Tíminn - 30.03.1984, Qupperneq 11
10
FOSTUDAGUR 30. VIARS 1984
FOSTUDAGUR 30. MARS 1984
Tilkynning til
skattgreiðenda
Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða
reiknaðir að kvöldi föstudagsins 6. apríl n.k.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Fjármálaráðuneytið, 27. mars 1984.
Skrifstofustarf
Maður óskast til starfa á afgreiðslu skattstofunnar
í Reykjavík
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf
þurfa að hafa borist fyrir 5. apríl n.k.
Skattstjórinn í Reykjavík
Útboð
Sveitarstjórn Ölfushrepps óskar eftir tilboöúm í aö gera
fokheldan 3. áfanga grunnskólans í Þorlákshöfn, sam -
tals um 600 m2.
Utboðsgögn veröa afhent á skrifstofu Ölfushrepps
Selvogsgötu 2, Þorlákshöfn og hjá Tæknifell c/o Sigurö-
ur Sigurðsson tæknifræðingur.
Fellsás 7 Mosfellssveit sími 66110, gegn 3000 kr.
skilatryggingu. Tilboð veröa opnuð á skrifstofu Ölfus-
hrepps þriöjudaginn 17. apríl n.k. kl. 14.00.
Sveitarstjóri
JOKER skrifborðin
eftirsóttu eru komin aftur
Tilvalin fermingargjöf
Verð með yfirhillu
kr. 3.850.-
Eigum einnig vandada
skrifborðsstóla á hjolum
Verð kr. 1.590.-
Húsqögn og
, . Suðurlandsbraut 18
innrettmgar simi 86 900
íþróttir
Úrslitakeppnin í
Kópavogi í kvöld
■ Úrslitaki'ppnin í cfri hluta 1. dcildar
í liandknattleik cr í iTillum gangi í
Digranesi í Kópavogi í kvöld. Þar kcppa
klukkan 20 Valur og Víkingur og klukk-
an 21.15 FH og Sljarnan.
í oeðri hluta 1. deildar keppa í
llafnarfirói klukkan 20 Þróttur og KA
og klukkan 21.15 KK og Haukar.
í efri hluta annarrar deildar keppa á
Seltjamarnesi í kvnld Þór og Grótta
klukkan 20.00, og Fram og Breiðabiik
klukkan 21.15. -SÖE
Marteinn og co
lögðu stóra bróður
■ Marteinn Geirsson þjálfari og félag-
ar i Víði Garði Ingðu stóra bróður, lið
Keflavíkur, í xfingaleik liðanna í vik-
unni. Úrslitin í leiknuin urðu 2-0 Víði í
hag. Ragnar Margeirsson, Valþór Sig-
þórsson, Helgi Bentsson og Þorstcinn
Bjarnason léku ekki með Keflavík.
Þá sigruöu Valsmenn Njarðvíkinga
3-1 í æfingaleik í vikunni í Revkjavík.
-SÖE
Spennandi
aSpam
■ Keppnin á toppi fyrstu deildar í
knattspyrnu á Spáni er nú mjög spenn-
andi. Atletico de Bilbao. efsta liðiö,
varð mörgum til furðu að sætta sig við
markalaust jafntefii við fjórða neðsta
liðið. Real Valladolid, um síðustu
helgi.Nú hefur Bilbao einungis betra
markahlutfall en Real Madrid á
toppnum, en jafnmörgstig. Rcal Madrid
sigraði Mallorca 2-0 heima. Bæði þessi
lið eiga eftir 5 leiki. -SÖE
Reykjavíkumwt
í fijálsum
- fyrir 16 ára og yngri
■ Reykjavíkurmeistaramót 16 ára og
yngri fer fram sunnudaginn 1. apríl.
Hefst mótið kl. 10.00 í Baldurshaga, þar
verður keppt í eftirtöldum greinum, 50
■netra hlaup, 50 ntetra grindurhlaup og
langstökki. Síöurihluti inótsins hefst kl.
19.ÍMI í Laugardalshöll og verður keppt i
cftirtöldum greinum, hástökk og lang-
stökk án atrennu. Mótshaldari er frjáls-
iþróttadeild ÍR.
Fundur hjá
sambandsstjóm
á laugardag
■ Sainhandsstjórnarfundur jþrútta-
sambands íslands verður haldinn næst-
komandi laugardag, 31. mars klukkan
10.00 á Hótel Loftleiöum.
Á þessum fundi verða tekin fyrir mörg
mikilsverð mál íþróttahreyfingarinnar,
og má þar ncfna skiptingu útbreiðslu-
styrks sérsambanda. breytingar á reglu-
gerð um iyfjaeftirlit og dóms og refsiá-
kvæðum ÍSf, inngöngu íþróttafélaga
hestamanna í ÍSÍ. samvinnu við aðila
atvinnultfsins um fjárhagsstuðning og
úthlutun úr ferðajóði ÍSÍ og Flugleiða.
Sambandsstjórn ÍSÍ er skipuð fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ. formönnum allra
sérsambanda og formönnunt allra hér-
aðssambanda. -SÖE
Dómaranámskeið
í fimleikum
■ Dómaranámskeið í alþjóðarcglum i
fimleikum karla veröur haldið í Ár-
mannshúsinu um helgina, dagana 30-31.
mars og 1. aprd. Próf verður tekið í
xfingamóti. Kennarar veröa Þórir
Kjartansson og Bao Mai Jang. Iþrótta-
kennarar, þjálfarar og aðrir áhugasamir
eru hvattir til þess af fimleikasamhand-
inu að nýta sér þetta námskeið og láta
skrá sig hjá Þóri í sima 75051. Tilfinnan-
legur skortur mun nú vera á dómurum í
alþjóðareglum fimleika hér. -SÖE
KR ÁFRAM í BIKARNUM
— eftir nauman sigur á Keflvíkingum, 74-72
í gærkvöldi
■ KR-ingar tryggðu sér í gærkvöldi
rétt til að leika til úrslita í bikarkeppni
KKÍ, er þeir sigruðu Keflvíkinga, mjög
naumiega, 74-72, í undanúrslitum.
Leikurinn var háður í íþróttahúsinu í
Keflavík.
Leikurinn var ákaflega jafn og spenn-
andi og liðin skiptust á um að hafa
forystu. í hálfleik höfðu Kefivíkingar
þriggja stiga forskot 41-38. í síðari
hálfleik náðu KR-ingar fljótlega að kom-
ast yfir, en Keflvíkingar voru aldrei
langt undan. Þeir komust aftur yfir undir
lokin, en á endasprettinum reyndust
KR-ingar sterkari og sigurinn var því
þeirra, þó litlu munaði. Lokatölurnar
74-72.
Bestu menn KR í leiknum voru þeir
Jón Sigurðsson, Garðar Jóhansson og
ekki hvað síst Páll Kolbeinsson. Með
þessum sigri sínum hafa KR-ingar tryggt
sér rétt til að leika í úrslitum bikarkeppn-
ALLIR ÞEIR BESTU
— með á innanhússmótinu í sundi
■ Allt besta sundfólk íslands verður á
Innanhússmeistaramóti íslands í sundi
sem haldið er í Sundhöll Reykjavíkur
um hclgina. Þar verður árciðanlega hart
barist, enda er mót þetta með síðustu
tækifxrum sundntanna að tryggja sér
sxti í ólympíuliði íslands í ár. Auk þeirra
sundmanna sem sett hafa grimmt Ís-
landsmet að undanförnu innanlands,
mæta á svæðið allir sundmenn íslands
sem að undanförnu hafa xft af dugnaði
erlendis.
Mótið hefst í kvöld klukkan 20.00. Á
morgun verður haldið áfram keppni
með undanrásum frá klukkan 8.30, og
úrslitum frá klukkan 15,00. Á sunnudag
hefjast undanrásir klukkan 9.30, og
úrslit klukkan 16.00.
Allir sundmennirnir, sem undanfarið
hafa æft erlendis mæta til leiks. Þar má
nefna þau Ragnheiði Runólfsdóttur frá
Akranesi og Tryggva Helgason frá Sel-
fossi, sem æft hafa íSvíþjóð undanfarið.
systkinin Ragnar og Þórunni Kristínu,
börn Guðmundar Harðarsonar sund-
þjálfara, sem koma frá Danmörku, og
Árna Sigurðsson sem æft hefur í eitt ár
í Kaliforníu í Bandaríkjunum, og hefur
höggvið nærri tímumTryggva Helgason-
ar í bringusundi. Að auki kemur tii
landsins Smári Kr. Harðarson frá Vest-
mannaeyjum, sem hefur æft í Óðinsvé-
um í Danmörku síðan síðastliðið sumar.
Að auki má nefna Bryndísi Ólafsdóttur
frá Þorlákshöfn. Guðrúnu Femu Ágústs-
dóttur Ægi, Inga Þór Jónsson frá Akra-
nesi, Eðvarð Eðvarðsson frá Njarðvík
og marga fleiri. - Flestir sundáhugamenn
eru þó hvað spenntastir að sjá. hvernig
einvígi þeirra Tryggva Helgasonar og
Árna Sigurðssonar fer, en fréttir hafa
borist frá Bandaríkjunum þess efnis að
Árni hafi synt mjög vel bæði 100 yarda
og 200 yarda sund, og miðað við þá er
hann ntjög nærri íslandsmetum Tryggva.
-SÖE
innar, gegn Val eða Haukum. Sá
leikur verður í Laugardalshöllinni næsta
fimmtudag kl. 20.
Jón Kr. Gíslason var yfirburða maður
hjá Keflvíkingum, en hinn ungi Guðjón
Skúlason átti þokkalegan léik.
Stig KR skoruðu: Páll Kolbeinsson
18, Jón Sigurðsson 16, Garðar Jóhanns-
son 14, Kristján Rafnsson 12, Guðni
Guðnason 7, Ágúst Líndal 3, Ólafur
Guðmundsson 2 og Birgir Guðbjörnsson
2.
Stig Keflvíkinga skoruðu: Jón Kr.
Gíslason 24, Þorsteinn Bjarnason 16.
Guðjón Skúlason 12, Björn V. Skúlason
12, Óskar Nikulasson 6 og Sigurður
Ingimundarson 2. -TóP/BL.
íslandsmótið
í badminton
- er um helgina í Höllinni.
■ Um helgina er Islandsmótið í bad-
minton í Laugardalshöll. Þar keppa allir
fremstu badmintonmenn landsins.
Keppnin efst klukkan 10 á laugardag, og
verður keppt fram eftir degi. Á sunnu-
dag keppa svo badrnintonmenn frá
klukkan 10, og úrslit hefjast klukkan
14.00. -SÖE
umsjón: Samúei Örn Eriingsson
Metaregn
hjá sundsystkinunum Ragnari og
Þórunni á danska meistaramótinu
Valur og Sjóvá gera samning:
300 ÞÚS. KRÓNUR
— til Vals fyrir auglýsingar -
einnig samningur vid Adidas
■ Knattspyrnuféiagið Valur í Reykja-
vík og Sjóvátryggingafélag íslands kunn-
gjörðu í gær samning sem félögin hafa
gert sín á milli, samning sem hljóðar upp
á 300 þúsund króna framlag Sjóvá til
Vals, og Valsmenn auglýsa nafn fyrir-
tækisins á búningum sínunt í staðinn, í
öllunt llokkum félagsins, nema kvenna-
flokki, sem þegar er bundinn af samningi
sem gerður var í fyrra við annað félag.
Jafnframt kunngjörðu Valsmenn og
Adidasumboðið á íslandi samning í gxr,
þar sem kveðið er á um að allir flokkar
Vals leiki í Adidasbúningunt.
Einar Sveinsson framkvæmdastjóri
Sjóvá kynnti samning Vals og Sjóvá á
blaðamannafundi í gær. Sagði Einar, að
markmiðið með samningnum væri að
styðja við bakið á íþróttastarfi í landinu,
um leið og nafn Sjóvá yrði kynnt. Auk
þess að Sjóvá leggur fram 300 þúsund
krónur til reksturs knattspyrnudeildar
Vals, mun félagið tryggja alla leikmenn
knattspyrnudeildar, og er það mjög
hagstæður tryggingasamningur að sögn
Grétars Haraldssonar formanns knatt-
spyrnudeildarinnar. - Á fundinum kom
fram, að þetta er í fyrsta sinn sem Sjóvá
styrkir íþróttastarf í landinu á beinan
hátt.
Ólafur Schram hjá Adidasumboðinu
kynnti að Valsmenn mundu leika í
Adidasbúningum í sumar, allir flokkar
félagsins munu nota Adidasvörur. Sagði
Ólafur, að Valur væri áttunda fyrstu-
deildarfélagið sem það gerði, einungis
tvö fyrstudeildarfélög Ieika ekki í Adi-
dasbúningum í sumar, Víkingur og
Þróttur.
-SÖE
■ Systkinin Ragnar og Þórunn
Kristín Guðmundsbörn stóðu sig
mjög vel á danska meistaramótinu
í sundi sem haidið var um síðustu
helgi í Danmörku. Ragnar varð þar
annar í 400 metra skriðsundi á nýju
glæsilegu íslandsmeti, og sctti að
auki piltamet í 200 metra skrið-
sundi. Þórunn Kristín setti nýtt
íslandsmet í 800 metra skriðsundi
kvenna á mótinu. Þau Ragnar og
Þórunn Kristín eru börn Guð-
mundar Harðarsonar fyrrum lands-
liðsþjálfara í sundi, sem nú þjálfar
danska sundiiðið Neptun, og
danska unglingalandsliðið.
Ragnar stóð sig frábærlega í 400
^^1 Þórunn Kristín Guðmundsdóttir
metra skriðsundinu. Hann varð þar
annar, á eftir danska meistaranum,
og synti vegalengdina á 4:07,76
mín sem er nýtt íslandsmet og
piltamet. Sigurvegarinn í sundinu
synti 4:07,17, svo Ragnar hefur
greinilega veitt honum harða
keppni. Varla þarf að taka fram. að
keppni þessi var í fullorðinsflokki,
og því sýnt að sú fullyröing, aö
Ragnar sé a.m.k. þriðji besti í
sínum aldursflokki í löngum skrið-
sundum er nærri sanni.
Að auki synti Ragnar 200 metra
skriðsund á mótinu. vann þar ekki
til verðlauna, en setti engu að síður
nýtt íslenskt piltamet, synti á 2:0^,7
mín.
Þórunn Kristín synti 800 metra á
9:40,17 mín. Þaðernýtt íslandsmet
og stúlknamet.
Þau Ragnar og Þórunn Kristín
eru komin til íslands ásamt fjöl-
skyldu sinni, og munu keppa á
innanhússmeistaramóti íslands í
sundi um helgina, reyndar hefst
mótið í kvöld, Guðmundur Harð-
arson er að kenna á þjálfaranám-
skeiði hjá SSÍ þessa dagana, og er
þar vel mætt. Námskeiðið hófst í
fvrrakvöld.
-SÖE
■ Tveir leikmenn ÍS, þeir Karl Ólafsson t.v. og Björn Leósson sjást hér í baráttu
við einn leikmanna Fram, í leik liðanna í vetur. Stúdentar hafa nú tryggt sér veru í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur, með góðum sigri á Laugdælum, 76-63.
Framarar verða hins vegar að vera í 1. deildinni enn um sinn, ásamt Laugdælum.
Tímamynd Róbert.
STÚDENTAR UPP í
ÚRVALSDEIUNNA
— eftir stórsigur á Laugdælum
■ íþróttafélag Stúdenta, ÍS, tryggði
sér í gærkvöld rétt til að leika í úrvals-
deildinni í körfuknattleik, á næsta
keppnistímabili. IS sigraði Laugdæli í
síðasta leik sínum í 1. deildinni, með 76
stigum gegn 63. í hálfleik var staðan
35-28 Stúdentum í vil.
Mikill hraði einkenndi leik ÍS liðsins
og þeir skoruðu mikið úr hraðaupp-
hlaupum. Laugdælir réðu ekki við hrað-
ann og því náðu Stúdentar undirtökun-
um. í hálfleik hafði ÍS 7 stiga forskot,
35-28. ÍS hélt áfram á sömu braut í síðari
hálfleiknum og jók forskot sitt stöðugt.
17 stiga munur var staðreynd þegar tvær
mínútur voru til lciksloka, en Laugdæl-
um tókst aðeins að laga muninn í lokin,
76-63 og mjög öruggur og sanngjarn
sigur IS í höfn.
Allir leikmenn ÍS liðsins börðust sem
einn maöur í leiknum og eiga þeir hrós
skilið fyrir það, einnig sýnir stigaskor
einstakra leikmanna að mikil breidd er í
liðinu, þó þeir Kristinn Jörundsson og
Árni Guðmundsson skoruðu mest.
Gaman verður að fylgjast tneð liðinu í
úrvalsdeildinni næsta vetur.
Stig ÍS: Kristinn Jörundsson 21, Árni
Guðmundsson 21, Gunnar Jóakimsson
10, Ágúst Jóhannesson 8, Bjöm Leósson
6. Karl Ólafsson 6, Eiríkur Jóhannesson
2 og Guðmundur Jóhannsson 2.
Stig Laugdæla skoruðu: Salómon
Jónsson 20, Unnar Vilhjálmsson 13.
Ellert Magnúss 11, Snæbjörn Sigurðsson
10, Lárus Jónsson 7 og Þorkell Þorkels-
son 2. -BL.
■ Staðan í 1. deildinni í körfuknattleik
eftir sigur ÍS á Laugdælum í gærkvöld:
IS .......
Fram ....
Laugdælir
Þór Ak . . .
Grindavik
20 15
19 12
19 12
18 12
18 8
Skallagrímur 18 1
5 1574-1379 30
7 1431-1243 24
7 1312-1279 24
6 1432-1431 18
10 1326-1T51 16
17 1103-1495 2
lan Ross þjálfari Valsmanna ásamt fjórum ungum Valsmönnum í nýju búningunum. - Sbr. frétt að ofan og á hlið.
Tímamynd G.E.
lan Ross, þjálfari Valsmanna kominn til landsins:
ÆTIA AD HJálPA...”
■ „Ég er kominn hingað til að hjálpa
öðrum til að spila betri knattspyrnu.
Takist það, þá þarf ég ekki að reikna
með því að spila sjálfur. Hins vegar er
það alveg opinn möguleiki að ég spili,
framtíðin ein sker úr um það“, sagði Ian
Ross, hinn nýi þjálfari Valsmanna í
knattspyrnu á fundi með blaðamönnum
í gær. „Þegar mér fyrst var boðin
þjálfarastaða á íslandi, leit ég á það sem
tækifæri, og eftir því sem ég spurðist
meira fyrir og ræddi við fieiri, sem vissu
meira um Island og íslenska knatt-
spyrnu, leist mér betur á það. En ég býst
við að ef eitthvert annað félag en Valur
hefði boðið mér stöðu, hefði ég að líkind-
um ekki komið hingað,“ sagði Ross
meðal annars. Ross erfyrrum leikmaður
Liverpool og Aston Villa, og lék síðast
með Peterborough í 2. deild 1981-1982.
lan Ross mun þjálfa meistaraflokk
Vals, og hefur verið ráðinn til tveggja
ára. Hann mun einnig vera stór póstur í
knattspyrnuskóla Vals, sem rekinn verð-
ur í sumar. Hann hafði í gær, þegar
fundurinn var, stjórnað tveimur æfing-
um hjá Val, og leist vel á mannskapinn.
„Valur er gróið félag, félag sem ekki
hefur gengið eins vel undanfarin ár, eins
og búist hefur verið við af því. Þess
vegna meðal annars er ég kominn. Ég
hef gert samning við Val um að vera hér
í tvö ár, við höfum tekist í hcndur, og
það er nóg fyrir mig. Hvað ég verð hér
lengi er óákveðið, ég vcrð hér þessi tvö
ár ef þeir eru ánægðir með mig, og get
þess vegna verið hér næstu 20 ár, ef mér
líkar vel og vel gengur. - Mig langar að
þakka Islendingum, Valsmönnum og
öðrum fyrir það hve fljótt mér fór að líða.
eins og heima hjá mér. Móttökurnar
hafa verið frábærar, og mér líst vel á
þetta. - Dálítið kalt, en gott samt",sagði
þessi viðfelldni þjálfari.
-SÖE
Frost sigraði
á All England
■ Morten Frost frá Danmörku náði
aftur titlinum sem hann tapaði á síðasta
ári á Wembley i Lundúnum, er hann
sigraöi á All-England keppninni uin
helgina. Frost sigraði annan l'yrrum
All-England meistara í úrslitum, Liem
Swie King frá Indónesíu 9-15, 15-10 og
15-10. Þetta var sjöunda tap King í sjii
úrslitaleikjum.
í kvennallokki sigraði heimsmeistar-
inn Li Ling Wei frá Kína. Hún sigraði
nxstbestu badmintonkonu Kína, Len Ai
Ping, í úrslitum 15-5 og 15-8.
-SÖE
8 liða úrslrt
í kvennaflokki í handknattleik um
helgina
■ Um helgina verður keppt i 8 liða
úrslitum bikarkcppni kvenna í hand-
knattleik. Þrír leikir verða í kvöld og
einn á laugardag. í Laugardalshöll leika
í kvöld klukkan 19 FH og Víkingur,
klukkan 20.15 ÍR og KR og klukkan
21.30 Þróttur og Fram. Á laugardag
keppa svo Haukar og Valur í Hal'nar-
firði, og hefst leikurinn klukkan 16.30,
að loknum leikjum í úrslitakcppni neðri
hlutu 1. deildar. -SÖE
Síðkvöldsleikur
Vals og Hauka
■ Viðureign Vals og Huuka í fjögurra
liöa úrslitum bikarkeppninnar i körfu-
knattleik i karlafiokki verður i íþrótta-
húsi Seljaskólu á sunnudagskvöld
klukkan 21.00. Astæðan fyrir þessari
tímasetningu inun vcra að íslandsmót í
unglingaflokkum er á undun, og gctur
leikurinn þvi ekki hafist fyrr.
Áreiðanlega verður hart harist í
leiknum, Valsmenn, nýbúnir að tapa
Íslandsmeistaratitlinum í hendur Njarð-
víkingá í spcnnandi úrslitaleikjum.mæta
hinu unga liði Haukanna, sem hefur
staðið sig svo vel í veíur. Liðið er byggt
upp af ungum lcikmönnum, og nieðal
annars urðu 5 fastamenn í liðinu íslands-
nteistarar í 2. flokki nýlega. Þeireiga aö
ieika til úrslita í bikarkeppni 2. flokks
gegn Njarðvík á mánúdag. - En gaman
vcrður að sjá hvort Haukuin tekst að
icggja Valsmcnn að vclli, þaö hefur
þeint tckist þokkalega við í vetur.
-SÖE
Aberdeení
undanúrslit
■ Abcrdeen er komið í undaniirslit
skosku bikarkeppninnar. Liðið sigraði í
fyrrakvöld Dundee Utd, Skotlands-
meistarana 1-0. Markið skoraöi Mark
McGee.
-SÖE
Newcastle vann
■ Newcastle vann Leeds 1-0 í 2. deild-
arkeppninni í ensku knattspyrnunni í
fyrrakvöld. Þar náði liðið í þrjú dýrmæt
stig í toppbaráttuna. -SÖE
Enskir unnu aftur
■ Enska unglingalandsliöið, 21 árs og
yngri sigraöi Frakka aftur í síðari leik
liðanna í fyrrakvöld. Úrslitin urðu 1-0.
Mark Hateley leikmaður Portsmouth
skoraði markið úr víti. England er þar
með komið í undanúrslil EM landsliða
21 árs og yngri. _SÖE
HK ekki stöðvað
■ HK varð ekki stöövað í úrslitakeppni
neðri hluta 2. deildar í handknattleik í
fyrrakvöld. Liðið sigraði þá Reyni Sand-
gerði 23-22 í hörkuleik. Fylkir vann
mikilvægan sigur á ÍR, 19-15 og bætti
stöðu sína vcrulcga. Staðan eftir þessa
leiki var sú, að HK hafði 23 stig, Fylkir
16, ÍR 12 og Reynir 9.
-SÖE