Tíminn - 09.01.1986, Side 20
Víkingar Islandsmeistarar Víkingar svo gott sem
tryggöu ser fslandsmeistaratign í handknattleik í gærkvöldi. Liðiðsigraði þá
hitt toppliðið Val á sannfærandi hátt í Laugardalshöll og þarf nú „aðeins" að
vinna sigur á KR-ingum til að kasta upp íslandsbikarnum.
FH-ingar gerðu draum Stjörnunnar að alls engu með góðum sigri í Digra-
nesi 31 -29. Þar var fjörugur leikur með rauðu spjaldi og tilheyrandi.
Tíminn
Fimmtudagur 9. janúar 1986
Hlutur stóriðju
lækkar úr 19% í
14% milli ára
- sem hlutfall af heildarútflutningi
■ Útflutningur stóriðju-
fyrirtækjanna tveggja scm
hlutfall af heildarútflutn-
ingi landsmanna mánuð-
ina jan.-nóvember lækk-
aði úr I9% árið 1984 niður
í um 14% á sama tínia
1985. Útflutningur þeirra
1985 umfram innflutning
var rúmum þúsund mill-
jónum minni en árið áður,
reiknað á sama gengi bæði
árin.
Álútflutningur á |iessu
II mánaða tímabili 1985
nam 3.022 milljónum
króna, sem er nær sama
upphæð í krónutölu og
1984, en um 874 mill-
jón krónum minni sé tekið
tillit til 29,1% hækkunar
meðalgengis milli ára.
Innflutningur til ÍSAL
1985 nam hins vegar 1.827
milljónum, sem cr nær
sama tala og árið áður
miðað við sama gengi bæði
árin.
Útflutningur kísiljárns á
þessu tímbili 1985 var
1.152 milljónir sem er 43
milljónum minna cn á
sama tíma 1984 miðað viö
sama gengi bæði árin. Inn-
llutningurinn var hins veg-
ar um 402 millj., sem var
123 milljóna króna aukn-
ing milli ára.
HEI
Flugumferðarstjóramálið:
Persónulegt stríð?
■ Deilur magnast nú enn
rhiHi flugumferðarstjóra á
Reykjavíkurflugvelli og flug-
málastjórnar. Kári Guðbjörns-
son talsmaður flugumferðar-
stjóra scgir að nú sé svo komið
að margir flugumferðarstjórar
íhugi að segja upp störfum því
meira álag sé á þeim frá hendi
flugmálastjóra en vinnunnar
sjálfrar og að formanni Félags
flugumferðarstjóra hafi í gær
verið afhcnt bréf sem túlka
megi sem hótun flugmálastjóra
um brottvísun úrstarfi verði úr
varnaraðgerðum þeim sem
flugumferðarstjórar hafa
boðað.
En um hvað snýst deilan,
hvað hafa flugumferðarstjórar
á móti nýja skipuritinu? Pétur
Einarsson flugmálastjóri sagði
í samtali viö Tímann að sér
væri það hulin ráðgáta. Sam-
gönguráðuneytið hefði á sínum
tíma margsinnis beðið þá um
að koma með skriflegar
athugasemdir við nýja skipurit-
ið en athugasemdir frá flug-
umferðarstjórum hefðu ekki
borist fyrr en í desember og
aðeins um 3 atriði. Ráðuneytiö
hafi þá komið með lausnir í
málinu en það hafi ekki dugað
til.
Spuröur um hvort ágreining-
urinn stæði þá um ráðningu
nýju vaktstjóranna skv. skipu-
ritinu sagði Pétur: „Það var
samkomulag milli mín og
stjórnar Félags flugumferðar-
stjóra að auglýsa stöðurnar
innan stéttarinnar og þær voru
auglýstar síðastliðið vor. Ein-
ungis 2 menn sóttu um og þeir
voru ráðnir. 2 gömlu varðstjór-
anna sitja áfram en hinir 2
ásamt yfirflugumferðarstjóra
settir í önnur verkefnasvið þar
sem um kappnóga og mjög
þarfa vinnu er að ræða, s.s. að
semja starfsreglur ýmiskonar.
útbúnað korta o.fl.“ Pétur
sagði að það væri langt í frá að
þessum mönnum hefði verið
ýtt út í horn, því þeir héldu full-
um launum og starfstitlum.
Formaður félagsins hafi heldur
ekki fengið neina hótun um
brottvísun í gær vegna varnar-
aðgerðanna, hann hafi fengið
bréf um að enn væri verið að at-
huga aðgerðir í samræmi við
lög um réttindi og skyldur
starfsmanna og enn ætti eftir
að leysa deilur fluginálastjórn-
ar og félagsins um kennslumál
nema í flugumferðarstjórn.
„Flugumferðarþjónusta er
mjög krefjandi starf og öll
spenna í kringum þjónustuna
afar óæskileg og þess vegna
óskiljanlegt af hverju Félag
flugumferðarstjóra hættir ckki
þessum deilum," sagði flug-
málastjóri að lokum.
Kári Guðbjörnsson sagði að
flugmálastjóri hefði á sínum
tíma kallað nokkra flug-
umferðarstjóra inn til sín og
boðið þeim vaktstjórastöðu
skv. nýja skipuritinu. Petta
hefði kvisast út meðal flug-
umferðarstjóra og þeir krafist
þess í apríl á síðasta ári að
stöðurnar yrðu auglýstar lausar
til umsóknar. Pétur hefði þá
hengt snepil upp í flugstjórnar-
miðstöðinni en ekki auglýst
þær í Lögbirtingablaðinu eins
og lög mæltu fyrir um. Félagið
hefði þá hvatt mcnn sína til að
sækja ekki um stöðurnar en
þessir tveir sem Pétur hefði
boðið stöðurnar á sínum tíma
sótt um í trássi við samþykkt
félagsmanna sinna. Varðstjór-
arnir tveir og yfirflugumferðar-
stjóri hefðu gegn vilja sínum
verið færðir til, hér væri líka
einungis um 2ja ára verkefni að
ræða og óvíst hvað tæki við hjá
þessum mönnum að þeim tíma
loknum. Mírún
m Norski loðnubáturinn Artus í togi á leið til Seyðisljarðar. Ef myndin prentast vel má greina dráttartaugina við stefni bátsins.
Tíma-myndir: Pröslur
Varðskipiö Týr aðstoðaði
norskan loðnubát sem:
Fékk nótina
í skrúf una
■ Norski loðnubáturinn
Artus sendi frá sér beiðni um
hjálp klukkan 8.30 í gærmorg-
un. Báturinn var þá staddurum
áttatíu sjómílur austur af Dala-
tanga. Eftir að ólag kom á
bátinn flæktist nótin í skrúf-
unni. Varðskipið Týr var kom-
ið á staðinn tveim tímum eftir
að beiðnin barst. Kafarar
Landhelgisgæslunnar um borð
í Tý ætluðu að freista þess að
kafa niður að skrúfunni og
skeranótina lausa.Bræla var á
staðnum, og því ákveðið að
draga Artus inn í mynni Seyðis-
fjarðar, þar sem sjór varlygn-
ari.
Samkvæmt upplýsingum
sem Tíminn fékk hjá Land-
helgisgæslunni var búist við því
í gærkvöldi að skipin yrðu
komin inn á Seyðisfjörð um
klukkan 21. Pá átti að kanna
aðstæður, og um leið hvort
hægt væri að losa nótina.
Artus er svo til fullhlaðinn
með um sex hundruð tonn.
Áhöfn Artusar er í kringum tíu
manns.
ES
LfN:
Enn er mótmælt
Hagsmunaaðilar láta í
sér heyra
■ Það eru ekki bara
SÍNE-félagar sem mót-
mæla reglugerð mennta-
málaráðherra frá 3. jan. sl.
þar sem kvcðið er í raun á
um 30-35% skerðingu
námslána á þessu ári, Iðn-
nemasamband ísland hefur
líka sent frá sér mótmæli
gegn skerðingunni og telur
brottvikningu Sigurjóns
Valdimarssonar ótvírætt
bera keim af pólitískum of-
sóknum ráðherra í garð
sjóðsins, stjórn Bandalags
íslenskra sérskólanema
tekur og í sama streng og
lýsir fullum stuöningi við
starfsfólk Lánasjóðsins.
Fulltrúar fjármálaráðu-
neytisins í stjórn sjóðsins
hafa og sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem þeir segja að
það sé ótvírætt að það sé
stjórn sjóðsins en ekki
framkvæmdastjórinn scm
beri ábyrgð á fjárhagsáætl-
unum LÍN og setja mikla
fyrirvara vegna þáttar meiri-
hluta stjórnarinnar og
munu taka þá hlið málsins
upp á viðeigandi vettvangi.
Mrún
Meirihlutasamstarfið í
Stúdentaráði að bresta
■ Verulegir brestir eru
komnir í meirihlutasamstarf
Vöku og Umbótasinna í Stúd-
entaráði Háskólaíslandsvegna
afskipta Sverris Hermannsson-
ar menntamálaráðherra af mál-
efnum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Ritstjóri Stúd-
entablaðsins hefur sagt starfi
sínu lausu vegna óánægju með
viðbrögð ráðsins við reglugerð-
arbreytingu ráðherra og gera
má ráð fyrir að samstarfslok
fylgi í kjölfarið.
í bréfi sem sent var stjórn
SHÍ í fyrradag lýsir Ágúst
Hjörtur Ingþórsson því yfir að
hann hafi ákveðið að láta af
starfi sínu sem ritstjóri Stúd-
entablaðsins. Þar segir enn-
fremur: „Á meðan núverandi
menntamálaráðherra undirbýr
næstu atlögu að Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna, hafandi
fyrrverandi Vökumenn sem
helstu ráðgjafa, sitja talsmenn
meirihlutans hinir rólegustu og
bíða þess sem koma skal. Sam-
starfi við slíkt fólk uni ég illa
og vil ekki verja aðgerðir né að-
gerðaleysi þess.“
Hrólfur Ölvisson er formað-
ur félags Umbótasinna. í sam-
tali við Tímann sagði hann að
Umbótasinnar muni hittast
fljótlega til að taka afstöðu til
framhalds á samstarfinu í Stúd-
entaráði. Það er fyrst og fremst
tvennt varðandi lánamálin sem
þeir geta ekki sætt sig við. í
fyrsta lagi að Stúdentaráð hef-
ur alls ekki brugðist við þeirri
ráðstöfun gagnvart lánasjóðn-
um sem felst í breytingu
menntamálaráðherra á reglu-
gerð um útreikning á námslán-
um með tilliti til framfærslu. í
öðru lagi að fulltrúi stúdenta
skuli hafa tekið þátt í að semja
við fjármálaráðherra um að ný-
legt 50 milljóna króna framlag
til lánasjóðsins skuli hafa feng-
ist gegn því að upphæðin yrði
síðan dregin af framlaginu á ár-
inu 1986. Þetta hafi valdið því
að Umbótasinnar beri ekki
lengur traust til nefnds fulltrúa,
þar sem að hann hafi ekki
kynnt réttum aðilum málið
áður en ákvörðun var tekin.
S.S.