja að
hjá henni.
„Elías“, saga Auðar Haralds
og Valdísar Óskarsdóttur,
komin út
Iðunn hefur gefið út söguna Elías eftir Auði
Haralds og Valdísi Óskarsdóttur. Myndir í
bókina gerði Brian Pilkington. - Elías er
kunnur úr Stundinni okkar í sjónvarpinu,
raunar góðvinur íslenskra barna. Hann er
fyrirmynd annarra bama í góðum siðum (eða
hitt þó heldur), er á fömm til Kanada þegar
sagan hefst. Þar er pabbi hans, brúarsmiður-
inn, búinn að fá vinnu og mamma hans,
tannsmiðurinn, fær að smíða indíánatennur.
en Magga móða (fullu nafni Magga móður-
systir mömmu) er ekki á því að sleppa
fjölskyldunni úr landi.
Magga hefur skammast í foreldrum Elíasar
frá því hann fæddist og sennilega lengur.
Fyrst neitar hún þeim um fararleyfí, en þegar
það dugar ekki fyllist hún trylltri hjálpsemi.
Auðvitað lendir það á Elíasi að stöðva
Möggu, því foreldrar hans eru fullorðnir og
geta þess vegna ekki komið sér að því að
segja Möggu sannleikann. Eri Elías er lið-
tækur við fleira en erfiðaf frænkur. Hann
selur líka búslóðina með óvenjulegum að-
ferðum.
Elías er 104 blaðsíður að stærð. Oddi
prentaði.
Sigmund van Amsterdam
Fimmta bindi myndverka Sigmund er komin
út. ( bókinni grefur Sigmund upp ýmis
gullkorn frá liðnu ári, eins og gullgrafararnir
á Skeiðarársandi kemur hann með ýmislegt
óvænt og skoplegt upp á yfirborðið.
í formála með skopmyndum Sigmund
segir:
„Nýtt ár er að líða með miklum tíðindum
og breyttum kosti (slendinga. Liðinn er
svonefndur Framsóknaráratugur, komin ný
ríkissjórn í landið, sem tekur að sér að segja
þjóðinni sannleikann um ástand hennar. Nýr
formaður hefur verið kosinn í stærsta flokki
landsins. Má því taka undir með skáldinu
sem sagði: Allt er nú sem orðið nýtt/ ærnar,
kýr og smalinn.
Sjálfur kemur Sigmund fyrir í þrjú skipti -
tekur meðal annars að sér að hjálpa Albert
með fjárlögin eftir að þau eru komin á
teikniborðið og að semja áramótamarsinn
fyrir 1983.
Sigmund er enn við það heygarðshom að
sýna okkur skoplegu hliðarnar á tilverunni,
og má undrum sæta hvað hann finnur af
skringilegum viðbrögðum, þegar haft er í
huga að hann finnur efnivið sinn að lang-
mestu leyti í dagblöðunum. Og þessa bók má
líta á sem einskonar mjaðmarhnykk á Fram-
sóknaráratuginn þar sem menn tala eins og
út úr öðrum heimi.
KÆRAR ÞAKKIR
Byggingarhappdrætti SÁÁ þakkar
íslenskum konum og öllum öörum
ómetanlegan stuöning.
Dregiö hefurverið í happdrættinu um
10 SAAB bíla. Þessi númer hlutu vinning:
104897 276116
178021 281471
198343 296191
219952 299384
271660 307043
Úrslit í verðlaunasamkeppninni um nafn á
nýju sjúkrastöðina verða væntanlega
tilkynnt við vígslu hússins síðar í þessum
mánuði.
BVGGINGAR
HAPPDRÆTTI
SÁÁ1983