Tíminn - 28.01.1986, Blaðsíða 5
ÚTLÖND
UTLOND
Umsjón: Ragnar
Baldursson
FRANSKT
KAMPA-
VÍNSMET
París-Reuter
Frakkar slógu öll framleiðslumet á
kampavfni á seinasta ári. Þeir fram-
leiddu hvorki meira né minna en
195,42 milljón flöskur að sögn sam-
taka kampavínsframleiðenda.
Þetta er tveggja prósenta aukning
frá því árið 1984 þegar þeir fram-
leiddu 188,04 milljón flöskursem var
einnig met.
Frakkar settu líka met í útflutningi
kampavíns. Samtals flutu 72,79
milljón kampavínsflöskur út úr
Frakklandi sem er 16% aukning frá
fyrra ári. Bretarog Bandaríkjamenn
fengu bróðurpartinn af útflutningn-
um, Bretarskoluðu úr 15,35 milljón-
um flaskna en Bandaríkjamenn úr
14,35 milljónum.
Svíar tölvuskrá alla eyðnibera
Stokkhólmur-Reuter
Sænsk stjórnvöld hafa í hyggju að
tölvuskrá alla þá, sem talið er að séu
smitberar eyðniveiki (AIDS .
ónæmistæringar), til þess að hægt
vcrði að fylgjast með útbrciðslu
þessa hættulega sjúkdóms.
Lars-Olof Kallings, forstjóri
Veirurannsóknarstöðvar sænska
ríkisins segir tölvuskráningu eyðni-
bera nauðsynlcga þar sem hætta sé á
að þeir veikist og smiti aðra. Þaö
verði að fylgjast með því hverjir
smitberarnir séu, hvaðan þeir komi
og hvað margir þeirra veikist af
eyðni.
Nú þegar hafa um níu hundruö
menn með mótefni gegn eyðni fund-
ist í Svíþjóð en allir þeir, sem hafa
mótefni, eru taldirsmitberar. Flcstir
sænsku smitbcranna eru citurlyfja-
sjúklingar, vændiskonur eða
hommar. Nær þrjátíu hafa veikst og
mcira en einn tugur hefur látist.
Veirurannsóknarstöðin, sem hcf-
ur yfirumsjón með eyðnirannsókn-
um Svía, bíöur nú aðeins cftir lcyfi
frá tölvueftirlitsnefnd Svíþjóðar scnt
veröur að samþykkja alla tölvu-
vinnslu á persónulcgum upplýsing-
um um hópa fólks. Samtök sænskra
homma hafa mótmælt tölvuskráning-
unni sem þau scgja brjóta gcgn cin-
staklingsfrclsi einstaklinga sem óvíst
cr að séu smitbcrar.
>'r.
Tíminn 5
Frönsku njósnararnir,
Marfart og Dominique,
sem tóku þátt í að
sökkva grænfriöunga-
skipinu Rainbow
Warrior, hafa ákveðið
að nota tækifærið og
ganga menntaveginn á
meðan þau dúsa í fang-
elsinu.
Damascus-Reuler
Hamid Jalloud, aðalritari Al-
þjóðasambands arabískra
verkamanna, sem um 40 milljón
verkamenn eiga aðild að, segir að
félagar í sambandinu muni bregð-
ast hart við öllum „árásaraðgerð-
um“ Bandaríkjanna eða ísraels
gegn Líbýu eða Sýrlandi.
Jalloud sagði á blaðamanna-
fundi í gær að aðildarfélög sam-
bandsins myndu grípa til aðgerða
án tillits til þess hvernig stjórn-
völd í arabaríkjum brygðust við
bandarískum eða ísraelskum
árásum. Hann nefndi bann við
flutningi á bandarískum vörum
með skipum og flugvélum sem
dæmi um hugsanlegar aðgerðir
auk þess sem verkamenn myndu
sniðganga bandarískan varning.
Þriöjudagur 28. janúar 1986
verkamenn
styðja
Gaddafi
Nýja Sjáland:
Franskir hryðjuverka-
menn í háskóía
Wcllinglon-Reuler:
Frönsku njósnararnir tveir, sem
fyrir nokkru voru dæmdir í tíu ára
fangelsi á Nýja Sjálandi fyrir hryðju-
verk gegn grænfriðungum, hafa sótt
um inngöngu í nýsjálenskan há-
skóla.
Geoffrey Palmer dómsmálaráð-
herra Nýsjálendinga, hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti umsókn njósnar-
anna, Alains Marfarts og Dominiq-
ues Prieurs, um að fá að stunda nám
við Masseyháskóla sem utanskóla-
nemendur.
Utanskólanemendur stunda nám
aðallega bréflega og geta fangelsis-
limir þannig lokið háskólanámí á
meðan þeir afplána dóma sína. Sem
stendur taka um 25 fangar á Nýja
Sjálandi bréflega þátt í háskólanámi.
Marfart og Prieur tóku þátt í
sprengjuárás franskra njósnara á
grænfriðungaskipið, Rainbow Warr-
ior, í júlí á seinasta ári. Einn áhafn-
armeðlimur drukknaði þegar skipið
sökk í höfninni við Auckland.
Frönsk stjórnvöld hafa beðið Ný-
sjálendinga um að leyfa Marfart og
Prieur að koma til Frakklands en
umsókn þeirra urn inngöngu í nýsjá-
lenskan háskóla bendir til þess að
þau búi sig undir langa fangelsisvist.
Gaddafi með öðruni arabaleiðtogum. Carter segir að þvingunaraðgerðir
Reagans hafi rofið einangrun Gaddafis í arabaheiminum og gert hann að hetju
í augum araba.
Jimmy Carter:
Reagan breytti
Gaddafi í hetju
London-Reuter
Jimmy Carter fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna segir að tilraunir
Reagans Bandaríkjaforseta að
undanförnu til að einangra Muamm-
ar Gaddafi Líbýuleiðtoga hafi aðeins
upphafið Gaddafi og valdið óeiningu
á milli Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra.
Carter sagði þetta á blaðamanna-
fundi sem hann hélt í London í gær.
Hann gagnrýndi Reagan harkalega
Arabískir
fyrir að hafa ekki tekið frumkvæði í
afvopnunarviðræðum stórveldanna,
í friðarumleitunum í Miðausturlönd-
um og fyrir að beita sér ekki fyrir af-
námi kynþáttamisréttis í Suður-
Afríku.
Carter sagði engan vafa leika á að
Gaddafi stæði á bak við alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi en það væru til
réttar aðferðir til að fást við hryðju-
verk og það væru til rangar aðferðir.
Það hefði verið rangt af Bandaríkja-
mönnum að grípa til aðgerða sem
„kostuðu okkur hér um bil ekkert.
og krefjast þess af bandamönnum
okkar að grípa til aðgerða sem hefðu
kostað þá mikið".
Carter sagði að Gaddafi hefði að
mestu verið útskúfaður af öðrum
arabaþjóðum en þungur málþófs-
þrýstingur og hernaöarþrýstingur
Bandaríkjamanna á hann „hefðu í
einu vetfangi gert hann að hetju".
Það hefði verið rangt að beita þving-
unaraðgerðum sem hefðu veitt
Gaddafi upphefð og rekið fleig á
milli Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra.
Gleymum þeim ekki
Munið eftir
Kópavogsheimilinu.
Tékkareikningur 979 í
Landsbanka Islands
Breiðholtsútibúi.
Móttaka í öllum
bönkum og spari-
sjóðum landsins.
Takmarjdð er:
Fullkomið bruna-
varnakerfi í
Kópavogshæli.
Kiwanishreyfingin
Jt