Tíminn - 01.06.1986, Blaðsíða 15
hömrum? Voru vængirnir fest-
ir ofarlega á búkinn eða nær
fótunum? Dró hann lappirnar
undir sig á fluginu eða löfðu
þær?
„Hver flugvél er byggð á
samkomulagi,“ er kjörorð Mac
Cready. Fundur vísindamanna
af ýmsu tagi komst loksins að
sameiginlegri niðurstöðu um
að vera þessi hefði raunveru-
lega flogið og að hægt væri að
smíða líkan af drekanum og
láta það svífa.
Sú var þó bót í máli fyrir
Mac Cready að drekinn hafði
verið eðla þakin fiðurlausri
húð.
Drekinn var líkari leður-
blöku en fugli. Vængur fugla
breytir sífellt um stöðu á flug-
inu. Fjöldamargir vöðvar
vinna á mismunandi hátt á
sömu stundu. Yfirborð dreka-
vængsins var slétt og líktist
þess vegna meir flugvélarvæng
en fuglsvæng. Þá kom eitt
vandamálið enn, því að beina-
fræðingarnir gátu ekki komið
sér saman um hvort drekinn
hefði haft stél eða ekki. Hefði
hann verið stéllaus hefði hann
orðið að halda jafnvæginu á
fluginu á svipaðan hátt og mað-
ur á hjóli.
Ernir og flugvélar nota stélið
til þess að halda jafnvægi og
stjórna sér á fluginu. En sumir
fuglar hafa sama og ekkert
stél, eins og t.d. Albatrossinn.
Hjá þess háttar fuglum dugðu
vængirnir einir bæði til flugtaks
ogjafnvægis. Þeirblaka vængj-
unum á ýmsa vegu, ýmist fram
á við eða aftur og gera margar
samhæfðar hreyfingar í einu.
Finngálknið hans Mac Cre-
adys verður að vera jafnsnjallt,
þó að rafmagnsbúnaður eigi að
stýra hreyfingum þess.
Fuglar kunna að nýta sér
strauma loftsins, bæði upp-
streymi og niðurstreymi. Eins
verður finngálknið að gera
með flóknum tölvubúnaði.
Örðugt verður að láta það
blaka vængjunum til að komast
á loft. Meðan drekinn lifði
nrun hann mest hafa svifið í
loftinu, og tæplega blakað
vængjunum nema einstöku
sinnum. Hann hefur verið flug-
dreki. Slíka dreka hafa menn
reynt að smíða allt frá því að
Leonardo da Vinci teiknaði þá
á fimmtándu öld. Flugdrekar
hafa nærri því enga hagnýta
þýðingu og hafa þess vegna
eingöngu verið smíðaðir sem
leikföng. Sumir hafa sett í þá
vélarafl en það hefur ekki tek-
ist vel. Vélin í finngálknið hans
Mac Creadys verður að vera
bæði sterk og traust.
Þegar stórir fuglar fljúga þá
bæra þeir vænginga sjaldan.
Vængjablak gamms tekur um
2 sek., en spörfugl notar hálfa
sekúndu. Þess þyngri sem
fuglinn er, þess meira vænghaf
þarf hann og vöðvakraft til að
hreyfa vængina. Mac Cready
og menn hans eru að stríða við
að búa til hreyfil sem geti
unnið svipað og fugl. Sá hreyf-
ill má ekki vera stór því að
finngálknið verður aðeins 12'A
'kg-
Flugdrekasmiðirnir eru
handvissir um að finngálknið
verður sjónvarpsstjarna á sýn-
ingunni í júní. En það er
aðeins fyrsta skrefið hjá Mac
Cready. Hann stefnir að því
takmarki að hópar finngálkna
muni fljúga um loftið, sem eins
konar utanhúss sýningargripir
sem rifja upp horfnar jarðaldir
fyrir milljónum ára.
„Ég held að hægt sé að
útbúa slíkan stað þar sem fljúg-
andi fornaldardrekar og tröll-
eðlur á stærð við jarðýtur
sprangi um. Það er kostnaður-
inn sem allt veltur á. Nú virðist
almenningur láta sér riægja
eins konar sandkassaleiki.“
Mac Cready fer til Washing-
ton til þess að vinna hugmynd
sinni fylgi.
í Smithsonian-safninu er
geymd sviffluga senr hefur
mesta vænghaf sem enn hefur
verið smíðuð, Gossmaer
Condorinn hans.
Hann er smíðaður úr ál-
:Stöngum,píánóvír og mörgum
metrum af gagnsæjum dúk úr
plasti, eins og gríðarstór vatns-
tær dropi. Mac Cready tautar:
„Mér finnst hann vera eins og
lifandi vera, eftir allan þennan
tíma og fyrirhöfn."
Hann rifjar upp þær löngu
stundir sem það tók að smíða
Condor og að honum datt
varla í hug að þetta tól yrði
nokkurn tíma sett á svo frægan
stað.
- Hópur ferðafólks ryðst í
kringum Mac Cready og farar-
stjórinn þylur: „Lítið nú á
þetta skrímsli.“
Fólkið glápir á Condor með
pappírsglyrnurnar, hálffalinn
innan um gervitungl, eldflaugar
og hljóðfráar þotur. -
„Þessi flugvél var hönnuð af
manni nokkrum, Mac Cready,
sem seinna varð þekktur senr
höfundur svifflugna sem áttu
að fljúga fyrir nrannafli. Vélin
er ekki ncma 35 kg , vænghafið
er 32 metrar. Hún varð fyrsta
vél sem tókst að fljúga ákveðna
vegalengd knúin handafli.
I þessari keppni tóku nrargar
þjóðir þátt. Verðlaunin voru
100 þús. dollarar. Þau hreppti
Mac Cready."
Har.n veit að nrargt nrá finna
að finngálkninu hans. Þetta
ævintýri mun kosta hálfa nrill-
jón dollara.
Það verður reglulegt ævin-
týri að horfa á hvernig fyrstu
fuglar jarðar fóru að því að
fljúga, og þessi tilraun fer fram
í júní ár fyrir framan þinghúsið
í Washington og kringum
minnismerki þjóðhetjunnar.