Tíminn - 30.01.1986, Blaðsíða 16
(TÖLSKU KNATTSPYRNUHETJURNAR Paolo Rossi
og Bruno Conti hafa veriö valdir í ítalska landsliðið sem mætir V-Þjóðverjum í vin-
áttuleik í næstu viku.
Báðir þessir leikmenn hafa ekki verið í landsliöshóp Itala síðustu mánuðina.
Rossi og Conti slógu í gegn í heimsmeistarakeppninni á Spáni árið 1982 og
greinilegt er að sá gamli refur Enzo Bearzot, þjálfari landsliðsins, ætlar að treysta á
vana menn til að verja heimsmeistaratign ítala í keppninni í Mexíkó næsta sumar.
ítalarhafa leikið 26 landsleiki síðan þeir urðu heimsmeistarar, níu hafa unnist og
jafnmargir tapast en átta leikir hafa endað með jafntefli.
Lesa má um fleiri íþróttaviðburði á bls. 9 í dag.
Fimmtudagur 30. janúar 1986
Kennarar:
1 smnhrauttii f o InfnrAiiivi^
MLcmgpreyiin r d loiuroum
- vilja samnings- og verkfallsrétt
Fundur Kennarasanrbands
fslands á Hótel Sögu skoraði á
stjórnvöld að veita kennurum í
KÍ nú þegar sjálfstæðan samn-
ings- og verkfallsrétt og að leið-
rétta nú þegar þann launa-
mismun sem er milli kennara í
HÍK og KÍ. Þá lögðu kennarar
áherslu á að stjórnvöld stæðu
við loforð sín um lögverndun
starfsheitis og starfsréttindi
kennara og lýstu stjórnvöld
ábyrg fyrir þeim alvarlega
kennaraskorti sem nú er í land-
inu, sem stafaraf slæmum kjör-
um kennara og hefur þegar
kontið verulcga niður á starfi
margra skóla.
Bréf barst frá Þorsteini Páls-
syni fjármálaráðherra um að
hann væri tilbúinn til þess að
veita kennurum í KÍ samnings-
rétt scm væri þannig að kennar-
ar í KÍ gengju undir lög unt
kjarasamninga fyrir opinbera
starfsmenn nr. 46/1973 en und-
ir þau heyrir BHM og fleiri að-
ilar. Með þessum lögum cr
samningsréttur einungis
tryggður en ekki verkfallsrétt-
ur og ef ekki semst cr málum
vísað til Kjaradóms.
Valgeir Gestsson formaður
Kennarasantbandsins sagði að
slíkan samningsrétt ætluðu
kennarar í KÍ sér ekki heldur
fullan samnings- og verkfalls-
rétt. Valgeir sagði aö kennarar
væru orðnir langþreyttir á lof-
oröum stjórnvalda, sent ekki
hefði verið staðið við og sagði
að nú vildu kennarar aðgerðir
og efndir loforðanna. Undir
þau orð tóku Sigrún Árnadóttir
formaður Kennarafélags
Reykjavíkur og Kári Arnórs-
son skólastjóri Fossvogsskóla,
en þau sögðu jafnframt að að-
gerða væri að vænta af hálfu
kennara ef stjórnvöld kæmu
ekkert til móts við kröfur
þeirra og skoruðu þau á félaga
sína að standa saman um að ná
fullum samningsrétti, launa-
jöfnuði milli kennarafélaganna
og að ná fram lögverndun á
starfsheitinu.
Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra sagði að
ekki yrði hægt að lögvernda
starfsheiti kennara fyrr en
kennarafélögin sameinuðust
og sagðist hafa fullan hug á að
koma samningsréttinum í höfn
því „það er frumskilyrði og
mannréttindi að fá að semja
um sölu á vinnu sinni". Sverrir
sagði að vilji væri fyrir því í
menntamálaráðuneytinu að
leiðrétta kjör kennara og sagð-
ist skilja að „nú duga engin orð
heldur athafnir", en bætti því
jafnframt við að hann væri ekki
einn við stjórnvölinn.
Mikið fjölmenni var á fund-
inum og bárust fundinum bar-
áttu- og stuðningskveðjur frá
kennarafélögum um allt land
og lögðu flest áherslu á samn-
ingsréttinn, launajöfnuð og
lögverndun starfsheitisins, svo
og á bætt kjör kennara. AH
Valgeir Gestsson formaður K.í. „Við viljum launajöfnun milli kennarafélaganna tafarlaust og fullan samnings- og verkfallsrétt.“ Myndin er tekin á fjölmennum fundi
Kennarasambands fslands á Hötel Sögu í gær. Tímamynd: Sverrír.
HeildarsalaÁTVR:
Fimmtíu þúsund króna
vín og tóbaksreikningur
- fyrir hvert heimili á landinu á síðasta ári
fslendingar borguðu á síð-
asta ári um 1.200 milljónum
króna hærri upphæð fyrir
áfengi og tóbak frá ÁTVR
heldur en ríkissjóði tókst að
innheimta af þeim í tekju- og
eignaskatt. Nærri lætur að inn-
heimtir tekju- og eignaskattar
til ríkissjóðs hafi numið sem
svarar um 37 þús. krónum á
hvert heimili í landinu, en sala
áfengis og tóbaks um 52 þús.
krónum á heimili.
Heildarsala ÁTVR - 3.726
milljónir króna - fór á síðasta
ári í fyrsta skipti langt fram úr
innheimtu ríkissjóðs á tekju-
og eignasköttum - 3.065 millj.
króna - og er þá miðað við
skatta á bæði einstaklinga og
félög. Umrædd skattheimta
hafði þá aukist um 13% frá
1984 en sala ÁTVR um 43,4%
eða um 11% meira heldur en
kauptaxtar hækkuðu á sama
tíma, að mati Þjóðhagsstofn-
unar.
Þessi 3.726 milljón krónu
sala ÁTVR skiptist þannig að
2.126 milljónir komu í kassann
fyrir áfengi en 1.600 milljónir
fyrir tóbak. Að viðbættri
smásöluálagningu á tóbaki og
álagningu vínveitingahúsa á
þann hluta áfengisins sem þar
er seldur lætur nærri að lands-
menn hafi varið um 4.265 mill-
jónum króna til kaupa á þess-
um tveim vöruflokkum ÁTVR
árið 1985.
Mannafli á íslenskum vinnu-
markaði er talinn um 119 þús.
manns. Hver þeirra hefur því
varið tæplega 36 þús. krónum
af launununt sínum að meðal-
tali til kaupa þessara nauð-
synjavara.
Til frekari samanburðar má
geta þess að árið 1984 var
ÁTVR áttunda stærsta fyrir-
tæki á íslandi miðað við sína
2.598 milljóna króna veltu það
ár og hafði þá hoppað úr 11.
sæti árið áður. Næst í röðinni
kom SÍF um 18 rnillj. króna
neðar. Með öðrum orðum, að
þó nokkuð vantaði á að sölu-
verðmæti alls saltfisks sem
framleiddur er á íslandi dygði
til að standa undir áfengis- og
tóbakskaupum landsmanna
þetta ár, sem áætla má um
2.960 milljónir króna að við-
bættri álagningu í búðum og
börum.
- HEI
MALSHOFÐUN
í ATHUGUN
Frá frcttaritara Tímans í London,
D.Keys.
Málshöfðun er nú í undir-
búningi vegna gjaldþrots
bresku ferðaskrifstofunnar
Sonic World, en hún skuldar
sem kunnugt er íslenskum að-
ilum stórfé. Nigel Lander,
fyrrverandi framkvæmda-
stjóri skrifstofunnar sagði í
samtali við Tímann í gær, að
hann væri að kanna grundvöll
málshöfðunar á hendur þeim
aðilum sem með gerðum sín-
um hefðu valdið því að fyrir-
tækið fór á hausinn. „Við
erum í augnablikinu að ráð-
færa okkur við lögfræðinga
vegna þessa máls," sagði
Lander. „Við viljum reyna að
hreinsa bæði nöfn Sonic
World og okkar sem einstakl-
inga. Vonandi verður þetta til
þess að við komumst í að-
stöðu til að greiða skuldu-
nautum okkar á íslandi
a.m.k. einhvern hluta þess
sem við skuldum þeim.“ sagði
Lander enn fremur. Lander
vildi að svo komnu máli ekki
segja nánar frá því um hvað
hugsanleg ntálshöfðun
snérist.
Hins vegar er skiptaráð-
andi Sonic World einnig að
kanna forsendur fyrir lögsókn
vegna þessa máls. Philip Ev-
ans hjá endurskoðunar-
fyrirtækinu I.P.Evans & Co í
London og talsmaður skipta-
ráðanda staðfesti í gær að um
hugsanlega málshöfðun væri
að ræða. Rannsókn skipta-
ráðenda beinist nú meðal
annars að því hvort um brot á
breskum hegningarlögum sé
að ræða. Samkvæmt upplýs-
ingum Tímans mun skipta-
ráðandi taka ákvörðun um
hvort af lögsókn verður eða
ekki innan fjögurra vikna.