Tíminn - 20.03.1984, Side 1
Lemgo vann mikilvægan sigur í handboltanum:
SIGGI MEÐ ELLEFU
mörk af 21 marki liðsins gegn Núrnberg
■ Sigurður Sveinsson - skoraði
ellefu mörk.
- Frá Gísia Á. Gunnlaugssyni íþrótta-
fréttamanni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Lemgo, lið Sigurðar Sveinssonar í
v-þýsku Búndeslígunni í handbolta,
vann góðan sigur á heimavelli gegn
Núrnberg um helgina, 21-20, í mjög
hörðum leik. Staðan var jöfn á flestum
tölum, og áhorfendur voru vel með á
nótunum.
Nokkur harka færðist í leikinn þegar
á leið, og varð dómarinn m.a, að víkja
Sigurði Sveinssyni af leikvelli. I ryllt-
ist þá allt í höllinni, og var bjórflöskum
og fleiru lauslegu fleygt inn á leikvöll-
inn, við litla hrifningu dómaranna.
Sigurður Sveinsson átti stórleik, skor-
aði 11 mörk þar af fjögur úr víta-
köstum.
Heldur ver gekk hjá Alfreð Gísla-
syni og félögum í Essen. Liðið tapaði
gegn Húttenberg 17-18. Húttenberger
í neðri hluta deildarinnar, í 10. sæti, og
greinilegt að Essen er ekki eins sterkt
á útivelli eins og á heimavelli. Alfreð
Gíslason var annar markahæstur í liði
sínu, skoraði 3 mörk.
Lið Jóhannes Inga, Kiel, tapaði illa
á útivelli gegn Bergkamen, sem er í 11.
sæti deildarinnar og á í harðri fallbar-
áttu, 16-20. Möguleikar Kiel á að
blanda sér í toppbarátfuna eru nú
algerlega úr sögunni, liðið er í 7. sæti
með 22 stig. Essen er í öðru sæti enn,
með 28 stig, fjórum stigum minna en
Grosswallstadt, sem enn er efst.
- GÁG/SÖE
MEIRI BLÓDTAKA HJA NJARBVÍK
Kristinn og Isak meiddir — Tómas ekki með Val?
■ Enn hafa Njarðvíkingar orðið fyrir
verulegri blóðtöku í körfuboltanum.
Liðið missti sem kunnugt er aðalstiga-
skorara sinn í gifs á dögunum, Val
Ingimundarson, og nú um helgina
meiddist hinn ungi og efnilegi leikmað-
ur liðsins, Kristinn Einarsson, og verð-
ur ekki með í kvöld. Þá mun leika vafl
á hvort Isak Tómasson, bakvörðurinn
efnilegi ■ Njarðvíkurliðinu, verði með
í kvöld í fyrsta úrslitaleik Njarðvíkinga
við Valsmenn um íslandsmeistaratitil-
inn.
Kristinn Einarsson skar sig illa á
Akureyringar
voru sterkastir
■ Um helgina fór fram íslandsmeist-
aramót félagsliða í kraftlyftingum.
Hver sveit keppti í sínu æfingahúsnæði
í sparnaðarskyni. Fyrir mótið var A-
sveit KR talin sigurstanglegust, en
Akureyringar voru ekki á því að gefa
sinn hlut eftir, í keppninni. Til að
styrkja lið sitt, sendu þeir eftir „heim-
skautabangsanum“ Víkingi Trausta-
syni, en hann dvalur á Seyðisfirði. Þess
hefði þó varla þurft, því A-sveit KR
giopraði niður sigri sínum, þegar Hall-
dóri E. Sigurbjörnssyni mistókst að
lyfta byrjunarþyngd sinni í hnébeygju
og féll hann þar með úr keppninni.
Sveit ÍBA sigraði því í keppninni,
hlaut 1971,57 stig, en 8-sveit KR varð
önnur með 1682,76 stig, og í þriðja sæti
varð A sveit KR, með 1540,04 stig.
-BL
hendi um helgina, og þurfti að sauma
í hann. Hann mun ekki leika með í
kvöld. Kristinn hefur leikið æ stærra
hlutverk í Njarðvíkurliðinu í vetur, en
hann er aðeins 16 ára gamall, um 190
cm á hæð, sterkur og leikinn með
knöttinn.
ísak Tómasson er bakvörður, einn
af yngri leikmönnum Njarðvíkurliðs-
ins. Hann meiddist á fæti í vinnu sinni
síðastliðinn fimmtudag, og var spraut-
aður í fótinn fyrir leikinn gegn Hauk-
um sl. fimmtudag. Það mun ekki hafa
verið til að flýta fyrir bata hans, og nú
leikur vafi á hvort hann verður með í
kvöld. Svo illa gæti því farið að
Njarðvíkingar verði án þriggja fasta-
manna í leiknum í kvöld.
Valsmenn hafa einnig orðið fyrir
áfalli. Talið er ólíklegt að Tómas
Holton, landsliðsbakvörðurinn efni-
legi í liðinu leiki með í Njarðvík í
kvöld, hann nefbrotnaði gegn KR á
þriðjudag, og fékk síðan mikið högg á
munnin í leik Vals og Njarðvíkur á
sunnudag, svo þurfti að sauma og
tennur losnuðu. Sjá umfjöllun um leik
Vals og KR í opnu. TÓP/SÖE
■ Guðmundur Guðmundsson í harðri baráttu við tvo íturvaxna Sovétmenn í
landsleik Islands og Sovétríkjanna á laugardag. Það eru þeir Gagin (t.h.) og
Karshakevic sem taka Guðmund föstum tökum. Tímamynd Róbert
„STRAKARNIR GAFU ALLF
sem þeir áttu gegn Sovétmönnum sagði Bogdan
■ „Strákarnir gáfu allt sem þeir áttu
í þennan leik, börðust eins og Ijón, þrátt
fyrir að vera orðnir mjög þreyttir. Það
er góðs viti, því einkenni góðra liða er
það, að þau halda áfram að berjast
eftir að þreytan fer að ásækja þau“,
sagði Bogdan Kowalczyk þjálfari ís-
lenska landsliðsins í handknattleik eftir
síðasta leik tslands og Sovétríkjanna á
iaugardag.
„Ég er mjög ánægður með mína
menn, liðið er gjörbreytt", sagði
Bogdan. „Baráttan er mikil og andinn
er góður. Hugarfarið er breytt, og
metnaðurinn er mjög mikill“.
-Hvernig var síðasti leikurinn að
1PÉTUR PÉTURS ATTI STÓRLEIK
-------,
I
|ikivn ■ Kuiuiiu mii viviikun |
| með Antwerpen gegn Seraing Arnór með á ný j
1« - Frá Gísla A Gunnlaugssyni - íþrótta- gullfallegum sendingum. Antwerpen er Jónssonar, og vann sigur. en tapaði um
fréttamanni Tímans í V-Þýskalandi: nú í 7. sæti.
| Arnór Guðjohnsen lék nú að nýju
. Pétur Pétursson átti frábæran leik með aðalliði Anderlecht, Arnór lék
| með liði sínu Antwerpen gegn Seraing í aftarlega á vellinum eiginlega í stöðu
Ibelgísku mcistarakeppninni í knatt- swcepers,ogfórheIdur!ítiðfyrirhonum
spyrnu á sunnudag. Pétur átti fjölda í leiknum.
I frábærra sendinga ii leiknum, sem vöktu Lið Lárusar Guðmundssonar hefur ins Beveren að undanförnu. Beveren.
_ mikla hrifningu íslendinga sem sáu átt erfiðu gengi aðfagna að undanförnu, hefur ennþá þriggja stiga forystu í|
I leikinn í sjónvarpi, og lagði Pétur upp er nú í 11. sætideiidarinnar með 24 stig. deildinni með 38 stig. en Anderlechtl
. tvö af þremur mörkum Antwerpen með Liðið lék í vikunni gegn liði Sævars hefur 35 stig í öðru sæti. -GÁG/SÖE*
helgina gegn AA Gent. Sævar Jónssonf
lék að nýju með liði sínu, CS Brugge um a
helgina, og sigruðu Sævar og félagar FCI
Liege á heimavelli, 1-0. I
Anderlecht, lið Arnórs, er nú á ný í*
toppbaráttunni, eftir slaka leiki toppliðs-1
þínu mati, miðað við þá fyrri?
„Þessi leikur var ekki eins mikið
fyrir áhorfendur. Bæði liðin voru
þreytt í dag. Þess vegna er erfitt að ná
góðum leik. Baráttan í þessum leik var
enn meiri en í hinum. Þetta var
venjulegur leikur, harður leikur, en
ekki grófur. Mörgum hefur áreiðan-
lega virst þessi leikur vera mun harðari
en oft er, en það er ekki. Sovét-
mennirnir eru mcð ntjög sterka menn,
og því virðist leikurinn oft grófari en
hann er. “
-Hvernig líst þér á framhaldið?
„Það er mikil vinna framundan,
vinna hjá mörgum. Þar á ég ekki bara
við þjálfara og leikmenn, þar spila
miklu fleiri þættir inn í“.
-Hvernig til dæmis?
„Auk þjálfara og leikmanna má
nefna Handknattleikssambandið, þá
sem styrkja það og handknattleikinn,
blaðamenn og fleiri." -SÖE
- Sjá umfjöllum um þriðja landsleik
íslands og Sovétríkjanna á bls 15.
Sigurdur við
Ol-lágmarkið
kastaði spjótinu 82,76 metra
Bjarni vann í
opna flokknum
á íslandsmótinu í júdó
■ Sigurður Einarsson spjótkastari úr
IR gæti hæglega orðið annar spjótkast-
ari Islands á Ólympíuleikunum í Los
Angeles í sumar. Sigurður keppti á
sínu fyrsta móti í ár nú um helgina í
Alabama í Bandaríkjunum, og bætti
sig þar um rúma þrjá metra. Sigurður
kastaði 82,76 metra um helgina, al-
þjóðlegt B lágmark spjótkastara fyrir
Ol í sumar mun vera 81,5 metrar, en
„viðmiðunartala“ Ólympíunefndar Is-
lands mun vera um 83 metrar.
Sigurður tók þátt í móti sem nefnt er
Domino Pizza Relays, sem haldið var
í Alabama. Sigurður sigraði þar í
spjótkastinu, en þátttakendur í mótinu
voru margir, og það talið all sterkt.
- Enginn vafi er á að komist Sigurður
hjá meiðslum á hann eftir að bæta sig
verulega í sumar, þetta var fyrsta
mótið sem hann tekur þátt í í ár. Besti
árangur Sigurðar á síðasta ári var
rúmir 79 metrar.
■ Annar íslendingur, Eggert Bogason
úr FH, tók þátt í þessu móti í
Alabama. Eggert kastaði kúlu 16,66
metra, og bætti sig um rúman einn
me tra. Eggert náði ekki verðlaunasæti.
-SÖE
■ Sigurður Einarsson - sífellt betri
í spjótkastinu.
■ Síðari hluti Islandsmótsins í júdó
var háður í Iþróttahúsi Kennarahá-
skólans um helgina. í opnum flokki
karla sigraði Bjarni Friðriksson úr
Ármanni, að venju. Hann lagði félaga
sinn Kolbein Gíslason að velli í úrslita-
glímunni, á youko, 5 stigum. Glíman
var afar spennandi og mikið var um
átök á milli kappanna. Þó þótti glíman
nokkuð þófkennd og hvorugur kapp-
inn vildi gefa eftir. I þriðja sæti varð
Sigurður Hauksson UMFK.
I kvennaflokki urðu úrslit sem hér segir:
- 65 kg flokkur:
1. Hulda Gústafsdóttir Ármanni.
2. Hrund Þórarinsdóttir Ármanni.
3. Sigríður Ólafsdóttir Ármanni.
+ 65 kg flokkur:
1. Eygló Sigurðardóttir Ármanni.
2. Ásta Sigurbergsdóttir Ármanni.
3. Hulda Geirsdóttir UMFK.
Þá var einnig keppt í unglingaflokkum
og urðu úrslit í þeim sem hér segir:
- 65 kg flokkur:
1. Guðmundur Sævarsson Ármanni.
2. Arnar Eyfjörð ÍBA.
3. Magnús Kristinsson Ármanni.
- 69 kg flokkur:
1. Gunnar Jónasson Gerplu.
2. Davíð Gunnarsson Ármanni.
3. Guðmundur Magnússon Ármanni.
+ 69 kg flokkur:
1. Sævar Kristjánsson Gerplu.
2. Rögnvaldur Guðmundsson Gerplu.
3. Benedikt Ingólfsson ÍBA: