Tíminn - 09.01.1986, Qupperneq 15
Fimmtudagur 9. janúar 1986
Tíminn 15
MINNING
Fæddur 9. ágúst 1908
Dáinn 12. nóv. 1985
Laugardaginn 23 nóv. s.l. var til
moldar borinn að Víðimýri Björn
Ólafsson fyrrum bóndi og orgelleik-
ari á Krithóli. Var hann þar lagður
að barmi móður sinnar, móður okk-
ar allra, móður sem dregur okkur til
sín eitt og eitt, hennar sem á okkur
öll með fyllstum og ríkustum rétti.
Hartnær 400 manns fylgdu honum
síðasta spölinn og mun það vera ein
hin fjölmennasta jarðarför hér um
slóðir í áratugi. Segir það nokkuð
um manninn. Fyrri hlutaárs 1984 fór
Björn heitinn að kenna sér meins og
dvaldi hann eftir það að mestu fjarri
heimili sínu og átthögum. Ég leit inn
til hans þann 11. okt. sl. Þá var hann
andlega óbugaður, ótrúlega kátur og
hress. Síst grunaði mig þá, að svo
skammt væri eftir. Pann 11. nóv. var
ég staddur á Sauðárkróki og hugðist
líta inn til vinar míns. Mér var þá
tjáð að hann væri veikur. Ég hvarf
frá, hugsandi. í fyrstu kennslustund
morguninn eftir er ég kvaddur í
símann. Ólafur á Krithóli tilkynnir
mér lát föður síns. Þá er nú floginn
ljúflingurinn.
Björn Ólafsson var fæddur í Álfta-
gerði í Seyluhreppi 9. ágúst árið
1908. Foreldrar hans voru Ólafur Sig-
fússon, Jónassonar frá Hringey í
Vallhólmi og kona hans Arnfríður
Ingibjörg Halldórsdóttir, Einarsson-
ar frá Krossanesi, bróðir Indriða
skálds og séra Gísla í Stafholti.
Björn ólst upp í foreldrahúsum með
góðum og glaðsinna systrum og hef-
ur þá tengst umhverfi sínu þeim
böndum, sem aldrei rofnuðu. Ólafur
í Álftagerði var sönghneigður og
sagt er, að óvíða á einu heimili í
Skagafirði hafi söngurinn verið
meira iðkaður en þar. Ellefu ára
gamall eignaðist Björn sitt fyrsta
hljóðfæri. Nokkru síðar stundar
hann orgelnám hjá Benedikt á Fjalli,
annáluðum söngmanni. Systursonur
Björns, Óskar Pétursson var ein-
söngvari með Karlakór Akureyrar.
en syngur nú einsöng með karlakór
Reykjavíkur. Bræður hans tveir
Gísli og Pétur syngja einsöng og tví-
söng með Karlakórnum Heimi.
Fjórði bróðirinn Sigfús, syngur ein-
söng í blönduðum kór Rökkurkórn-
um. Allir hafa þeir bræður bjarta ten-
órrödd. Faðir þessara bræðra, mág-
ur Björns, Pétur Sigfússon bóndi í
Álftagerði var um árabil einsöngv-
ari með Heimi. Fjölskyldur þessar
eru nánast sem einn syngjandi svana-
hópur.
Árið 1929 verða þáttaskil. Björn
kvænist Helgu Friðriksdóttur frá
Valadal, dugmikilli og ágætri konu.
Þau festu kaup í jörðinni Krithóli,
sem liggur að Álftagerði og hefja þar
búskap, og þar var ekki tjaldað til
einnar nætur, því saga þeirra þar ent-
ist í hálfa öld, uns þau afhentu son-
um sínum jörð og áhöfn.
Björn og Helga höfðu aldrei mikið
umleikis í búskap, enda bóndinn oft
kvaddur til annarra starfa utan heim-
ilis. Hann var skepnuvinur. Fóðraði
búpening sinn vel og hafði góðan arð
af. Þrifamaður hvar sem á var litið.
Sambúð Björns og Helgu var til
fyrirmyndar. Milli þeirra ríkti gagn-
kvæm virðing, tiltrú og kærleikur.
Þau eignuðust fjögur börn. Kjartan
og Ólafur bændur á Krithóli og dæt-
urnar Guðríður og Bára búsettar á
Akureyri.
Björn frændi minn, frændi konu
minnar og barna, var hógvær maður
og óhlutdeilinn um annarra hagi.
Flasfengni og yfirborðsháttur áttu
ekki við skap hans. Viðmót hans var
ævinlega hlýtt. Hann var félagslynd-
ur og fórnfús og ævinlega reiðubúinn
að Ijá því máli lið, sem til góðs mátti
verða. Hann var raunsær og heil-
skyggn á kosti og galla og lét með-
fædda réttlætiskennd ætíð ráða gerð-
um sínum. Allir sem kynntust Birni
mátu drengskap hans og góðgirni.
Persónulega óvildarmenn átti liann
ekki.
Krithóli
Vinum og vandamönnum finnst
umhverfið auðara og snauðara við
brottför hans. Mér er ljóst að vanda-
sanit er að bera lof á menn, svo að
ekki verði oflof. Því skal sagt, að eins
og flestir menn, jafnvel allir, þá hafði
Björn sín mannlegu takmörk. Hitt
vegur þó miklu mest, að hann var frá-
bærlega vinsæll og af öllunt talinn
drengur góður.
Björn var frá 17 ára að aldri og
fram undir lokadægur forsöngvari í
Víðimýrarkirkju. Hann tók við því
starfi af sínum gamla lærimeistara
Benedikt á Fjalli. Hann leiddi einnig
söng um árabil í Goðdala- og Mæli-
fells- og Reykjakirkjum. Síðustu tvo
áratugina æfði hann og stýrði 12-14
manna karlakór, sem hefur það hlut-
verk eitt að syngja yfir moldum lát-
inna manna í héraði. Mér telst svo til
að Björn hafi mætt með þennan kór
sinn í 14 kirkjum héraðsins. Ég veit
fyrir víst, að margir eru þakklátir
Birni fyrir þetta starf hans.
í desembermánuði árið 1927 var
Karlakórinn Heimir stofnaður.
Björn var einn af stofnendum og alla
tíð einn af burðarásum hans. Hann
raddæfði oft við hlið söngstjóra.
Hann var heiðursfélagi kórsins frá
árinu 1977. Hann lét sig aldrei
vanta á æfingar meðan heilsan
leyfði. Björn var gleðimaður á góð-
um stundum. En þó hann væri hrók-
ur alls fagnaðar í veislugleði, var hann
trúaður alvörumaður, hjartahlýr og
hógvær. Hann hlúði að barninu í sál
sinni uns yfir lauk, því barni er gatan
greið og allir vegir færir.
Ég held, að ánægjan af því að taka
þátt í söng aukist að mun, ef menn
tileinka sér þekkingu á sviði tónlist-
ar. Björn átti hvorutveggja, næman
smekk og þekkingu. í huga hans, svo
sem margra annarra, var þó hið fé-
lagslega gildi starfsins annar oge.t.v.
í engu gildisminni þáttur fyrir hvern
einstakling, en söngurinn. Og mér er
til efs, að Björn hafi talið frístundum
sínum betur varið á annan hátt en
þann, að mæta á söngæfingar með
glöðum og söngelskum félögum.
Hans tilfinning var sú, að starf í slík-
um félagsskap er hvorutveggja,
skemmtilegt og þroskandi. Hann var
auðugur af félagslegri óeigingirni og
framsýni. Honum fylgdi gifta í starfi.
Og enn sem fyrr er starf Heimis einn
af burðarásum þess félags- og menn-
ingarlífs, sem okkar byggðarlag þarf
ogmáekkián vera. Úrþeim jarðvegi
hefur sprottið margvísleg menning-
arviðleitni, sem gert hefur mannlífið
bjartara og betra. Björns Ólafssonar
væri best minnst með öflugum og
víðtækum stuðningi sem flestra við
þann félagsskap, sem hann um alla
tíð var og verður tengdur órjúfandi
böndum, Karlakórnum Heimi. Enn
er bjarminn hinn sami yfir brúnum
fjalla, og í árdaga. þegar Björn
Ólafsson ásamt fleiri vormönnum
ýttu Heimi úr vör. Það er okkar allra
að bera kyndilinn, sem hugsjóna-
mennirnir tendruðu fyrir 58 árum.
Fyrir kemur að ég hugsa til vina
minna, þeirra sem horfnir eru. Sagt
er að sálir hinna látnu hverfi út í ei-
lífðina og dvelji þar í samfélagi. Um
það hugsa ég lítt. Hitt skiptir máli
hvort vinir í hinu jarðneska lífi hitt-
ast á ný eftir dauðann. Vænt þætti
mér unr, ef aldrei yrði lengra á milli
okkar Björns heitins Ólafssonar en
verið hefur í þessu lífi.
Ég þakka Birni allar gleðistund-
irnar.
31. deseniber 1985
Konráð Gíslason
Lestunar-
áætlun
Hull:
Dísarfell ..........31/1
Jan ................19/1
Dísarfell ..........27/1
Jan ................. 2/2
Dísarfell ...........10/2
Jan .................16/2
Dísarfell ...........24/2
Rotterdam:
Dísarfell ..........14/1
Dísarfell ..........28/1
Dísarfell ...........11/2
Dísarfell ...........25/2
Antwerpen:
Dísarfell ..........15/1
Dísarfell ..........29/1
Dísarfell ...........12/2
Dísarfell ...........26/2
Hamborg:
Dísarfell ..........17/1
Dísarfell ..........31/1
Dísarfell ...........14/2
Dísarfell ...........28/2
Helsinki:
Hvassafell........... 1/2
Larvik:
Jan ................20/1
Jan ................. 3/2
Jan .................17/2
Gautaborg:
Jan ................21/1
Jan ................. 4/2
Jan .................18/2
Kaupmannahöfn:
Jan ................22/1
Jan ................. 5/2
Jan .................19/2
Svendborg:
Jan ................23/1
Jan ................. 6/2
Jan..................20/2
Aarhus:
Jan ................23/1
Jan ................. 6/2
Jan .................20/2
Gloucester, Mass.:
Jökulfell...........17/1
Jökulfell .7.........20/2
New York:
Jökulfell...........18/1
Jökulfell............21/2
Portsmouth
Jökulfell...........20/1
Jökulfell............22/2
m.
SKIRADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsmu
Póslh 180 121 Reyk)avik
Simi 28200 Telex 2101
MÓÐURMÁLSSKÓLINN
hefur nú starfsemi sína á nýju ári og býöur upp á
námskeið í ýmsum greinum móöurmálsins auk
ýmiss konar þjónustu. Kennt veröur á kvöldin virka
daga og e.h. á laugardögum. Stefnt veröur aö því
aö á hverju námskeiði sóu einungis 5—10 þátt-
takendur en hvert námskeiö sé 20 stundir. Nem-
endur geta sjálfir haft umtalsverö áhrif á fram-
kvæmd námskeiöa.
Námskeiðin eru ætluð öllu áhugafólki um íslenskt
mál og bókmenntir og ekki síður nemendum sem
þurfa aö bæta sig í einhverri tiltekinni grein. Nám-
skeiöin eru einnig hugsuð fyrir ýmiss konar hópa
er tækju sig saman, t.d. innan fyrirtækja, félaga
eöa klúbba. Viö getum kennt slíkum hópum á
vinnustöðum þeirra eöa þar sem þeir hafa aöstööu
fyrir félagsstarf. Viö hefjum kennslu í eftirfarandi
greinum í janúar ef næg þátttaka fæst.
Réttritun. Fariö veröur yfir helstu reglur um
réttritun meö fjölbreyttum æfingum. Einnig fram-
haldsnámskeiö.
Greinar og ritgeröir og samning annare
efnis. Hvernig gerum viö grein fyrir skoöunum
okkar í rituöu máli? Hvernig byggjum viö greinar
og ritgeröir? Fariö veröur yfir helstu einkenni
góöra ritgerða og gerö þeirra æfö.
Málfræöi íslenskrar tungu: upprifjun
og skýringar á „nýju málfræöinni“ og samanburöur
viö heföbundna mál- og setningafræöi.
Skáldskapur, samning Ijóöa og
smásagna. Viö bjóöum þeim sem sjálfir semja
eöa hafa löngun til þess upp á aðstoö og gagnrýni.
íslenskar fornbókmenntir. Fjaiiaö
veröur um sögu bókmennta okkar og vikiö aö
helstu bókmenntagreinum á fyrstu öldum íslands-
sögunnar. Lesin skáldverk sem valin veröa í
samráöi viö nemendur.
Bókmenntir á 20. öld. Fariö veröur yfir
helstu þætti bókmenntasögunnar á okkar öld og
lesin valin skáldverk í samráöi viö nemendur.
Þjónusta. Viö bjóöum upp á margs konar
þjónustu, t.d.:
a) Viö útvegum nemendum aukatíma, einum eöa
fleiri í senn.
b) Viö erum reiöubúnir aö taka aö okkur ýmiss
konar námskeiö sem hópar taka sig saman um.
c) Viö getum séö um aö lesa yfir handrit og próf-
arkir og fylgt bókum og ööru efni gegnum prent-
smiöju.
Þátttökugjald er kr. 3000.- fyrir hvert námskeiö.
Innritun fer fram e. kl. 19 til 18. janúar í síma
41311 (Heimir Pálsson) og 41059 (Þóröur Helga-
son).
Dagvist barna
á einkaheimilum
í janúar og febrúar mánuði verður tekið við umsóknum
um leyfi til að taka börn í dagvist á einkaheimilum. Þeir
sem hafa hug á að sinna þeim störfum vinsamlegast haf-
ið samband sem fyrst, þar sem skortur er á slíkri þjón-
ustu. Upplýsingar gefnar hjá umsjónarfóstrum á Njáls-
götu 9, sími 22360 og 21596.
Húsverðir og
umsjónarmenn
íbúðar- og atvinnuhúsnæðis:
Námskeið um rekstur loftræsti og hitakerfa ætlað hús-
vörðum og umsjónarmönnum húseigna verður haldið
dagana 3., 4. og 6. feb. nk. kl. 13.00 til 18.00.
Upplýsingarog skráning í símum 687440 og 687000.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
IÐNAÐARINS