Tíminn - 29.02.1984, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 19tU
verksmiöjurnar sem framieiða borpress-
ur og einingar, og Jeffrey, sem er stærsti
færibanda og mulningsvélaframleiðandi
heims. Dresser var aðili að lagningu
gasleiðslunnar miklu frá Síberíu til
Evrópu, og framleiddu mikið af því sem
með þurfti í það. Þeir framleiða allt sem
þarf til kolavinnslu, og svo mætti lengi
telja.
- Með tilkomu Dresser. verður nú
lagt mikið fé í vinnuvélaframleiðslu
IHD. Áherslan í framleiðslunni breytist
ekki. Áfram verður byggt á áratuga-
reynslu International Harwester. og ein-
ungis breytt með framfarir í huga. Þetta
bætir aftur á móti stöðu IH svo um
munar á vinnuvélamarkaðnum, og við
vonumst til að þetta hjálpi okkur mjög
mikið í samkeppninni við japansk smíð-
aðar vélar, þar eð dollarinn er svo
óhagstæður. Til þess að vera sam-
keppnisfærir í verði verðum við að fá
talsverðar ívilnanir.
Framleiðsla International Hough
Dresser er því eins og fram kom í
upphafi allt frá teskóflum og upp í
olíuborpalla. Megináherslan hjá okkur
verður þó áfram eins og áður, jarðýtur,
hjólaskóflur, gröfur og dráttarvélar."
- Þið flytjið inn fleira frá IH en áður
var nefnt?
„Já, International er stærsti vöruflutn-
ingabílaframleiðandi heims. Eins og
staða dollarans er í dag, erum við ekki
samkeppnisfærir við marga þá vörubíla
sem hér eru fluttir inn, vegna þess að
verðið er svo hátt. En við seldum mikið
af bílum á árunum 1975-81, en þá dró
mjög úr þessu og hefur gert áfram vegna
gengisþróunarinnar. - Mest af fram-
leiðslu IH í vörubílum er.u dráttarbílar
sem notaðir eru í flutningana þvert yfir
Bandaríkin. En þeir framleiða alls konar
vörubíla, allt frá torfærutröllum upp í
fágaða malbiksbíla", segir Jóhannes.
„Svo má ekki gleyma dráttarvélunum,
sem eru mjög útbreiddar hér, og hafa
reynst mjög vel. IH er einn stærsti
dráttarvélaframleiðandi í heiminum.
Það nýjasta sem við kvnnum á þeim
vettvangi nú er lúxusútgáfa, með öllum
hugsanlegum þægindum fyrir stjórnand-
ann.‘‘
Lansing-lyftarar
frá Sambandinu
„Lansing-lyftararnir eru með mest
seldu lyfturunum hérlendis. Lansing
Bagnal framleiða bæði dísellyftara og
rafmagnslyftara, og hafa rafmagnslyftar-
amir rutt sér mjög til rúms hér hin síðari
ár. Það er m.a. vegna þess að í matvæla-
framleiðslu er orðið bannað að nota
dísellvftara vegna mengunar, og þá
kemur fátt annað til greina en rafmagn.
Lansing rafmagnslyftarar eru þekktir að
því að sá tími sem gefinn er upp varðandi
vinnuúthald. stendur. Þessa lyftara er
hægt að nota stanslaust í tólf tíma, og
síðan er þeim bara stungið í samband
yfir nótt. Þeir eru síðan teknir að
morgni, fullhlaðnir og tilbúnir í verkefni
dagsins.
- Þá má nefna varðandi Lansinglyft-
arana, að þeir eru nær einráðir á
Svíþjóðarmarkaði. Þá nota herir Nató
og ísraels eingöngu Lansing-lyftara."
Priestman-gröfur
„Við erum búnir að flytja inn Inter-
national Harwester í um það bil 60 ár,
og fyrir 40-45 árum hófum við innflutn-
ing á Priestman-gröfum. Framleiðsla
Priestman er frá 10 tonna gröfum upp í
stærstu krana á olíuborpöllum. Við
höfum selt langmest af gröfum í
þyngdarflokknum 12-14 tonn, og gröf-
urnar frá Priestman sem við flytjum inn
eru eingöngu beltagröfur. Priestman-
gröfurnar eru mjög viðurkenndar um
allan heim, og hér hafa þær haslað sér
traustan völl. Það er ekkert skrýtið,
Priestman er stóraðili á alþjóða mæli-
kvarða í gröfu og kranasmíði, og fyrsti
borpallakraninn sem settur var upp í
Norðursjó, var einmitt Priestman. Þá
voru þeir brautryðjendur í vökvahífingu
á bómu. Þá fórum við að flytja inn
International Harwester Jumbo skurð-
gröfur fyrir nokkrum árum, og þær vélar
hafa gert það sérlega gott, eru góðar,
hagkvæmar og sterkar."
Stærsta
þjónustumiðstöðin
„Það að við erum svo gamalgrónir í
þessum viðskiptum er okkur í hag, og
þjónustumiðstöð okkar á Höfðabakka 9
er með þeim stærstu sinnar tegundar
hér. Þar höfum við tvö sérhæfð verk-
stæði, annars vegar fyrir fólksbíla og
jeppa, og hins vegar fyrir vinnuvélar,
vörubíla og tæki. Stöðugt námskeiða-
hald og endurmenntun starfsmannanna
gerir það að verkum að við erum ákaf-
lega vel í stakk búnir til að mæta öllum
bilunum og erfiðleikum af þeim toga. Þá
höfum við þar opna smurstöð fyrir stór
tæki. sem ekki hefur legið á lausu á
höfuðborgarsvæðinu fram til þessa.
Mestu skiptir þó hversu þekking
starfsmanna okkar í þjónustumiðstöð-
inni er sífellt haldið við. Við höfum
sérþjálfað lið til að gera við IH vélarnar,
og námskeið í viðgerðum eru haldin hér
einu sinni á ári að jafnaði fyrir hverja
tegund. Þarna gerum við allt sem við
erum innflutningsaðilar fyrir, og mjög er
sótt í þjónustu okkar, þó ekki sé um tæki
frá okkur að ræða.
- Við höfum eins og við sögðum í
upphafi nánast allt á boðstólum sem
kallast geta vinnuvélar, og líka höfum
við sérhæfða og ákaflega nýtískulega og
rúmgóða þjónustumiðstöð, sem gerir
okkur kleift að veita fyrsta flokks þjón-
ustu‘‘, sögðu þeir Jóhannes Guðmunds-
son og Guðjón Haukur Hauksson hjá
Véladeild Sambandsins að lokum.
-SÖE
9
ÞURRKARI
SÍA
fyrir loft frá loftþjöppu
fyrir öll þungafarartæki
CR Brakmaster þurrkar og hreinsar loft frá loftþjöppu
áður en það fer inn á bremsukerfið.
Óhreint loft er samsett úr fleiru en bara vatni, það er
olíukennt og skítugt. Þessi úrgangur gerir bremsu-
kerfið óvirkt með tímanum auk þess sem rakinn þéttist
í köldum veðrum og frýs.
CR Breakmaster tryggir þjöppunni lengra líf vegna
frábærrar hönnunar.
CR Breakmaster er sjálfhreinsandi og algjörlega við-
haldsfrír.
Það er þess vegna sem CR Breakmaster hefur náð eins
miklum vinsældum hjá vörubílsstjórum og vélstjórum
og raun ber vitni.
Leitið frekari upplýsinga
Heildsala - Smásala
r> FNGII RFRT<?
VARAHLUTIR & TÆKI ÁRMÚLA 36, 105 REYKJAVÍK. SÍMI 82424, PÓSTHÓLF 476
STUNDAR ÞÚ
LYFTINCAR?
Viö mælum meö
HYSTER LYFTARA
Taktu upp símann og talaðu viö okkur.
Reynslan sýnir, aö viö hjá HAMRI og fjölmargir ánægðir
viöskiptavinir getum eindregiö mælt meö HYSTER LYFTARA.
veldu þér vandaða vél
HAMARHF
Véladeild
Sími 22123. Pósthólf 1444. Tryggvagötu, Reykjavík.