Tíminn - 15.02.1986, Síða 8

Tíminn - 15.02.1986, Síða 8
I Barna-Póstur Kæri barna-póstur! Ég vil fyrst og fremst þakka fyrir alveg meiriháttar blað. Þrautirnar eru æðislegar og mér þykir gaman aö glíma við þær. P.S. Mig langar að eignast pennavini á aldrinum 9-11 ára. Ég er 10 ára. Áhugamál mín eru margvísleg. Halla Magnúsdóttir, Vogatungu 28, 200 Kópavogi. Kæri póstur! Þetta er frábært blað en það mættu vera miklu fleiri þrautir og stærri krossgátur. í leiðinni ætla ég aö biðja um pennavini á aldrinum 11-13 ára. Sjálf er ég 12 ára. Áhugamál mín eru: Dans, íþróttir, músik og sætir strákar. Gunnur Hjálmsdóttir, Dalbraut 41, 300 Akranesi. Besti póstur! Má ég senda sögur í Barna-Tímann? Svar óskast fljótt. Inga Birgitta Árnadóttir, Brúnagerði 1, 640 Húsavík. Kæra Inga! Þú skalt endilega senda sögur í Barna-Tímann. Og í leiðinni hvetjum við fleiri krakka til að semja sögur og senda okkur. Kæri Barna-Tími Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir æðislega gott blað og svo ætla ég að biðja um pennavini. Áhugamál mín eru íþróttir (handbolti, fótbolti, sund og skíði), dans, tónlist, pennavinir og fleira. Krakkar á aldrinum 12-13 ára, helst strákar. Með fyrirfram þökk. Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, Uröarteigi 29, 740 Neskaupstað. Kæru krakkar! Einar Örn Eiðsson, Heiðarskóla (2.hæð) sendi okkur þessa krossgátu. Hann langar að biðja lesendur Barna-Tímans að ráða hana. 1. konunafn 2. rándýr 3. konunafn 4. sníkjudýr 5. karlmannsnafn (Lausnarorðið er' samheiti fuglsins sem oft er kallaður krummi.) En þá eru það vinningshafar fyrir 3. tbl. 5. þraut. Hrærigrautur: Guðmundur Jóhannsson, Bakkaseli 34, 109 Reykja- vík. 6. þraut. Athyglin: Ragnar Bergmann Traustason, Flúðaseli 90, 109 Reykjavík. 7. þraut. Kóngur nr. 4 Margrét Aðalgeirsdóttir, Háagerði 4, Akureyri 8. þraut. Veistu svarið? 1. grár 2. Guðmundur 3.31 4. mýs 5. Akureyri 6. Bogdan 7. kópur 8. 75+47 9. G 10. Það er að segja Sigrún Þ. Geirsdóttir, Reykjavegi 7 B, Mosfellssveit, 270 Varmá. p 'ju isse» (3) jniioBui Bo jniuuBjOcj (a) numdsgej j bj8a ge e o j>j>)Ais (9) V 'Ju pueg (o) e Ju <?!an (v) :iMninVHd VblNSnVT

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.