Tíminn - 28.12.1983, Qupperneq 20

Tíminn - 28.12.1983, Qupperneq 20
Opiö virka daga / 9-19 V, Laugardaga 10-16 hedd; , Skcmmuvegi 20 Kopavogi C Simar (91)7-75-51 & 7-80-30 V H Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu \ Kaupum nýlega f bíla til niðurrifs SAMVINNUr^^l tryggingarLtxJ & ANDVAKA '-Lr\ J ARMULA3 SIMI 81411 ^^abriel có r HÖGGDEYFAR TT UQJvarahlutir s“°aaiy Ritstjorn86300 — Augiysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Hækkun og lækkun erlendra gjaldmidla setja mark sitt á skipakaupalánin: GETUR MUNAÐ 40 MIUJON- UM KRÓNA A SAMA LÁNINU — þó verdmætið í íslenskum krónum hafi upphaflega verid hið sama ■ Hjá útgerðarfélögum sem tóku erlend lán til togarakaupa fyrir nokkrum árum gæti nú munað mörgum tugum milljóna króna á skuldum eftir því í hvaða gjaldmiðli lánin voru tekin, vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á gengi dollara og helstu Evrópumynta síðan. f dæmi scm við reiknuðum út gengum við út frá um 13 milljóna króna láni í apríl 1979. (Jafngilti um 4. millj. dollara.) Sú upphæð mundi nú jafngilda um 115 milljónum króna ef skuldin væri ógreidd í Banda- ríkjadollurum, um 81 milljón ef skuldin væri ógreidd í Sterlings- pundum og aðeins tæpum 76 milljónum króna ef lánið hefði verið tekið í norskum krónum og væri enn ógreitt. Á þessum þrem og hálfa ári væri munurinn á 13 milljóna króna gengistryggðri skuld því allt að 40 milljónir króna eftir því í hvaða gjaldmiðli lánið hefði verið tekið. „Pað fer ekki á milli mála að hjá þeim útgerðum sem skulda í dollurum hefur sigið á ógæfu- hliðina og er búið að gera í mörg STOFNFUNDUR REKSIRARFÉL- AGSHMANS ■ Áður boðaður fundur um stofnun félags er standa skal að rekstri dagblaðsins Tímans verð- ur haldinn að Rauðarárstíg 18 í dag kl. 17. Mun undirbúnings- nefnd að stofnun fyrrnefnds félags gera grein fyrir hvernig söfnun hlutafjárloforða hefur gengið, jafnframt því sem gengið verður formlega frá stofnun fé- lagsins. ár. Á hinn bóginn hefur það komið þeim til góða sem skuldað hafa í gjaldmiðlum sem hafa lækkað,“ sagði Már Elísson, for- stjóri Fiskveiðisjóðs er við rædd- um við hann um þessa þróun. Már sagði þá ekki hafa reiknað þennan mun út sérstaklega, en kvað hins vegar útgerðarmenn nýlegra skipa hafa rætt um að þessi gengismunur geti munað nokkrum tugum milljóna eftir því hvort þeir hafi tekið lán í pundum eða dollurum. Már telur að vandræði - jafn- vel góðra og aflahárra skipa - stafi kannski að miklu leyti af þessari hækkun dollkarans og að hinu leytinu af mikilli hækkun raunvaxta (vaxta umfram verð- bólgu í hverju landi) sem hækk- að hafi úr 2-3% árið 1978 í 5-8% um þessar mundir. Már kvað þessa þróun hafa byrjað um 1979 og ekki sjást fyrir endann á henni ennþá. Þó margir sérfræðingar haldi áfram að spá því að fljótlega muni koma að því að dollarinn fari aftur að lækka, þá séu aðrir sem séu á annarri skoðun. Á þessum sama tíma, þ.e. síðan Fiskveiði- sjóður hætti að taka lán til endurlána árið 1979 (samkvæmt kröfum ýmissa aðila hér á landi) hafi dollaralánum mjög farið fjölgandi í sambandi við skipa- kaup. Nokkrar útgerðir hafi þó tekið lán í pundum, norskum krónum, þýskum mörkum og jafnvel frönskum frönkum. -HEI ■ Átakst er þörf í ríkisfjármálunum - það veit alþjóð. Margir kunna að halda að fjármálaráðherra landsins, Albert Guðmundsson, sé hér í svo þungum þönkum sem raun bert vitni, út af tómum ríkiskassa, og að hann hafi í því skyni látið hanna fyrír sig Átaksskiltið, sjálfum sér og öðrum til áminningar. Sú er ekki raunin, a.m.k. ekki hvað varðar þessa mynd, því Albert er hér að velta fyrir sér hver verði næsti leikurinn í æsispennandi skák þcirra Friðriks Ólafssonar og Helga Ólafssonar á jólaskákmóti Útvegsbanksans, sem haldið var í fyrradag. - AB Tímamynd Ari Reykjavík: ELLEFU ARA DRENGUR BÍÐUR BANA í ELDSVOÐA ■ Ellefu ára gamall drengur lést í etdsvoða í íbúð að Aust- urbrún 4 snemma á aðfanga- dagsmorgun. Móðir drengsins og sambýlismaður hennar sluppu út úr íbúðinni í tæka tíð. Að sögn siökkviliðsins var það kvatt á staðinn kl. 06.32. en þá hafði sést reykur í húsinu. Þegar á staðinn var komið sást að ein íbúðin á 11. hæð var alelda. Þá voru taldar líkur á að drengurinn væri inni og 5 reykkafarar fóru inn í íbúðina og fundu drenginn í herbergi sem eldurinn hafði ekki enn læst sig í. Drengurinn var "fluttur á slysadeild en komst ekki til meðvitundar. Mjög erfiðar aðstæður voru til slökkvistarfs, bæði vegna þess að íbúðin var hátt uppi og eldurinn mikill. Slökkvistarf gekk þó framar vonum og var því lokið um kl. 8.00. íbúðin er mikið skemmd af eldi og reyk og einnig urðu skemmdir á ganginum fyrir frantan af hita og reyk. Að sögn Rannsók’narlög- reglu ríkisins voru upptök elds- ins ekki enn Ijós í gær. Drengurinn sem lést hét Flögni E. Tryggvason. dropar Þolir ekki pelsinn minn ■ Dropar heyröu eftirfarandi samræður á milli tveggja kvenna: „Maðurinn minn þolir ekki pelsinn minn“, sagði önnur þeirra. „Hvað get ég gert til þess að breyta hugarfari hans gagnvart honum“? „Biddu hann um nýjan“, sagði vinkona hennar. Hrafn hélt áfram að „leikstýra“ ■ Venjulega er það svo, þeg- ar sjónvarpsleikrit er tekið upp, að leikstýringu lýkur þegar búið er að taka upp stykkið, klippa myndina, og ganga frá henni í sinni endan- legu mynd. Nú hefur Hrafn Gunnlaugsson jafnan farið eig- in lciðir, þegar um verkefna- val, leikstýringu, blóðsúthell- ingar og fleira þess háttar hefur verið að ræða, varðandi sjón- varpskvikmyndagerð sem hann hefur komið nálægt. Hrafn hélt uppteknum hætti nú á annan dag jóla þegar sjónvarpsleikrit Þorsteins Marelssonar Hver er... var sýnt í sjónvarpinu, en Hrafn leikstýrði einmitt þessu verki. Dropar heyra úr herbúðum sjónvarpsmanna, að Hrafn hafi haldið áfram að „leikstýra,, verkinu, eftir að filman var farin að rúlla fyrir alþjóð, því ekki voru liðnar nema svona 2 til 3 mínútur af sýningartíma, þegar Hrafn hringdi í sjónvarp, og krafðist samtals við útsend- ingarstjóra hverjum hann öskureiður skipaði að stöðva sýningu verksins, spóla til baka og hefja sýninguna á nýjan leik, þar sem útsendingin hefði ekki hafist á byrjun verksins. Eftir talsvert málþóf var orðið við Krummakröfunum, en hvaðgerðist eftir að „Afsakið - hlé“-skiltið var horfið af skjánum? Jú, ieikritið hófst á nýjan leik, á nákvæmlega sama stað og það gerði í fyrra skiptið, og hallast menn nú helst að því að Krummi strák- urinn hafi bara verið að tala í símann þegar leikritið byrjaði! Krummi .. . ...það skyldi þó aldrei fara svo að ríkið rímdi ekki að selja hlutabréf sín í Flugleiöum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.