Tíminn - 22.01.1984, Side 15

Tíminn - 22.01.1984, Side 15
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 15 í raun og veru eru Þjóðverjar og Belgir ekki útlendingar í augum Hollendinga. Þetta er líkt og við hugsum til frænda okkar á Norðurlöndum. Þess vegna vakti mikla eftirtekt, þegar Samvinnu- ferðir-Landsýn náðu samningum við Sporthuis Centrum í Hollandi, ogdálítill kvíði hjá Hollendingum, en reyndin varð önnur. Ferðaskrifstofan gerði nýjan samning í haust og hljóðaði hann upp á 15 milljónir. Mun þetta vera með stærri samningum, sem íslensk ferðaskrifstofa hefur gert. Þessi samningur var það góður að ferðaskrifstofan getur selt þess- ar ferðir á sama verði og síðastliðið sumar, og er salan þegar hafin. Hefur þegar mikið verið pantað, og er uppselt í sumar ferðir næsta sumar. Þegar komið er að Emhof orlofsbúð- unum, en þangað er 1 tíma keyrsla frá Amsterdam, getur niaður varla trúað því að þar séu 600 hús, svo vel eru þau staðsett í skóginum. Húsin eru mjög falleg og eru frá 70 ferm. upp í 200 fermetra hvert hús. Húsin eru útbúin öllum þeim þægindum, sem fólk óskar í slíkum ferðum, t.d. er stofan stór, búin góðunt húsgögnum með útvarpi og sjón- varpi. í Emhof ervídeóstöð, sem sendir út allan daginn, og útvarpsstöðin sendir út dagskrá á mánudagsmorgna á ís- lensku. Eldhúsið er með öllum nauðsyn- legum eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þar er innkaupakerra í hverju húsi. Það er reglulega ánægjulegt að versla í kjörbúðinni. Einn starfsmanna Sam- vinnuferða-Landsýnar sagði að það væri gaman að sjá stundum þrjár kynslóðir í cinu og sama húsi, afa og ömmu, pabba og mömmu og börnin í orlofsferð. Paradís undir hvolfþaki Þeir, sem vilja sleppa allri matseld í fríinu, geta einfaldiega farið í þjónustu- miðstöðina. Þar iðar allt af lífi og fjöri. Þar eru 5 veitingastaðir af ýmsum gerðum, verslanir, kjörbúð, diskótek, hárgreiðslustofur, barir, minigolf, tenn- isvellir, leiktækjasalur, keiluspil o.fl. Hjólaleiga er mjög vinsæl. Það er bann- að að aka bílum á svæðinu, nema þegar fólk kemur og fer að húsunum. Þarna er allt sem maður óskar í orlofsferðum, en það sem vakti mesta athygli mína var sundhöllin, slíkt mann- virki hef ég aldrei séð. Okkur var sagt að slík bygging (þetta er hvolfþak) kosti 1 milljón íslenskra króna. Sundhöllin býður upp á margvísleg þægindi. Þar er saunabað, tyrkneskt bað, freyðibað, svokölluð sólarfallbyssuböð. Sagt er að þessi sólarfallbyssuböð séu sérstaklega fyrir fólk sem tekur fúkkalyf og fólki, sem þjáist af hjartasjúkdómum og háum blóðþrýstingi er sagt að notfæra sér þessa sólarlampa. Rennibraut er í laug- inni, sem er 42 metrar að lengd. Svo er þessi frægi öldugangur, sem kemur á hálftíma fresti, og alls konar barnalaugar og leiktæki fyrir börn. Þarna getur maður setið í hitabeltisgróðri í 30 stiga hita og notið lífsins á sundlaugarbarmin- um, eins og væri í paradís. Því byggjum við íslendingar ekki svona sundhöll? Ekki vantar vatnið. Hollendingar verða að hita þetta með olíu úr Norðursjó. Sædýrasafn Það er margt hægt að segja um Emhof of Kempervennen. Þegarer95% nýting á þessum stöðum og eigendurnir þora ekki að auglýsa nema í þremur löndum. Þetta segir sitt. Þeir eru alltaf með ýmsar nýjungar. Síðastliðið sumar var t.d. boðið upp á það, sem kallað var „barna- gaman," ýms leiktæki fyrir yngstu kyn- slóðina. Þar var alltaf fullt af börnum. Svo sá ég skíðabrekku með gervisnjó o.fl. Síðast en ekki síst bjóða Samvinnu- ferðir-Landsýn upp á dagsferðir um Holland á ýmsa skemmtilega staði, svo sem sædýrasafnið, þarsem höfrungurinn Guðrún frá Hafnarfirði leikur listir sínar. Einnig t De Efteling og þar er heill ævintýraheimur. Þar eru Mjallhvft og dvergarnir sjö Þýrnirós, Rauðhetta og úlfurinn o.s.frv. Þar er hægt að vera allan daginn og fara í öll tækin, því þar kostar ekkert, annað en inngangurinn. Ég hef farið víða, t.d. til Spánar, Ítalíu, Grikklands og fleiri sólarlanda, en ég held ég velji Holland aftur. Ég þakka Samvinnuferðum-Landsýn fyrir að opna augu mín fyrir þessu landi. ■ Undirskrift stóra samningsins, sem sagt er frá i greininni, Eysteinn Heigason og Tiggeler sölustjóri. ■ íslenskir blaðamenn og eiginkonur þeirra við komuna til Emhof, seint í september 1983 í 20 stiga hita. Sumarhúsin eru í baksýn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.