Tíminn - 22.01.1984, Page 22

Tíminn - 22.01.1984, Page 22
22 ■ Hægt og silalega ekur Landroverinn eftir forugum slóðanum. Bílstjórinn okkar, Nec- ati, stýrir gætilega fram hjá klettadröngum, sem hrunið hafa niður úr fjallinu. Alls staðar má líta hrúgur af steypu- brotum og grjóti, nema þar sem jarðýtur hafa hreinsað að einhverju leyti til. Við enda vegar- ins stöðva okkur tyrkn- eskir hermenn. Hrópað er hástöfum í vígvalla- símann. Spurt er eftir leyfi hjá æðri yfirvöld- um. Loks þegar það er fengið fáum við að halda áfram, en við erum fyrstu blaðamennirnir sem komum inn í fjalla- þorpið Muratbagi eftir jarðskjálftann fyrir f jór- um vikum, sem olli al- gjörri eyðileggingu. „Það var morgun og það var kola- myrkur. Þá heyrði ég hávaða og heilmik- ið ryk þeyttist upp," segir Mamut litli á munaðarleysingjahælinu. Hann er tíu ára. „Það drundi í öllu og allt hristist. Ég gat engan séð. Þegar þriðja drunan kom féll þakið niður og pabbi og mamma urðu undir því. Öll dýrin dóu. Aðeins Mustafa bróðir min og ég erum eftir. Öll húsin í þorpinu eru ónýt. Það eru aðeins moskan í þorpinu og skólinn, sem einhver mynd er á enn. Bjálkar standa upp úr haugum af mold og grjóti. Brotnir trévagnar liggja á jörðinni. Skammt frá má sjá marglitan höfuðdúk og hárspöng og kettir skjótast milli rústanna. Hundur lötrar vegalaus í leðjunni, sem stokkfrýs þegar kvöldar. I Muratbagi býr enginn lengur. 470 af 890 íbúum þorpsins fórust í jarðskjálft- unum undir húsúm sínum. Þeir krömd- ust undir veggjum húsanna, grófust í mold eða lömdust til dauðs af röftum og þakbitum. Þeir sem af komust búa nú meðal ættingja á láglendinu eða þá í búðum þeim sem í skyndi var komið upp yfir þá nauðstöddu í grannbænum Horasan. Jarðskjálftinn þann 30. október á sl. ári átti upptök sín tvo kílómetra norðan við Muratbagi og varð hann 1342 að bana, en 1142 særðust. 30 þúsund kýr, kindur og geitur töpuðust. 6500 hús eyðilögðust og 35 þúsund manns misstu heimili sín. Þegar við komum þarna í lok nóvem- ber steðjaði að ný hætta. Úlfgrá ský báru því vitni að snjórinn og kuldinn var í nánd. Á nóttinni var oftast tíu til fimmt- án stiga frost og senn mun frostið herða og þýða þrjátíu til fjörutíu gráður. ískaldir vindar munu feykja mjöllinni yfir landið. Þá eru fjallaþorpin stundum einangruð frá umheiminum svo vikum skiptir. Þá hefst ný hörmungatíð fyrir þá sem af lifðu. Um það bil 6000 manns var komið fyrir í skólum í héraðinu og í bráða- birgðahúsnæði sem komið hefur verið upp í bæjum Narman, Horsasan, Pasinl- er og Sarikamis. Aðrir hafast við í Mimm SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1984 ■ í tjaldi sem þessu búa oft tuttugu manns. Gólfflöturinn er þrír metrar að þvermáli. skjóllitlum tjöldum í þorpum sínum innan um allar rústirnar. Þessi kringlóttu tjöld sem að jafnaði eru þrír metrar að þvermáli bera rauðan hálfmána, sem er sama tákn og rauði krossinn. Ryðguð ofnrör koma út undan tjaldskörinni. Þarna búa oftast sjö eða átta manns, en allt upp í tuttugu. Fæstir höfðu neinu að klæðast eða neitt matarkyns, hvað þá að ráðrúm hefði gefist til að forða litlu sparifé eða húsmunum út úr fyrri heimilum. Fyrstu björgunarmennirnir, sem komu frá Ank- ara, voru mjög hjálplegir og tóku rösk- lega til hendinni, segir fólkið. Þeir ruddu til eins og frekast var mögulegt, en þeir ■ íbúarnir i þorpinu Koyunören sjást hér flytja aleigu sina á vörubílum til tjaldbúða. ■ Móðir, dóttir og afi reyna að verjast kuldanum, vafin innan i ábreiður. Ofninn þeirra nær lítt að hamla gegn kuldanum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.