Tíminn - 01.06.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 01.06.1986, Blaðsíða 11
Sunnudagur1, júní 1986 Sunnudagur 1. júní 1986 Tíminn 11 Fyrir þig? Samvinnuskólinn á Bifröst wtii WtFW’W skólaheimili tvö námsár undirbúningur undir störf og frama þjálfun í félagsstörfum og framkomu stúdentspróf góð atvinnutækifæri ágæt námsaðstaða og tölvubúnaður kröftugt félagslíf frekari menntunarleiðir lnntökuskilyrði: Umsóknir sendist: Samvinnuskólinn Tveggja ára framhaldsskólanámi lokið skólastjóri — á viðskiptasviði eða með viðskiptagreinum Bifröst — eða öðrum sambærilegum undirbúningi. 311 Borgarnesi Umsóknarfrestur: 10. mars til ÍO. júní Upplýsingar í skólanum: Símar 93-5000/5001 Tvö þekkt nöfn á einni vél CASE INTERNATIONAL Frá 47 hestafla til 97 hestafla á mjög hagstæðu verði T.D. u 585 XL 2 62 hö VERÐ KR. 610.000.- STERKIR ★ LIPRIR ★ STÍLHREINIR ic Alluefður gírkassi 16 áfram og 8 afturábak ★ Veleinangrað lúxus öryggis- hús með miðstöð og sléttu gólfi ★ Yfirstærð af rafgeymi ★ Demparasœti ★ Vökvalyftur dráttarkrókurik Niðurgírun óháð kúplingu ogfleiri auka- hlutir til þœginda C7 WE & D rmf Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 Magnús Ingimundarson „Uppskriftin var mjög áþekk þessu breska „Sailor bisquits". Tímamynd: Sverrir. Eg sakna „Sæmundar“ nafnsins Viðtal við Magnús Ingimundarson, forstjóra Frón á sextíu ára afmæli fyrirtækis hans Það var fvrir sextíu árum að kringlóttar deigkökur fóru að renna undan spánnýrri mótunarvél í húsi Betaníu við Laufásveg. Deig- kökunum var stungið inn í kolakyntan ofn og senn runnu út glóðheitar kexkökur. Þetta voru fyrstu Frón-kexkökurnar. Það átti fyrir þeim að liggja að verða næstu áratugina partur af daglegu brauði landsmanna í þeim orðsins fyllsta skilningi eða hvaða barn í landinu man ekki eftir Frónkexinu? í tilefni af þessum tímamótum fórum við á fund Magnúsar Ingimundarsonar forstjóra hjá Frón og báðum hann að segja okkur nokkuð um verksmiðjuna og hennar góðkunna kex. „Já, þetta er orðin löng saga,“ segir Magnús. „Það voru engir miðlungsmenn sem stóðu að stofnuninni, sem var hinn 12. júní 1926, því þeir voru Eggert Kristjánsson, stórkaupmaður, Jón Laxdal, tónskáld og kaup- maður, Ágúst Jóhannesson, bakari og Hjörtur Ingþórsson. Það er auðséð á samningnum að ætlunin hefur verið frá upp- hafi að stofna hlutafélag og ber reyndar samningurinn þess greinileg merki, þannig að fyrsti formaður var kjörinn Jón Laxdal, en gjaldkeri Eggert Kristjánsson. Yfirbakarinn var strax Ágúst Jóhannesson.“ Framleiddu 19 tonn 1927 „Verksmiðjan hóf framleiðslu seint á árinu 1926 eftir að vélar sem Jóni Laxdal var falið að sjá um innkaup á komu til landsins og búið var að setja þær niður, en fyrstu húsakynni verksmiðj- unnar voru í húsi Betaníu við Laufásveg. Þar starfaði hún til ársins 1931 að starfsemin var flutt að Grettisgötu 16. Framleiðsla fyrsta ársins eða 1927, nam 19,1 tonni af kexi. Framleiðslan jókst ár frá ári og 1930 nam hún 33,5 tonnum. Jón Laxdal lést skömmu eftir að verksmiðjan hóf störf sín, en 1931 var sameignarfélagið endurskipulagt og var þá Eggert Kristjánsson orðinn eigandi að eignarhluta Hjartar Ingþórsson- ar og Jóns Laxdals en Ágúst Jóhannesson hélt sínum hluta. Eins og fyrr segir var verk- smiðjan endurskipulögð 1931 og upp frá því fór framleiðslan vaxandi ár frá ári og verksmiðj- an kornst klakklaust gegnum kreppuárin. Árið 1936 flutti verksmiðjan í eigið húsnæði að Skúlagötu 28 og verða þá töluverð þáttaskil í rekstrinum. Upp frá því ári nam framleiðslan að jafnaði alltaf yfir 100 tonnum af kexi á ári. Starfsfólk fyrstu árin voru sjö stúlkur ásamt yfirbakara en 1931 var starfsfólkið orðið 17 auk skrifstofumanns og afgreiðslu- manns. Hefur starfsfólki sífellt fjölgað síðan, en nú munu vinna í verksmiðjunni um 50 manns, þar af 34 konur. Árið 1938 var stofnað hluta- félag um félagið, þar sem Eggert Kristjánsson var langstærsti hluthafinn en Ágúst Jóhannes- son verksmiðjustjóri var eigandi að 1/4 hlutafjárins. Félagið naut starfskrafta þessara manna frá byrjun til dánardægurs Eggerts Kristjánssonar árið 1966. At- orka Eggerts og framtakssemi var alla tíð annáluð og óx starf- semi og hagur fyrirtækisins stöðugt undir styrkri stjórn hans.“ Fær bakari „Verksmiðjustjóri var frá upphafi Ágúst Jóhannesson sem var einn af stofnendum félagsins og hafði öðlast framhaldsmennt- un í iðngrein sinni í Danmörku. Þótti hann ákaflega góður bak- ari, enda var framleiðsla Frón frá upphafi að öllu leyti sam- keppnisfær við erlenda fram- leiðslu hvað gæði snerti. Ágúst starfaði við verksmiðjuna frá upphafi til ársins 1974 er hann lét af störfum sökum aldurs. Þegar verksmiðjan flutti að Skúlagötu 28, var fyrsta álma hússins sem snýr út-að Skúlagötu fullgerð, en á árunum 1941-1942 var þrem hæðum inni í lóðinni bætt við og það húsnæði tekið í notkun árið 1943. Árið 1979 var enn bætti við húsið og í þetta sinn var byggingarframkvæmd- um lokið eins og húsið var upphaflega áætlað. í byrjun var vélakostur mjög takmarkaður og sem dæmi um það var fyrstu árin notað handafl til rekstrar vélanna að undan- skildum bakaraofni og má segja að það hafi haldist óbreytt þang- að til verksmiðjan flutti í eigið húsnæði og fór að endurnýja vélakost sinn. Að lokinni styrj- öldinni fór fram endurnýjun á vélunum eins og unnt var á þeim árum. Árið 1963 var aftur tekið til við að endurnýja vélarnar og síðan hefur verið stigið stórt skref í þá átt að auka sem mest sjálfvirkni svo að framleiðni yk- ist sem allra mest.“ Að halda í við erlenda framleiðslu „Já, þetta er orðin löng saga, enda munu ekki mörg íslensk iðnfyrirtæki eldri en Frón. Fyrsta kexið okkar var auðvitað kringlótta matarkexið, en brátt kom ferkantaða mjólkurkexið og kremkexið. Eftir stríðið bætt- ist svo súkkulaðihjúpað kex við. Framleiðslan varð strax afar vin- sæl og ekki síst meðal sjómanna, enda var fyrsta uppskriftin mjög áþekk þessu breska „Sailor bisq- uits.“ Fyrst var kexið selt í lausa- sölu, ýmist í tré eða blikkköss- um, en svo tóku fullkomnari pakkningar við, fyrst plastpok- ar, sem ekki reyndust vel, en loks vélpökkun. Þegar innflutningur var gefinn frjáls á kexi árið 1979, og varð það mikil þolraun fyrir fyrírtæk- ið og fylgdi á eftir veruleg lægð, sem drjúgan tíma tók að yfir- vinna. Samkeppnin er eftir sem áður mikil og ég giska á að við séum tæplega hálfdrættingar á við innflutta kexið. Ég er þó þeirrar skoðunar að samkeppnin hefði mátt hefjast fyrr, því ef til vill galt framleiðslan þess að hún kom ekki fyrr. Við höfunr síðan lagt áherslu á sem mesta fjöl- breytni og ég held að það séu 24 tegundir sem við nú fram- leiðum. Ég tel að við séum samkeppnisfærir með verð, þótt ekki segi ég að við séum ódýrari, enda er þetta smærra í sniðum hérlendis, en með stórum þjóð- um sem njóta gífurlegar magn- framleiðslu. Hjá okkur eru starfsmenn nú 50 og mest höfum við framleitt 1200 tonn, en það var árið 1978. Ekki var framleiðslugetan samt nýtt til hinsýtrasta þá" Sæmundur „Það er óhætt að segja að Frón kexið hafi verið partur af daglegri neyslu okkar íslendinga þessa sex áratugi sem liðnir eru frá stofnun fyrirtækisins. Ég man að meðal sjómanna var kexið í gamla daga kallað Sæmundur, eftir Sæmundi for- stjóra í Esju, sem var gamall sjómaður og baráttumaður fyrir hagsmunum sjómanna löngum. Satt að segja harma ég að sú nafngift hefur horfið. Esja var sameinuð Frón árið 1976. Þótt úrvalið af kexi sé orðið meira nú en þegar Frón var stofnað, þá vona ég að lands- menn muni halda áfram að meta okkar góðu vöru, um leið og við gerum okkar besta til þess að svara kröfum nýrra tíma.“ VINSÆLDALISTIMYNDBANDALEIGANNA 1. (D Prizzis Honor 2. (2) Pale Rider 3. (6) Fletch 4. (3) Vitnið 5. (4) Night in Heaven 6. (5) Seven Ups 7. (7) St. Elmors Fire 8. 0) Plenty 9. (-) Mad Max 10. H Twice In a Livetime SERÍUR 1. Blood and Orchids 2. Sperfields Daughters 3. Jack Holburn 4. Feigðarsýn 5. Tvö á flótta 6. Fatal Vision 7. Kane and Abel 8. Golden Pennies 9. Erfinginn 10. Metorðastiginn EKKÍ FLJÚGA FRÁ PFR ÁSKRIFTARSÍMI 686300 F? Þær eru meiriháttargóðarnýju Goðapylsumar grillið eð’í pottinn og svo ^—cr df ■> r 'f i líka í veislumar og bragðið það hrífur minnamánúsjá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.