Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 8

Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 9. janúar 1986 Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar hlutastöður við læknadeild Háskóla íslands, sbr. 10. gr. laga nr. 77/1979 um Háskóla íslands: Hlutastaða lektors í geðlæknisfræði, viðtalstækni og sállækningum (dynam- isk psykiatry). Hlutastaða dósents í handlæknisfræði. Hlutastaða dósents í bæklunarlækningum. Hlutastaða lektors í heimilislækningum. Hlutastaða dósents í hjartasjúkdómafræði innan lyflæknisfræði. Hlutastaða dósents í meltingarsjúkdómum innan lyfjalæknisfræði. Hlutastaða dósents í svæfingalæknisfræði Hlutastaða dósents í taugasjúkdómafræði. Staðan sé bundin rannsóknarað- stöðu á taugalækningadeild Landspítalans. Hlutastaða dósents í húð- og kynsjúkdómafræði. Einnig er laus til umsóknar lektorsstaða í lífeðlisfræði (heil staða) við lækna- deild Háskóla íslands. Gert er ráð fyrir að ofangreindar stöður verði veittar til fimm ára frá 1. júlí 1986. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist fyrir 7. febrúar nk. Menntamálaráðuneytið 6. janúar 1986. Traktor og sturtuvagn Til sölu af sérstökum ástæðum Ursus traktor og sturtuvagn 3ja ára gamall. Gott staðgreiðsluverð eða greiðsluskilmálar. Allar upplýsingar í síma 91 -687787. Happdrætti heyrnar- lausra 1985 Dregið var í hausthappdrætti Félags heyrnarlausra 20. des 1985. Vinningsnúmereru þessi: 1. 14753 6. 8615 2. 6026 7. 12310 3. 11118 8. 9837 4. 7931 9. 1091 5. 2337 10. 2884 Vinninga má vitja á skrifstofu félagsins að Klapparstíg 28 kl. 9-12 virka daga. Félagið þakkar veittan stuðning. Snjósleði Skidoo Citation árg. '79, góður sleði. Upplýsingar í síma 99-1544 á kvöldin. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARiNS Námskeið fyrir málm- iðnaðarmenn og vélstjóra • Suða með fluxfylltum vír. Ætlað stjórnendum suðuframkvæmda. Haldið 23. og 24. janúar. • Framhaldsnámskeið í rennismíði og fræsingu. Hefst 25. janúar. • Efnisfræði stáls. Hefst 4. febrúar. • Suða á áli og ryðfríu stáli. Hefst 8. febrúar. • Kælitækni. Hefst 22. febrúar. Upplýsingarog skráning í símum 687000 og 687440. IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS 200 ára afmælið: Ýmislegt um að vera á afmælisárinu ■ Eins og kunnugt er hefur verið ákveðið að minnast þess með vegleg- um hætti að tvö hundruð ár eru nú liðin frá því að Reykjavík hlaut kaupstaðarréttindi. Skipuð hefur verið nefnd á vegum borgarráðs til að hafa með höndum yfirstjórn afmælishaldsins en nefnd- in kom fyrst saman fyrir rúmu ári: Að sjálfsögðu verður mest um að vera í kringum sjálfan afmælisdaginn þann 18. ágúst en í rauninni verður haldið upp á afmælið allt árið með einumogöðrum hætti. Ætlunin er að leggja á það sérstaka áherslu að gert verði átak í að fegra og snyrta Reykjavík og að sem flestireinstakl- ingar og fyrirtæki taki þátt í því. Á afmælisdaginn 18. ágúst verður forseta íslands boðið í opinbera heimsókn til Reykjavíkur og eftir hádegi þann dag er ætlunin að halda fjölskylduhátíð í Hljómskálagarðin- um með fjölbreyttri dagskrá. Að lokinni fjölskylduhátíðinni er fyrirhugað að bjóða upp á veitingar í miðbænum svo eitthvað sé nefnt. Um kvöldið verður svo hátíðardag- skrá á Arnarhóli sem lýkur með mikilli flugeldasýningu. Ýmsar sýningar verða haldnar á afmælisárinu og má þar nefna sýn- ingu að Kjarvalsstöðum í lok ágúst- mánaðar þar sem reynt verður að bregða upp mynd af þróun Reykja- víkur í máli og myndum. Tæknisýning er fyrirhuguð um sama leyti í nýja Borgarleikhúsinu en ýmsar borgarstofnanir auk Landsvirkjunar standa að henni. Einnig verður opnuð sýning í Ár- bæjarsafni nú í vor þar sem brugðið verður upp myndum og munir sýndir sem tengjast sögu höfuðstaðarins. Síðast en ekki síst er Listahátíð í Reykjavík fyrstu tvær vikurnar í júní þar sem meðal annars verður tekið mið af tvöhundruð ára afmælinu. Enn er margt óupptalið svo sem landsmót skáta í Viðey um mánaða- mót júlí og ágúst, Reykjavíkurskák- mót í febrúarmánuði og ýmis íþróttamót sem haldin verða í borg- inni sem sérstaklega verður vandað til. PRESTVIGSLA Haraldur Kristjánsson vígöur af biskupi íslands ■ Á sunnudaginn verður Haraldur Kristjánsson cand theol vígður af biskupi fslands herra Pétri Sigur- geirssyni en Haraldur hefur verið ráðinn aðstoðarprestur í Víðistaða- sókn og Garðasókn í Kjalarnes- prófastsdæmi. Prestvígslan fer fram í Dómkirkj- unni í Reykjavík og mun sr. Bragi Friðriksson prófastur lýsa vígslunni en vígsluvottar verða þeir sr. Sigurð- ur Helgi Guðmundsson, sr. Gunn- þór Ingason, sr. Sigurður Sigurðsson og sr. Lárus P. Guömundsson. Haraldur cr 28 ára gamall Selfyss- ingur og lauk hann kandidatsprófi frá Guðfræðideild Háskólans síðastliðið haust. Hann mun verða í hálfu starfi hjá hvorum söfnuðinum fyrir sig og vinna að ýmsum þáttum safnaðar- starfsins í samvinnu við prestana sem fyrir eru, þá sr. Braga Friðriksson og sr. Helga Guðmundsson. Neskaupstaður: Nýr verkmenntaskóli ■ Um 20 sveitarfélög á Austur- landi hafa sameinast um rekstur verkmenntaskóla í Neskaupstað og tekur hann við af framhaldsdeild þeirri sem starfað hcfur þar síðan 1981. Menntamálaráðherra undirritaði samning um skólann rétt fyrir ára- mótin og mun hann taka til starfa innan skamms. Við skólann munu um 140 nemendur verða við nám, en grunndeildir verkmenntaskólans eru rafiðnaðarbraut, málmiðnaðarbraut og tréiðnaðarbraut. Auk þessverður boðið upp á almennt bóknámssvið, heilsugæslusvið. uppeldissvið og við- skiptasvið. Undirbúningur þessa skóla hefur staðið í tvö ár og á aðalfundi sveitar- félaganna sl. haust varsamþykkt ein- róma að skora á sveitarfélögin að ganga til liðs við verkmenntaskólann og þá var skipuð bráðabirgða skóla- nefnd, sem skipuð er 11 mönnum, einum frá hverju þjónustusvæði fyrir sig, en þau eru átta talsins á Aust- fjörðum og þrír menn eru frá Nes- kaupstað. Nefndin kaus síðan þriggja manna skólaráð sem fer með umboð henn- ar á milli funda og stjórnar hún skólanum ásamt skólameistara, Smára Geirssyni. Að sög Þorvaldar Geirssonar for- manns skólanefndar verkmennta- skólans í Neskaupstað er stefnt að því að fá öll sveitarfélög á Austfjörð- um til þátttöku í rekstri skólans og hann bjóst við að um 70% Austfirð- inga verði aðilar í janúarlok. Hann sagði að stofnun verkmenntaskólans í Neskaupstað sé eitt af sjálfstæðis- málum Austfirðinga og tók fram að nemendur geta enn sem fyrr stundað nám í þeim framhaldsdeildum sem starfandi eru á Höfn í Hornafirði, Hallormsstað, Eiðum og Egilsstöð- um og komið síðan í verkmennta- skólann í Neskaupstað því námið er samræmt. Þorvaldur sagði að verkmennta- skólinn væri spor í jafnréttisátt, ncmcndur á Austfjörðum geta nú sótt alla grunnframhaldsmenntun heima í héraði. Flugleiðir: Skrifstofan flutt um set í New York ■ Nú er bara eftir að klippa borðann og opna þar með formlega. F.v. Einar Gústafsson sölustjóri, Sigurður Helgason forstjóri, Knut Berg svæðisstjóri Flugleiða vestan hafs, Sigurður Helgason stjórnarformaður og Thor Jörgens- en skrifstofustjóri. ■ Aðalskrifstofur Flugleiða í New York hafa verið fluttar úr Rockefell- er Center á Fifth Avenue að 21 Penn Plaza, rétt hjá Penn Station og Madi- son Square á miðri Manhattan. Söluskrifstofa Flugleiða verður hins vegar áfram á 610 b Fifth Aven- ue í Rockefeller Center. Nýja húsnæðið að Penn Plaza er mjög rúmgott og hentar starfsemi Flugleiða mjög vel. Starfsmenn Flugleiða í New York gerðu sér dagamun þegar nýja hús- næðið var tekið í notkun og var með- fylgjandi mynd tekin við það tæki- færi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.