Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 12

Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 12
12 Tíminn NEYTENDASIÐAN illllllll Fimmtudagur 9. janúar 1986 Hin nýja íslenska húðmjólk frá Sjöfn á Akurcyri. Ný íslensk húð mjólk f rá Sjöf n á Akureyri ■ Frá efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri er nú komin ný húðmjólk (bodylotion) og er hún sennilega fyrst sinnar tegundar hér á landi, því slík mjólk hefur ekki áöur verið framleidd hér á landi. Umbúðir Kópral húömjólkur en svo ncfnist þessi nýja húðmjólk eru hvítar polyethylene-flöskur með einfaldri silkiáprentun og innihalda 250 ml. Hönnun þessarar húðmjólkur hefur tekið á annað ár og ilmurinn var valinn í samráði við erlcnda sérfræðinga í ilmframleiðslu. Kópral húðmjólkin inniheldur m.a. koljagen B5 vítamín og ilm- olíu og í frétt frá Sjöfn segir að þessi nýja húðmjólk hafi svipað sýrustig og húðin, gerir hana þægi- lega viðkomu, viöhaldi rakastigi húðarinnar og næri hana þ.e. örvi cndurnýjun dauöra húðfruma. HUSRÁD SVANFRÍÐAR Blómaráð ■ Margir eru með pottahlífar sem þola ekki vatn. Þá er ágætt ráð að taka kaffipoka sem búið er að nota kaffið úr og klippa um það bil helminginn ofan af honurn. Snúið pokanum við þannig að prentið vís- ár inn og látið pottinn ofan í pókann. “Nú er hægt að vökva án þess að véra hræddur um að skemma p'ottyhlífina. Ef pottarnir eru of stórir í pokana þá er líka hægt að fá kaffi í kílópokum. Nýtið skápaplássið Stundum er á heimilum skápur t.d. gamaldags kústaskápur þar sem plássið efst í skápnum nýtist ■ ekki. Skrúfið nokkra króka upp í skápinn. Á hvern krók er síðan hengd lykkja úr einhverju góðu bandi sem dregið er í gegnum klemrnu. Nú er hægt að hengja allt mögulegt upp í skápinn. Franskbrauð með haframjöli Það er mjög gott að hafa dálítið haframjöl saman við franskbrauð. Þá er það mikið hollara og trefja- magnið eykst um leið. Prófaðu að setja 1 bolla af haframjöli út í deig- ið næst þégar þú bakar fransk- brauð. Rrauðið fær líka skemmti- lega skorpu ef það er penslað með bræddu smjöri og haframjöli stráð yfir áður en það er bakað. Góð eplakaka Setjið lag af eplamauki í form og þar yfir er stráð muldum súkkulaði- marengs. Skreytið með þeyttum rjóma og beriö fram strax. Rasp úr kornf lögum Ef þig vantar rasp og átt ekkert í, húsinu er þægilegt að grípa til korn- flögupakkans. Pað er hægt að mala þær með því að setja þær í plast- poka og merja síðan með köku- kcflinu. Pössum olíulampana fyrir börnunum ■ Ýmis konar olíulampar eru á markaðinum og notkun þeirra til heiniilisnota hefur aukist hin síðari ár. Fjölbreytni þessara lampa er tals- verð en því miður er öryggi þeirra ekki alltaf eins og best verður á kosið. Olían sem notuð er á þessa lantpa er steinolía (Petroleum) og er hún meðhöndluð á ýmsan máta til að vera hæf til heimilisnota, er hún ým- ist lyktarlaus eða með einhverskonar blómailmi (ilmolía) og cr hún oft lit-' uð gul, græn, blá o.s. frv. til að líta bctur út í glærum ílátum. Pað er einmitt þessi fallegi litur sem stundum minnir á svaladrykki og freistar því ungra barna til að súpa á olíunni, en eitranir af völdum lampaolíu eru meðal algengustu og alvarlegustu eitrunarslysa sem henda börn. Á undanförnum árum hefur það gerst æ oftar aö komið hefur verið mcð börn á slysadeild eftir eitrun af völdum lampaolíu. Eitrunarein- kenni þessara barna hafa verið á mis- ■ munandi stigum en flest þeirra hefur þurft að leggja inn á sjúkrahús. Ekk- ert þeirra hefur látist vegna eitrunar- innar en sum þeirra hafa verið í tíma- bundinni lífshættu. Vcgna þessa vill Hollustuvernd ríkisins og læknar á Borgarspítalan- um brýna það fyrir foreldrum að láta olíulampa ekki standa þar sem börn ná til og þessir aðilar vilja leggja sér- staka áhcrslu á er böm verða fyrir því að drekka slíka olíu að láta þau ekki kasta upp vegna þess að við það stór- eykst hættan á því aðolían geti borist ofan í lungu. Þegar slík slys gerast skal flytja börnin tafarlaust á slysadeild eða koma þeim undir læknishendur, jafnvel þó magnið sé lítið. Verum varkár vörumst slysin. frá;nóv. 1984-nóv. 1985 ■ Fyrirtækið Miðlun sem starfarað alþjóðlcgri upplýsingaþjónustu hef- ur gert'vcrðkönnun undanfarið ár. frá noýember 1984 til sama mánaðar 1985, g fimm vöruflokkum og 100 einstcjícgm vörutegundum innan þeirra. .. í þes'sari verðkönnun kemur fram að verðhækkun helstu vöruflokka til heimillsnota er á bilinu 34—46% á tímaþilinu. Hækkanir einstakra vörutegunda cru hinsvegar mun breytilegri eða á bilinu 2-90%. Hækkun framfærsluvísitölu á sama tímabili er hinsvegar 38,9%. Samkvæmt könnun Miðlunar er meðaltalshækkunin þessi: Niðursuðu-og pakkavara 46% Korn- og sykurvara 39% Á kjöti og fiski 35% Aðrar kælivörur * • 34% Könnunin náði til þessara fimm fyrrgreindu vöruflbkka og búa þeir allir við frjálsa álagningu. Verðþróun á vörum háðum verð- lagsákvæðum var ckki könnuð í þessari könnun og er rétt að benda á að í nóvember sl. stóð yfir útsala á kindakjöti en ekki á sama tíma t fyrra. Könnunin var unnin í náinni sant- vinnu við þærverslanirsem þátttöku óska og niðurstaða í einstökum verslunum er trúnaðarmál milli Miðlunar og viðkomandi verslunar. Sameiginleg niðurstaða er send hverjum þátttakanda Itonuni til glöggvunar og samanburðar eigin verðlagningar við meðaltalið. Ein- stakar verslanir geta einnig keypt samanburð á eigin verði og meðal- tölum, þó þær séu ekki beinir þátt- takendur í verðkönnun Miðlunar. Þessi verðkönnun sem og aðrar verðkannanir Miðlunar eru unnar af Markaðsdeild fyrirtækisins, en starf- semi deildarinnar felst í öflun upp- lýsinga og hverskonar úrvinnslu á þeim. FRAMF/ERSlUVÍsiTALA 38,9 % ÝMSAR KÆLIVÖRUR KJÖT OG FISKUR KORN OG SYKURVÖRUR HREINLÆTIS- VÖRUR i II S3j NIOURSUÐU- ÖG PAKKAV. ■ Niðurstöður úr könnun Miðlunar á hinum ýmsu vörunt sem gerð var frá nóvember 1984 til nóv. 1985.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.