Tíminn - 22.01.1984, Síða 2
2
Wánnmt
SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1984
Talsverðar tíl-
færslur inn-
an Flugleiða
■ Talsvert miklar tilfærslur innan Flug-
leiða hafa verið ákveðnar nú nýverið:
Barði Ólafsson, umdæmisstjóri á Vest-
fjörðum með aðsetur á Isafirði, hefur
verið ráðinn aðstoðarstöðvarstjóri á
Keflavíkurflugvelli. Við starfi Barða
tekur Arnór Jónatansson, aðstoðaraf-
greiðslustjórí á Reykjavíkurflugvelli.
Jóhann D. Jónsson, sölufulltrúi í mark-
aðsdeild, tfyst til London og mun starfa
þar sem sölu- og skrifstofustjóri. Gunnar
S. Ólsen, fulltrúi í fraktdeild, mun taka
við starfi deildarstjóra í viðskiptaþjón-
ustudeild.
Erlendur Á. Garðarsson, sölumaður í
fraktdeiid, hefur flust yfir í markaðsdeild
og tekið við starfi sölumanns þar. Þór-
unn Reynisdóttir hefur verið ráðin í
fraktdeild í stað Erlendar. Birgir Bjarna-
son, yfirmaður fraktafgreiðslu innan-
lands, flyst í farþegaafgreiðslu á Reykja-
víkurflugvelli og tekur við starfi aðstoð-
arvaktstjóra. Þorgils Kristmannsson, að-
stoðarstöðvarstjóri Flugleiða á Heat-
hrow í London, flytur til Glasgow og
verður fulltrúi félagsins í Skotlandi.
Marínó Einarsson hefur hafið störf við
markaðsrannsóknir, en hann gegndi
áður starfi auglýsingafulltrúa. Þá hefur
Svandís Árnadóttir verið ráðin í starf
launagjaldkera í stað Kristjáns Fr. Jóns-
sonar, sem lést fyrir skömmu.
■ Ein Lufthansahraðlestin sem er í förum á milli Dusseldorf og Frankfurt.
Þegar
farið að
huga að
sumar-
frís-
ferðum
Lufthansa hraðlestirnar
verða stöðugt vinsælli
A
faralds
fæti
Umsjón Agnes Bragadóttlr
■ Lufthansamenn eru nú bjartsýnir á
að hraðlestar þær sem þeir hafa notað
undanfarin tvö ár sem tengilið frá
Dússeldorf t gegnum Köln til flughafnar
Frankfurt verði í förum til frambúðar.
Hafa lestirnar verið í ferðum fjórum
sinnum á dag, og þar með tengt á
fljótvirkan hátt Evrópuflug og alþjóðleg
flug frá mismunandi flugvöllum í Vestur-
Þýskalandi. Eins og kunnugt er eru
lestarferðir í Vestur-Þýskalandi reknar
af Deutshe Bundesbahn, en Lufthansa
hefur undanfarin tvö ár fengið að leigja
þessar lestir af þýska lestarfyrirtækinu,
og eru þær sérstaklega málaðar í gulum
einkennislitum Lufthansa, og merktar
„Lufthansa Airport Express". f frétt frá
Lufthansa segir að allar líkur séu á því
að þetta fyrirkomulag lestarferða á
vegum Lufthansa verði varanlegt, þar
sem hinn skemmtilegi ferðamáti að ferð-
ast með hraðlest eftir bökkum Rínar sé
orðinn svo vinsæll, að farþegafjöldinn
síðustu mánuði ársins 1983 hafi verið
tvöfaldur á við það sem hann var á sama
tíma árið 1982.
■ Hér er verið að framreiða máltíð í fyrsta klassa flugi Lufthansa, um borð í Boeing 747.
Lufthansa verður með sérlega
lág Skandinavíufargjöld í sumar
■ Það kann sumum að þykja sem það
sé fullsnemmt að greina frá ferðamögu-
leikum á komandi sumri, þar sem nú er
um hálft ár í að sumar hefjist. Þeir sem
eru í ferðabransanum eru hins vegar
ekki ásama máli, þvíþcirreynaævinlega
að vera tímanlega í því að kynna sölu-
vöru sína. Svo er til dæmis með þýska
flugfélagið Lufthansa, sem hefur sent
frá sér fréttir um hvað verði helst á
döfinni hjá féiaginu á komandi sumri, og
hef ég valið örfáa punkta, sem gætu
komið íslenskum ferðalöngum í Skandi-
navíu, og Evrópu yfirleitt, tii góða, eftir
1. apríl nk. þegar sumaráætlun félagsins
gengur í gildi.
Nú fer einnig að líða að þvt að
íslenskar ferðaskrifstofur kynni surnar-
áætlanir sínar, en ef að líkum lætur,
verða þær kynningar afstaðnar eftir einn
mánuð eða svo. Við látum bíða betri
tíma að spá í hvað þær hafa upp á að
bjóða, en eflaust verða einhverjar
spennandi nýjungar þar á meðal.
■ Frá og með 1. apríl nk. ganga í gildi
afsláttarfargjöld á leiðum vestur-þýska
flugfélagsins Lufthansa á milli Vcstur-
Þýskalands og Skandinavíu, og verður
hér um „rauö“ og „græn“ fargjöld að
ræða.
í frétt frá Lufthansa segir að farþegar
sem bóki far sitt með 14 daga fyrirvara
og dvelji a.m.k. eina helgi á áætlunarstað
geti fengið verulegan afslátt. „Græn"
fargjöld verða í gildi árið um kring, og
fela þau í sér 47% afslátt frá normalfar-
gjaldi, en „rauð" fargjöld verða í gildi
aðeins yfir háannatímann, júlí og ágúst,
og er afslátturinn á þeim, miðað við
normalfargjald 65%. Þessi nýju fargjöld
Lufthansa verða þar með lægri en núgild-
andi helgarfargjöld á Skandinavíu-
leiðum fyrirtækisins, og frá og með 1.
apríl falla þau fargjöld því úr gildi.
Sem dæmi um fargjald hjá Lufthansa,
ef miðað er við „grænt" fargjald á milli
Danmerkur og Múnchen og til baka eftir
1. apríl, má nefna að það verður 6300
íslenskar krónur, en normalfargjald á
þessari leið er 11500 krónur. „Rautt"
fargjald á þessari leið verður 4100
krónur. Fargjald til og frá Köln -
Danmörk er á normalfargjaldi 8700
krónur, „grænt" fargjald á leiðinni verð-
ur 4700 krónur og „rautt" verður 3100
krónur.
Lufthansa mun bjóða enn hagstæðari
fargjöld fyrir unga fólkið í sumar, eða
þeim sem eru á bilinu tveggja til tuttugu
og fimm ára gamlir. Þeir fá ferð til
Múnchen frá Danmörku og til baka, eða
' öfugt fyrir aðeins 2000 krónur, og til
Kölnar á 1500 krónur, en sá böggull
fylgir skammrifi að ekki er hægt að bóka
sig í slíka ferð nema með dagsfyrirvara.
Engu að síður er hér um gífurlega
hagstæða skilmála að ræða, og mættu
ísíendingar á ferð í Köben eftir 1. apríl
hafa þennan ferðamöguleika til Þýska-
lands á bak við eyrað, því það er fátítt
að hægt sé að komast til Múnchen og
aftur til baka til Köben fyrir litlar 2
þúsund krónur.