Tíminn - 22.01.1984, Page 18
18
nútímihnt
Wimm
SLINNUDAGUR 22. JANÚAR I9(M
ATKVÆÐA-
SEÐILL
Þrjár íslenskar hljómsveitir sem að þínu viti sköruðu fram úr á árinu
1982
1. ______________________________________________
2. ______________________________________________
3. ______________________________________________
Þrjár erlendar hljómsveitir sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu
1.
2.
3.
Þrjár íslenskar plötur sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
2.
3.
Þrjár erlendar plötursem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
1. __________________________________________
2. __________________________________________
Þrjú íslensk lög sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
1. _____________________________________
2. _____________________________________
3. _____________________________________
i
i,
Þrjú erlend lög sem að þínu mati sköruðu fram úr á árinu 1982
1.
2.
3.
Nafn:
HeimilisfangL
SATT HELDUR
SINU STRIKI
— verið er að vinna ur þeim hugmyndum
sem fram komu á NOMUS
■ Á vegum SATTer nú veriö að vinna
úr þeim hugmyndum sem fram komu á
NOMUS en það þing sóttu tveir menn
héðan eins og greint hefur verið frá áður
í Nútímanum, þeir Ásmundur Jónsson
og Hilmar J. Hauksson.
Að sögn Jóhanns G. Jónssonar hjá
SATT er nú t.d. unnið að samnorrænum
rokktónleikum sem ætlunin er að halda
hér í tengslum við Listahátíð í ár þannig
að hingað koma ein rokkhljómsveit frá
hverju Norðurlandanna og hefur svar
borist frá öllum Norðurlöndunum um
þátttöku í slíkum tónleikum utan Sví-
þjóðar og er áhuginn ytra á þeim mikill
að sögn Jóhanns.
Það kom einnig fram í máli hans að
hann og Hilmar hafa átt viðræður við
Þorgeir Ástvaldsson á Rás II og Jón Örn
Marinósson á ríkisútvarpinu um hugsan-
lega gerð tónlistarþátta frá hverju
Norðurlandanna fyrir sig sem-síðan yrðu
væntanlega fluttir á Rás II en á móti yrði
samskonar tónlistarþáttur gerður hér-
lendis og sendur til allra Norðurland-
anna. Þáttagerð fyrir sjónvarp er einnig
með inni í myndinni á þessu sviði með
samskonar formerkjum.
Hvað komu hljómsveitanna á sam-
norrænu tónleikana varðar sagði Jóhann
að ætlunin væri að gefa sveitarfélögum
út um allt land kost á að fá þessar
hljómsveitir til sín en það mál er enn á
frumstigi.
„Það er ljóst*' sagði Jóhann, „að þessi
atriði munu Ieiða til aukinnar kynningar
og samstarfs á milli Norðurlandanna á
þessu sviði",
-FRI
Kristján Magnússon og félagar: Frá vinstri: Ámi Scheving, bassi, Kristján Magnússon, píanó, Sveinn Óli Jónsson,
trommur og Þorleifur Gíslason, tenór-saxófónn.
Nýstofnaður Jazzklúbbur Reykjavíkur tekur til starfa:
TÓNLEIKAR
I KVOSINNI
■ Nýstofnaður Jazzklúbbur Reykja-
víkur tekur til starfa með djamm-sessjón
á sunnudaginn, 22. janúar. Leikið verð-
ur í veitingastaðnum Kvosinni í bygg-
ingu Nýja bíós, gengið inn um dyrnar
lengst til hægri þegar komið er úr
Austurstræti. Tónleikarnir hefjast
klukkan þrjú.
Nemendahljómsveit frá Jassdeild
Tónlistarskóla Félags íslenskra hljóm-
listarmanna hefur djammið, og verður
sá háttur á framvegis að hljómsveitir úr
þessum nemendahóp byrja hverja ses-
sjón Jazzklúbbsins.
Að þessu sinni skipa Nemendahljóm-
sveit Tónlistarskóla F.I.H. þeir Ari Har-
aldsson á tenór-saxófón, Magnús Sig-
urðsson á bassa, Hjalti Gíslason á
trompet, Rúnar Gunnarsson á barrytón-
saxófón, Jón Borgar Loftsson á trommur
og Davíð Guðmundsson á gítar.
Á sunnudaginn verða tvær hljómsveit-
ir aðrar á dagskrá. Hjá Kristjáni Magn-
ússyni og félögum leikur fyrirliðinn á
píanó, Þorleifur Gíslason á tenór-saxó-
fón, Árni Scheving á bassa og Sveinn Óli
Jónsson á trommur.
Þriðja hljómsveitin er tríó, þar sem
Guðmundur R. Einarsson leikur á
trommur Guðmundur Ingólfsson á pí-
ánó og Skúli Sverrisson á bassa.
Auk þessara fyrirframákveðnu hljóm-
sveita er ætlunin að hafa sama hátt á og
forðum í Breiðfirðingabúð, að hver sem
vill komast í djammið hafi með sér
hljóðfæri, og verði þeir fleiri en rúmast
á einni sessjón, verður skráð á biðlista
fyrir þá næstu.
Jassleikarar hafa hug á að hefjast
handa stundvíslega klukkan þrju síðdeg-
is. Þess vegna er fólki, sem hyggst láta
skrá sig inn í klúbbinn á fyrstu ton-
leikum, bent á að koma tímanlega.
Vinsældakosningar Nútímans:
NÚ FER HVER AD
VERÐA SÍÐASTUR
Atkvæðaseðillinn sendist merktur: Tíminn Co/Nútiminn, Síðumúla 15 ____|.
■ Hér birtist atkvæðaseðill okkar í næstu helgi og við vonumst til að úrslit
vinsældakosningum Nútímans í næst í kosningunum liggi fyrir ekki síðar en
síðasta sinn þannig að nú fer hver að þann 12. febrúar n.k.
verða siðastur að taka þátt í kosningun- Fjórir heppnir þátttakendur fá fjórar
um. Síðasti seðillinn birtist svo um Ip-plötur að eigin vali frá fjórum
hljómplötuútgáfum hér og viljum við
hvetja sem flesta til að senda inn seðla.
Utanáskriftin er Tíminn/Co Nútím-
inn Síðumúla 15 Reykjavík.