Tíminn - 17.04.1984, Síða 4
io
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRll. 19X4
enska knattspyrnan
umsjón: Samuel Örn Erlingsson
HEATH SKAUT EVERTON
ÚRSUT BKARSMS
—í lok framlengingar á Highbury — Watford í úrslit í fyrsta sinn
■ l>að var ekki fyrr en Adrian
Heath skoraði þremur minútum
fyrir leiksluk í frainlengingu, að
það var ákveðið að Everton skyldi
leika gegn VVatford í úrslitum ensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Leikur Southampton og Everton á
Highhury í Lundúnum var mjög
spennandi. Leikurinn var auðveld-
ari hjá Watford gegn þriðjudeildar-
liðinu Plymouth Argyle.
Southampton hafði undirtökin
framan af. Bestu færin fékk Danny
Wallace, en Neville Southall mark-
vörður Everton varöi tvisvar frá
honum meistaralega. Enn var Wall-
ace á ferð á 72. mínútu með skalla
í þverslá eftir fyrirgjöf David
Armstrong.
Everton tók lcikinn meira í sínar
fætur um miðjan síðari hálfleik.
Adrian Heath skaut framhjá í
dauðafæri, og Derek Mountfield
átti skot yfir. I lokin varði Mick
Mills á línu frá Heath, cn síðan
varð að framlengja.
Everton átti mcgnið af framleng-
ingunni. Liðið sótti grimmt, og
uppskar þremur mínútum fyrir
leikslok. Þá gaf Peter Reid fyrir úr
aukaspyrnu, Derek Mountfield
skallaði áfram.og viö markhornið
birtist Adrian Heath og skallaði í
netið. Everton þar með komið á
Wembley í annað sinn á skömmum
tíma.
Watford skoraði sigurmarkið
gegn Plymouth á Villa Park í
Birmingham á 13. mínútu. John
Barnes, landsliðsútherji Englands
var maðurinn bak við markið, lék
á tvo varnarmenn Plymouth og
sendi boltann fyrir, beint á kollinn
á George Reilly, sem skoraði með
góðum skalla.
Leikurinn varð ekki skemmti-
legur. Watford hafði undirtökin,
en eftir markið var fátt til að dást
að, baráttan í fyrirrúmi.
-SÖE
I
■ Adrian Heath - skoraði
mark Everton
sigur-
TOPPUÐIN TVO STEWLAÖJ
QPR á uppleið - West Ham lá í Sunderland - jafnt hjá Forest og Ipswich
mörkum Graham Roberts og Mark
Falco.
■ Botnbaráttan var í aigleymingi á Englandi á laugardaginn var, ef litið er til
deildarkeppninnar og bikarkeppninni sleppt. Englandsmeistarar Livcrpool máttu
láta sér lynda tap á Victoria Ground í Stoke on Trent, og Manchester United
mátti bíta í sania súra eplið í Nottingham, þar sem liðið mætti botnliði Notts
County. Þriðja lið, Nottingham Forcst varð að sætta sig við jafntefli, en fjórða
lið, Queens Park Rangers náði góðum útisigri í Birmingham. Annars náðu öll
botnliðin stigi eða stigum á laugardag, ef frá er skilið svo golt sem fallið lið
Úlfanna, og botnbaráttan breiðist upp á við fyrir bragðið. í annarri deild hafði
Sheffield Wednesday sigur yfir Newcastle, Chelsea vann, og Manchester City og
Grimsby. Wcdnesday og Chelsea tróna því enn, en aukin harka færist í baráttuna
um þriðja sætið milli hinna þriggja.
Úrslit urðu óvænt á Victoria Ground
í Stokc. Meistarar og toppmenn Liv-
erpool steinlágu þar fyrir liði scm á í
harðri botnbaráttu, 0-2. „Auðvelt,
auðvelt" sungu áhangendur Stokc í
lok leiksins, og metaðsókn var á
Victoria Ground í vetur. Auðvelt var
það þó ekki, en mörk Stoke komu á
réttum tíma. lan Painter skoraði eftir
15 mínútur, og Colin Russcll, fyrrum
leikmaður Liverpool, fimm mínútum
eftir leikhlé. Eftir það var sigurinn
tryggður hjá Stoke. Maðurinn sem
hvað mest er þó ábyrgur fyrir þessum
sigri Stoke var miðjuleikmaðurinn og
stjórnandinn, Alan Hudson, scm
stjórnaði liði sínu eins og besti herfor-
ingi. „Eg er ánægður með sigurinn,
þetta var óvænt, cn við vissum að
úrslitin í þessum leik mundu skera úr
um það hvernig okkur mundi reiða af
í deildinni", sagði Hudson eftir leik-
inn, ánægður að vonum. „Við
hlökkum nú til þeirra leikja sem eftir
eru. Þó svo að allir helstu keppinautar
okkar hafi sigrað í dag, þá áttum við
erfiðasta leikinn, og fengum því bestu
úrslitin. - Liverpool getur ekki átt
stórleiki endalaust. liðið lék ekki beint
illa, en var þó töluvert frá sínu besta.
Völlurinn var erfiður, og Liverpool
sýndi ekki sínar bestu hliða í leiknum",
sagði Alan Hudson.
í Nottingham lá Manchester United
gegn heimamönnum Notts County sem
eru enn verr settir en Stoke.
Fór þar gullið tækifæri Manchest-
ermanna til að komast að nýju upp
fyrir Liverpool að stigum og þar með
nær meistaratitlinum en meistararnir
eru. Að vísu virðist það nú ekki eiga
að vera erfitt fyrir lið sem er í öðru sæti
MÐS1DMRNR
GEGNCailC
tekst Aberdeen adnæla í þrjá titla?
■ Bikarmeistarar Skotlands frá í
fyrra og Evrópumeistarar bikarhafa,
Aberdeen, ætla ekki að láta deigan
síga. Á laugardag tryggði liðið sér sæti
í úrslitum skosku bikarkeppninnar,
hvar það leikur gegn Celtic. Að auki
er liðið með örugga forystu í skosku
úrvalsdeildinni og því aðra hönd á
Skotlandsmeistaratitlinum, og hefur
að auki alla möguleika á að tryggja sér
sæti í undanúrslitum Evrópukeppni
bikarhafa.
Celtic byrjaði af krafti gegn St
Mirren, átti dauðafæri á 2. mínútu, og
Jim Melrose skoraði með skalla á 15.
mínútu. Markið var þódæmt af Coven-
trymanninum fjyrrverandi, vegna
rangstöðu McClairs. Brian McClair
kvittaði fyrir með því að skora
skömmu síðar. Frank McDougall jafn-
aði fyrir baráttuglaða StMirrenmenn,
eftir að rokið hafði platað Celticvörn-
ina. Allt leit út fyrir annan leik.
markvörður St Mirren, Billy
Thompson, varði frábærlega frá
McClair, og síðan skaut Tommy Burns
í stöng. Það var þó eftir það skot að
mark kom, Paul McStay náði frákast-
inu og vippaði yfir Thompson. Celtic
komast í úrslit. 42. bikarkeppninnar í
Skotlandi.
Aberdeen hafði minna fyrir því að
komast í úrslit en Celtic. Skalli lan
Poshey kom þcim yfir í fyrri hálfleik,
og Cordon Strachan bætti um betur
fyrir meistarana gegn Dundee, skoraði
á síðustu mínútunni.
- SÖE.
í dcildinni að sigra það sem er í öðru
neðsta sæti, en málið er ekki svo
einfalt. Manchester United sem hefur
úr mun betra mannvali að velja en
Notts Country, notaði ekki þá yfir-
burði. Leikmenn liðsinsbeittuvöðvun-
um meira en vitinu. Einungis Ray
Wilkins vildi og reyndi að spila boltan-
um, og einungis Paul McGrath virtist
hafa áhuga á að skjóta. Notts County
hafði aftur á móti marga menn sem
vildu gjarnan skora. Engan langaði þó
meira, né reyndi meira en lan
McCulloch, og það leit því ekki vel út
fyrir Conty þegar hann varð að fara
útaf meiddur á 75. mínútu. En aðeins
fjórum mínútum síðar gaf lan McPar-
land lágan bolta fyrir markið, og
Trevor Christie slæmdi í hann fæti og
í netið fór boltinn. 21. mark Christies
á keppnistímabilinu, og það þýddi
þrjú dýrmæt stig fyrir County, og tap
þriggja dýrmætra fyrir Manchesterlið-
ið.
Queens Park Rangers var eina liðið
af efstu fjórum sem sigraði á laugar-
dag. Liðið vann Birmingham á útivelli,
2-0. John Gregory og Terry Fenwick
skoruðu mörkin, og Rangers eru nú í
fjórða sæti með 60 stig, aðeins einu
stigi á eftir Nottingham Forest sem er
í þriðja sæti. Sannarlega góður árangur
hjá liði sem vann sig upp úr annarri
deild í fyrra.
West Ham rokkar áfram upp og
niöur. Við og við á liðið stórleiki og
leggur að velli erfiða mótherja hvar
sem cr, og á milli tapar það leikjum
öllum á óvart. Þannig var það í
Sunderland á laugardg. West Ham lá
þar, tapaði 0-1, Gordon Chisholm
skoraði mark Sunderland. Ekki hvað
síst var sigur Sunderland óvæntur
vegna þess, að síðustu fimm leikjum
hefur liðiö tapað, þ.e.a.s. fram að
þessum.
Úlfarnir eru svo gott sem fallnir.
Þeir töpuðu fyrir Coventry úti og nær
óhugsandi er að þeir forðist fallið, þó
enn séu tölfræðilegar líkur til þar að
lútandi. Mick Ferguson tryggði Coven-
try sigurinn fjórum mínútum fyrir
leikslok. Billy Livingstone hafði jafnað
fyrir Stoke fimm mínútum fyrir hálf-
leik, eftir að Gerry Daly hafði komið
heimamönnum yfir snemma í leiknum.
Nottingham Forest gerði jafntefli
við lpswich í Ipswich. Forest komst í
2-0 með mörkum Steve Withey og
Peter Davenport, en Romeo Zonderv-
ar og Mich D’Avray jöfnuðu metin,
mark þess síðarnefnda kom þremur
mínútum fyrir leikslok.
Tottenham lagði Luton með
Wednesday lagði
Keegan og Co
Hjólhjjestaspyrna Gary Megson,
sem hafnaði í markinu gerði út um leik
toppliðanna í annarri deild, Newcastle
og Sheffield Wednesday, á heimavelli
þeirra fyrrnefndu. Wednesday heldur
þar með toppsætinu í deildinni, en
Newcastle er í þriðja sæti. Sheffield
Wednesday var allan tímann ákveðn-
ara liðið og Kevin Keegan fékk engan
frið til að gera eitt eða neitt. Þrátt fyrir
það komst Terry McDermott þrisvar í
færi „sem hefðu þýtt þrjú mörk fyrir
nokkrum árum", sagði enski þulurinn.
Annars lá Newcastle oftast í rang-
stöðugildru Wednesday svo ekkert -.j
gekk.
Chelsea fylgir Wednesday fast eftir.
Liðið sigraði Crystal Palace á útivelli,
1-0. Pat Nevin skoraði.
Newcastle er í þriðja sæti, og getur
nú horft mcð vaxandi ótta um öxl til
Manchester City og Grimsby, sem eru
í fjórða og fimmta sæti, hnífjöfn og
unnu bæði á laugardag. Grimsby vann
Swansea 3-0, og Kevin Drinkell skor-
aði þar öll þrjú mörkin. Það gerði
reyndar líka Simon Garner fyrir
Blackburn, er liðið vann Portsmouth
4-2 í Portsmouth. Skrýtið lið Ports-
mouth vinnur sína bestu sigra á úti-
velli, og hefur tapað síðustu fimm
lcikjum heima. Ekki dugði einu sinni
að vera 2-0 yfir, Blackburn með Garn-
er í fararbroddi vann það upp. Þá má
bæta við, að Cambridge er örugglega
fallið eftir -1- jafntefli í Middlesbor-
ough.
I þriðju deild er nú Oxford efst eins
og reyndar í langan tíma, hefur 82 stig,
Wimbledon hefur 74. og Hull 72. Öll
þessi lið sigruðu á laugardag. Næst
koma Sheffield United með 71 stig,
Walsall hefur 65 og Bristol Rovers
hefur 64. Burnley og Gillingham hafa
59 stig. Bolton 58, Bradford 57,
Millwall, Orient og Newport hafa 54,
Wigan 53. Lincoln 51, Preston 49,
Bournemouth 42. Plymouth og Brent-
ford 40, Rotherham 36, Scunthorpc
35, Vale 34, Southend 31 og Exeter er
neðst með 28.
Á toppi fjóröu deildar er York með
85. Briston City hefur 75, Doncaster
hefur 70 og Reading 69. Á botninum
er Wrexham, Rochdale og Halifax, öll
með 39 stig hvert, Hartlepool hefur 36
og Chester 26.
- SÖE.
Úrslit
Enska bikarkeppnin,
undanúrslit:
Plymouth-Watford.......
Southamplon-Everton . . .
0-1
0-1
1. deild:
Birmingham-Q.P.R............. 0-2
Coventry-Wolves.............. 2-1
Ipswich-Nott.Forest.......... 2-2
Leieester-Aston Villa........ 2-0
Notts C-Man Utd ............. 1-0
Stoke-Liverpool ............. 2-0
Totlenham-Luton ............. 2-1
W.B.A.-Norwich............... 0-0
West Ham-Sunderland......... 0-1
2. deild:
Barnslev-Charlton .
Cardiff-Oldham . . .
Crystal Pal-Chelsea
Fulhain-Hudderfield
Grimsby-Swansea .
Leeds-Derhy ....
Man City-Carliesle .
Middlesbro-Cambridge
Newcastle-Sheffield Wed
Portsmouth-Blackburn
Shrewsbury-Brighton ,
2-0
2-0
0-1
0-2
3-0
0-0
3-1
1-1
0-1
2-4
2-1
3. deild:
Bournemouth-Scunthorpe .... 1-1
Brentford-Bolton.............. 3-0
Burnley-Rotherham............. 2-2
Gillingham-Port Vale.......... 1-1
HuIÞExeter ................... 1-0
Lincoln-Wimbledon............. 1-2
Milwall-Walsall............... 2-0
Oxford-Soutbend............... 2-1
Preston-Orient ............... 3-1
Sheff.Utd-Bristol R........... 4-0
Wigan-Newport................. 1-0
4. deild:
Alderschot-York............... 1-4
Bristol C-Northampton........ 4-1
Bury-Chester.................. 2-1
Doncaster-Swindon............. 3-0
Hartlepool-Colchester ........ 0-0
Hereford-Rochdale ............ 2-1
Mansfield-Darlington.......... 1-0
Peterborough-Blackpool....... 4-0
Torquay-Stockport............. 1-1
Tranmere-Chesterfield........ 0-3
Wrexham-Crewe................. 0-1
Halifax-Rcading.............. 0-1
1. deild
Liverpool .... . 35 20 9 6 5926 69
Man. Utd. ... .35 19 10 6 64-34 67
Nott. For 35 18 7 10 60-38 61
Q.P.R . 36 18 6 12 56-31 60
Southampton • 33 16 8 9 41-32 56
Weat Ham . .. . 35 16 7 12 53-45 55
Tottenham .. . 36 15 9 12 56-53 54
Arsenal • 36 15 7 14 61-50 52
Aston Villa .. .36 14 9 13 51-53 51
Everton . 34 12 12 10 32-34 48
Watford • 35 14 6 15 61-67 48
Norwich • 35 12 11 12 42-38 47
Leicester .... . 36 12 11 13 59-57 47
Luton . 36 13 8 15 46-53 47
Birmingham . • 36 12 8 16 35-41 44
Coventry .... .36 11 10 15 48-56 43
WBA .35 12 7 16 40-52 43
Sunderland .. • 36 10 12 14 35-47 42
Stoke . 36 11 8 17 35-58 41
Ipswich • 36 10 7 19 43-53 37
Notts C .35 9 9 17 42-60 36
Wolves ■ 35 5 9 21 26-67 24
2. deild:
ShefLWed. .. • 35 22 9 4 66-30 7'
Chelsea .36 20 12 4 74-37 72
Newcastle ... • 36 21 6 9 70-47 69
Man. City ... ■ 36 19 8 9 57-40 65
Grímsby .... ■ 36 18 11 7 55-40 65
Carlisle • 36 16 13 7 42-27 61
Blackburn ... • 36 16 13 7 51-40 61
Chariton .... ■ 36 15 9 12 46-51 54
Bríghton .... . 36 14 8 14 58-51 50
Leeds 36 13 10 13 45-47 49
Shrewsbury . . 36 13 10 13 38-46 49
Huddersf. ... 35 12 11 12 44-41 47
Cardiff 14 4 17 47-52 46
Bamsley .... .36 13 6 17 51-47 45
Portsmouth .. .36 13 5 18 62-54 44
Fulham ..... 10 12 14 48-48 42
Middlesb. ... 36 10 11 15 36-41 41
C. Palace .... .35 9 10 16 33-44 37
Oldham ■ 36 10 7 19 39-63 37
Derby 8 9 19 32-64 33
Swansea .... 36 5 7 24 29-71 22
Cambridge .. • 36 2 11 23 26-68 17