Tíminn - 09.01.1986, Page 6
6Tímínn
Timinn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGG JU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvstj.: GuömundurKarlsson
Ritstjóri: Helgi Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: NíelsÁrni Lund
Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason
Innblaösstjóri: OddurÓlafsson
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-
Græna vagna
■ í miklum átökum í verkalýðsmálum og stjórn-
málum yfirleitt á miðju síðasta sumri, varpaði
Morgunblaðið fram þeirri spurningu, hvort liturinn
á strætisvögnum Reykjavíkur ætti að vera gulur.
Við á Tímanum höldum að best fari á því að hafa Iit-
inn grænan.
Gulir strætisvagnar eru nú þegar orðnir þó
nokkrir á götum borgarinnar og sýnist sitt hverjum.
Morgunblaðið lagði á það nokkra áherslu, að fram
færi skoðanakönnun meðal borgarbúa um það,
hvaða litur þætti bestur á vögnunum, en ljóst þykir,
að borgarstjóri og lið hans hafi í krafti meirihluta
ákveðið það án þess að spyrja kóng eða prest og er
það að vonum og í samræmi við fyrri gerðir hans.
Nú hefur enginn gefið á því skýringu, hvers vegna
gulur litur hefur orðið fyrir valinu. Til þess að gera
vagnana meira áberandi og vekja athygli á þessum
samgöngumáta? Til þess að menn aki síður á vagn-
ana? Af því að það voru til aukabirgðir af gulri
málningu hjá Strætisvögnum Reykjavíkur? Enginn
af yfirgangsmeirihlutanum hefur haft fyrir því að
skýra þetta fyrir borgurunum.
Margir hafa hins vegar haft samband við Tímann
og kvartað yfir þessum lit. Hann sé of áberandi,
stingi í stúf við umhverfið. Menn hafa bent á að víða
séu vagnarnir rauðir, sem trúlega fengist aldrei í
gegn og að það sé hvergi nema í Vestur Berlín, sem
vagnarnir séu gulir. Það sé til þess að auglýsa vel-
megun borgarhlutans yfir múrinn til hungraðra
austantjaldsbúa.
Það getur varla verið skýringin á þessu litavali.
Afkomu borgarbúa hefur stórlega hrakað hin síðari
ár og fyrirtæki flutt starfsemi sína til nágranna-
byggða. Ekki nema þetta sé húmor hjá borgar-
stjóranum.
Eitt sinn var lofað hér grænni byltingu. Plantað
skyldi trjám víða um borgina og skipulögð útivistar-
svæði fyrir íbúana, þar sem þeir gætu notið sólar og
hressingar. Sjálfstæðisbörnin í borgarstjórn hafa
undanfarin ár verið að éta þessa byltingu sína.
Alls kyns góðborgurum og vildarvinum íhaldsins
hefur verið úthlutað lóðum til byggingar íbúðar og
verslunarhúsnæðis á sumum fegurstu reitum borg-
arinnar. Fólk, sem áður hafði notið útsýnis yfir
sundin blá, horfir nú á múrveggi og inn um glugga
hjá nágrannanum. Skemmst er að minnast lóða-
uppboðsins í Stigahlíð, þar sem fagurt útivistar-
svæði var lagt undir íbúðarbyggingar og borgarbúar
munu komast að því fullkeyptu þegar Múrinn mikli
rís við Skúlagötu. Þá verður öllum vestan þeirra
stórhýsa meinað útsýni til Esjunnar og út á Sundin.
Þá verður gott að orna sér við græna strætisvagna
til minningar um grænu byltinguna og til þess að
minna fólk á gildi samvinnu og félagshyggju í stað
yfirgangs einstaklingshyggj unnar.
Fimmtudagur 9. janúar 1986
I SAMTÍNINGUR'
Er ríkisstjórnin
að springa?
■ Þjóðviljinn gerir því skóna í
forsíðufrétt í gær að inikil óánægja
sé í báðum stjórnarflokkunum og
vaxandi tortryggni gæti hjá þeim út
í vinnubrögð hvor annars.
Nú er á það að líta að Alþýðu-
bandalagsmenn hafa litið til hvers
nýs dags frá því að stjórnin var
mynduð, með þá von í brjósti að
hún myndi springa. Að sjálfsögðu
hafa komið upp margvíslegir erfið-
leikar í stjórnarsamstarfinu svo
sem vitað var þar sem mörg stefnu-
mál Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks eru ekki þau sömu. Á
hitt ber einnig að líta að þessir
flokkar báðir hafa litið svo á að
nauðsynlegt sé fyrir þjóðina að
henni sé stýrt af festu og ábyrgð og
því hafa þeir reynt að finna leiðir
sem báðir sætta sig við til að ná fram
mikilvægum markmiðum í þjóðar-
búskapnum.
ÁlitSUS
Því er samt ekki að leyna að
nokkurs þrýstings gætir nú um
þessar mundir hjá báðum flokkun-
um og alls endis er óvíst hve lengi
þessi stjórn situr. Svo virðist sem
hluti sjálfstæðismanna og þá
einkanlega ungu Heimdellingarnir
vilji kosningar. í Dagblaðinu í gær
er því slegið upp og haft eftir Vil-
hjálmi Egilssyni formanni SUS að
stjórnin ætti að efna til kosninga:
„Ríkisstjórnin hefði átt að lcita
eftir nýju umboði fvrir löngu og á
að gera það. Ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar og hef oft sagt
það að stjórnin sé búin að ná þeim
árangri sem hún getur.“
1 þessum orðum formannsins
gætir uppgjafar og sé það svo að
sjálfstæðismenn og þinglið þeirra sé
uppgefið á því að takast á við erfið-
leika þjóðarbúsins þá er það
ábyrgðarleysi af þeim að segja það
ekki skýrum orðum.
Upphlaup Moggans
í leiðara Morgunblaðsins í gær er
skammast yfir því að málgagn fram-
sóknarmanna skuli fordæma
vinnubrögð menntamálaráðherra
að segja fyrirvaralaust upp störfum
framkvæmdastjóra LlN. Einnig er
þar kvartað yfir leiðurum Tímans
sem hafa að undanförnu ekki tekið
undir skoðanir sjálfstæðismanna.
Nú kann einhverjum að þykja
nóg að sjálfstæðimenn hafi tvö
stærstu dagblöðin í hendi sér þótt
þeir fari ekki einnig fram á það að
önnur pólitísk dagblöð fylgi þeim
skýlaust að málum. Leiðara-
höfundur Morgunblaðsins endar
hann á eftirfarandi máta:
Æsingur Tímans í garð Sjálf-
stæðisflokksins og ráðherra hans á
fyrstu dögum nýbyrjaðs árs og
strax eftir að Framsóknarflokkur-
inn hefur alfarið tekið við stjórn
blaðsins að nýju bendir ekki til
neins annars en þess, að framsókn-
armenn hafi ákveðið að segja Sjálf-
stæðisflokknum stríð á hendur.
Þeir hafa kannski náð sáttum um
jólahelgina Steingrímur Her-
mannsson, flokksformaður, og
Páll Pétursson, þingflokksformað-
ur, og ákveðið að skipa sér báðir í
stjórnarandstöðu? Þýðir reiði
Tímans, að framsóknarmenn ætli
að rjúfa stjórnarsamstarfið vegna
uppstokkunar hjá Lánasjóði ísl.
námsmanna og hækkunar á flug-
vallarskatti? Ef það eru þessi mál,
sem eiga að velta ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar, er nauðsyn-
legt að fá úr því skorið sem fyrst.
Nú vitað Morgunblaðsmenn að
leiðarahöfundar Tímans ráða því
ekki frekaren þeirsjálfirhvort eða
hvenær þessi stjórn lætur af völdum
en þó virðist gæta í orðunt þeirra að
þeim sé það ekkert kappsmál að
stjórnin sitji.
Það hefur að vísu komið fram
áður að svo virðist sem einhverjum
þingmanna Sjálfstæðisflokksinssé
það ekkert kappsmál að stjórnin
sitj i áfram. Ber þar að minnast þess
upphlaups sem varð þegar Páll Pét-
ursson þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins leyfði sér að hafa
aðra skoðun á varnarmálum og
kjarnorkuvígbúnaðar en utanrík-
isráðherra. Ekki dugði þá minna en
að þingflokkur sjálfstæðismanna
sendi formann flokksins til for-
sætisráðherra og greindi honum frá
því að athæfi Páls gæti orðið stjórn-
arslitamál.
Aðförað Guðmundi
G. Þórarinssyni
Þjóðviljinn réðist harkalega að
Guðmundi G. Þórarinssyni fyrrum
þingmanni Framsóknarflokksins
og gjaldkera hans í forsíðufrétt sl.
þriðjudag. ÞarerGuðmundursak-
aður um að hafa staðið að gífurleg-
um skattsvikum og örðu sviksam-
legu athæfi meðan hann vann hjá
fyrirtækinu Þýsk-íslenska.
Guðmundur hefur nú stcfnt
Þjóðviljanum fyrir ærumeiðandi
ummæli, róg og lygar enda hvorki
sannað að það fyrirtæki hafi staðið
að nokkru ólöglegu hvað þá heldur
að Guðmundur hafi á nokkurn
hátt tekið þátt í viðlíka athæfi eins
og á hann er borið. Verður vart
annað séð en að Þjóðviljinn ætli sér
það eitt að rægja Guðmund og
sverta mannorð hans og noti til
þess ástæðu sem kemur honum
ekki neitt við.
Þannig vinnubrögð Þjóðviljans
koma fæstum á óvart, enda háttur
þeirra Alþýðubandalagsmanna
löngum verið sá að slá um sig með
fullyrðingum og slagorðum í stað
þess að vinna heiðarlega að nokkru
máli. í yfirlýsingu sem Guðmundur
birtir í Morgunblaðinu tekur hann
það fram að hann seldi sinn hlut í
fyrirtækinu Þýsk-íslenska um ára-
mótin 1978-79 og hætti þá í stjórn
þess. Eftir að hann hætti á þingi í
aprtl 1983 vann hann nokkra mán-
uði sem framkvæmdastjóri hjá fyrir-
tækinu og hætti um áramótin 1983-
84.
Árás Þjóðviljans á Guðmund G.
Þórarinsson er ósmekkleg og með
öllu forkastanleg og leiðir hugann
að því hvort Þjóðviljinn sé með
þessu að ná sé niðri á honum fyrir
vasklega framgöngu í viðræðum og
samningum um álmál og orkumál
sem Alþýðubandalagsmenn verða
nú að játa að þeir klúðruðu og
stóðu óábyrgt að. Eða hver er
ástæðan?