Tíminn - 22.01.1984, Page 9
SUNNUDAGUR 22. JANUAR 19iM
'9
menn og málefni
Stöðngleikinn verður að ná til
allra þátta efnahagslífsins
■ Þegar ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar lagði af alvöru til atlögu
við verðbólguna á s.l. vori var lands-
mönnum hvorki lofað gulli né grænum
skógum. Þvert á móti var mönnum
gert ljóst að baráttan krefðist fórna.
Laun voru fryst og kaupgjaldsvísitalan
tekin úr sambandi og það gekk enginn
að því gruflandi, að lífskjörin mundu
versna meðan verið væri að komast
yfir erfiðasta hjallann.
Almenningur í landinu tók efna-
hagsaðgerðunum af skilningi og var
fús að leggja sitt af mörkum til að
koma í veg fyrir þá efnahagslegu
kollsteypu sem fyrirsjáanleg var, ef
ekki yrði að gert.
Aðgerðirnar gegn verðbólgunni
hafa borið ríkulegan árangur. Rúmum
sjö mánuðum eftir að verðbólgan
stefndi í hátt á annað hundrað prósent
er sá hraði kominn niður fyrir 10 af
hundraði, og er það meiri og betri
árangur en nokkur þorði að vona
þegar atlagan var gerð.
Launþegar hafa borið hita og þunga
baráttunnar en þeir eiga líka mikið í
húfi. Stjórnarandstæðingar hafa hamr-
að mjög á því að kjararýrnunin sé
einhliða verk ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar og láta að því liggja
að óþarfi hafi verið að grípa til svo
harkalegra aðgerða sem raun ber vitni.
Þeir vilja ekkert af því ástandi vita sem
orðið hefði ef látið hefði reka á
reiðanum. Þeir vilja gleyma því að það
stefndi í algjört efnahagsöngþveiti.
Fjöldi fyrirtækja var að komast á
vonarvöl og væri löngu skoltið á
fjöldaatvinnuleysi ef ekki hefði verið
gripið í taumana. Síst hefði það verið
launþegum hagkvæmara en sú lífskj-
ararýrnun sem þeir hafa mátt þola.
Eftir að launaskriðið var stöðvað
máttu launþegar þola nokkrar
skrokkskjóður. Gengið var fellt með
tilheyrandi verðlagshækkunum, bú-
vöruverð hækkaði samkvæmt lögum
og margs konar opinber þjónusta
hækkaði verulega. Nokkur raunabót
var lögákveðin kauphækkun í júní-
mánuði.
Öfugþróun í vöruverði
Síðan hefur gengið verið stöðugt og
búvöruverðshækkunum var haldið í
lágmarki, er þær voru ákveðnar í
haust. Þegar leið fram á haustið voru
vextir lækkaðir. Hafa þeir farið hrað-
lækkandi allt síðan og nú um helgina
verður enn umtalsverð vaxtalækkun.
Stöðugleiki er að komast á í efnahags-
lífinu.
Stöðugt gengi og ört lækkandi vextir
hafa komið atvinnuvegunum mjög til
góða og fram til þessa hefur tekist að
bægja atvinnuleysi frá. Undanfarnar
vikur hefur það að vísu aukist mjög en
aðalorsökin er aflatregða og slæmar
gæftir, og svartsýni gætir vegna bágs
ástands fiskstofna. Geta menn gert sér
í hugarlund hvernig ástatt væri í
þjóðarbúinu ef við byggjum líka enn
við óðaverðbólgu ofan á önnur áföll.
Einn er sá liður sem mörgum finnst
að verðbólguhjöðnunin nái ekki til, en
það er almennt vöruverð. Það er ekki
andskotalaust hve seint og illa gengur
að koma þar á eðlilegum stöðugleika
og jafnvel ætti vöruverð í verslununum
að geta lækkað eitthvað. Litlar
skýringar fást á því hvers vegna vara
heldur áfram að hækka eftir allt það
sem á undan er gengið. Það er freist-
andi að láta sér detta í hug að verslunin
ætli sér ekki að taka á sig neinar byrðar
af því sem það kostar að ná verðbólg-
unni niður á svo skömmum tíma sem
raun ber vitni.
Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra er gjörkunnugur málefnum
verslunarinnar og þarf ekki að lýsa
skoðunum hans og velvilja í garð
þeirra sem við verslun fást og allir vita
að hann er mikill talsmaður frjálsrar
verslunar og frjálsrar álagningar. Samt
getur hann ekki orða bundist um hve
seint honum þykir ganga að koma á
sams konar stöðugleika á vöruverði og
á öðrum sviðum efnahagslífsins og
hefur látið þá skoðun sína í ljósi
opinberlega, að eðlilegt væri að vöru-
verð lækkaði.
Tilkostnaður minnkar
en verð hækkar
Gengisþróunin, vaxtalækkunin og
lægra kaupgjald ættu að koma verslun-
inni til góða og gerir það. Allur
tilkostnaður við verslunarrekstur,
hvort sem um er að ræða innflutning
eða smásöluverslun, hlýtur að lækka
en vöruverðið ber það ekki með sér.
Það er illþolandi ef verslunin ætlar
að halda öllu sínu á þurru þegar aðrir
leggja hart að sér til að koma á
eðlilegum efnahagslegum stöðugleika.
Verslunarrekendur gefa þá skýringu
að vaxtalækkunin komi seint fram í
lækkuðu vöruverði. En langt er um
liðið síðan gengið varð stöðugt og
launahækkanir starfsfólks hafa ekki
verið slíkar í rúmlega tvö misseri að
þessi mikilsverðu atriði geti réttlætt
verðhækkanir úr hófi. Erlend verð-
bólga hefur náttúrlega áhrif á inn-
kaupsverð, en til þess hefur hún verið
minni í helstu viðskiptalöndum okkar
en hér, svo að hún á ekki að vega
þungt.
Það getur ekki verið meiningin að
efnahagsaðgerðirnar með tilheyrandi
kjararýrnun almennings eigi að standa
undir óhófsfjárfestingum verslunar-
innar enda ósæmilegt að ætlast til þess.
Vissulega hefur nokkur stöðugleiki
orðið á verðlagningu einhverra vöru-
tegunda, en ekki eins mikill og æskilegt
væri og verðskyn þeirra sem ákvarða
álagningu og almennings sem kaupir
sýnist ekki vera í takt við ört minnk-
andi dýrtíð.
Kynslóðir hafa vaxið úr grasi sem
alist hafa upp við stöðuga verðbólgu,
þótt hraðinn hafi verið mismunandi á
ýmsum tímabilum. Ekki er óeðlilegt
að það fólk sem ekki þekkir annað
ástand líti á dýrtíðarskrúfuna sem
náttúrulögmál sem stjórnast af víxl-
gengi hækkana á kaupgjaldi og verð-
lagi og það tekur sinn tíma að átta sig
á að þessi sjálfvirkni er ekki lengur í
gangi.
Þeim mun meiri ástæða er til að allir
leggist á eitt til að sannfæra okkur sjálf
um að hægt er að koma á efnahags-
legum stöðugleika. Þeir sem við versl-
un fást verða að skilja þetta ekki síður
en aðrir og haga gjörðum sínum sam-
kvæmt þvi.
Greitt fyrir
gamlar syndir
Miklar verðhækkanir á þjónustu op-
- inberra stofnana hafa verið óhjá-
kvæmilegar, þrátt fyrir að þær stinga
mjög í stúf við stefnu stjórnvalda í
þeirri viðleitni að ná verðbólgunni
niður á viðunanlegt stig. Þar búum við
að gamla kerfinu þegar einn megin-
þátturinn í baráttunni við verðbólguna
var að halda vísitöluhækkunum í lág-
marki.
Þjónustan var seld langt undir kostn-
aðarverði og mismunurinn brúaður
með erlendum lánum. En þarna hlýtur
að komast á stöðugleiki eins og á
öðrum sviðum efnahagslífsins og er
þess að vænta að senn muni til að
mynda rafmagn og heitt vatn hætta að
hækka í verði til neytenda.
Sú gjörbreyting sem orðið hefur á
lánakjörum er einn gleggsti votturinn
um breytt viðhorf. Vaxtalækkanirnar
hafa dregið gífurlega mikið úr fjár-
magnskostnaði sem var að kyrkja allt
atvinnulíf og kom í veg fyrir að hægt
væri að reka fyrirtæki á heilbrigðum
grundvelli og þar með standa undir
sæmandi lífskjörum í landinu. Kaup-
hækkanir í krónutölu eru lítils virði í
óðaverðbólgu. Það er því ekkert annað
en lýðskrum þegar haldið er fram að
verðbólguhækkanir komi launþegum
til góða.
Andstæðingar ríkisstjórnarinnar
vinna ötullega að því að sprengja upp
þá samstöðu sem náðst hefur um þá
stefnu að koma á eðlilegum stöðug-
leika í efnahagslífinu. Þeir komast
ávallt hjá því að tengja saman þjóðar-
framleiðslu og lífskjör. Krónuupphæð-
in í launaumslögunum er eina viðmið-
unin sem þeir reyna að telja fólki trú
um að skipti máli.
Afli og þjóðartekjur
Minnkandi sjávarafli og dökkleitar
horfur í þeim efnum er helsti þrándur
í götu bættra lífskjara eins og nú
horfir, en ekki baráttan gegn verðbólg-
unni og þær ráðstafanir sem gerðar eru
til að vinna bug á henni, eins og sumir
vilja vera láta. Þjóðartekjur minnka í
hlutfalli við minnkandi afla og það
hlýtur óhjákvæmilega að koma niður
á afkomu alls almennings í landinu.
Ein mesta breytingin sem orðið
hefur í efnahagslífinu undanfarna
mánuði eru hríðlækkandi verðbætur á
vísitölutryggð lán. í óðaverðbólgunni
var verðtryggingin á lán hrikaleg og
skuldarar horfðu í örvæntingu á hve
ört skuldir þeirra jukust frá mánuði til
mánaðar. Þær drápsklyfjar sem lagðar
voru á fyrirtæki og þau heimili í
landinu sem skulduðu voru óbærilegar.
Við þetta ástand var ekki unandi. En
með hjöðnun verðbólgunnar hefur
þrounin orðir sú að verðtryggðu lánin
eru ein hin hagkvæmustu sem nú er völ
á, þrátt fyrir að bankavextir hafi verið
lækkaðir verulega.
Ef vísitöluskrúfan magnast á ný
Oddur Ólafsson
skrifar
munu verðtryggðu lánin þróast til verri
vegar fyrir þá sem skulda, en þeir eru
margir, og verður þeim síst til hags-
bóta.
Tekjujöfnun
Mikið er rætt og ritað um hvernig
tryggja á afkomu hinna lægstlaunuðu.
Það er viðurkennt af öllum að lægstu
launin duga hvergi nærri til framfærslu
einstaklinga og enn síður heimila.
Vandinn er sá að hækka þessi laun án
þess að kauphækkunin vaði upp eftir
öllu kerfinu og að þeir sem betur mega
fái jafnvel enn meiri kjarabætur en þeir
sem helst þurfa á þeim að halda. Það
er áratuga reynsla af því að láglauna-
hóparnir bera ávallt skarðan hlut frá
borði í kjarasamningum. Því hafa
komið fram hugmyndir um að vernda
kjör láglaunafólksins með aðgerðum
eins og að hækka lágmarkslaun í
ákveðna upphæð eða að beita tekju-
tryggingu á vegum opinberra aðila til
að jafna kjörin. Menn eru ekki á eitt
sáttir um hvaða leið er heppilegust en
seint mun öllu réttlæti verða fullnægt á
þessu sviði fremur en öðrum.
En í allri umræðunni um réttlæti og
skiptingu borgaranna í tekjuhópa hef-
ur skattheimtan verið furðu mikið
utanveltu. Staglast er á upphæðum
sem láglaunafólkið fær í kaup og
launum meðal- og hátekjumanna og
kvenna, en sleppt úr dæminu hinum
stighækkandi sköttum sem lagðir eru á
hærri laun. Er útkoman því iðulega sú
að fólk sem talið er til þess forréttinda-
hóps að fá mannsæmandi laun hefur
ekki til hnífs og skeiðar vegna skatt-
heimtunnar og dregur oft á tíðum lítið
hærri upphæðir upp úr launaumslögum
sínum en þeir sem vinna á lægri
töxtum.
Afkoma heimila fer mjög eftir því
hvort ein fyrirvinna eða fleiri vinna
fyrir saltinu í grautinn, og þegar talað
er um tekjutryggingu eða bága afkomu
heimila hlýtur að verða að taka þetta
dæmi með í reikninginn.
Tekjujöfnunin í gegnum skattakerf-
ið hlýtur að leiða hugann að þeim
prívatskatti launamanna sem tekju-
skatturinn er. Þrátt fyrir þá viður-
kenndu staðreynd að hann sé1 oft á
tíðum bæði óréttlátur og ósanngjarn er
eins og engin stjórnvöld fái rönd við
reist til að koma þar neinum umtals-
verðum umbótum við, en það liggur í
augum uppi að eins og horfir í þjóð-
félaginu mundi „hálaunafólkið" vel
geta sætt sig við að fá ekki launahækk-
anir þótt hinum tekjuminnstu væri
hyglað eitthvað, ef unnt reyndist að
leiðrétta eitthvað þessa meinloku í
skattheimtunni.
í verðbólguslagnum hafa launþegar
borið hita og þunga eins og fyrr er sagt.
Innflytjendur og kaupmenn ættu nú að
. taka á honum stóra sínum til að stuðla
að æskilegri og nauðsynlegri þróun í
efnahagsmálum.
Opinberar stofnanir eru óðum að
koma fótunum undir sig fjárhagslega
með þeim miklu hækkunum sem þær
hafa fengið.
En verðbólguhugsunarhátturinn
virðist enn ríkja hjá þeim sem síst
skyldi. Svo virðist sem ríki og sveitar-
félög muni ekki lækka skatta til sam-
ræmis við hina miklu verðbólguhjöðn-
un sem við blasir. Viðbárurnar eru
margar og gamalkunnar. En ef á að
koma á stöðugleika í efnahagslífinu
verða allir, bókstaflega allir, en ekki
aðeins launþegar, að leggja sitt af
mörkum.
Þau nýju viðhorf sem skapast hafa
hljóta að ná til allra þátta þjóðlífsins.