Tíminn - 08.01.1986, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.01.1986, Blaðsíða 8
8Tíminn Miðvikudagur 8. janúar 1986 Miðvikudagur 8. janúar 1986 Tíminn 9 Handknattleikur 1. deild: Stóríeikur í kvöld - Valur og Víkingur mætast í Höllinni í leik sem gæti ráðið úrslitum ■ Hermundur og félagar hjá Stjörnunni munu berjast. ■ Japanska Ijósmyndavörufyrir- tækið Canon, seni síðastliðin þrjú ár hefur verið aðalstuðningsaðili ensku deildarkeppninnar, ætlar ekki að tramlengja samning sinn við deildar- samtökin, en samningurinn rennur út í maí. Þetta er enn eitt áfallið fyrir ensk félagslið sem mörg hver eiga nú í miklum fjárhagsörðugleikum. For- ráðamenn fyrirtækisins sögðu að ákvörðunin hefði verið tekin af „hreinum viðskiptaástæðum,“ en líklegt verður að telja að hörm- ungaratburðurinn í Brússel eigi hér þátt að máli. Ekki er vitað hvort eitthvert stór- fyrirtækið komi til stuðnings deildar- keppninni á þessu ári en Graham Kelly, ritari deildarsamtakanna, ■ í kvöld fer fram næst síöasta um- feröin á Islandsmótinu ■ 1. deild karla í handknattleik og nú fer svo sannarlega að bera til tíðinda. Aðalleikurinn er að sjálfsögðu viðureign Valsmanna og Víkinga sem hefst kl. 20.15 í Laugardalshöll. Þessi liðeru efst ogjöfn í 1. deildinni með 20 stig og leikurinn í kvöld gæti því ráðið úrslitum um hvort íslands- bikarinn fari í Hæðargarð ellegar Hlíðarenda. Eina liðið sem ógnað getur áður- nefndum félögum er Stjarnan úr Garðabæ sem hefur 18 stig, nú þegar tveimur umferðum er ólokið. Stjarn- an leikur gegn F.H. í íþróttahúsinu í Digranesi og hefst viðureignin kl. 20.00. Sigri Stjarnan og vinni Valur getur svo farið að þrjú lið verði efst og jöfn þegar keppni lýkur á sunnu- daginn n.k. Þá leika Stjörnumenn sagðist, í viðtali við fréttamcnn, vera bjartsýnn á að önnur fyrirtæki kæmu brátt inn í myndina. íslandgegn Qatar ■ Olíuríkið Qatar hefur boöið íslenska landsliðinu í knattspyrnu skipað leik- inönnum 21 árs og yngri til að leika tvo landsleiki gegn jafn- öldrum sínum í Qatar. KSÍ hefur þekkst boðið og munu leikirnir verða þann 26. og 28. janúar næstkomandi. Knatt- spyrnusambandið í Qatar mun greiða allan kostnað vegna fararinnar. Guðni Kjartansson mun vclja þann hóp leikmanna sem fer í fcrð- ina. einmitt gegn Val og Víkingar kljást við K.R.-inga. Einn möguleikinn er því að þrjú lið ljúki keppni með22stigogþarfþá aukakeppni um fslandsmeistaratitil- inn. Víkingar standa hins vegar best að vígi fyrir komandi leiki, sigri þeir Val í kvöld eru þeir nánast búnir að tryggja sér titilinn því fátt - ellegar ekkert - ætti að koma í veg fyrir að þeir vinni sigur á K.R.-ingum. Á Akureyri leika K.A. og Þróttur kl. 20.00 og er víst varla að spyrja að leikslokum í þeirri viðureign. Þá leika Fram og K.R. í Laugardalshöll kl. 21.30 þ.e.a.s. að afloknum leik Valsmanna og Víkinga. K.R.-ingar verða að sigra í þeirri viðureign ætli þeir að halda sér í 1. deildinni. K.R. er með 7 stig en Fram hefur 8 stig. Hins vegar ber þess að gæta að í loka- umferðinni, sem leikin verður um næstu helgi, mæta K.R.-ingar Vík- ingum á meðan Framarar spila gegn Þrótturum, Ergó, Framarar fá tvö stig þar. Það má því búast við að áhorfend- ur láti sig ckki vanta nú þegar tvær síðustu umferðirnar verða leiknar á íslandsmótinu því spennandi er það svo sannarlega þó deila megi svo urn gæði handboltans í vetur. Handknattleikur 3. deild: ■ Týr frá Vestmannaeyjum hefur nú tekið forystuna í 3. dcildarkeppn- inni í handknattleik. Liðið brá sér upp á Akranes um síðustu helgi og sigraði þar heimamenn með einu marki, 18-17 eftir að Í.A. hafði leitt 11-6 í hálfleik. Týr lék einnig við Skallagrím í Borgarnesi og sigraði þar 34-21. Af öðrum lcikjum í 3. deildinni um helgina er það að segja að Hvera- gerði sigraði Njarövík 31-30, Fylkir vann Reyni frá Sandgerði 22-20, Þór sigraði Völsung á Akureyri 20-18 og Hér birtist staðan fyrir alla tölu- fróða menn og getur því hver og einn byrjað að raða niður í sætin þannig að sitt lið komi sem allra best út úr mótinu: Valur............ 12 10 0 2 289-242 20 Vikingur......... 12 10 0 2 297-231 20 Stjarnan.......... 12 8 2 2 296-238 18 F.H............... 12 6 0 6 289-281 12 K.A.............. 12 5 1 6 249-253 11 Fram ............ 12 4 0 8 281-289 8 K.R.............. 12 3 1 8 264-278 7 Þróttur........... 12 0 0 12 239-374 0 Leikirnir sem eftir eru: Midvikudagur: KA-Þróttur, Stjarnan-FH, Valur-Víkingur og Fram-KR. Laugardagur: FH-KA, Þróttur-Fram. Sunnudagur: KR-Vikingur, Valur- Stjarnan. Langeropnargolfvöll ■ Bernard Langer, golf- maðurinn snjalli frá V-Þýska- landi sem meðal annars vann Masters-kcppnina í Banda- ríkjunum á síðasta ári, hefur ákveðið að byggja sinn eigin golfvöll. Mun vellinuin verða ákveðin staðsetning nálægt heimabæ Langers í V-Þýska- landi er heitir Augsburg. Til að byrja með niun bróðir hans, Erwin, reka völlinn. Hann verður öllum opinn. Keflvíkingar imnu Ögra 29-13. Týrarar eru efstir eins og áður sagöi með 24 stig en næstir koma Keflvíkingar með 22 stig. Akurnes- ingar hafa 20 stig og í fjórða sæti eru Sandgerðingar með 18stig. ÖII þessi lið hafa leikið þrettán leiki nema Týrarar, sem hafa lokið fjórtán leikj- um. Keppninni í 3. deild verður framhaldið í kvöld. Þá mætast ÍA og Reynir frá Sandgcrði. ÍH og Njarðvík, Ögri og Skallagrímur og Selfyssingar og Hvergerðingar tak- ast á í nágrannaslag á Selfossi. Enska knattspyrnan: Enn eitt áfallið Canon hefur ákveðið að framlengja ekki samninginn við FA Týrtekurforystuna ■ Jakob Sigurðsson. Spámaður vikunnar ■ „Þetta verður hörkuleikur, það er engin spurning," sagði Jakob Sig- urðsson, landsliðsmaðurinn úr Val, um viðureign Hlíðarendapilta við Víking í kvöld en á þeim leik veltur það líklega hvar fslandsbikarinn í handknattleik lendir þetta árið. Þó að hugur Jakobs væri að mestu bund- inn við leikinn mikilvæga gaf hann sér þó tíma til að spá um úrslit leikja í ensku knattspyrnunni um næstu helgi. Jakob er stuðningsmaður Arsenal og spáir þeim útisigri gegn Sigurði Jónssyni og félögum í Sheffield Wed. Spá Jakobs er annars þessi: Birmingham-Ipswich................... 1 Chelsea-Luton ....................... 1 Coventry-Aston Villa .................2 Leicester-West Ham ...................2 Man. City-Southampton ............... 1 Oxford-Man. Utd.......................2 Sheff.Wed.-Arsenal....................2 Tottenham-Nott.Forest.................X Watford -Liverpool....................2 W.B.A.-Newcastle .................... 1 Crystal Palace-Charlton.............. 1 Sunderland-Leeds......................X Getraunir1x2 Getraunir1x2 Getraunir1x2 Getraunir1x2 ■ Maður einn keypti hið svokall- aða Olískerfi af Fylkismönnum í Ár- bæjarhverfi og lét þá um að fylla út seðlana. Það væri svo sem ekki í frá- sögur færandi nema það að þessi maður var all ótrúlega og ofsalcga heppinn í getraunum, hann fékk einu tólfuna og þar að auki fjórtán raðir með ellefu réttum. Alls komu fram 36 ellefur og fær hver kr. 9.031,- en tólfan góða gefur kr. 758,680,-. Alþýðublaðið er efst í getrauna- keppni dagblaðanna sem nú stendur sem hæst. Sannast þar hið forn- kveðna að oft fær lítið blað marga rétta í getraunum. Tímamenn eru bjartsýnir á seðil næstu helgar sem er nokkuð snúinn. Ef lagðar eru saman tölurnar 1,9,8 og 6 og deilt í með tveimur kemur út tólf. Að auki er 11. janúar á laugar- daginn. Allt virðist því benda til að um næstu helgi komi upp gríðarlegur vinningur hjá Tímamönnum. Vind- um okkur í seðilinn. Birmingham-Ipswich ........... 1 Bæði liðin eru verðandi fallkand- ídatar og leikurinn á St. Andrews verður sjálfsagt lítt spennandi. Heimasigur - ég veit ekki af hverju. Chelsea-Luton ............... 1 Kcrry Dixon og félagar hans í Chelsealiðinu eru í banastuði og vinna sigur í skemmtilegum leik. Covenfry-Aston Villa...........X Miðlandaliðin leika bæði nokkuð áferðarfallega knattspyrnu en geng- ur afleitlega að hala inn stig. Þau fá bæði citt stig úr þessari viðureign. Leicester-West Ham............ 2 Góðir markaskorarar eru í báðum liðum og þeir munu koma við sögu í þessum leik. West Flam hefur tapað síðustu tvö árin en vinnur í þetta sinn. Man. City-Southampton........ 1 Sunnanmennirnir munu ekki eiga möguleika í City uppí Manchester. Oxford-Man. Utd.............. 2 Liðið frá háskólabænum Oxford stendur í Manchestermönnum á Manor Ground en fá á sig mark etir hornspyrnu - frekar ódýrt. Sheff. Wed-Arsenal........... 1 Heimamenn sigruðu á síðasta keppnistímabili 2-1 og munu endur- taka leikinn á laugardaginn. Tottenham-Nott. For.......... 1 Bæði liðin eru óstöðug í leik sínum en leikmenn Forest hafa sjaldan þótt góðir ferðalangar. Það verður þeim að falli. Watford-Liverpool............ 2 Liverpoolmönnum mistekst ekki í Lundúnum og sigra sannfærandi. W.B.A.-Newcastle ............ í Nú krækja leikmenn Miðlanda liðsins sér í þrjú stig og er tími ti kominn. Crystal Palace-Charlton ...... 1 Þetta er eiginlega heimaleikui beggja liða því þau notast við samí völl. Því er varla hægt að tala urr heimasigur þó Palace muni sigra. Sunderland-Leeds..............X Margir spá sjálfsagt heimasigri er leikmennirnir frá Leeds koma ák- veðnir til leiks á Roger Park og krækja í jafntefli. Kerfishaninn ■ Kerfishaninn býður ad þessu sinni uppá kerfi sem sett er á 3 hvíta seðla (24 raðir). Kerfið býður uppá 5 heiltryggða og 3 hálftryggða leiki, það eru sem sagt fjórir leikir sem þarf að festa. Kerfið er einfalt og mjög ódýrt. Svona skal fyllt út: Seðill 1 Seðill 2 Seðill 3 A: 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X X X X X X 2 2 2 2 2 2 Heiltr. B: X X X X X X X X X X X X 1 1 1 1 1 1 2 2 2 2 2 2 C: 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X X X X X X 1 1 1 1 1 1 Heiltr. X 2 1 1 X 2 X 2 1 X 2 1 X 2 1 1 X 2 X 2 1 2 1 X Heiltr. 2 1 X 2 1 X X 2 1 2 1 X 1 X 2 1 X 2 1 1 X 2 1 X Heiltr. 1 X 2 1 X 2 1 X 2 2 1 X 1 X 2 1 X 2 1 X 2 2 1 X Heiltr. 2 1 X 1 X 2 1 X 2 1 X 2 2 1 X 1 X 2 1 X 2 1 X 2 a: 1 1 1 1 1 1 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 1 1 1 1 1 1 Hólftr. b: 1 1 1 1 1 1 X X X X X X X X X X X X 1 1 1 1 1 1 c: X X X X X X 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X X X X X X ■ Larry Bird er talinn sá besti af hvítum leikmönnum í NBA-deildinni í körfu. Hann segir þad engu máli skipta hvort menn séu hvítir eöa svartir. Nýjung í heimsbikarkeppninni á skíðum: Tveirniðuríeinu Keppni á samhliða brautum til að auka áhorfendatölur ■ Svig, þar sem tveir skíðamenn keppa saman, er nýjasta tilraunin hjá forráðamönnum heimsbikarkeppninnar á skíðum. Þessari keppni er ætlað að auka áhugann á í þróttinni og reyna að fá fleiri áhorfendur úr stórborgunum uppí brekkur skíðalandanna til að fylgjast með keppni. Á mánudaginn var haldin slík keppni nálægt Vínarborg í Austurríki og gaf hún stig í þjóða- keppni heimsbikarmótsins á skíðum. Um sex þúsund áhorfendur mættu á staðinn sem er með því allra mesta á skíðamótum. Þátttakendur voru 32 helstu skíðamenn í heimi, þar á meðal Peter Múller frá Sviss, sem þó féll úr keppni, missti af hliði í fyrstu umferð. Tilhögun á keppninni er einföld: Tveir leggja af stað í einu og áhorfendur sjá því hörkusvig niður brekkuna og ákveðinn sigurvegara. ítalir voru vel með á nótunum í þessari svigkeppni. Fyrstur var Ivano Edalini og var hann að vonum ánægður með frekar óvæntan sigur sinn: „Það er góð hugmynd að hafa svona keppni. Við þurfum fleiri slíkar í þjóðakeppni hcimsbikar- mótsins," sagði ánægður ítalinn við fréttamenn, en bætti þó við að meira álag væri á skíða- mönnunum þegar þeir færu niður því einbeit- ingin væri eilítið trufluð af andstæðinginum. Marco Tonazzi, landi Edalinis, var einnig ánægðurmeð keppnisfyrirkomulagið: „Fólk vill sjá meistarana skíða mörgum sinnum niður í harðri keppni og einnig hafa þá nálægt sér eins og á þessari braut," sagði Tonazzi sem varð fjórði. Sumir hafa þó varað við því að skíðaíþróttin verði gerð að allsherjar sirkusatriði: „Svona keppni fær fólk til að koma og því verðum við að hafa eitthvað af slíkum mótum, því rniður," sagði V-Þjóðverjinn Markus Wasmeier eftir keppnina í Vínarborg. Forráðamenn keppninnar voru aftur á móti hinir ánægðustu þrátt fyrir að kostnaður hefði aukist verulega þegar þurfti að flytja gervisnjó upp í hlíðarnar hjá Vínarborg. Tilgangurinn var að gefa Vínarbúum tækifæri að sjá helstu skíða- menn heims í skemmtilegri keppni án þess að þurfa að fara langt upp í Alpana og það tókst. Eftir þessa tilraun verður að teljast líklegt að svona keppni eigi eftir að verða fastur liður í heimsbikarkeppninni á skíðum. NBA'körfuboltinn ■ Þrír leikir voru í fyrrinótt í körfunni í Bandaríkjunum. 76er sigruðu San Ant- onio Spurs 108-102, Suns sigruðu Supers- onics 114-97 og Kings unnu Bullets 106- 87. Staðan í deildinni breytist ekki mikið við þessi úrslit nema hvað 76ers hanga í Boston ennþá. Svartir sækja enn á í amerískum íþróttum: Síðasta vígið að falla? - meira að segja hið sterka vígi stjórnanda í amerískum fótbolta er að falla ■ Það hefur í mörg ár þött áber- andi hversu vel svartir hafa staðið sig ■ íþróttaheimi Bandaríkjamanna sem og fleiri landa. Það er þó ekki ýkja langt síðan svartir leikmenn voru vart sjáanlegir í vinsælustu íþróttum Bandaríkjamanna, horna- bolta og amerískum fótbolta. Meira að segja í körfuknattleik var enginn svartur leikmaður þar til árið 1950. í dag eru 75% leikmanna í NBA- körfuknattleiksdeildinni svartir. Svo virðist sem að eitt síðasta vígi hvítra í amerískum íþróttum sé að byrja að falla. Það gæti tekið nokkur ár en fyrstu merkin eru byrjuð að sjást. Þetta vígi er staða stjórnanda (quarterback) í amerískum fótbolta. Til að skýra þessa merku stöðu að- eins þá er stjórnandi fótboltaliðs nánast það sama og heimili liðsins. Hann fær boltann í upphafi hverrar sóknar og hann sér urn að kasta bolt- anum eða afhenda hann þeim sem spilakerfið segir til um. Það er undir honum komið að miklu lcyti hversu vel liði gengur. Hann verður líka oft- ast stjarna liðsins. Án góðs stjórn- anda er liðið sem höfuðlaus her. í dag er aðeins einn svartur stjórn- andi í þeim 28 liðum sem skipa at- vinnumannadeildina i' amerískum fótbolta. Sá heitir Warren Moon og spilar fyrir Houston Oilers, eitt slak- asta lið deildarinnar í dag. Moon er virkilegur brautryðjandi. Oilers fengu hann til sín fyrir tveimur árum frá Kanada þar sem hann hafði gert góða hluti með sínu liði og oftar en einu sinni gert liðið að kanadískum meisturum í fótbolta. Núna hillir undir annan snilling í stöðu stjórnanda sem er svartur. Sá heitir Jamelle Holieway og kemur frá Oklahoma. Það sem þykir hvað merkilegast viö Holieway er að hann spilaði varnarmann í menntaskóla (eins og verður hlutskipti margra svartra leikmanna) en var færður í stöðu stjórnanda er hann kom í há- skóla. Venjan hefur verið sú að ef svartur leikmaöur er góður sem stjórnandi í menntaskólaliði þá er hann færður í stöðu útherja eða hlaupara í háskólaliði sínu. Það er oftast hrós fyrir svartan leikmann að vera fljótur eða sterkur. Holieway hefur þó fengið mest hrós fyrir að vera fljótur og góður að hugsa. Eitthvað sem svartir leikmenn hafa ekki fengið mikið hrós fyrir. En á sama tíma og svartir eru að vinna sér sæti í stöðu sem amerískir hafa gjarnan litið á sem „alhvíta" - kannast ekki allir unglingar við há- skólamyndirnar þar sem myndarlegi hvíti strákurinn er stjórnandi og fyrirlið skólaliðsins og allar stelpurn- ar eru skotnar í honum en hann fer aðeins út með aðalstelpunni í klapp- stýruliðinu - er besta körfuknatt- leiksliðið í NBA aðsnúa við blaðinu. Boston Celtics, sem voru fyrsta liðið til að nota svartan leikmann í liði sínu og voru reyndar líka fvrsta liðið til að ráða svartan þjálfara, spila nú með nánast eingöngu hvíta leikmenn. Af 12 manna hópi sem spilar leiki liðsins þá eru 8 hvítir. í byrjunarliði Celtics eru þrír hvítir af fimm. Liðið sem gjarnan er kallað „S-Afríku liðið", seldi einn af sínum svörtu leikmönnum, Carlos Clark, í byrjun þessa keppnistímabils og tók inn í stað hans tvo hvíta leikmenn þá Bill Walton og Rick Carlisle. Aðal-leikmaður Celtics, Larry Bird, sem talinn er vera sá besti af hvítum leikmönnum í deildinni, seg- ist ekki taka eftir því hvort meðspil- arar hans eða mótherjar séu hvítir eða svartir. „Eini munurinn á svört- um leikmanni og hvítum er sá að sá svarti hirðir frákast fyrir ofan hring- inn en sá hvíti fyrir neðan netið". Dennis Johnson, annar svarti leik- maðurinn í byrjunarliði Celtics, segir: „Mér er alveg sama hvort ég spila með hvítum eða svörtum leik- manni. Aðalatriðið er að hann geti hjálpað okkur til að vinna." Johnson þarf víst ekki að kvarta yfir því hjá Celtics því þar er sigur orðinn dag- legt brauð. Það virðist þó skipta dálitlu máli fyrir áhorfendur hvort stjarna liðsins er svartur eða hvítur. Fyrir um 20 árum áttu Boston Celtics besta liðið í deildinni og besta leikmanninn. Sá hét (og heitir) Bill Russel og var svartur framherji. Alla þá tíð sem Russell lék með liðinu og á meðan hann þjálfaði það síðar meir þá yar sjaldan uppselt á leiki liðsins í Bost- on Gardens (heimavelli þess). Eftir að Larry Bird kom til Boston hefur verið uppselt á hvern einasta leik. Þetta endurspeglar líka dálítið efna- hagsástand í Bandaríkjunuin þar sem hvítir eiga yfirleitt meiri mögu- leika til launahærri vinnu heldur en svartir og geta því leyft sér tneira. í dag virðist sem svartirætli aðfara að sauma meir að hvítum í amerísku íþróttum með því að komast inn í stöðu stjórnanda í fótboltaliðum þeirra. í öðrum íþróttum hafa þeir nánast náð yfirhöndinni s.s. í horna- bolta og körfuknattleik. Hér áður fyrr þá átti við það sem Bill Russel sagði er hann var þjálfari hjá Celtics. „Reglan er venjulega sú að þú notar aðeins tvo svarta leikmenn á heima- velli, þrjá á útivelli og fimm ef þú ert að tapa leiknum." I dag myndu orð Pete Rose, eins frægasta hornabolta- leikmanns Bandaríkjanna sem er hvítur, eiga betur við. Rose var van- ur að segja ef vel gekk hjá hvítum kpllega sínum: „Ekki svo slæmt af hvítum að vera". Hvort Jamelle Holieway verður einhverntíma einn besti stjórnandi í amerískum fótbolta eða hvort Bost- on Celtics verða NBA-meistarar með nánast „hvítt lið“ er erfitt að ■ Næsta stóra verkefnið hjá hand- knattleikslandsliði íslands er í Dan- mörku. Þar byrjar í næstu viku Balt- ic-Cup með þátttöku íslendinga, dana A og B, Pólverja, A-Þjóðverja og Sovétmanna. Sannarlega slórt og sterkt mót. Nokkuð víst er að allir bestu leikmenn íslands verða með á segja. Hitt er annað mál að svartir menn sjá gjarnan möguleika á fjár- magni og frama með því að komast langt í íþróttum og því leggja þeir meiri metnað í árangur sinn í íþrótt- mótinu og því er þetta mjög góð æf- ing fyrir A-keppnina í Sviss í lok febrúar. íslendingar leika fyrst gegn A-liði Dana og veröur sá leikur í Aarhus þann 14. janúar. Nú skulu Danir lagðir á ný. Belgía: Ceulemans kosinn - knattspyrnumaður ársins 1985 um. ■ Warren Moon er brautryðjandi í stöðu stjórnanda í amerískum fótbolta. Hvcrjir fylgja á eftir honum? Handknattleikur: Baltic-Cup að hefjast Alþjóða Frjálsíþróttasambandið breytir: Myndir sýndu mistök Bætt við heimsmet Cram og Aouita ■ Alþjóða frjálsíþróttasambandið (IAFF) hefur bætt örlitlum tíma við heimsmet þau er Englendingurinn Steve Cram og Marokkóbúinn Said Aquita settu síðastliðið sumar. Heimsmet Crams í míluhlaupi, sem hann setti í Osló í júlí á síðasta ári, verður nú 3 mín.og 46,32 sek. Met Aquita í 1500m hlaupi, sett í V- Berlín í ágúst síðastliðnum, verður hins vegar 3 mín.og 29,46 sek. Bæði þessi met voru einum hundraðasta úr sekúndu betri áður en af breyting- unni varð. Ástæðan? Jú, farið var að kanna filmur sem teknar voru er kapparnir komu í mark í þessum hlaupum og reyndust þær vera örlítið ónákvæm- ar. Vinnubrögðin voru einnig eitt- hvað ónákvæm þegar austur-þýska stúlkan Sabine Busch setti heimsmet í 400 m grindahlaupi á síðasta ári. Tímanum á því meti hefur verið breytt í 53,55 sekúndur sem er einum hundraðasta úr sekúndu betri en tíminn sem áður gilti. ■ Tækninefnd Fimleikasambands fslands gengst fyrir dómaranám- skeiði fyrir fimleikadómara um næstu helgi. Þá verður á dagskrá dómaranámskeið kvenna og hefst það á föstudagskvöld kl. 20. Þann 20. janúar verður svo dómaranám- skeið karla og hefst það einnig kl. 20. Allar upplýsingar um námskeiðið eru veittar hjá formönnum tækni- nefnda Jónasi og Berglindi í síma 672367. ■ Fyrirliði belgíska landsliðsins í knattspyrnu Jan Ceulemans var í gær útnefndur knattspyrnumaður ársins í Belgíu. Hinn 28 ára gamli Ceulem- ans, sem einnig er fyrirliði efsta liðs- ins í 1. deildinni belgísku, Club Bruges, leiðir belgíska landsliðið í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Mexíkó í sumar. Annar í kosningunni, en að henni stóðu íþróttafréttamenn og forráða- Bikarmót F.S.f. er fyrsta mótið hjá sambandinu á þessum vetri og verð- ur það haldið 25.-26. janúar. Þátt- tökutilkynningar þurfa að berast í síðasta lagi 18. janúar ásamt móta- gjaldi. Úrslit í A-liði verða tekin til við- miðunar við val á keppendum í landskeppni við Skotland, sem verð- ur hér á landi 9. febrúar n.k. menn belgískra knattspyrnuliða, var útherjinn PhilippeDesmedt. Sá leik- ur með Waregem og er auk þess landsliðsmaður. ■ Jan Ceulemans. Fimleikar: Fimleikadómaranámskeið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.