Tíminn - 09.01.1986, Blaðsíða 19

Tíminn - 09.01.1986, Blaðsíða 19
Tíminn 19 Fimmtudagur 9. janúar 1986 ÚTVARP/SJÓNVARP WtHiWjJIAWÍH. Birna Þórðar í Gestagangi ■ Gestagangur verður hjá Ragn- heiði Davíðsdóttur á Rás 2 í kvöld kl. 21 eins og endranær á fimmtu- dögum og verður gestur hennar í þetta sinn bardagakonan djarfa Birna Þórðardóttir. Birna var og er mikil hugsjóna- kona. Hún lét mikið til sín taka í alls kyns mótmælaaðgerðum hér á árum áður og hefur síður en skipt um skoðun hvað varðar hugðar- efni, þó að hún vinni ekki að þéim á sama hátt og áður. Hún er þekkt að því að halda fast við sín „prinsíp" og hvika hvergi þó að á móti blási. Dæmi um þessa þrautseigju hennar er að ekki er svo auglýst staða fréttamanns við Ríkisútvarpið að Birna sæki ekki um! Birna Þórðardóttir er gift Guð- mundi Ingólfssyni djasspíanista góðum, og í sumar fæddist þeim barn, svo að nú eru þau orðin tvö. ■ Bima Þórðardóttir hefur vafa- laust frá mörgu skemmtilegu að segja. Poppgátan - undanúrslit hefjast ■ Keppni í undanúrslitum í Poppgátunni á Rás 2 hefst í kvöld kl. 23 og það eru þeir Pétur Kristjánsson söngari og Ólafur Jónsson kennari sem þar leiða sam- an hesta sína. Umsjónarmenn eru sem fyrr Jónatan Garðarsson og Gunnlaugur Sigfússon. Til stóð að byrja keppnina í undanúrslitum sl. fimmtudag en horfið frá því, þar sem útlit var fyrir að tæknimenn hefðu þá lagt niður vinnu. En í kvöld og næstu þrjú fimmtudagskvöld fer keppnin fram og lýkur þar með 30. janúar. Utvarpkl. 22.50: Skemmtiefni frá jólum ■ Hátíðadagskrá ríkisfjölmiðl- anna var viðamikil og ekki viðlit fyrir almenning að fylgjast þar með öllum þeim liðum sem hugurinn girntist. Það er þess vegna vel þegið að eiga þess kost í fásinninu að liðnum jólum að sjá og heyra ýmis- legt sem ekki komst fyrir á sínum tíma sökum anna á fleiri sviðum. Þannig verður í útvarpi í kvöld kl. 22.50 endurtekinn þátturinn „Tímans rás“ sem áður var útvarp- að á annan í jólum. Af afgönsku flóttafólki ■ í kvöld kl. 20 verður í útvarpi þáttur um afganskt flóttafólk er nefnist „Þjóð í stríði" í umsjón Gunnlaugs Stefánssonar, starfs- manns Hjálparstofnunar kirkjunn- ar, en hann heimsótti afganskar flóttamannabúðir í NV-Pakistan á landamærunum við Afganistan í. nóvember - desember sl. Á þessu svæði dvelja um tvær og hálf milljón afganskra flótta- manna, sem flúið hafa stríðið heima fyrir. Talið er að þetta séu stærstu flóttamannabúðir heims. Í þættinum f kvöld mun Gunn- laugur lýsa ástandinu í flótta- mannabúðunum, segja frá hjálpar- starfinu sem þar fer fram og fjalla um stríðið í Afganistan og af- leiðingar þess bæði innan Afganist- an og Pakistan. Þá verður einnig fjallað um þá spurningu, hvernig pakístönsk þjóð, sem hefur tuttugu og sex sinnum minni þjóðarfram- leiðslu á hvern íbúa en ísland, get- ur tekið á móti jafn miklum fjölda flóttamanna og raun ber vitni. ■ Gunnlaugur Stefánsson segir frá heimsókn sinni í afganskar flóttamannabúðir í Pakistan Fimmtudagur 9. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15Morgunvaktin. 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Stelpurn- ar gera uppreisn" eftir Fröydis Guldahl Sonja B. Jónsdóttir les þýðingu sína (4). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar, þulurvelurog kynnir. 10.10 Fréttir. 10.05 Málræktarþáttur Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áður sem Helgi J. Halldórs- son flytur. 10.00 Veðurfregnir. 10.25 Lesið úr forustugreinum dagblaö- anna. 10.40 „Ég man þá tíð“ Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.10 Morguntónleikar a. Dorothy Dorow syngur lög eftir Adolphe Adan, Evu Dell’Acqua, Julius Benedictog fleiri. Gun- illa von Bahr og Lucia Negro leika með á flautu og píanó. b. Kontrabassakonsert I D-dúr eftir Johann Baptist Vanhal. Lud- wig Streicher og Kammersveitin í Inns- bruch leika. Erich Urbanner stjórnar. 12.00 Dagsrká. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Umhverfi. Umsjón: Ragnar Jón Gunnarsson. 14.00 Miðdegissagan: „Ævintýramaður, “ - af Jóni Ólafssyni ritstjóra Gíls Guðmundsson tók saman og les (6). 14.30 Á frivaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. (Frá Akureyri) 15.15 Frá Suðurlandi Umsjón: Hilmar Þór Hafsteinsson. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 „Fagurt galaði fulginn sá“ Sigurður Einarsson sér um þáttinn. 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristín Helgadóttir. 17.40 Listagrip Þáttur um listir og menn- ingarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.50 Daglegt mál Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 19.40 Tilkynningar. 20.00 Þjóð í stríði Þáttur af afgönsku flótta- fólki. Umsjón: Gunnlagur Stefánsson. 20.30 Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar is- lands í Háskólabíói - Fyrri hluti. Stjórn- andi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Joseph Ognibene. a. Sinfónía eftir John Speight. b. Hornkonsert nr. 1 í Es-dúr op. 11 eftir Richard Strauss. Kynnir: Jón Múli Árna- son. 21.20 „Gegnum lifið á sjötíuogáttasnún- ingshraða" Þáttur um Ijóð Einars Más Guðmundssonar Símon Jón Jóhanns- son tekursaman. 21.45Tónleikar. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 22.20 Einsöngur í útvarpssal Michael John Clarke syngur íslensk og erlend lög. Soffía Guðmundsdóttir leikur með á píanó. (Frá Akureyri). 22.50 Timans rás Skemmtiþáttur á nokkr- um rásum eftir Einar Georg Einarsson. Umsjón: Þórhallur Sigurðsson. (Endur- tekinn frá öðrum degi jóla). 23.25 Kammertónleikar Roswitha Staege, Raymund Havenith og AnsgarSchneider leika á flautu, píanó og selló. a. Inngangur og tilbrigði eftir Friedrich Kuhiau um stef eftir Carl Maria von Weber. b. Trió í g- moll op. 63 eftir Carl Maria von Weber. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 9. janúar 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Ásgeir Tómasson og Kristján Sigurjóns- son. HLÉ 14.00 Spjall og spil Stjórnandi: Ásta R. Jóhannesdóttir. 16.00-17.00 I gegnum tíðina Stjórnandi: Jón Ólafsson. 17.00-18.00 Einu sinni áður var Vinsæl lög frá rokktímabilinu, 1955-1962. Stjórn- andi: Betram Möller. Þriggja mínútna fréttir sagöar klukkan 11.00, 15.00,16.00 og 17.00. HLÉ 20.00-21.00 Vinsældalisti hlusenda Rás- ar 2 Tíu vinsælustu lögin leikin. Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson. 21.00-22.00 Gestagangur Stjórnandi: Ragnheiður Davíðsdóttir. 22.00-23.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00-24.00 Poppgátan Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnendur: Jónatan Garð- arsson og Gunnlaugur Sigfússon. 17.00-18.30 Ríkisútvarpið á Akureyri - svæðisútvarp. 17.00-18.00 Svæðisútvarp Reykjavíkur og nágrennis (FM 90,1, MHz). Föstudagur 10. janúar 19.10 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. 19.20 Nú getur hann talið kýrnar (Ná bare man kan tælle köerne) Dönsk barnamynd um það hvernig drengur í Bhútan eignast gleraugu. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-, dóttir. (Nordvision - Danska sjónvarpiö) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós 21.10 Skonrokk Umsjónarmaður Pétur Steinn Guðmundsson. 22.10 Derrick Þrettándi þáttur. Þýskur sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi Veturliði Guðnason. 23.10 Seinni fréttir. 23.15 Ást og kvöl (Love and Pain) Bresk bíó mynd frá 1973. Leikstjóri Alan J. Pakula. Aðalhlutverk: Maggie Smith og Timothy Bottoms. Fertug kona og átján ára piltur verða sessunautar í hópferð um Spán. Þrátt fyrir aldursmuninn fella þau hugi saman og faratvöein í ævintýraleit’Þýð- andi Rannveig Tryggvadóttir. 01.10 Dagskrárlok. flokksstarf Skagfirðingar - Hofsósingar Alþingismennirnir Páil Pétursson og Stefán Guömundsson verða til viðtals í Höfðaborg fimmtudaginn 9. janúar kl. 13-15 Skagfirðingar - Sauðárkróksbúar Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til viðtals í Framsóknarhúsinu Sauðárkrók fimmtudaginn 9. janúarkl. 16-18 Skagstrendingar Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til viðtals í Fellsborg föstudaginn 10. janúar kl. 13-15 Austur Húnvetningar - Blönduósingar Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til viðtals í Hótel Blönduósi föstudaginn 10. janúar kl. 16-18 Suðurland Kjördæmissambandið boðar til fundar meö forystumönnum framsóknarfélag- anna á Suðurlandi svo og því fólki sem stendur að og ætlar að vinna að sveitarstjórnarmálefnum laugardaginn 11. janúar n.k. í Framsóknarhúsinu á Selfossi kl. 13.30. Dagskrá: 1. Flokksstarfið 2. Sveitarstjórnarkosningar 3. Önnurmál Gestir fundarins eru alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónsson, Jón Helgason og Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri Stjórnin Ungir framsóknarmenn Hafnarfirði Aðalfundur félags FUF Hafnarfirði verður haldinn laugardaginn 11. janúar kl. 17.00 að Hverfisgötu 25. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Selfoss Jón Helgason ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður verða til við- tals og ræða þjóðmálin í Inghóli þriðjudaginn 14. janúar kl. 20.30. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss Konur Ólafsvík Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið fyrir konur á öllum aldri í Mettubúð Ólafsvík dagana 10., 11. og 12. janúar. Námskeiðið hefst kl. 20 þann 10. janúar. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Þátttaka tilkynnist í síma 93-6306 eða 93-6234. LFK Þorlákshöfn og nágrenni Jón Helgason, ráðherra og Þórarinn Sigurjónsson, alþingismaður verða til viðtalsog ræðaþjóðmálin í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn 13. janúarkl. 20:30. Allir velkomnir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.