Tíminn - 15.02.1986, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.02.1986, Blaðsíða 6
vil ég segja ■ ■ ■ Kæri Barna-Tími! Ég þakka gott blað en samt vil ég koma með nokkrar ábendingar. Ég á fimm ára bróður og kann hann flesta stafina (ekki alla). Hann skoðar Barna-Tímann allt- af og við lesum blaðið alltaf fyrir hann. Bróðir minn get- ur ekRi svarað nema litjum hluta í „Veistu svarið?" og sér yfirleitt ekki öll atriðin í „Er athyglin í lagi?“. Hann getur ekki reynt að lesa neitt í blaðinu nema kannski stærstu stafina (fyrirsagnirnar) og finnst mér því að það mættu vera þrautir fyrir þau allra I i í \VV> a*X Y1*'' ]Y hN\ ; \ (/ \-.-A \ \ ( V \ V Litli apinn eralveg orðinn ruglaður. hvaðaspotti erfestur í flug- drekann? Er það band nr. A - B - C - D eða 3? Reyndu að leysa þrautina áður en þú lítur á lausnina sem er aftast í þlaðinu! RGLNOIFU Hvað heita þessir náungar? Stafaröðin í nöfnunum þeirra hefur eitthvað brenglast! (Svör aftast). yngstu, t.d. mætti vera smá kafli, stórt letraður og létt lesefni, léttar myndir í „At- hyglinni" og léttari spurn- ingar. Ég get ekki einu sinni svarað öllum spurningun- um nema leita eftir svari og ég er 15 ára. Ég tek það fram að ég er ekki tossi í skóla þó ég viti ekki svör við spurningunum. Ég veit samt að þetta má ekki vera of létt til að það komi ekki of mörg svör rétt. En það er hægt að hafa léttari spurn- ingar og svoleiðis annars staðar í blaðinu og þær þurfa ekki að vera verð- launaðar. Ég vona að þið takið þetta til greina. Með þökk fyrir að lesa þetta bréf. Unnur Hallgrímsdóttir, Birkihlíð 18, 550 Sauðárkrókur. Kæra Unnur! Bestu þakkir fyrir bréfið og ábendingarnar. Við munum reyna að hafa létt verkefni með í Barna-Tímanum og við viljum benda á að yngri börnin hafa örugglega gagn og gaman af litmynd- inni sem yfirleitt er í blað-1 inu. En við tökum tillögur þínar til greina og vonum að þú skrifir aftur og látir okkur vita hvernig gengur. Bestu kveðjur. Barna-Tíminn. Hvaða kassi er öðruvísi en hinir allir? Er það kassi nr. 1, 2, 3, 4 eða 5? (Svar aftast).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.