Tíminn - 09.01.1986, Síða 5

Tíminn - 09.01.1986, Síða 5
Fimmtudagur 9. janúar 1986 íllllllllllllll! ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllll Tíminn 5 Líbýustjórn líkir viðskiptabanni við stríðsyfirlýsingu Tripoli-Washinglon-Reuler: ■ Líbýumenn segja ákvörðun Reagans Bandaríkjaforseta um við- skiptabann á Líbýu, sem hann skýrði frá í fyrrakvöld. og hvatning hans til annarra ríkja um að fylgja fordæmi Bandaríkjamanna samsvari stríðs- yfirlýsingu. Ríkisútvarpið í Líbýu ásakaði bandaríska forsetann í gær um villi- mennsku í viðskiptum sínum við Líbýu. Líbýumenn muni ekki beygja sig undir vilja Bandaríkjamanna hverjar svo sem afleiðingarnar kunni að verða. Útvarpið bendir á að fyrri tilraunir Reagans til að knésetja Líbýumenn hafi mistekist. Hann hafi þess vegna gripið til þess ráðs að lýsa yfir stríði á hendur Líbýu. Ekkert bendir til þess að banda- menn Bandaríkjamanna í Evrópu muni almennt verða við áskorun Reagans um að hætta viðskiptum við Frá Kínatil Víetnams: Milljón sprengjur sendar á einu ári? Bangkok-Reuter ■ Samkvæmt víetnamska ríkisút- varpinu í Hanoi sendu Kínverjar um eina milljón sprengjur yfir landa- mæri ríkjanna á seinasta ári. Að sögn útvarpsins létust samtals nær hundrað menn og rúmlega 160 slösuðust í þessum sprengjuárásum Kínverja. Útvarpið segir að einnig hafi um fimm hundruð hús skemmst í þessum árásum í héruðunum Ha Tuyen og Cao Bang í Norður-Víet- nam. Kínverjar og Víetnamar hafa nær daglega skipst á skotum frá því 1979 að Kínverjar réðust yfir landamærin í kjölfar innrásar Víetnama í Kamb- ódíu. Kreppt að breskum og þýskum bændum Brussel-Reuter ■ Tekjur bænda í Bretlandi og Vestur-Pýskalandi lækkuðu umtals- vert á seinasta ári vegna slæms veðurfars, sem leiddi til lélegrar upp- skeru, og aðhaldsaðgerða stjórn- valda. Samkvæmt Eurostat, hagstofu Efnahagsbandalags Evrópu, lækk- uðu tekjur í landbúnaði um 17,5% í Bretlandi og um 15% í Vestur- Þýskalandi árið 1985 frá því árið áður. Þetta er mun meiri tekjulækkun en í öðrum ríkjum Efnahagsbanda- lagsins þar sem meðaltekjulækkun bænda á seinasta ári var um átta prósent. Munurinn stafar fyrst og fremst af meiri niðurskurði stjórn- valda á aðstoð við bændur í Bret- landi og Vestur-Þýskalandi en í öðr- um ríkjum EBE. Bændur í bandalagsríkjunum eru samtals um átta milljónir. Kjör þeirra versnuðu alls staðar í fyrra nema í Danmörk, þar sem tekjur þeirra jukust um 1,5% og á Ítalíu þar sem þær jukust um 3,2%. Tölur Eurostat ná ekki yfir bænd- ur í Grikklandi né í Portúgal og á Spáni sem gengu í bandalagið um síðustu áramót. Vélbyssuvarnir á flugvöllum Breta? London-Reuter ■ Talsmaður bresku lögreglunnar segir að lögregluyfirvöld hafi nú til athugunar að láta hermenn vopnaða vélbyssum standa vörð við afgreiðslu alþjóðaflugs á Heathrowflugvelli í London. Breska blaðið Daily Mirror hélt því fram í gær að nú þegar hefði ver- ið ákveðið að foringjar úr Dll úr- valssveit breska hersins myndu standa vörð á Heathrow sem er fjöl- farnasti flugvöllur veraldar. Þetta hefði verið ákveðið vegna ótta við nýjar árásir hryðjuverkamanna svip- aða þeim sem gerðar voru á flugvöll- um í Róm og í Vín í seinasta mánuði þar sem nítján menn létu lífið. En flugmálaráðherra Breta, Mic- hael Spicer, segir stjórnvöld mjög hikandi við að láta vopnaða menn standa vörð á flugvellinum. Líbýu. Ríki araba og samtök mú- hameðstrúarríkja hafa lýst yfir stuðningi við Líbýumenn og gegn „hótunum heimsvaldasinna og síon- ista“ og bæði Sovétmenn og Kínverj- ar hafa fordæmt viðskiptabann Bandaríkjamanna í Líbýu. Það er því talið ólíklegt að við- skiptabann Bandaríkjamanna muni hafa mikil áhrif á Líbýumenn þar sem viðskipti þeirra við Bandaríkin eru hverfandi. Útflutningur Líbý- umanna til Bandaríkjanna nam 5,3 núlljörðum dollara árið 1981. Eneft- ir að Bandaríkjastjórn bannaði olíu- innflutning frá Líbýu minnkaði út- flutningur þeirra til Bandaríkjanna niður f aðeins 36,5 milljónir dollara á fyrstu tíu mánuðum seinasta árs. Á þessum sama tíma hefur innflutning- ur Líbýumanna frá Bandaríkjunum minnkað úr 813 milljónum dollara niður í 260 milljónir dollara fyrstu tíu mánuði ársins 1985. H Eftir að Gaddafí fann út að hann yrði að fofdxma hryðjuverkin á fíug- völlunum í Róm og Vín hafa ríki araba og múhameðstrúarmanna lýst því yfir hvert á fætur öðru að þau styðji Líbýumenn gegn hótunum Banda- ríkjanna. V-þýskum atvinnu- leysingjum fjölgar Nuremberg-Reuter ■ Atvinnuleysingjum fjölgaði mik- ið í Vestur-Þýskalandi í seinasta mánuði og eru þeir nú orðnir jafn- UTLOND Umsjón: Ragnar Baldursson margir og í desember fyrir tveimur árum sem var met. Samkvæmt opinberum tölum voru atvinnuleysingjar í lok desember 2,35 milljónir sem er 9,4% af vinnu- færum mönnum. Þetta er mikil fjölg- un frá því í nóvember þegar atvinnu- leysingjar voru 2,21 milljón sem er 8,9% atvinnuleysi. Stjórnvöld segja atvinnuleysis- aukninguna núna stafa fyrst og fremst af því að störfum í bygging- ariðnaði og öðrum utanhússtörfum fækki mjög yfir vetrarmánuðina vegna kulda. Baráttan gegn atvinnuleysi er eitt helsta kosningamál þingkosning- anna sem verða í Vestur-Þýskalandi á næsta ári. Atvinnuleysi var að með- altali 9,3% allt árið í fyrra sem er meira en nokkurn tíma frá því 1950 þegar það var 11 % Bandarískt rusl fyrir Líbýumenn New York-Reuter ■ Bandarísk útvarpsstöð hefur hafið herferð fyrir því að fá Bandaríkjamenn til að senda sendifulltrúum Líbýu hjá Sam- einuðu þjóðunum rusl með póst- inum til að lýsa vanþóknun á hryðjuverkastarfsemi Líbýu- manna. Áskorun stöðvarinnar kom í kjölfar hótunar Gaddafi Líbýu- leiðtoga um að senda sveitir hryðjuverkamanna til Bandaríkj- anna ef Bandaríkjamenn réðust á Líbýu. Enn höfðu fremur fá ruslbréf borist til sendinefndar Líbýu í gær en Jack Roberts dag- skrárstjóri WGUY-útvarpsstöðv- arinnar segist bjartsýnn um að undirtektir verði góðar þar sem fjöldi sjónvarpsstöðva og dagbl- aða hefði skýrt frá áskoruninni. EIGENDUR YAMAHA VÉLSLEÐA Úrval varahluta á lager - hagstætt verö. Félagsmenn L.Í.V. fá 10% staögreiðsluafslátt. /SBÚNADARDEILD YAMALUBE‘2 ^sambandsins olían frá YAMAHA

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.