Tíminn - 30.03.1984, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 30. MARS 1984
5
fréttir
Menntamálarádherra:
SKORflR A ALÞINGI AD FELLA
TILLÖGU UM FRKMRFRÆÐSUI
■ Maraþonumræða hefur staðið um þingsályktunartillögu um friðarfræðslu á
Alþingi og loks eftir þriðju framhaidsumræðu, sem fram fór í gær og stóð í nær þrjár
klukkustundir var mælendaskrá tæmd og væntanlega verður málinu vísað til nefhdar
á næsta fundi í sameinuðu þingi í næstu viku. Tillaga þessi er flutt af þingmönnum
úr öllum þingflokkum, en fyrsti flutningsmaður er Guðrún Agnarsdóttir og er óhætt
að segja að hún hafi staðið í eldlínunni og flest spjót andstæðinga friðarfræðslu staðið
á henni.
■ Ámi Guðmundsson útsölustjóri ÁTVR á Selfossi. Auk hans starfar Haraldur
Jónsson við afgreiðslu í versluninni.
Nýja áfengisútsalan á Selfossi:
Áfengissalara
745 þús. kr.
fyrstu vikuna
■ Þá viku sem áfengisútsalan á Selfossi
hefur verið opin hefur þar verið selt
áfengi fyrir 745.000 krónur. Lang-
stærstur hluti þeirrar upphæðar eða
577.000 krónur, kom inn fyrstu tvo
dagana sem útsalan var opin. Þá hefur
verið selt tóbak fyrir 250.000 krónur,
samkvæmt upplýsingum Áma Guð-
mundssonar útsölustjóra.
Áfengisútsalan var vígð 21. mars s.l. í
glæsilegum húsakynnum að Vallholti 19
á Selfossi. 130 manns var boðið til
vígslunnar og var veitt af mikilli rausn,
bæði drykk og mat. Skein ánægja út úr
Selfyssingum að vera loks búnir að fá
þessa góðu og sjálfögðu þjónustu.
Jón Kjartansson forstjóri ÁTVR setti
samkvæmið og bauð gesti velkomna og
þakkaði fagmönnunum sem lagt höfðu
gjörva hönd á innréttingar hússins.
Jón lauk ræðu sinni með þessum
orðum: „Ég lýk orðum mínum á því að
rifja upp gamla minningu. Ég kom oft
ungur drengur á heimili aldraðs fyrrver-
andi sóknarprest á Norðurlandi. Þá
hann hafði gesti bauð hann á stundum
gestum sínum glas af portvíni. Hann
lyfti glasi. leit á gesti sína og sagði: Guð
láti oss að góðu verða. Gæti hver sín en
Guð okkar allra“.
Einnig talaði Albert fjármálaráðherra
og fór góðum orðum um Jón Kjartans-
son. Fjármálaráðherra óskaði þess að öll
ríkisfyrirtæki hefðu jafn góða forstjóra
og Jón Kjartansson er. Þá væri gaman að
vera fjármálaráðherra á íslandi.
Af þingmönnunum okkar mættu að-
eins þeir Árni Johnsen og Eggert Hauk-
dal, enda hófst boðið kl. 18.00 og
þingfundir áttu að byrja kl. 20.00 um
kvöldið.
Veislan fór vel fram og voru veitingar
góðar og ógleymanlegar. Aldursforseti
Selfyssinga. Jón Pálsson fyrrverandi
dýralæknir, sem verður 93 ára gamall 7.
júní í sumar, lék við hvern sinn fingur
og skálaði glatt við fólkið.
Tónlistarfélagið á morgun:
Roger Woodward flyt-
ur verk eftir Chopin
■ „Einn af sforkostlegustu Chopin-
túlkendum okkar tíma," er einkunnin:
sem Arthur sálugi Rubinstein gaf ástr-
alska píanóleikaranum Roger Wo-
odward. Woodward gistir ísland um
þessar mundir. í gærkvöldi lék hann
með Sinfóníuhljómsveit íslands og á
morgun kemur hann fram í Austur-
bæjarbíói á vegum Tónlistarfélags
Reykjavíkur og flytur þar einvörðúngu
verk eftir Chopin, en Woodward hlaut
menntun sína m.a. í föðurlandi Chopins,
Póllandi. Hann hefur unnið það sjald-
gæfa þrekvirki að flytja öll píanóverk
Chopins á 12 tónleikum, það var í janúar
1982.
Hann er mjög eftirsóttur á helstu
listahátíðum heimsins og hefur ferðast
víða sem einleikari með þekktum hljóm-
sveitum, m.a. Fílharmóníuhljómsveit-
inni í Varsjá, og Fílharmóníuhljómsveit-
inni í Los Angeles. Meðal hljóðritana
hans má nefna alla 5 píanókonserta
Beethovens og 32 píanósónötur hans en
þessar hljóðritanir voru gerðar hjá ás-
trölsku útvarpsstöðinni. -JGK.
Tillagan er svohljóðandi: Alþingi
ályktar að fela menntamálaráðherra að
hefja undirbúning um frekari fræðslu
um friðarmál á dagvistunarstofnunum, í
grunnskólum og framhaldsskólum
landsins. Markmið fræðslunnar verði að
glæða skilning á þýðingu og hlutverki
friðar og rækta hæfileika til þess að leysa
vandamál án ofbeldis og leita friðar í
samskiptum við einstaklinga, hópa og
þjóða.
Allítarleg greinargerð fylgir tillög-
unni.
Umræðurnar um þetta mál hafa farið
um víðan völl og margs konar skilgrein-
ingar hafðar uppi um frið og ófrið,
alþjóðastjórnmál og uppeldi. Áhuga-
fólki um friðarumræðu skal vísað í
Alþingistíðindi.
1 þeim umfangsmiklu umræðum sem
fram fóru í gær bar það helst til tíðinda
að menntamálaráðherra, Ragnhildur
Helgadóttir, lagðist gegn tillögunni og
telur að Alþingi eigi ekki að samþykkja
hana. Sagði hún greinilegt að viðhorf
flutningsmanna byggist á mismunandi
forsendum enda sé tillagan mjög óljós.
Sagði menntamálaráðherra að ef Alþingi
ætlaði framkvæmdavaldinu að fram-
kvæma vilja sinn, þá verður að vera ljóst
hver hann er, en fram hafi komið að
flutningsmenn, sem eru 13 talsins, eru
ekki á einu máli um þau markmið sem
fram koma í greinargerð.
Guðrún Agnarsdóttir hvað afstöðu
menntamálaráðherra hryggja sig mjög
og valda vonbrigðum og skoraði á
Ragnhildi að endurmeta afstöðu sína.
-OÓ
Langstærsti
vinningur
áeinn mióa hérlendis
Aðalvinningur ársins;
húseign að eigin vali fyrir 1.5 milljónir króna,
verður dreginn út 3. apríl.
Að auki:
9 bifreiðavinningará 75 þús. kr. hver.
25 ferðavinningar á 25 þús. kr. hver.