Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 7

Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 7
Fimmtudagur 9. janúar 1986 Tíminn 7 Loftur Jóhannesson Fæddur 16. júlí 1920 Dáinn 28. desember 1985 Hann Loftur er dáinn. Horfinn. Hann, sem var svo rt'kur þáttur í lífi okkar sem áttum hann að bróður og vin. Hann, sem var einn af þessum föstu punktum í tilvcrunni og alltaf boðinn og búinn að rétta manni hönd. Hann, sem foreldrarokkartreystu best til ferðalaga og systkinabörnin buðu í bíltúr í hans eigin bíl. Hann, sem á fullorðins árunt fann hana Huldu sem veitti honurti alla sína ást og umhyggju og afabörn. Hann, þessi stóri maður sem var stærstur í því smáa er verður manni svo mikils virði í sorg og gleði. Hann, sem að nafni hans litli heils- aði með þessum orðum: Mér þykir vænt um þig - þegar hann kom sjúkur heim til okkar á að- fangadag, til -að halda jólin með Huldu og okkur. Það voru góð og gleðileg jól. Við þökkum þá daga og allt hans líf, Þökkum honum fyrir hana Huldu og biðjum guð að gefa henni styrk. Friður sé með honurn. Svava og fjölskylda. í dag er til ntoldar borinn Loftur Jóhannesson. Hann andaðist á Landspítalanum 28. des. s.l. eftir langvarandi veikindi. Loftur var seinni eiginmaður mömmu. Alltaf ríkti kyrrð og ró yfir þessum trausta og hávaxna manni. Hann miklaði ekki hlutina fyrir sér, var alltaf reiðu- búinn til hjálpar ef á þurfti að halda. I miklum veikindum mömmu fyrir nokkrum árum, sást glöggt hve hann var góður ntaður. Hann hjúkraði hcnni af alúð, og studdi hana er það versta gekk yfir. En svo snerist dæm- ið heldur en ekki við, þegar Loftur veiktist. Mamma stóð sig cins og hetja"á þessunt erfiða tíma, þó að þau grunaði hvernig endirinn yrði. Loftur gerði sér grein fyrir alvöru sjúkdómsins strax og hann upp- götvaðist. En hann lét engan bilbug á sér finna, og kvartaði aldrei. Þegar ömmubörnin kontu í heim- sókn után af landi þá stóð ekki á Lofti að gamna sér við þau, eins og þau væru hans eigin afabörn. Og ekki spilltu pönnukökurnar fyrir sent hann bakaði af mikilli list. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast Lofti. Megi Guð gefa mömmu og systkinum hans styrk í sorg þeirra. Gunna, Geir, Siggi, Tobbi, Símon, Bjarni, Kristín og fjölskyldur. ■ Hið hreina og tæra vatn árinnar streymir fram. ■ Ýmis mannanna verk snerta veiðivötn og hafa þannig áhrif á umhverfi fisks. Þar má nefna virkj- un vatna til raforkuframleiðslu, vegalagningu og brúarsmíð og mengun. Það sem seinast var nefnt, mengun, verður gert að umtalsefni í grein þessari. Áður hefur verið fjallað í Tímanunt um virkjun og vegagerð og áhrif þess á fisk og um- hverfi hans.1’ Oft heyrist sagt, að íslensku veiðivötnin séu með hreint og gott vatn meðan að mengun valdi mikl- um vandræðum og usla í vatnafiski erlendis. Eru íslensku veiðivötnin laus við allt sem heitir mengun; hafa þau sérstöðu í þessu efni? Til þess að fá svar við þessum spurn- ingum skulum við athuga málið nánar. Hvar er mengunarhættan mest? Það er auðvitað flestum ljóst, að helstu mengunarvaldar eru í tengslum við fjölmenna og þétta byggð og iðnaðarrekstur, stóran og smáan. Af þeirri ástæðu má gefa sér það, að hér á landi séu ekki fyrir hendi að nokkru marki þau skilyrði sem skapa mestan vanda erlendis. Þá tryggir mikil fjarlægð landsins frá helstu iðnaðarlöndum Vestur- Evrópu, að ekki berist hingað loft- inengun sem hrjáð hefur t.d. vötn í Suður-Noregi og vaidið fiskdauða þar í landi. Hvar skyldi þá skórinn kreppa að í þessu efni hér á landi, ef um slíkt er að ræða?Til að glöggvasigá því, er rétt að athuga hvar þétt byggð er við veiðivötn hér á landi og hvar eru verksmiðjur, sem kunna að valda mengun? Það er eðlilegt að benda fyrst á frárennsli frá mannabústöðum, þar á meðal sumarbústaðahverfi og þar sem búskapurerstundaður, ogsem látið er falla í straumvatn eða stöðuvatn. Hér koma einnig við sögu fiskeldisstöðvar, sem fjölgar ört þessi árin, en margar þeirra eiga frárennsli í veiðivötn. Þá má nefna gróðurhús, sláturhús og bílaverk- stæði. Þéttbýlið yfirleitt viðsjóinn Við lauslega yfirferð um landið, kemur í ljós, að á tiltölulega fáum stöðum er þétt byggð við veiðivötn. Reyndar er enginn meiriháttar kaupstaður við þau ef undan er skilin höfuðborgin okkar. Nær allir kaupstaðir landsins eru við sjó. Hins vegar er jrétt byggð á nokkr- um stöðum. A Vesturlandi er öll þétt byggð við sjó nema Mosfells- sveit (Leirvogsá), og Borgarnes á skolun á áburðardreifara. Slíkt á ekki að gera með þeim hætti að far- ið sé með hann í ána. Að lokum má benda á að ekki má láta botn- dreggjar úr súrheysturni fara í veiðivatn, því að þar er um eitur- efni að ræða, eins og í fyrrgreind- um dæmum. Ófremdarástand við Varmá í Ölfusi Þessar athuganir okkar á sviði mengunar leiða í Ijós, að á nokkr- um stöðum á landinu er ástæða er til ætla að hættuástand gæti skapast fyrir veiðivötn, ef ekki er aðgát höfð. Þá er vitað um einn stað þar sent ófremdarástand ríkir í þessum' efnum. Það er Hveragerði en þar fer frárennsli staðaríns beint í Varmá. Hitamengun Auk þess er við Varmá stöðug hætta á, að hitamengun valdi tjóni i fiski. Þar er fengin reynsla af því að gufuorka, án nauðsynlegrar kæl- ingar, fór í ána og olli tjóni á fiski. Þessi hætta á hitamengun er víðar fyrir hendi hér á landi en við Varmá. Niðurstaða hugleiðinga þessara vcrður því þessi: Við íslendingar höfum ekki enn kynnst mengun að neinu marki samanborið við aðrar þjóðir. Erum við líklega nokkuð vel settir með veiðivötn okkar hvað mengun varðar. Þessu veldur fyrst og fremst fámenni þjóðarinnar, eins og fyrr var sagt, og hinar nátt- úrulegu aðstæður hér á landi. Þörf varðstöðu Á hinn bóginn er fyllsta ástæða til þess að fylgjast vcl með til að koma í veg fyrir að mengun vaxi í veiðivötnum. Kippa þarf í lag því, sem fer aflaga. Gæta þarf þess að óheillaspor verði ckki stigin íþessu efni. Ætla má að í framtíðinni muni hættan á aukinni mengun veiði- vatna vaxa vegna aukinna umsvifa fyrirtækja, scm ntengun fylgir. Þess vegna er þörf dugmikillrar varð- stöðu í þessum efnunt. Mengunafvöldum náttúruhamfara Að síðustu skal vikið að mengun af völdum náttúruhamfara, sem enginn mannlegur máttur fær ráðið við. 1 því efni má minna á Heklu- gos; hlaup, sem koma í jökulárnar á Suðurlandi vegna hita undir jökli, og fleira. Nýjasta dæmi af þessu tagi er þegar skriðjökull hljóp í Hagavatn 1980 og ollí tvímælalaust tjóni á fiskstofni HvítárogÖlfusár, sem voru mengaðar af leirfram- burði allt sumarið. Einar Hannesson Virkjanir og veiðivötn, Tíminn 19.5, 1983 Vegagerð og veiðivötn, Tíminn 3.1, 1984. Varmá hjá Hveragerði. Reykjafoss. Myndir: EH. Einar Hannesson: islensk veiði vötn og mengun (ósasvæði Hvítár). Á Vestfjörðum er sömu sögu að segja. Á Norður- landi er það Blönduós (Blanda), Hofsós (Unadalsá) og Ólafsfjörð- ur, sem er við ósasvæði samnefnds vatns, sem skera sig úr í þessu efni. Ella eru allir þéttbýlisstaðir ein- göngu við sjó. Á Austurlandi er það helst Egils- staðir (Lagarfljót) og Höfn í Hornafirði (Hornafjarðarfljót). Á Suðurlandi: Hveragerði (Varmá), Selfosskaupstaður (Ölfusá), Laug- arvatn, Hella (Ytri-Rangá), Hvols- völlur (Þverá), Kirkjubæjarklaust- ur (Skaftá). Verksmiðjur og bílaverkstæði Þá er næst að skoða ástandið, er snertir verksmiðju- eða annan iðn- aðarrekstur, sem leiðir af sér mengun, en þá er ekki tekinn með sá atvinnurekstur, sem er fyrir hendi á áðurnefndum þéttbýlis- stöðum. Á Vesturlandi eru þrjú stóru iðn- aðarverin: Álverið, Áburðar- verksmiðjan, Sementsverksmiðjan og Járnblendiverksmiðjan, sem flest snerta hugsanlega loftmengun gagnvart veiðivötnum. Auk þess má nefna, eins og áður fyrirtæki, sem nota ýmis efni, m.a. olíur sem alls ekki mega fara í ár og vötn. Hið sama og greint var frá áður um minniháttar fyrirtæki, má segja um Vestfirði og Norðurland og reyndar einnig Austurland og Suðurland. Auk þess má minna sérstaklega á gagnvart Mývatni á Kísiliðjuna og hina þéttu byggð í Reykjahlíð. Vatnaiögin 1923 Allt, sem hér hefur verið upp talið, veldur mengun, mismikilli. Þess vegna verða menn að gæta sín til þess að valda ekki meiri óhreink- un vatns, en brýnasta nauðsyn ber til. Til þess að stuðla að þessu hafa verið sett í lög ýmis ákvæði. Þar má minna á hin merku Vatnalög frá 1923. Þau greina frá því, hvernig standa skuli að þessum verndunar- málum hvað vatn varðar. Síðar hafa komið til sögunnar, eftir því sem reynslan hcfur leitt í ljós, ný ákvæði til að tryggja sóma- samlega stöðu þessara frárennslis- mála, ekki síst frá sjónarmiði heil- brigðis. Það er með mengun, eins og ým- islegt annað, að menn verða ekki varir við vandræði eða tjón af völd- um þess fyrr en skaðinn er skeður. Þess vegna er forvarnarstarf nauð- synlegt íþessusambandi. Þáerogá það að líta, að ekki er víst, að menn verði varir við þó að óþverri fari í vötn. Auðvelt er að fela verknað- inn, þó að afleiðingarnar geti sagt til sín síðar. Þess vegna er nauðsyn- legt að ganga þannig frá hnútum, að ekki sé boðið upp á slíkt. Eiturefni í búskap Nefna mætti til athugunar örfá dæmi um hættu, sem veiðivötnum getur stafað af búskap, og sem ber að varast. í fyrsta Iagi, að baðvatn af sauðfjár- og annarri dýraböðun, sé ekki látið renna í á. Þá má minna

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.