Tíminn - 22.01.1984, Page 19

Tíminn - 22.01.1984, Page 19
SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 1984 mmm 19 Friðrik Indriðason Crucifix tíl íslands — halda hér tvenna tónleika dagana 10. og 11. febrúar ■ Bandaríska pönk-hljómsveitin Crucifix mun heimsækja okkur í næsta mánuði og halda hér tvenna tónleika í Félagsstofnun stúdenta, dagana 10. og 11. febrúar n.k. en hingað koma þeir á vegum Gramm útgáfunnar. Crucifix eru upprunnir í San Francisco eða frá svipuðum slóðum og Dead Kennedys og ef eitthvað er eru þeir jafnvel með enn botnlausari keyrslu en þeir síðarnefndu. Hljómsveitin er skipuð þeim fjórmenningunum Chris, Jake, Matt og Sothira og hefur hljómsveitin nú starfað í ein tvö ár. Hingað koma þeir frá Englandi þar sem þeir eru nú á tónleikaferðalagi en nýlega kom út fyrsta platan þeirra Dehumanization, sem gef- in er út í Evrópu, þar og er hún nú í 15. sæti Independant-listans þar og á upp- leið. Ekkert aldurstakmark verður á tón- leikum þeirra í Félagsstofnun enda setja þeir jafnan það skilyrði fyrir tónleikum sínum að slíkt sé. Sem dæmi um textagerð þeirra grípum við niður í lag þeirra How, When and Where eða Hvernig, hvenær og Hvar: „Við fordæmum allt hernaðarbrölt/ valdið og eyðilegginguna/aflið notað gegn vilja okkar/hið gagnslausa blóð sem þeir eyða/Aðeins spurning um tíma hvernig, hvenær og hvar/bvssur og sprengjur eru mjög raunverulegar/þær eiga að notast gegn þér og mér/ og kannski uppgötvar þú brátt/þær eru ekki fyrir varnir eða friðsamlegan tilgang/... “ Og þá er bara einni spurningu ósvar- að, mun Rás II spila pönk-lag í fyrsta skipti í tilefni komu Crucifix. -FRI Námskeið í hljóðveri ■ Vilt þú kynnast þeim möguleikum sem hljóðver hefur að bjóða? Stúdíó Mjöt heldur nú á næstunni námskeið um grundvallaratriði hljóðversvinnu. Námskeiðið samanstendur af eftirfar- andi þáttum: 1. Undirbúningsvinna - Magnús Þór Sigmundsson - 3 tímar. 2. Uppbygging hljóðversins og grunn- tækja þess - Kristján E.G. 3. Notkun hljóðnema - Jón Gústafsson - 3 tímar. 4. Upptökur rafhljóðfæra, gítar og bassa - Magnús Guðmundsson 1 tími. 5. Trommuupptökur - Ýmsir leiðbein- endur - 2 tímar. 6. Elektróník, synthar og trommuheilar - Jón Gústafsson 2 tímar. 7. Söngur - Magnús Guðmundsson - 1 tími. 8. Upptaka á eigin efni - Kristján E. Gíslason -17 tímar. Þetta námskeið er fyrst og fremst hugsað fyrir hljómsveitir. Þó geta einstaklingar sótt það, sem og fleiri. Verð er miðað við 10 stúdíótíma. Því greiðir hljómsveit sem sækir námskeiðið 4000 krónur fyrir pakkann en einstak- lingur greiðir 1000 krónur fyrir sama tíma. Hljómsveit: 4000 krónur Einstaklingar: 1000 krónur. Auglýsing til skattgreiðenda Athygli skattgreiðenda er vakin á því að dráttarvextir vegna vangoldinna þinggjalda álagðra 1983 og eldri þinggjaldaskulda falla hinn 9. febrúar n.k. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Fjármálaráðuneytið, 16. janúar 1984 VELADEELD, VERSLUN OG SKRIFSTOFUR HAMARS HF. ERU FLUTTAR INYTT HUSNÆÐI BORGARTUN 26 Við erum með innflutning á vörum sem bera toppmerki eins og t.d. DEUTZ, KRONE, CLARK, HYSTER, NIEMEYER, MONO og fjölda annarra hluta, sem þekktir eru fyrir vöndun og hagkvæmni. Varahluta- og viðgerðarþjónusta. í bættu umhverfi erum við tilbúnir til stórátaka. NUERUM VÉR SAMEINAÐIR AÐ BORGARTÚNI26 VÉLADEILD - VINNUVÉLAVERKSTÆÐI - SKIPA- OG VÉLAVERKSTÆÐI - EFNISSALA - NÝSMÍÐI - RENNIVERKSTÆÐI. HAMARHF Borgartún 26. Sími 22123 Samvinnuhreyfingin óskar eftir að ráða mann til að starfa að ákveðnu fræðslu- og kynningarverkefni um eins árs skeið með aðsetur á Akureyri. Viðkomandi hafi Samvinnuskólapróf eða hlið- stæða menntun og þarf að hafa starfað að félagsmálum. Starfinu fylgja ferðalög innanlands og vinna um helgar. Æskilegur aldur 20-30 ár. Góð laun í boði fyrir réttan mann. Umsóknir sendist til starfsmannastjóra Iðnaðar- deildar Sambandsins Glerárgötu 28,600 Akureyri fyrir 20. febr. n.k. sími 96-21900, heimasími 96-21774. ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband 'PRENTSMIDJAN édddi Cl HF. SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR SÍMI 45000

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.