Tíminn - 29.02.1984, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAlf 1984
19
FYRIRTÆKI LAN DSINS:
- Þið hafið víkkað sviðið í verktaka-
starfseminni frá því í byrjun?
„Já. Þetta byrjaði allt með jarðvinnu
í Hrauneyjafossi. Síðan kom Sultar-
tangastíflan, og síðan vegagerð. Nú
höfum við farið mikið út í byggingar-
iðnaðinn, og erum með fimm stigahús,
með 36 íbúðum í byggingu, og tvö
raðhús með alls 11 íbúðum. Nú starfa
hjá okkur á annan tug smiða.“
„Vedsetti allt
nema konuna“
- Hvernig hófst þetta allt saman?
„Hagvirki var stofnað 9. júlí árið
1981, eiginlega í framhaldi af Hraun-
virki“, segir Jóhann. „Upphafið að
Hraunvirki var það, að eftir að Búrfell
og Sigalda voru virkjuð af erlendum
aðilum, og stórum íslenskum sem jafnan
fóru yfirum, lagði Verktakasamband
íslands mjög hart að Landsvirkjun að
Hrauneyjafossvirkjun yrði hlutuð niður
í smærri verkeiningar, svo auðveldara
væri fyrir íslenska aðila að gera tilboð og
vinna verkið. Þegar síðan var farið að
bjóða verkin út, varð Fossvirki hf. til, en
það var samruni margra fyrirtækja og
einn stærsti aðilinn þar í, ístak er 80%
eign erlendra aðila. Fossvirki ætlaði sér
að byggja Hrauneyjafossvirkjun.
Nokkrir íslenskir aðilar hóuðu sig þá
saman, og buðu í stöðvarhússgrunninn.
Fossvirki fékk reyndar verkið, en við
mættum síðan aftur árið eftir, þegar
aðrir verkþættir voru boðnir út. Hraun-
virki var samsteypa þriggja aðila, Ellerts
Skúlasonar, Svavars Skúlasonar og mín.
Ég veðsetti í upphafi allt nema konuna
eins og sagt er. Ég lagði aleiguna að
veði, húsið og bílana til að sýna að ég
tryði á verkið. Við buðum í tvö verk, eitt
smátt og eitt stórt. Við vorum langlægstir
í báðum, og fengum litla verkið til
reynslu. Tilboðin í það verk voru þannig,
að við buðum 117 milljónir g. kr.,
Suðurverk bauð 162 milljónir, Vörðufell
168, Fossvirki bauð 275 milljónir og
Strabac bauð 650 milljónir. Kostnaðar-
áætlun var 225 milljónir. Þetta stóðst í
meginatriðum, og við fengum stærra
verkið. Við buðum 2,7 milljónir ný kr.,
kostnaðaráætlun var 4,1 milljón og Foss-
virki bauð 6,7 milljónir. Þetta varð að
ganga upp og gekk.
Hraunvirki náði svo ekki lengra, það
kom upp ákveðinn ágreiningur í upp-
byggingu fyrirtækisins. Þá varð Hagvirki
stofnað, stofnendur voru ég, Svavar
Skúlason og Gísli Friðjónsson, sem
hafði starfað hjá Hraunvirki. Síðarbætt-
ist fjórði eigandinn við, Aðalsteinn Hall-
grímsson, en hann hafði líka unnið hjá
Hraunvirki."
„Aðlögum okkur
verkefninu“
- Þú nefndir áðan að þið væruð farnir
meira inn á byggingariðnaðinn, kallar
það ekki á aukinn tækjakost?
„Við förum eins og ég sagði áðan inn
í byggingaiðnaðinn til að skapa samfellu
í verkefnum, við ætlum okkur að halda
sömu stærð og við höfum náð. Við
höfum alltaf farið eftir þeirri stefnu, að
kaupa okkar tæki fyrir verkefnin, en
ekki að vinna verkefnin með óhag-
kvæmum tækjum. Við eigum nú t.d.
byggingakrana, og fyrir hvert verkefni
kaupum við eða útvegum tæki sem
henta, eigum við það ekki fyrir. - Það
hafa margir furðað sig á tækjakaupum
okkar, en við höfum haldið okkar striki
og áætlanirnar staðist fyrir bragðið. Það
þótti til dæmist stórt hjá okkur, þegar
við keyptum Caterpillar 245 beltagröfu,
65 tonna, á sínum tíma. Við glímdum þá
við vandamál sem fólst í því, að ef við
sprengdum veikt var grjótið of stórt fyrir
tækin sem við höfðum, en ef við sprengd-
um sterkar, varð það of smátt í verkið.
Þess vegna keyptum við bara gröfu sem
réði við grjótið.
Við eigum nú mikið af tækjum. Við
höfum aðallega verslað við þrjá aðila,
Bílaborg sem selur Komatsu vélar og
Hino vörubíla, Heklu sem selur Cater-
pillar-tæki, og Velti sem selur Volvo-
vörubíla. Þessir aðilar hafa verið mjög
duglegir að þjónusta okkur, við erum
kröfuharðir í þeim efnum. Svo eigum
við tvær Case traktorsgröfur, og eina
Atlas-gröfu frá Vélum og þjónustu, og
einnig villtust inn hjá okkur þrjár Inter-
national hjólaskólfur". - En við erum
ekki haldnir neinni tröllatryggð við á-
kveðin merki, við leitum alltaf tilboða,
þegar okkur vantar nýtt tæki, og veljum
hagkvæmasta kostinn. Við rekum fyrir-
tæki á viðskiptagrundvelli. Fyrir þessi
tæki höfum við stóra þjónustudeild, þar
sem starfa 30-40 manns. Þar í er smur-
stöð sem við rekum, smurbíll, verkstæði
hér í þessari byggingu, og verkstæði á
Sultartanga.
- Hvað er á döfinni nú?
„Við erum að byggja fimm stigahús,
og tvö raðhús. Við höfum nú ásamt
norsku fyrirtæki boðið í Blönduvirkjun,
en enginn íslenskur aðili gat boðið einn
í þá virkjun sökum þess að viðkomandi
þarf að hafa byggt jarðgöng á síðustu
fimm árum. Við tökum að okkur alls
konar verk, og vanti þig einbýlishús, þá
getum við byggt það fyrir þig, hannað og
útvegað lóðina. - Við erum að byggja
okkar eigið hús, þar sem í verða skrif-
stofur fyrirtækisins, verkstæði og öll
aðstaða fyrir dótturfyrirtæki okkar, Fit
hf., sem flytur inn alls konar vörur til
byggingariðnaðar og verktakastarfsemi.
Við höfum hér 35 þúsund fermetra lóð,
og ætlum okkur að byggja margt á henni.
„Heft verktakastarf-
semi þjóðhagslega
óhagkvæm“
- Eitthvað að lokum?
„Já, það er eitt sem ríkisvaldið verður
að athuga, og það er að verð á vinnuvél-
um er alltof hátt. Vél sem kostar hundr-
að þúsund erlendis til dæmis, hún kostar
215-230 þúsund hér. Þetta setur ákveðin
höft á verkstarfsemi, og stendur þeirri
ætlun okkar, að flytja út verktakastarf-
HJÁ OKKUR FÁIÐ ÞIÐ :
KÚLULEGASALAN HF
Suðurlandsbraut 20 Pósthólf 353 121 Reykjavík Simi 91-84500
semi, alvarlega fyrir þrifum. Við kaup-
um sams konar vél á meira en helmingi
hærra verði til landsins en íslenskir
aðalverktakar. Þetta gífurlega verð á
vélum skilar sér í hærra raforkuverði, og
hefur þar af leiðandi áhrif á lífskjör.
Fyrir bragðið eru menn sífellt að tjasla
við gömul og ónýt tæki, og eyða öllu sínu
fé í að kaupa í þau varahluti, sem er
þjóðhagslega óhagkvæmt."
Ríkisvaldið þarf að bjóða mun meira
út en gert er, taka verktakastarfsemina
í sína þjónustu. Það passar t.d. ekki fyrir
þjóðarhag, að hafa vörubílarekstur sem
aukabúgrein bænda. Dæmi um þetta er
vörubílaæðið á Blönduósi, þangað hafa
verið keyptir 22-25 vörubílar, og það
stefnir í að ekki sé hægt að vinna verkið
nema nota vörubílana þeirra.
Veistu það, að á íslandi eru nægilega
margar trésmíðavélar, til að þjóna þörf
allra Norðurlandanna? Þetta stefnir allt
í sömu átt. Það verður að huga að því
hvað er hagkvæmt og hvað ekki. Við
höfum lagt áherslu á það markmið
okkar, að koma stærri og flóknari verk-
efnum á íslenskar hendur. Það þýðir, að
við viljum ekki bara að íslenskar hendur
vinni verkið, heldur njóti einnig ávaxt-
anna af því og reynslunnar sem af því
hlýst, Annað markmið fyrirtækisins er
að geta unnið alla þætti verka, heildar-
hönnun, skipulagningu og framkvæmd.
Þetta gerum við í dag.
- Mikilvægast er þó í þessu öllu
saman, að starfsliðið sé samhent, og góð
tæki séu fyrir hendi. Skilyrðin fyrir því
að hægt sé að hækka kaupið er að
afköstin aukist, lykillinn að bættum
lífsskilyrðum er aukin framleiðni,“ sagði
Jóhann Bergþórsson forstjóri Hagvirkis
að lokum.
-SÖE ■ Sultartangastíflan - ett af stórverkum Hagvirkis.
Tímamynd G.E.
IÐNAÐARTOLVUR
frá Texas Instruments
einu þekktasta fyrirtæki heims á þessu sviði.
Þær henta til dæmis fyrir skilvindustýringar einnig
fyrir stýringu heilla verksmiðja og allt þar á milli.
Stýritæknideild okkar veitir einnig forritunarþjónustu
og verkfræðilega ráðgjöf.
Allar upplýsingar veittar á staðnum — Sendum bæklinga ef óskað er.
Góð birgða- og pöntunarþjónusta.
KÚLULEGUR OG KEFLISLEGUR
frá hinum heimsþekktu OI%r verksmiðjum.
Sænsk gæðavara fyrir skip báta og önnur farartæki,
einnig
PAKKDÓSIR frá
LOFTSTÝRIBÚNAÐ frá FESTO
leiðandi fyrirtæki með loftstýribúnað.
Höfum fyrirliggjandi tjakka, loka og fylgibúnað.
Hagvirki hf. er stórfyrirtæki í verktakastarf-
semi. Fyrirtæki sem hefur risið upp úr nánast
engu á örskömmum tíma. Á sídasta ári störf-
uðu á sjötta hundrað manns þar, þar af 430 í
einu. Tækjaflotinn er ekkert smáræði, fyrir-
tækið á 8 jarðýtur, 7 hjóiaskólfiur, 5 belta-
gröfur, 25 vörubíla, þar af 5 Caterpiliar 35
tonna, 5 steypubíla, 3 körfubíla og er þá ótaiið
safn borvagna, loftpressa, valtara ofl. Um
fyrirtækið eru skiptar skoðanir, sums staðar
er sagt að slíkir risar éti upp flesta keppinauta
sína á skömmum tíma, annars staðar að þeir
hafi komist á „jötuna“ og byggt sig þannig
upp, og þriðji hópurinn segir að ör stækkun
fyrirtækisins sé verðskulduð, því sé vel
stjórnað, og áhersla sé lögð á hagkvæman
rekstur. „Þeir eiga þetta skilið, þeir hafa
staðið sig miklu betur en nokkur þorði að spá
í upphafi, og nú stenst þeim enginn snúning“.