Tíminn - 08.02.1984, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984
Tölvudeild Sambandsins óskar eftir að
ráða í eftirfarandi störf:
Kerfísforritari
(System programmer)
Við leitum eftir starfsmanni með reynslu í kerfisforritun
eða próf í tölvunarfræði eða sambærilega menntun.
Kerfísfræðingur
Við leitum eftir starfsmanni með reynslu í kerfissetningu
eða próf í viöskiptafræði eða sambærilega menntun.
Tölvudeildin býður upp á góða aðstöðu og fjölbreytilegt
starf. Við höfum yfir að ráða IBM 4341, 5/34 og 5280
tölvum.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf til 13. febrúar nk.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra Sam-
bandsins, Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu, og skal
skila umsóknum þangað. Upplýsingar um störfin gefur
forstöðumaður Tölvudeildar Sambandsins.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Auglýsing
Vegna væntanlegra nýrra reglna um stjórn botnfiskveiða
1984, vekur ráðuneytið athygli útgerðarmanna á eftirfar-
andi:
a) Útgerðum nýrra skipa og skipa sem verið hafa
skemur að veiðum en 12 mánuði á tímabilinu 1.
nóvember 1980 til 31. október 1983, mun samkvæmt
hinum væntanlegu reglum.gefinn kostur á að velja
aflamark eða sóknarmark reiknað samkvæmt sér-
stökum reglum þar um.
b) Hafi á árinu 1983 orðið eigendaskipti eða skipstjóra-
skipti á skipi án þess að það hafi skipt um eigendur,
skal samkvæmt hinum væntanlegu reglum gefa
útgerð þess kost á að velja meðalaflamark eða
sóknarmark eins og um nýtt skip væri að ræða eða
halda því aflamarki sem skipið ellegar fær.
Útgerðum þeirra skipa sem svo er háttað um eins og að
ofan greinir og gæta vilja hagsmuna sinna í þessu efni,
er hér með gefinn kostur á að gefa sig fram við
ráðuneytið fram til 10. febrúar n.k. og kynna sér þá
kosti, sem þær hafa um að velja. Þær verða síðan að
tilkynna ráðuneytinu val sitt, a.m.k. til bráðabirgða fyrir
17. febrúar n.k. Einnig þarf sjávarútvegsráðuneytinu að
berast vottorð fógeta eða annars sambærilegs aðila til
staðfestingar um eigendaskipti og vottorð lögskráningar-
stjóra til staðfestingar um skipstjóraskipti samkvæmt
ofanskraðu. Sjávarútvegsráðuneytið,
4. febr. 1984
Til sölu
Mercedes Benz 300 D árg. ’82.
Upplýsingar í síma 35818 eftir kl. 19 á kvöldin.
Til sölu
Massey Ferguson 135 (diesel) árg. 1972, í góðu
lagi.
Upplýsingar í síma 95-4294.
f STAÐARNEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
Wmthmi
fréttir
HAFÍS í MEÐALLAGI
Erf átækt
á Íslandi?
— Yfirskrift
rádstefnu um
félags- og
atvinnumál
■ „Þarna á að ræða um leiðir til
tafarlausra úrbóta fyrir það fólk sem nú
nær alls ekki lengur endum saman",
sagði Inga Þyri Kjartansdóttir, sem er í,
hóp sem undirbýr ráðstefnu um félags-
og atvinnumál n.k. laugardag.
„Er fátækt á íslandi?“, er yfirskrift
ráðstefnunnar. Getur verið að hér - þar
sem litsjónvörp, videó, bifreiðar og
utanlandsferðir teljast til lífsnauðsynja -
sé til efnaleg fátækt? Er virkilega til fólk
hér á landi, börn ogfullorðnir, sem líður
skort? Og kemur þér það kannski við?
Það eru svör við þessum spurningum
sem ræða á um á fyrrnefndri ráðstefnu,
sem framkvæmdahópurSamhygðarboð-
ar til á Hótcl Hofi við Rauðarárstíg í
Reykjavík n.k. laugardag kl. 13.30.
„Alþingismenn, fulltrúar verkalýðs-
félaga og atvinnurekenda, ásamt lág-
launafólki mun þar ræða einn mesta
smánarblett íslensks þjóðfélags í dag,
fátæktina, og leiðir til skjótra úrbóta",
sagði Inga Þyri. Allir eru velkomnir á
ráðstefnuna og ekki síst er ungu fólki
sérstaklega boðið að mæta. Barnagæsla
verður á staðnum fýrir þá er þess þurfa.
-HEI
■ Hafís norðvestur af íslandi er í
meðaliagi miðað við árstíma. Hafísjað-
arinn er um þessar mundir um 80
sjómílur norðvestur af Bjargtöngum og
60 sjómílur norðvestur af Straumnesi.
Hins vegar er ís við Grænland tiltölulega
lítill, þegar norðar dregur. Er t.d.
óvenjulega Iítil útbreiðsla hafíss úti fyrir
ströndum Scoresbylands, sem er á svip-
aðri breiddargráðu og Jan Mayen.
Þetta kemur fram í yfirliti sem Tíman-
um barst frá Hafrannsóknardeild.
Margir vegir ófær
ir af völdum snjóa
■ Margir vcgir á landinu eru nú ófærir
með öllu sökum snjóa. Vegagerðin gat
lítið aðhafst í gær á Norðurlandi vegna
óveðurs, en þó tókst að opna leiðina
norður aö Blönduósi, en þar fyrir utan
var snjómokstri á Norðurlandi yfirleitt
frestað þangað til í dag ef veður leyfir.
„Við stefnum að því að opna veginn
norður á Strandir, á Akureyri og Siglu-
fjörð á morgun. Þingeyjarsýslurnarhafa
verið þannig í dag, að menn hafa ekki
getað gert sér grein fyrir hvað mikið af
snjó er á vegunum vegna veðursins og
þess vegna hefur ekkert verið mokað
þar. En næsta færan dag er stefnt að því
■ Skráðum atvinnuleysisdögum hjá
vinnumiðlun Sauðárkróks hefur fjölgað
mjög frá ári til árs að undanförnu. Árið
1981 voru þeir 4.735, árið 1982 voru þcir
7.085 og árið 1983 voru skráðir atvinnu-
leysisdagar orðnir 13.036. Frá þvi í
nóvember s.l. hafa 40-60 einstaklingar
fengið greiddar atvinnuleysisbætur hjá
verkalýðsfélögunum hverju sinni á
tveggja vikna fresti, að því er segir í
ályktun frá Verkalýðsfélaginu Fram.
Auk þess sé atvinnuleysi hjá vörubíl-
stjórum og einnig bætist við fólk þegar
vinna fellur niður hjá frvstihúsunum.
Einnig er bent á að 14 byggingar-
■ Rannsóknarskipið Hafþór, sem er
eign Hafrannsóknarstofnunar, hefur
verið leigt þremur rækjuvinnslustöðvum
á ísafirði og Hnífsdal til eins árs.Mun
skipið stunda djúprækjuveiðar og hefur
verið komið fyrir frystivélum um borð,
en þær gera skipinu mögulegt að vera
lengur í liverri veiðiferð án þess að hætta
sé að að gæði aflans rýrni. en rækja þolir
að opna alveg á milli Akureyrar og
Vopnafjarðar og norður að Þórshöfn,"
sagði Hjörleifur Ólafsson, vegaeftirlits-
maður, þegar Tíminn ræddi við hann um
færðina á landinu í gær.
Hjörleifur sagði, að í gær hefði verið
mokað vestur í Búðardal um Heydal.
Ráðgert hefði verið að opna leiðina um
Svínadal og suður í Reykhólasveit, en
það hefði ekki verið mögulegt vegna
veðursins. Hins vegar hefði verið mokað
á Snæfellsnesi norðanverðu út alla
strandiengjuna en á sunnanverðu Nesinu
hefði ekki verið hægt að ljúka mokstri
en hann bjóst við að það tækist í dag alla
leið yfir Fróðárheiði.
mönnum hafi nýverið verið sagt upp
störfum.
Þrátt fyrir framgang við uppbyggingu
Steinullarverksmiðjunnar og fleira telja
stjórn og trúnaðarmannaráð Fram hættu
á að það atvinnuleysi sem virðist nú vera
að festast í sessi verði ekki yfirunnið
nema að fleira komi til. Er því talið
brýnt að gerð verði úttekt á atvinnulífinu
í bænum og að menn átti sig á hvers eðlis
þetta umrædda atvinnuleysi er. Skorað
er á bæjarstjórn Sauðárkróks og aðra
ráðamenn að bregðast nú þegar við og
láta gera slíka könnun og hefjast síðan
handa við að leita leiða til úrbóta.
ekki nema fárra daga geymslu í ís.
Að sögn Jóns Jónssonar, forstjóra
Hafrannsóknarstofnunar, var í sjálfu sér
nóg fyrir skipið að gera hjá stofnuninni.
„En við fengum engar fjárveitingar til að
halda því úti og þess vegna var ekkert
annað að gera en leigja það. Annars
hefði það legið hér í Reykjavíkurhöfn út
árið," sagði Jón. — Sjó
Þá sagði Hjörleifur að allir aðalvegir
á suðurströndinni hefðu verið opnir í
gær alla leið austur á firði. Hins vegar
sagði hann að hliðarvegir á Suðurlandi
væru meira og minna ófærir en stefnt
væri að því að opna þá eins fljótt og
kostur væri á.
-Sjó.
Umræðuefni á
30. norræna
lögfræðiþinginu
fOsló:
Tölvutækrii í
þágu lög-
fræði og
lögin og
fjölmidlamir
■ Tölvutækni i þágu lögfræði og
lögin og ijölmiðlar eru umræðuefni
sem tekin verða fyrir á allsherjarfund-
um á þrítugasta norræna lögfræðinga-
þinginu sem haldið verður í Osló
15.-17. ágúst n.k.
í frétt frá stjórn íslandsdeildar nor-
rænu lögfræðingaþinganna segir að
auk þessara tveggja mála verði fjallað
um 18 efni í deildum á þinginu, m.a.
um réttarreglur um tæknifrjógvun;
rannsókn fíkniefnamála og sönnunar-
vanda í þeim, stöðu þess sem misgert
er við skv. reglum opinbers réttarfars;
sjálfstæði lögmanna sérstaklcga gagn-
vart stjórnvöldum og fl.
Tveir íslenskir lögfræðingar eru
meðal framsögumanna, prófessor dr.
Gunnar G. Schram verður aðalfram-
sögumaður um hafréttarreglur og
Norðurlöndin og Garðar Gíslason
borgardómari verður annar framsögu-
maður í viðfangsefninu um lagareglur
í sambandi við tæknifrjógvun. Þá
verður Þór Vilhjálmsson forscti
Hæstaréttar þátttakandi í hringborðs-
umræðum um efnið: lögin og fjölmiðl-
arnir.
Tilkynning um þátttöku þarf að hafa
borist Birni Helgasyni hæstaréttarrit-
ara eigi síðar cn 26. mars n.k.
-GSH
Sauðárkrókur:
Stóraukning á
atvinnuleysi
undanfarin ár
-HEI
HAFÞOR LEIGÐUR T1L RÆKJUVEIÐA