Tíminn - 22.04.1986, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 22. apríl 1986
Tíminn 13
lega. Var Ágúst sonur hans aðstoð-
armaður hjá Guðbrandi Magnússyni
(síðarforstj. Á.T.V.R.) fyrsta kaup-
félagsstjóranum. Hann stundaði
nám í Samvinnuskólanum 1919-1921
og er ráðinn kaupfélagsstjóri 1928,
þegar Guðbrandur Magnússon flyt-
ur til Reykjavíkur. Kom í hiut
Ágústar að flytja aðsetur kaupfé-
lagsins úr Landeyjum að Hvolsvelli
árið 1933, en útibú hafði verið sett
þar upp 1930.
Ekki er ofsagt, að Einar Ágústs-
son hafi verið alinn upp á miklu
samvinnuheimili enda varsamvinnu-
hugsjónin honum rík í hjarta. Hann
elst upp á söguslóðum Njálu, fékk
oft að líta sól á sumarvegi og silfur-
bláan Eyjafallatind. Umgjörð æsku-
stöðvanna var stórkostleg, fjallasýn
óvíða fegurri. í austri gnæfði Eyja-
fallajökull, í norðri Tindfjöllin með
blásvörtum feldi og við norður rísa
Heklutindar háir. Stórkostlegt
landslag sem Jónas Hallgrímsson
lýsir svo skáldlega vel í kvæöinu
Gunnarshólmi.
Námsbraut Einars var langskóla-
nám eins og það var kallað þá. Hann
útskrifaðist sem stúdent úr Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1941.
Leggur stund á lögfræðinám í Há-
skólanum og verður Cand. juris
1947 og héraðsdómslögmaður
1952.
Að loknu háskólanámi gerist Ein-
ar starfsmaður Fjárhagsráðs og jafn-
framt skrifstofustjóri Sölunefndar
varnarliðseigna. Hann gegnir starfi
fulltrúa í fjármálaráðuneytinu 1954-
57, en ræðst þá til Sambands ísl.
samvinnufélaga og veröur fulltrúi
forstjóra og sparisjóðsstjóri Sam-
vinnusparisjóðsins 1957-63, jafn-
framt því að veita forstöðu Lífeyris-
sjóði Sambandsins til ársins 1960.
Árið 1962, á 60 ára afmæli Sam-
bandsins, samþykkti alþingi lög um
Santvinnubanka Islands og árið 1963
tekur Samvinnubankinn til starfa
með yfirtöku Samvinnusparisjóðs-
ins. Einar Ágústsson er ráðinn fyrsti
bankastjóri Samvinnubankans. Því
starfi gegnir hann til ársins 1971. í
tíð Einars sem bankastjóra varð ör
vöxtur í starfsemi bankans, en ein-
mitt á þessum árum óx bankanum
fiskur um hrygg.
Árið 1962 verða veruleg straum-
hvörf í lífi Einars, en þá byrjar virk
þátttaka hans í stjórnmálum með
kjöri í borgarstjórn Reykjavíkur.
Vann Einar mikinn sigur fyrir Fram-
sóknarflokkinn í þessum kosning-
um. Glæsimennska Einars í sjón og I
reynd, stór vinahópur, aðlaðandi I
framkoma og þessi persónuleiki sem
laðaði að sér fólk voru eiginleikar
sem juku fylgi hans. Mönnum þótti
gott að geta átt Einar að vini.
Frami Einars á braut stjórnmál-
anna var mikill og glæsilegur. í
alþingiskosningunum 1963 er Einar
í framboði fyrir Framsóknarflokkinn I
í Reykjavík og vann þar sinn annan
kosningasigur. Hann er svo þing-
maður Reykvíkinga óslitið til ársins
1978, að hann tekur sér hvíld frá
stjórnmálunum. Hann er skipaður
sendiherra í Danmörku frá 1. janúar
1980 og er hann jafnframt sendiherra
íslands á Ítalíu, í ísracl og Tyrk-
landi.
Á sviði stjórnmálanna gegndi Ein-
ar margvíslegum trúnaðarstörfum.
Ber þá fyrst að nefna^ að hann varð
utanríkisráðherra í stjórn Ólafs Jó-
hannessonar 1971 og aftur í stjórn
Geirs Hallgrímssonar 1974 til 1978.
í ráðherratíð hans áttu íslendingar
tvisvar í landhelgisdeilum við Breta.
Einar Ágústsson átti virkan hlut í
því að leiða þau deilumál til lykta á
farsælan hátt fyrirokkur íslendinga.
Hann var borgarráðsmaður í
Reykjavtk 1963-64. í Hafnarstjórn
1962-71. í stjórn Landsvirkjunar
1971-80. Formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis 1978-79. Formaður
öryggismálanefndar 1978-79.
Fyrir Framsóknarflokkinn gegndi
Einar mörgum trúnaðarstörfum.
Hann sat í miðstjórn flokksins frá
1960 og varaformaður hans frá 1967-
1980. Var formaður Framsóknarfé-
lags Reykjavíkur 1958-1961. í fram-
kvæmdastjórn flokksins frá því í
febrúar 1968 til 1980.
Einar Ágústsson var mörgum góð-
um mannkostum búinn. Áður hefur
verið minnst á vinsældir hans sem
öfluðu honunt fylgis á sviði stjórn-
málanna. Fyrir utan kjörfylgið átti
hannvini í öllum flokkum. Pólitískar
skoðanir hans komu ekki í veg fyrir
það. Og þrátt fyrir Ijúfmennsku og
hlýtt viðmót var Einar ákveðinn og
hélt fast við sínar skoðanir á hverju
sem gekk.
Einar var ljóðelskur, hafði gott
minni, las mikið og var vel að sér í
sögu lands og þjóðar.
Hann naut trausts og virðingar í
störfum sínum á sviði stjórnmálanna
og hann var virðulegur og vel metinn
lulltrúi þjóðar sinnar sem sendi-
herra.
Einar Ágústsson var hamingju-
maður í einkalífi. Grundvöllur gæf-
unnar var Þórunn sem hann gekk að
eiga 7. október 1948. Foreldrar Þór-
unnar voru Sigurður Þorsteinsson
hafnargjaldkeri í Reykjavík og
kona hans Kristjana Einarsdóttir.
Þórunn studdi Einar dyggilega í
störfum og stjórnmálabaráttunni.
Hún bjó og býr yfir sérstökum
persónutöfrum, og er hvers manns
hugljúfi. Mér fannst alltaf mikið
jafnræði með þeim hjónum enda
ríkti á milli þeirra gagnkvæmt traust
og virðing og sterkir strengir bundu
þau saman í farsælu hjónabandi.
Þau Einar og Þórunn eignuðust
fjögur börn. Helgu, f. 21. 7. 1949,
gift Daníel Sigurðssyni. Þau eiga tvö
börn, Einar Þór og Hildigunni, bú-
sett í Reykjavík. Ernu f. 5. 1. 1954,
gift Jens Ingólfssyni. Þau eiga eina
dóttur, Þóru. Þau eru búsett í San
Diego, Californíu. Þóru f. 17. 12.
1958, en hún lést í bifreiðaslysi 10.
janúar 1970 og Sigurð f. 19. 9. 1960
sem er við nám í hagfræði í Kaup-
mannahöfn.
Það var mikið áfall fyrir Þórunni
og Einar, þegar þau misstu Þóru.
Hún var óvenjulega yndisleg stúlka
og við hana bundnar bjartar framtíð-
arvonir. Sjálfur slasaðist Einar
hættulega í bifreiðaslysinu og ekki
var séð fyrir. hvernig honum reiddi
af. Við hjónin höfum oft minnst
þessara dimmu daga og jafnframt
dáðst að hugrekki og þreki Þórunn-
ar. Þegar Þóra var jarðsett var Einar
mikið sjúkur á spítala. En það var
eins og Þórunn fengi æðri styrk og
eins og hetja bar hún sára sorg sína
og veitti Einari og börnunum styrk á
þessum ntyrku janúardögum. Einar
fékk aftur heilsu en þó mun slysið
hafa skilið eftir andleg og líkamleg
sár. þótt tíminn hafi smám saman
lagt þar yfir sínar hulins hendur.
Það var mikil reynsla, sem þau
Einar og Þórunn gengu í gegnum á
þessum tíma. En lífið varð að halda
áfram og það má telja það merkileg
örlög, að fyrsta barnabarnið, Einar
Þór, skyldi í heiminn borinn níu
dögum eftir að Þóra lést. Þannig er
það að Ijósið og myrkrið skiptast á.
Andstæðurnar eru grundvöllur
lífsins. Ekkert líf án dauðaogenginn
dauði án lífs.
Við lát Einars Ágústssonar verður
mér og konu minni hugsað til fyrri
ára, er við saman áttum svo margar
góðar stundir nteð þeim Einari og
Þórunni. Þau voru í flokki vinahóps-
ins, sem hélt mikið saman eftir að
Einar hóf störf hjá samvinnuhreyf-
ingunni.
Þetta var fólk á besta aldri í blóma
lífsins, tengt sterkum vináttubönd-
um, auk þess sem störfin fyrir sam-
vinnuhreyfinguna tengdu menn
saman. Ég er sannfærður um, að
samstaða þessa hóps, en í honum
voru forystumenn úr Sambandinu
og samstarfsfyrirtækjum þess, átti
drjúgan þátt í farsælli þróun innan
samvinnuhreyfingarinnar á þessum
árum.
En árin líða og tíniinn brýtur
skörð í vinahópinn, og cftir verða
minningarnar. Þær lifa áfram meðan
aldur endist sent dýrmæt eign. og
enginn getur tekið þær frá okkur.
Góðar minningar vcrnia sálina, ekki
síst þegar aldur færist yfir. Þær eiga
sinn þátt í því að menn verði sáttir
við lífið og tilveruna.
Og nú hefur á ný komið stórt
skarð í vinahópinn og söknuður og
tregi fyllir hugann. En þannig er
gangur lífsins - menn koma og fara
og enginn megnar að stöðva tímans
rás. Menn fagna þeim sem koma og
syrgja þá sem fara. Nú er það Einar
Ágústsson, sem farinn er frá okkur.
Of sncmma gekk hann á við feðra
sinna, en á þó að baki litríka ævi og
merkilegt starf fyrir land og þjóð.
Ég óska Einari heilla á þeirri
vegferð, sem hann nú hefur lagt upp
í. Ég þakka honum störfin fyrir
samvinnuhreyfinguna og ég þakka
honum samstarf og vináttu í gegnum
Hjónin Þórunn Sigurðardóttir og
F.inar Ágústsson á heimili sínu í
Reykjavík.
árin. Guð blcssi minningu hans.
Við Margrét vottum Þórunni, og
börnunum ogöðrum aðstandendum
innilcga samúð. Við vitum hve ást-
vinamissirinn cr sár. Mcgi Guð gcfa
ykkur styrk til að bera sorg og
söknuð. Megi hann cinnig gefa ykk-
ur gæfu á vcgi framtíðar.
Erlendur Einarsson.
Einar Ágústsson varð skammlífari
en flesta mun hafa grunað. En ckki
vcröur við þaö ráðið að mcnn geta
fallið fyrir dauöanum á hvaða aldri
sem er. Enginn veit sitt endadægur.
Því varðar nokkru hvernig menn
lifa.
Einar Ágústsson lifði mjög starf-
sama ævi. Það lá í eðli hans. Hann
var bráðþroska unglingur og miklum
gáfum gæddur, prýðilegur náms-
maður og lauk skólanámi sínu með
sóma. Hann var lögfræðingur að
mennt og lagði mikla alúð við há-
skólanám sitt sem honum var auð-
vclt vcgna hæfileika sinna til náms
og þeirrar heilbrigðu skynsemi og
reglusemi sem einkcnndi allt hans
ráð. Svo hæfileikamikill og skynsam-
ur sem Einar var að upplagi gat ekki
hjá þvf farið að hann væri öruggur
starfsmaður að hvaða verki sem
hann gekk, þegar viö bættist að hann
var manna fúsastur til vinnu og afar
samviskusamur. Það fyrsta sem ég
heyrði af Einari var af munni manns,
sem viðhafði þau ummæli að Einar
Agústsson væri „klár“ maður. I
þeim dómi fólst mikið hrós. Kynni
mín af Einari, sem varað hafa í 30
ár, staðfesta þann dóm að hann var
starfsniaður með ágætum. Hann
leysti öll verk vel af hendi.
Að loknu lagaprófi 1947, þá hálf-
þrítugur, starfaði Einar að málum,
þar sem lagaþekking hans nýttist
vel, m.a. scm fulltrúi í fjármálaráðu-
neytinu, þar sem liann fór með
vandasöm trúnaðarstörf og leysti
þau jafnan svo af hendi að ekki varð
á bctra kosið. Síðar gerðist hann
forstjóri Samvinnusparisjóðsins í
Reykjavík og bankastjóri Sam-
vinnubankans og gegndi þeim störf-
um árum saman ásamt setu í borgar-
stjórn Reykjavíkur og á Alþingi.
Þurlti meira en mcðalmann að
starfsorku og hæfileikum til þess að
anna svo margbreyttum störfum. En
allt lék þetta í höndunt hans, slíkur
afkastamaður var hann. Fumlaust
gekk hann að verki, án mælgi og
fyrirgangs, og lét verkin tala. En það
fylgdi líka þessum mikla starfs-
manni, sem ekki er öruggt einkenni
á dugnaðarmönnum, að hann var
ævinlega prúðbúinn, ekki aðeins
„snyrtilegur", eins og það er orðað,
heldur beinlínis „fínn“ og hefði
getað farið beint úr verkurn í hvaða
veislu sem var. Ofan á þetta bættist
síðan sú góða návist sem hann bar
með sér og kom innan að og gerði
hann hverjum manni vinsælli meðal
samstarfsmanna. Ég hef varla kynnst
manni þar sem dagfar og hæfileikar,
mannspartar allir, voru í slíku jafn-
vægi sem hjá Einari Ágústssyni.
Nú mætti segja að svo öfgalaus
persóna sem hér er lýst sé aðeins til
í helgum sögum, en finnist ekki á
þeim vcttvangi þjóðlífsins þar scm
Einar haslaði sér völl: á viðskipta-
sviði og í stjórnmálum. þar scm
göslarháttur er oft metinn til skör-
ungsskapar. Ekki minnist ég þess að
Einari væri annt um aö á hann
legðist eitthvert skörungsskaparorð.
Aftur á móti fékk íslenska þjóðin að
njóta hæfileika hans, þegar mikið lá
við. Það kom í hans hlut flestum
öðrum fremur að bera ábyrgð á
einhverju vandasamasta milliríkja-
máli, sem Islcndingar hafa átt í.
Þetta mál - landhelgismálið - var
langmikilvægasta viðfangsefni ríkis-
stjórnar og Alþingis á árunum 1971-
1978, þann tíma sent Einar Ágústs-
son var utanríkisráðherra. Tök Ein-
ars á því máli eru óumdcilanlcg.
Hlutur hans í forystusveit um með-
ferð landhelgismálsins á árunum
1971-1978 erómetanlegur. Fyrir það
mun nafn hans lifa í íslandssögunni.
Halda mætti að væri og ævircynsla
Einars Ágústssonar hafi verið slétt
og fclld. Svo var þó ekki. Hann þoldi
andstrcymi t' lífinu og varð fyrir
mótlæti, sent „úthverfari" og sjálfs-
elskufyllri pcrsónum en liann var
hefði þött við hæfi að fjölyrða um og
láta á sér sjá og krefjast fyrir vork-
unnscmi af heiminum. Móður sína
missti liann á viðkvæmasta barns-
aldri. Iiann lenti í alvarlegu bílslysi
þar sent ung dóttir hans lét lífiö og
hann stórslasaðist sjálfur. Hann varð
fyrir frcttaofsóknum mcðan hann
var ráðherra af því tagi. scm varðaði
æru hans og orðstír sem manns og
stjórnmálamanns. Hann mátti auk
þcss þoht ófarir í síðustu alþingis-
kosningunum sem hann tók þátt í
(1978), þegar fylgi Framsóknar-
flokksins hrapaði um helming í kjör-
dæmi lians, Reykjavík. Þar birtust
„þakkirnar" til hans og llokks hans
fyrir forystuna í landhclgismálinu.
Það væri ckki grciði við minningu
Einars Ágústssonar, cf reynt væri að
gcra lítið úr því andstreymi sem lífiö
færði honum og lagðist á hann sent
harmur eftir ástvini eða farg á heið-
urskennd hans, ellcgar sú raun að
iverða fyrir skyndilegum kosningaó-
sigri eftir langan og sigursælan
stjórnmálaferil. Ég veit að allt lagð-
ist þetta þungt á Einar og þó umfram
allt fréttaofsóknirnar, sem gengu
mjög nærri honum. Um það hef ég
hans eigin orð, sögð í einkasamtali
milli okkar. Þau orð líða mér aldrei
úr minni né hvernig þau voru sögð.
Nánari æviatriði Einars Ágústs-
sonar verða rakin af öðrum scm
hans minnast í blöðum um þessar
mundir. Ég hef eingöngu reynt að
bregða upp svipmynd af Einari sem
dugandi starfsmanni, farsælum
stjórnmálamanni og „manni", eins
og ég þekkti hann. Einar Ágústsson
var umfram allt „maður“, gædd-
ur hlýjum tilfinningum og ágætum
gáfunt. Hann var í hvívetna heið-
virður maður, og þannig verður
hans minnst.
Við hjónin sendum Þórunni og
fjölskyldunni allri hugheila samúð-
arkveðju.
Ingvar Gíslason
Eínar Ágústsson er látinn og veg-
ferð hans er á enda alltof snemma.
Einar var Sunnlendingur fæddur í
Hallgeirsey í Austur-Landeyjum,
sonur Ágústs kaupfélagsstjóra Ein-
arssonar og Helgu konu hans Jónas-
dóttur. Einar nam lögfræði og að
Utanríkisráðherra í opinbcrri heimsókn í Moskvu. Á myndinni er hann á tali
við Kosigyn forsætisráðherra og Gromyko utanríkisráðherra. Maðurinn við
hlið F.inars er túlkur.