Tíminn - 10.03.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.03.1984, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 10. MARS 1984 fréttir Vorkaup- stefnan íslensk föt ’84 á Hótel Sögu 12. til 14. mars ■ Vorkaupstefnan íslensk föt ’84 verð- ur haldin í Súlnasal Hótel Sögu dagana 12. til 14. mars. Víglundur Þorsteinsson formaður félags íslenskra iðnrekenda opnar kaupstefnuna mánudaginn 12. mars klukkan 20:30, en að því loknu fer fram tískusýnirtg. Kaupstefnan verður svo opin frá 10:00 til 18:00, 13. og 14. mars og verða tískusýningar báða dag- ana klukkan 14:00. Félag íslenskra iðnrekenda stendur að kaupstefnunni en 11 innlendir fatafram- leiðendur taka þátt í henni. Tilgangur kaupstefnunnar er fyrst og fremst að auðvelda framleiðendum og dreifingar- aðilum að stofna til viðskipta sín á milli. FÍB með almennan félagsfund á Selfossi ■ Félag ísl. enskra bifreiðaeigenda heldur almennan félagsfund að Hótel Tryggvaskála n.k. sunnudag kl. 14. Á dagskrá verða m.a. framsöguerindi, sem þeir Guðjón Petersen, Steingrímur Ing- varsson, Jónas Bjarnason, Sigurður Þorkelsson, Sveinn Torfi Sveinsson og Tómas H. Sveinsson flytja. Rætt verður m.a. um almannavarnir á Suðurlandi, vegakerfið á Suðurlandi og náttúruham- farir, gildi einkabifreiðarinnar á neyðar- stundu og nýja bílasímann. Innflytjend- ur nýja bílasímans verða á staðnum og kynna hann. Ráðstefna um gæða- eftirlit í matvæla- iðnaði D Ráðstefna um hreinsitækni og gæða- eftirlit í íslenskum matvælaiðnaði verður haldin laugardaginn 17. mars í Mcnning- armiðstöðinni við Gerðuberg og stendur frá 10:00 til 20:00. Á ráðstefnunni munu 40 fyrirtæki í iðnaði og umboðssölu kynna vörur sem tengjast efni ráðstefn- unnar. Flutt verða erindi um gæðaeftirlit og hreinsitækni í matvælaiðnaði. Ráð- stefnan sem haldin erá vegum fyrirtækis- ins Matvælatækni er fyrir stjómendur, fagfólk og starfsfólk í matvælaiðnaði og verslunum. Karlakórinn Jökull, Hornafirði: Menningardagar í Sindrabæ ■ í dag gengst Karlakórinn Jökull, Hornafirði fyrir menningardegi í Félags- heimilinu í Sindrabæ í tilefni af 10 ára afmæli kórsins. Aðaldagskrárefni er söngur félaga úr háskólakórnum undir stjórn Árna Harð- arsonar. Klukkan 22:00 hefst svo al- mennur dansleikur í Sindrabæ þar sem hljómsveit Hauks Þorvaldssonar leikur fyrirdansi. -b FÍflT-UMBOÐH) HÆTT1R MEÐ ÞANNPÓLSKA Yfirdýraiæknir andvfgur lyfjablöndunídýrafódur: „VEMB AÐFARAÚR ðSKUNNI f EUXNN” ■ „Ástæðan til þess að við höfum verið andvígir lyljaíblöndun i fóður er sú, að með því er verið að fara úr öskunni í eldinn. Ef við nefnum fúkka- lyfin sérstaklega, þá hefur verið sýnt fram á að þar sem sóðaskapur var og slæm umhirða á dýrunum jók lyfjagjöf- in vaxtarhraða þeirra, þ.e.a.s. að hún lagaði eitthvað bakteríufióruna í melt- ingarvegi þeirra svo þau nýttu fóðríð betur. Hjá þeim sem allt var í lagi með umhirðuna fékkst ekkert út úr þessari lyfjagjöf. En íslendingar eru ákaflega gjarnir á að fara styttstu leiðina og þess vegna hef ég veríð skammaður fyrir að standa gegn þessari íblnndun“, sagði Páll A. Pálsson, yfirdýralæknir spurö- ur m.a. um rök gegn lyfjaíblöndun i fóður svina og kjúklinga. Bæði lyfja og litarefnaíblöndun sagði hann óheimila hér á landi. Jafnvel þótt mönnum þyki akkur í að nota þessi lyf sagði Páll slíkt ekki duga þegar frá líði. „Þá verður þetta bara eins og að pissa í skóinn sinn og verður síðan að fara að leita nýrra lyfja til að setja í fóðrið. Afleiðingin af iyfjagjöfinni verður smátt og smán sú að þessar bakteríur í meltingarvegin- um verða ónæmar fyrir lyfinu. Það gæti t.d. ákaflega vcl gerst með sýkla sem eru hættulegir bæði mönnum og dýrum. Þeir sem hafa notað þetta dauðsjá nú eftir að hafa farið þessa leið, en þegar þeir eru einu sinni komnir inn í hringekjuna þá er ekki hægt að snúa til baka,“ Páll var þá spurður hvaða samræmi væri í því að banna lyf í fóðrið, en leyfa lyfjagjöf í vatn þess í stað, eins og einn fóðursalanna skýrði frá í blaðinu í gær að hér væri gert í stórum stíl? Þar sagði hann vanta endinn á söguna. Þegar kjúklingar veikjast þá sé eðlilega leitað læknis sem noti þá þau lyf sem við eiga hverju sinni. Til að koma lyfjum í stóra hópa kjúklinga sé það eiginlega cina leiðin að setja þau út í vatnið. En það er stór munur á því hvort við étum fúkkaiyf daglega í matnum okkar eða hvort einhver læknir gefur okkur þau þegar við erum iasin. Ef meni: halda að hægt sé að setja jöfnunar- merki þarna á milli þurfa þeir að lesa betur“, sagði Páll. Hins vegar sagði hann rétt með farið að lyfjagjöf í vatn geti aukið hættu á að orðið geti mistök við lyfjagjöfina. Varðandi leyfð lyf til fóðuríblöndun- ar fyrir kjúklinga sagði hann þar ekki um fúkkalyf að ræða, heldursvokölluð hömlulyf til að girða fyrir að kjúklingar drepist úr hníslasótt meðan þeir eru litlir, sem notuð hafi verið í mjög takmörkuðum mæli. -HEI ■ „Við munum hætta með þetta um- boð fyrr eða síðar. Það eru ekki lengur nein tengsl á milli ítölsku Fiat-verksmiðj- anna og þeirra pólsku og pólsku bílarnir bera ekki einu sinni nafnið Fiat lengur. Þess vegna ákváðum við í samráði við Italina að hætta með þetta umboð og það gerist alit með friði og spekt,“ sagði Sveinbjörn M. Tryggvason, forstjórí Eg- ils Vilhjálmssonar hf. þegar hann var spurður hvort fyrirtækið væri að hætta að flytja inn „Pólska-Fiat“, sem það hefur haft umboð fyrir um nokkurra ára skeið. Aðspurður um hvort eitthvað sérstakt hefði komið upp sem valdið hefði því að fyrirtækið væri að hætta með umboðið sagði Sveinbjörn að þar hefði ekki komið annað til en umrædd sambandsslit milli Pólverjanna og ftalanna. Samkvæmt heimildum Tímans standa nú yfir samningaviðræður milli Brim- borgar hf. sem flytur inn Daihatsu frá Japan, og pólsku verksmiðjanna um að fyrirtækið taki við umboðinu hér á landi. Munu Brimborgarmenn nú vera að athuga dæmið og búist er við að þeir taki ákvörðun fljótlega. Sprengidagurinn í Borgarnesi: Bókaskræðum ýtt til hliðar og slegið upp balli ■ Mikið var um dýrðir hjá æsku- lýðnum í Borgarnesi í vikunni. Fjörið byrjaði með því að öllum bókaskræðum var ýtt til hliðar á sprengidaginn og slegið upp grímu- balli í Grunnkóla Borgarness. Fyr- ir öskudagsfagnaðinn daginn eftir dugði síðan ekki minna en sam- komuhúsið á staðnum. Flópuðust þangað allskonar furðuverur og annað óvenjulega búið ungt fólk, ekki allt hátt í loftinu, en hafði kannski þeim mun hærra og skemmti sér hið besta. ■ Smáfríður er hann ekki, ■ Kannski Tobbi trúður? Myndir Ragnheiður - Sjó Baráttu- fundur kennara í Sigtúni ■ Þriðjudaginn 13. mars halda kennar- ar á suðvesturhorni landsins baráttufund í Sigtúni v/Suðurlandsbraut. Þar verða ’ ræddir nýgerðir kjarasamningar BSRB og ríkisins, og kjör kennara. í fréttatilkynningu undirbúnings- nefndar um fundinn segir að gífurleg óánægja sé nú meðal grunnskólakennara vegna slæmra kjara. Bent er á að byrjunarlaun kennara eftir þriggja ára háskólanám séu 14.792 kr. í samning- unum hafi þeirri eðlilegu jafnréttiskrötu verið hafnað. að spor yrði tekið í átt til kennsluskyldustyttingar, þrátt fyrirgefin loforð fyrrverandi fjármálaráðherra. Sem kunnugt er greiddu allir níu samningarnefndarmenn Kennarasam- bandsins atkvæði gegn samningunum. Mistök vid sölu á heim ilistölvum — áttu ad vera 48K en voru aöeins 16K ■ Komið hafa í Ijós mistök við sölu á Sincíair Spectrum heimilistölvum hjá Heimilistækjum sem nýverið voru á útsölu. Voru tölvurnar merktar 48K sem stendur fyrir minniseiningum tölvunnar, sem reyndust aðeins vera 16K þegar til kom. Tíminn hafði samband við verslun- arstjóra Heimilistækja, Birgir Örn Birg- irs vegna þessa máls, og sagði hann að komið hefði í Ijós að tölvur sem voru 16K hefði.verið pakkað inn eins og þær væru 48K. Fyrirtækið hcfði áður selt tölvur af þessari gerð sem bæði voru 16K og 48K, en nú seldi það einungis 48K tölvur. Mönnum væri velkomið að konta og skipta tölvum sínum ef einhver mistök hefðu orðið. Mikil verðlækkun hefur orðið á tölvum nýlega vegna þess að tollur og söluskattur af þeim hefur verið felldur .niður. -ÁDJ Nemendasýn- ing Nýja Dans- skólans í Súlna- sal Hótel Sögu á sunnudaginn ■ Barnahátíð og nemendasýning Nýja Dansskólans verður í Súlnasal Hótel Sögu á sunnudaginn frá klukkan 14 til 17. Dagskráratriði verður danssýning sem á þriðja hundrað nemenda í öllum aldurshópum.fjögurra ára og uppúr sjá um. Fjölmargir gestir verða á sýning- unni. Miðaverð er 50 krónur og eru allir velkomnir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.