Tíminn - 10.03.1984, Blaðsíða 1
Islenskur sigur fSviss-Sjá bls. 10-11
Blað 1 Tvö blöð í dag
Helgin 10.-11. mars 1984 60. tölublað - 68. árgangur
Síðumúla 15-Pósthótf 370Reykjavík-Rrtstjorn86300- Augtysingar 18300- Afgreidsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Landafrædin tekur breytingum ísjávarútvegsráduneyti:
PATREKSFIORÐUR TAL-
INN TIL VESTURLANDS
-en ekki Vestfjarða þegar kvótinn á annars vegar íhlut
■ „Eftir nýju „kvótalanda-
fræðinni“ tilheyrir Patreksfjörð-
ur ekki lengur Vestfjörðum.
Samkvæmt þeim kvóta sem ég
hef hér fyrir framan mig erum
við nú komnir í kjördæmi þeirra
Vestlendinga. Auk þess að það
er prinsippmál hjá okkur að fá
áfram að teljast með Vestfirðing-
um - þótt slæmir séum - þá
teljum við þarna líka um hags-
munamál að ræða því með þessu
fáum við minni kvóta á bátana
okkar og togarann, svo munar
hundruðum tonna. Við teljum
því að verið sé að taka af okkur
það sem við eigum,“ sagði Sig-
urður Viggósson, sveitarstjórn-
armaður á Patreksfirði spurður
hvort við hefðum fengið réttar
fréttir um nýju landafræðina.
Varðandi togarann þeirra
Patreksfirðinga - Sigurey - sagði
Sigurður hann fá um 300 tonnum
minni kvóta en ella, þar af yfir
200 tonnum minna af þorski -
vegna þess að togarinn telst nú
orðið Vesturlandstogari. Kvóti
Sigureyjar er um 2.600 tonn.
Spurður hvort menn hygð-
ust leita réttar síns sem Vestfirð-
ingar sagði- Sigurður hafa verið
kosna viðræðunefnd við
„kerfið". „Ég veit ekki betur en
að þeir séu á fundi í dag með
gömlu þingmönnunum sínum frá
Vestfjörðum áður en þeir fara á
fund nýju þingmannanna sinna,
þ.e. þingmanna Vesturlands.
Nýju kjördæmamörkin miðast
við skagann Tálkna, sem er milli
Patreksfj arðar og Tálknafj arðar,
þannig að þeir síðarnefndu fá
áfram að tilheyra Vestfjörðum.
Um hugsanlegar ástæður sagði
Sigurður: „Ætli þú verðir
ekki að spyrja sérfræðingana í
ráðuneytinu að því. Ég hef að
vísu heyrt þá skýringu að vegna
þess að við værum svo nálægt
Breiðafirði hljótum við að fiska
svo mikið þar. Þetta er hins
vegar gefin firra, því við fiskum
ámákvæmlega sömu miðum og
aðrir Vestfirðingar. Hugsanlega
fara kannski 2-3 bátar á net í
Breiðafjörðinn kannski einn
mánuð yfir sumartímann."
- HEI
Slasaður
skipverji
fluttur
með þyrlu
— slasadist alvarlega
á auga
■ Skipverji á skuttogaranum
Viðey RE 6 var fluttur með
þyrlu frá varnarliðinu á Borg-
arspítalann í gær. Maðurinn
fékk vir i andlitið og skaddaðist
alvarlega á auga auk þess sem
kinnbeinið brákaðist og var
talið nauðsynlegt að fá hann i
aðgerð eins fljótt og unnt væri.
Viðey var sfödd uhi 80 sjó-
mílur SV af Reykjanesi þegar
slysið varð. SVFI fékk tilkynn-
ingu um atburðinn kl. 11.00 í
gærmorgun og hafði strax sam-
band við varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli. Þyrla þaðan var
komin í loftið kl. 11.46, í fylgd
Ilerculeseldsncytisvélar og var
yfir skipinu kl. 12.40. Læknir
og sjúkraliðar fóru þá um borð
i togarann tU að undirbúa
sjómanninn. Þyrlan lenti síðan
við Borgarspítalann kl. 14.08.
. -GSH
Tveir menn hætt komnir er sendi-
bifreið gereyðilagðist í árekstri:
KRAFTAVERK AÐ
ÞEIR SKYLDU
SLEPPA LIFANDI
■ HörkuáreksturvarðáSuður-
landsvegi, nálægt Þrengslavega-
mótum í gær. Par óku saman
sendiferðabíll af Chevroletgerð
og stór sandflutningabíll. Sendi-
ferðabillinn gereyðilagðist við
áreksturinn og tveir menn sem
voru í bílnum voru fluttir á
slysadeild Borgarspítalans en
reyndust ekki vera alvarlega slas-
aðir. Að sögn lögreglunnar á'
Selfossi þykir það ganga krafta-
verki næst miðað við hvernig
sendiferðabíllinn er útleikinn.
-GSH
Rfkisútvarpið:
Málræktarráðu-
nautur ráðinn
til eins árs
■ Útvarpsráð samþykkti á
fundi í gærmorgun að beina því
til útvarpsstjóra að ráðinn yrði
málræktarráðunautur til ríkisút-
varpsins í fullt starf, til reynslu í
eitt ár.
Að sögn Markúsar Á. Einars-
sonar veðurfræðings, sem sæti á
í útvarpsráði, voru útvarpsráðs-
menn sammála um að þetta væri
nauðsynleg ráðstöfun og stóðu
þeir allir að samþykktinni.-GSH
Nýr unglinga-
skemmtistaður?
■ Gunnlaugur Ragnarsson
og Vilhjálmur Svan Jóhanns-
son hafa sótt um rekstrarleyfi
til borgarinnar fyrir veitinga-
stað að Laugavegi 116 fyrir
unglinga 14-18 ára að aldri.
Farið er fram á heimild til að
hýsa allt að 550 gesti i einu.
Engar vínveitingar verða í hin-
um nýja veitingastað en opn-
unartími er fyrirhugaður sá
sami og hjá öðrum veitinga-
stöðub.
Erindinu var vísað til um-
sagnar æskulýðsráðs.
-JGK
ÁHORFENDUR AD HRAFNINUM ORDNIR 24 ÞÚSUND
— Sex þúsund séð Atómstödina á sex dögum
■ „Myndin hefur sótt sig
mikið. Hún gekk alveg hroða-
lega til að byrja með en ég held
að almannarómur hafi gefið
henni góða dóma og þegar til
lengri tíma er litið er það hann
sem sker úr,“ sagði Hrafn Gunn-
laugsson, leikstjóri, þegar hann
var spurður um aðsóknina að
kvikmynd hans, Hrafninn flýgur,
sem sýnd er í Háskólabíói um
þessar mundir.
Hrafn sagði, að aðsóknin hefði
aldrei verið meiri en um síðustu
helgi og það sem liðið er af
þessari viku. Þróunin væri þess
vegna öfug við þá venjulegu,
þegar fólk þyrpist fyrstu dagana
og hættir síðan að láta sjá sig.
Nú hafa um 24 þúsund manns
séð myndina, sem aðeins hefur
verið sýnd í Reykjavík, og sagð-
ist Hrafn þurfa að fá að minnsta
kosti 35-16 þúsund Reykvíkinga
í viðbót og 30 þúsund manns úti
á landi ef myndin ætti að borga
sig hér á landi. „Ég var alveg
úrkula vonar um að það tækist
fyrstu dagana en nú hefur kvikn-
að í mér vonarneisti," sagði
Hrafn.
Myndin verður aðeins sýnd
rúma viku í viðbót í Háskólabíói
og síðan verður hún flutt í Nýja
bíó.
Atómstöðin, sem kvikmynda-
félagið Óðinn frumsýndi í Aust-
urbæjarbíói á laugardaginn var,
hefur gengið mjög vel. Sex fyrstu
sýningardagana sáu um 6000
manns myndina, en það er fram-
ar vonum.
-Sjó