Tíminn - 30.03.1984, Qupperneq 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegt 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til nlðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
& ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
T*
i
abriel
HÖGGDEYFAR
t/QJvarahlutir .“,7’
Ritstjórn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og óskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Föstudagur 30. mars 1984
Sparimerki unga fólksins valda Byggingarsjóöi vandræðum:
ÚTBORGANIR 78 MIUJÓNUM
MEIRIEN NAM INNLEGGI!
— á fyrstu þremur mánuðum yfirstandandi árs
■ Fyrstu 3 mánuði þessa árs er áætlað að Byggingarsjóður
ríkisins verði að greiða út 78 milljónum króna meira af
skyldusparnaðarfé ungmenna heldur en komið hafa inn í
sjóðinn á sama tíma. Einn af ráðamönnum í húsnæðiskerf-
inu orðaði það svo nú í vikunni, að nánast allt það fé sem
reynt hafi verið að útvega í sjóðinn til að flýta lánafyrir-
greiðslu hafí jafn harðan horfið í útborgun sparimerkja.
' „Það er rétt að skyldusparn-
aðurinn hefur verið talsvert
vandamál nú síðustu mán-
uðina, þ.e. verið í töluverð-
um mínus. Hitt er annað
mál að sú gleðilega breyting
virðist vera að eiga sér stað
að minna fer nú út en áður,
þannig að þetta stefnir í
rétta átt“, sagði Sigurður
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. í janúar
s.l. sagði Sigurður úttekið
skyldusparnaðarfé hafa ver-
ið 44 millj. kr. umfram það
sem inn kom í febrúar 28
millj. og í mars taldi hann
stefna í 6 millj. króna
mínus. „En svo er líka
sumarið framundan sem við
vonum að geri meira en að
jafna þetta“, sagði Sigurð-
ur.
Hann var spurður hvort
eitthvað hafi verið rætt um
breytingar á útborgunum
skyldusparnaðarins. „Þessi
neikvæða þróun hefur leitt
til þess að þetta hefur vita-
skuld verið rætt“ sagði Sig-
urður. Meðal annars sagði
hann nú í undirbúningi að
Húsnæðisstofnun gefi út ný
eyðublöð fyrir vottorð sem
send verði öllum skóla-
stjórum.
„Útgáfa þessara nýju
vottorða eru viðleitni í þá
átt að tryggja að eftirleiðis
verði sparnaðarfé skóla-
nema ekki greitt út nema að
vottorðin séu gefin út á
okkar eigin eyðublöðum og
fullvíst sé að viðkomandi sé
við nám og enginn annar en
réttur aðili undirriti vottorð-
ið því til staðfestingar",
sagði Sigurður. Spurður
sagði hann því miður talið
efalaust að einhver brögð
hafi verið að því að ungling-
ar hafi komið með vottorð
sem ekki hafi t.d. verið
undirritað af réttum aðilum.
Sigurður sagði koma til
greina að gefa einnig út
svipuð vottorð í öðrum
undanþágutilvikum.
Sigurður sagði einnig í
athugun hvort einhverjir
fletir séu á að breyta úttekt-
arreglunum þannig að ekki
verði alveg eins auðvelt að
fara á bak við þær, eins og
e.t.v. hafi verið gert í
sumum tilvikum og t.d.
fyrirbærið „sparimerkjagift-
| ingar“ bendi til.
-HEI
Skákþing íslands:
KEPPNIí
LANDSLIÐS-
FLOKKIER
FRESTAÐ
TIL HAUSTS
■ Engin keppni verður í
landsliðsflokki á Skákþingi
íslands, sem hefst 10. apríl,
keppninni í þeim flokki verður
frestað fram í september.
Ástæðan er ekki skákþreyta
meistaranna sem setið hafa að
tafli nær sleitulaust síðan í
janúar, heldur sú að þeir stefna
á þátttöku á mótum erlendis,
sem þeir vilja ekki fyrir nokk-
urn mun missa af. Jóni L.
Árnasyni hefur veriö boðið á
gríðarsterkt mót í Noregi þar
sem heimsmeistarinn, Karpov,
verður mcðal keppenda og
nokkrir sterkir íslenskir skák-
menn hyggjast taka þátt í
stórmóti í New York á svipuð-
um tíma. -JGK
VÍSA-ÍSLAND gengur hart fram í innheimtunni:
Sendir rukkun
upp á tvo aura
— meðan minnsta mynteining hérlendis eru fimm aurar
■ „Mér finnst þetta nú fyndið
fyrst og fremst. Rukkunin hljóð-
ar upp á tvo aura, en frímerkið
á umslaginu kostar 6,50 og um-
slagið sjálft og bréfsefnið sitt.
Pannig er það sem verið er að
rukka aðeins örfá prómill af
kostnaðinum við rukkunina fyrir
utan það náttúrlega að minnsta
íslenska myntin er fimm aurar,“
sagði handhafi greiðslukorts frá
Visa-ísland, sem nýlega fékk inn
VISA ISLAND
0101 LANDSS ANK.I ISLANDS
AöALSANKI
2608-SA8V
wmrnnnmmm
109 RcVKJAVIK
VINSAMLEGA GANGIÐ
FRÁ SKULD YÐAR STRAX
um dyralúguna hjá sér ítrekun,
þar sem hann er minntur á „að
samkvæmt stöðulista eigið þér
enn ógreiddar kr. 0,02 fyrir notk-
un á greiðslukorti yðar.“
Handhafi greiðslukortsins
sagðist fyrst hafa fengið gíróseðil
þar sem honum var gert að
greiða 10.430.92. Hann kvaðst
samdægurs hafa skrifað ávísun
upp á 10.430.90 og borgað í
næsta banka. „Ég stóð í þeirri
meiningu, og stend enn, að 2
aurar séu ekki til í íslenskri
mynt. Þess vegna hafi mér borið
að láta ávísunina sfanda á annað-
hvort fimm aurum eða heilum
tug og annað hvort hækka upp
eða lækka eftir því sem við átti.
En tölvurnar hjá Visa-ísland eru
greinilega á öðru máli.“ sagði
korthafinn.
-Sjó.
SENDINGARDAGUR 16.03.84
KORTNR. 4548/9000-0000-3878
ÍTREKUN INNLEND uttekt
0101-87
SAMKVAMT STOÐULISTA PR. 16.03.84
EIGID PER ENN DGREIDDAR
_____________Qi.Q4.
FYRIR NOTKUN A GREIOSLUKQRTI YDAR
VIRÐINGARFYLLST
‘V, X , . .
■ Ja, hvor þeirra skyldi eiga réttinn, eða hvaða reglur gilda um flugvélar á
jörðu niðri? Tímamynd: Árni Sæberg
Þórshöfn:
Annað raðsmíðaskipið
keypt á 100 milljónir
„Skipið verður ekki afhent
fyrr en í desember og þá verður
yfirstandandi kvótatímabil um
það bil að renna út. Þess vegna
búumst við ekki við öðru en að
fá að gera skipið út,“ sagði
Jóhann Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins á
Þórshöfn, en fyrirtækið hefur
ásamt Kaupfélagi Norður-Þiug-
eyinga og sveitarfélögum á
Langanesi, gert samning um
kaup á öðru raðsmíðaskipinu,
sem nú er í smíðum hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri.
Skipið er 280 tonn að stærð og
mögulegt er að gera það út á
margs konar veiðiskap, botn-
vörpu, línu og net til dæmis.
Jóhann sagði að það yrði búið
fullkomnum frystivélum og þess
vegna renndu menn hýru auga til
djúprækjuveiða á þeim tíma sem
nægur fiskur bærist í frystihúsið
frá öðrum skipum.
„Við urðum áþreifanlega varir
við það í vetur þegar togarinn
okkar bilaði og þurfti til viðgerð-
ar í Noregi að eitt skip dugir
okkur ekki til að reka þá fjárfest-
ingu sem frystihúsið hér á Þórs-
höfn er. Bátaaflinn einn dugir
okkur engan veginn og þess
vegna erum við tilneyddir að fá
nýtt skip,“ sagði Jóhann. Hann
kvaðst ekki. sérstaklega svart-
sýnn á að útgerö nýja skipsins
bæri sig. Fjölhæfni þess gæfi
marga möguleika.
Kaupverð skipsins er rúmar
100 milljónir króna.
-Sjó.
dropar
Næstum öll gjald-
þrot á Suðvestur-
horninu
■ Niðurstuður könnunur á
gjaldþrotum fyrirtækja og ein-
staklinga undanfarin þrjú ár
sem birtar eru í nýjasta tölublaði
Frjálsrar verslunar leiða i Ijós
að miklu ntáli virðist skipta
hvar fyrirtæki eru rekin á
landinu. 75-85% allra gjald-
þrota hlutafélaga á landinu
hafa verið skráð í Rcykjavík.
Samkvæmt könnuninni heyrir
það til undantekninga ef ein-
staklingur er úrskurðaður
gjaldþrota utan Reykjavíkur
og Rcykjaneskjördæmis, og í
þeim fáu tilvikum sem það
hefur átt sér stað hefur oftast
tekist að semja þannig að
þrotamanni hefur verið afhent
búið aftur til frjálsra afnota.
Þannig að í reynd séu 94-98%
allra gjaldþrota cinstaklinga á
landinu í Reykjavík og á
Reykjanesi.
„Hver er ástæðan fyrir þess-
ari háu tíðni gjaldþrota á Suð-
vesturhominu?“, spyr Frjáls
verslun. „Hvernig stendur á
því að hlutafélög og cinstakl-
ingar virðast lausir við þann
ókost að eiga á hættu
gjaldþrot, - nógur hefur bar-
lómurinn verið þar engu síður
en hér syðra? í fljótu bragði er
ekki aðra skýringu á þessu að
fá en þá að citthvað í pólitíska
kerfinu haldi verndarhendi yfir
atvinnurekstri úti á lands-
byggðinni, ef til vill í krafti
byggðastefnunnar. “
2.7% þjóðarinnar
í skíðalyftum
■ En það eru fleiri athygl-
isverðar tölur sem fram koma í
Frjálsri verslun að þessu sinni.
M.a. er fjallað um skíðabylgj-
una, en nú þykir enginn maður
á meðal manna nema stunda
þetta sport að einhverju leyti.
Er sagt frá aðstöðunni í Blá-
fjöllum og þeirri staðreynd að
þegar allar skíðalyftur á svæð-
inu eru í notkun, geta þær flutt
6500 manns á hverri klukku-
stund. Mun þetta jafngilda því
að lyfturnar nái að flytja 2.7%
þjóðarinnar á hverri klukku-
stund.
Krummi . . .
...er að velta því fyrir sér hvað
hann geti gert af sér, eftir að
saksóknari upplýsti það að
menn yrðu betri menn á eftir.