Tíminn - 08.02.1984, Blaðsíða 20

Tíminn - 08.02.1984, Blaðsíða 20
Ritstjorn 86300 - Auglysingar 18300- Afgreiðsia og askritt 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Miðvikudagur 8. febrúar 1984 Í w abriel HÖGGDEYFAR í?CJvarahlutir ,“,T’ SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 EINN . BANKARAÐS- MAÐUR VEÐURTEPPT- UR FYRIR NORÐAN — þannig að ekki var hægt að taka ákvörðun um bankastjóra ■ Fresta varð fundi í banka- ráði Búnaðarbankans og Stofnlánadeild, þar sem einn bankaráðsmanna, séra Gunnar Gíslason var veðurtepptur norður í landi og komst ekki til fundarins. Stefán Valgeirsson formaður bankaráðs upplýsti Tímann í gær að máiin hefðu stuttlega verið nedd á fundi í gær, en síðan frestað, þar sem séra Gunnar hefði ekki komist. Hann sagði að ekki lægi fyrir hvenær næsti fundur í banka- ráðinu yrði haldinn. -AB Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 ) Varahlutir * Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu \ Kaupum nýlega \ btla til niðurrifs ■ íslensk stjómvöld og samn- inganefnd um stóríðju gera sér vonir um að samningar takist á milli stóriðjunefndarinnar ann- ars vegar og Elkem og Sumitomo hinsvegar, þess efnis að Lands- virkjun verði tryggð a.m.k. þriðjungs hlutdeild í ágóða þeim sem væntanlega verður á Járn- blendiverksmiðjunni á Grundar- tanga í framtíðinni, og komi þessi ágóðahlutur í stað beinnar raforkuverðshækkunar til Landsvirkjunar. Tíminn hefur það eftir áreið- anlegum heimildum að bjartsýni sé til þess að ætla að slíkt sam- komulag náist, en Norðmenn buðu upphaflega upp á að Landsvirkjun fengi 15% af ágóð- anum í sinn hlut, en Islendingar fóru þá fram á 50% af ágóðanum til handa Landsvirkjun. Norð- menn hafa síðan gert eitt tilboð, þar sem þeir hafa hækkað boð sitt talsvert, og íslendingar gert gagntilboð, þar sem þeir hafa heldur lækkað sig niður fyrir 50%, þannig að nú gera menn sér vonir uni að þegar fulltrúar Elkem og stóriðjunefndin hittast í Kaupmannahöfn eftir næstu helgi, og halda þaðan áleiðis til Japan, þar sem teknir verða upp samningar um eignaraðild jap- anska fyrirtækisins Sumitomo, þá náist ganga frá samningi í þá veru að Landsvirkjun fái ekki undir þriðjungi af hagnaði Járn- blendisins í Grundartanga í komandi framtíð, en það er talin verulegur áfangi, ef slíkt næst, þar sem heimsmarkaðsverð á járnblendi þykir nú standa vel og talið er að svo verði á næstunni. Menn eru því bjartsýnir á að Járnblendiverksmiðjan á Grund- artanga geti innan tíðar farið að skila svo og svo miklum arði á ári hverju, sem myndi þá að tals- verðu leyti renna til Lands- virkjunar. Heimildarmenn Tíntans gera sér litlar vonir um að hægt verði að ná fram samningum við Norð- menn og Japani um hækkun raforkuverðsins í öðru formi en því sem greint hefur verið hér frá, þannig að megináherslan hefur verið lögð á það, af hálfu íslendinganna að ná þessari prósentutölu sem hæstri. -AB Vonast eftir samkomulagi vid Elkem og Sumitomo um Járnblendiverksmidjuna: ■ Hálfgerð umferðarteppa varð á Miklubrautinni í gær þegar nýi liðstrætisvagninn stöðvaðist þar vegna bilunar, enda ekki áhlaupaverk að aka fram hjá honum. Tímamynd Sverrir. LANDSVIRKJUN TRYGGfiUR ÞRIfil- UNGURAF VÆNTANLfGUM AGÓÐA? Borgarverkfræðingsembættið: HAFNAÐI ÖLLUM ATHUGASEMD- UM VEGNA SKÚLAGÖTUSKIPIIIAGS — skipulagsnefnd afsalaði sér rétti til að fjalla um málið f gær voru svo lögð fyrir borg- arráðsfund gögn í málinu, 38 ■ Skipulagsnefnd Reykjavíkur gaf samþykki sitt fyrir því á fundi í fyrradag að embætti borgar- verkfræðings skyldi fjalla um at- hugasemdir um Skúlagötuskipu- lagið, en ekki borgarskipulagið, en harðar deilur urðu um það á síðasta borgarstjórnarfundi, hvort það bryfi í bága við fyrri samþykkt borgárstjórnar að hafa þann háttinn á. Borgarstjórinn ákvað á sínum tíma að taka málið úr höndum borgarskipu- lagsins á þeim forsendum að forstöðumaður og starfsmenn skipulagsins, hefðu tekið hlut- dræga afstöðu í málinu, sem samrýmdist ekki embættis- skyldum. athugasemdir við ýmsa þætti skipulagsins, flestar frá íbúum Skuggahverfisins og afgreiðslu borgarverkfræðingsembættisins á þeirn. Var öllum athugasemd- unum hafnað og vísað á bug. Fulltrúar minnihlutans í skipu- lagsnefnd, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Sigurður Harðar- son bókuðu á fundi nefndarinnar í fyrradag andstöðu sína við meðferð málsins, á forsendum sem greint var frá í frétt frá síðasta borgarstjórnarfundi hér í blaðinu á laugardag. Þá boðaði Ingibjörg Sólrún að hún myndi leggja fram tillögu í nefndinni um traustsyfirlýsingu skipulags- nefndar á borgarskipulag og starfsmenn þess, sem heyra und- ir skipulagsnefnd í stjórnkerfi borgarinnar. -JGK ■ Nýja skíðalyftan i Blá- fjölium var vígð í gærkvöldi. Lyftan, sem er í Suðurgili, er 700 metra iöng og getur flutt 1200 manns á klukkutíma, þannig að nú er hægt að flytja 7000 manns á klukkutíma með skíðalyftunum í Bláfjöllum. Tímamynd Róbert . dropar BB Kynvilla ættgeng? ■ Fordómar gagnvart kyn- villu eða kynhverfu fólki eru sjálfsagt á undanhaldi hér eins og erlendis, þótt alltaf komi eitthvað til mcð að bera á þeim. Eitt af því sem mcnn velta fyrir sér, er hvort kynvilla sé ættgeng. Linn slíkur hringdi til læknis nýverið til að spyrja hann út í þetta atriði. Læknir- inn var ekki í vanda með svarið: „Nei, kynvilla er ekki ættgeng, ef hún er stunduð einvörðungu." Hundamálið erfitt íslendingum erlendis ■ Stórýktar fréttir í erlendum blöðum, aðaUega á Norðurlönd- um og Bretlandi, um slátranir á hundum í höfuðborg íslands, og öðrum aðgerðum til að stemma stigu við ólöglegu hunda- haldi i borginni, hafa kallað fram hörð viðbrögð í þessum löndum nieðal hundavina. Þannig þykir það ekki lengur neitt aðalsmerki á ferðalögum erlendis að tjá viðmælendum sínum að viðkomandi sé ís- lendingur, vegna oft hörku- legra viðbragða í kjölfarið. Þýðir oft lítið að reyna að koma viti fyrir útlendingana, sem trúa þá betur æsifrétta- blöðum þarlendum en frá- sögnum innfæddra Reykvík- inga. Mun kveða svo ranimt að þessu, að Dropar hafa heyrt að íslcndingar sem búa crlend- is Ijúgi frekar til þjóðernis meðan á þessu stendur frekar en að lenda í enn einni hunda- umræðunni. Verður flogið heim í dag? ■ íbúar í hinum ýmsu lands- hlutum hafa sérkenni sem þekkja má þá af, og staðsetja á landinu í samræmi við það. Kemur þar bæði til málfar og framburður. IJciinildir Dropa herma að starfsmenn á innan- landsflugi Flugieiða séu farnir að læra inn á þetta töluvcrt í tengslum við símhringingar utanbæjarmanna sem staddir eru í borginni og bíða flugs til síns hcima. Þannig geti starfsmenn svar- að flóknustu spurningum um hæl, þótt oft skorti á skýrleika hjá spyrjandanum. Þegarspurt er: „Verður flogið heim í dag?“, er svarið já eða nei, eftir atvikum, „það verður flogið til Akureyrar síðdegis.“ Efhins vegarerspurt: „Verður flogið í dag?“, erfyrirspyrjand- anum samstundis gerð grein fyrir flughorfum til Vest- mannaeyja þann daginn. Krummi . . . ...heyrir að þeir flughræddu spyrji: „Ætlið þið nokkuð að fljúga...“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.