Tíminn - 08.06.1986, Page 16

Tíminn - 08.06.1986, Page 16
16 Tíminn Sunnudagur 8. júní 1986 . líka að færa sér í nyt það umtal sem óvissan veldur. Pessi málglaði náungi er jafn fast lokaður og ostruskel um málið og sagði fyrir skemmstu: „Ég mun ekki ljóstra þessu upp fyrr en eftir fáeinar vikur. Þar til mega menn velta þessu fyrir sér.“ Það er líka svikalaust gert. Hver sá sem er yfir 1.80 á hæð með grannar mjaðmir og þjálf- aðan líkama, auk nokkurra hára á bringunni, telst koma til greina. Þeir sem best þekkja til málanna hafa þó álitið sjö menn líklegasta. Ef til vill verður hinn 23ja ára gamli Jason valinn, en það verður aðeins fornafn hans sem menn verða að læra, því seinna nafnið er kunnuglegt. Hann er nefnilega sonur Sean Connery, - James Bond no. eitt. Ungi maðurinn er þó fremur vondaufur. „Ég býst við að ég ú stendur mikil leit yfir í Hollywood: Menn leita að manni sem hefur fleira til brunns að bera en algengt er, - hann verður að geta laðað að sér ljóskurnar með hnefastyrk, persónutöfrum og skotfimi. Hann verður að vera jafn glæsi- legur, hvort sem hann íklæðist smóking eða sundskýlu má hvorki láta sér bregða þótt á vegi hans verði tímabomba eða kynbomba. Já, ntenn eru að leita að nýjum James Bond. Það verður sá fjórði sem hlutverkið leikur. Áður hafa þeir gert það gott í rullunni Sean Connery, sem nú er orðinn 55 ára og talinn of gamall fyrir hlutverkið, George Lazenby, sem aðeins fór með hlutverkið í einni mynd og Ro- ger Moore, sem nú er orðinn 58 ára og hefur að dómi fram- leiðandans Cubby Broccoli „of margar hrukkur í andlitinu," til þess að geta leikið þennan fræg- asta spíón allra tíma. Það eru miklir peningar í spilinu: Á 25 árum hafa þær 14 Bond myndir sem settar hafa verið saman skilað af sér nær milljarði dollara og þá er videoarðurinn og sjón- varpsarðurinn ekki reiknaður með. Það er hið strangasta leynd- armál hver hljóta skal hlutverkið. Framleiðandinn Broccoli reynir Leitað að nýjum ROGER MOORE. Hann er nú orðinn of gamall í slaginn. Margir eiga möguleika á að hreppa hnossið ERLEND MALEFNI Pórarinn Þórarinsson skrifar: Dimmur skuggi hvílcli yfír ráðherrafundinum í Halifax Vígbúnaðarsinnar ráða orðið ferðinni í Hvíta húsinu UTANRÍKISRÁÐHERRA- FUNDUR Atlantshafsbandalags- ríkjanna, sem haldinn var í Halifax í Kanada í síðastliðinni viku, er einhver sá ömurlegasti í allri sögu bandalagsins. Að frumkvæði Carringtons lávarðar, framkvæmda- stjóra bandalagsins, fóru fram nokk- uð frjálslegar umræður og skoðana- skipti á fundinum. Carrington lá- varður virðist hafa talið, að eins og málum væri komið, væru slík skoðanaskipti heppilegri en að sagt væri já og amen við öllum hugmynd- um risaveldisins í Nató, Bandaríkj- anna, svipað og mun gerast á fund- um Varsjárbandalagsins, þar sem Sovétríkin marka stefnuna. Það, sem öðru fremur setti svip sinn á ráðherrafundinn í Halifax, var sú tilkynning Reagans forseta tveimur dögum fyrir fundinn, að hann myndi ekki fylgja Salt-2 samn- ingnum nema fram undir áramót, en þá myndu Bandaríkin hefja vígbún- að án tillits til samningsins. Samning- ur þessi, sem var gerður af þeim Carter og Brésnjef, fjallar um tak- mörkun kjarnavopna. Reagan var þá á móti honum og samningurinn hefur aldrei verið samþykktur af Bandaríkjaþingi, en samt hafa bæði Carter og Reagan og ráðamenn Sovétríkjanna fylgt ákvæðum hans. Öllum kemur saman um, að það hafi lagt verulegar hömiur á framleiðslu kjarnavopna. Af hálfu hernaðarsinna í Banda- ríkjunum með Weinberger varnar- málaráðherra í fararbroddi, héfur að undanförnu verið lagt kapp á að Bandaríkjamenn hættu að fylgja ákvæðum samningsins og því m.a. borið við, að Sovétríkin hefðu brotið hann, en þau mótmæla því og stend- ur hér fullyrðing gegn fullyrðingu. Nokkuð er það, að Evrópuríkin í Nató liafa ekki viljað taka þessa röksemd gilda og lagt fast að risa- veldunum að fylgja samningnum áfram. Þau hafa haldið því fram, eins og Carrington lávarður hefur orðað það, að betra væri að hafa gallaðan samning en engan santning. Salt-2 gæti einnig verið heppilegur grundvöllur að nýjum og betri samn- ingi um takmörkun kjarnavopna, ef hann yrði ekki felldur úr gildi. Um þetta hafa átt sér mikil átök bak við tjöldin meðal fylgismanna Reagans. Þeir, sem vilja enga samn- inga gera við Sovétríkin, nema þeir tryggi yfirburðastöðu Bandaríkj- anna, hafa viljað að hætt yrði að fylgja Salt-2. Hinir, sem vilja reyna að semja við Sovétríkin á jafnréttis- grundvelli, hafa viljað að Salt-2 yrði fylgt áfram eða a.m.k. meðan þeir Reagan og Gorbachev væru að reyna að semja. Það var ljóst af yfirlýsingu Reag- ans fyrir ráðherrafundinn í Halifax, að hernaðarsinnar hefðu sigrað í átökum á bak við tjöldin í Hvíta Weinberger varnarmálaráðherra mótar orðið stefnu Reagans. húsinu. Reagan hefur fallist á rök þeirra og reyndar fleiri á sviði víg- búnaðarmála að undanförnu. Sátta- stefnan eða slökunarstefnan hefur verið látin víkja fyrir vígbúnaðar- stefnunni. Allar horfur benda því orðið til þess, að stórkostleg vígbún- aðaralda sé að hefjast í samskiptum risaveldanna í stað þeirra afvopnun- arsamninga, sem menn væntu sér að myndu leiða af vinsamlegum fundi þeirra Reagans og Gorbachevs í Genf og fylgja átti eftir með fundum þeirra á þessu og næsta ári. Eftir þennan fund Reagans og Gorbachevs urðu vígbúnaðarsinnar í Bandaríkjunum æfir og virðast nú hafa komið ár sinni þannig fyrir borð, að þeir ráða orðið ferðinni. Gamall og þreyttur forseti, sem yfirleitt hefur látið ráðgjafa sína móta stefnuna, hefur snúist til liðs við þá, enda er það ekki í ósamræmi við fyrri sjónarmið hans. MARGIR ráðherrar Evrópuríkja á Halifaxfundinum lýstu andstöðu við umrædda ákvörðun Reagans og skoruðu á hann að láta Salt-2 halda óformlega gildi sínu áfram. Utanrík- isráðherra Kanada mun hafa riðið á vaðið, en ráðherrar Evrópuríkjanna í Nató síðan flestir fylgt í kjölfarið. Síðan hefur verið tekið undir þetta af ríkisstjórnunum heima fyrir. Meðal annars hefur sjálf Margaret Thatcher gengið fram fyrir skjöldu og flutt ræðu í þinginu, þar sem hún skoraði á risaveldin bæði að fylgja Salt-2 áfram, en Rússar hafa lýst sig fúsa til þess, ef Bandaríkjamenn geri slíkt hið sama. Hins vegar muni Sovétríkin ekki hika við að fylgja Bandaríkjunum eftir, ef þau magna vígbúnaðarkapphlaupið, eins og nú virðast horfur á. I Bandaríkjunum hefur umrædd ákvörðun Reagans sætt hörðum mótmælum og hafa Kennedy öld- ungadeildarþingmaður og McNam- ara fyrrv. varnarmálaráherra riðið á vaðið. Líklegt er, að þetta geti orðið mikið deilumál í þingkosningunum í haust. en að það virðist nú úr sögunni, að þeir Reagan og Gorbachev hittist fyrir þær. AF HÁLFU hernaðarsinna í Banda- ríkjunum er því m.a. haldið fram, að erfið efnahagsstaða Sovétríkj- anna, m.a. vegna kjarnorkuslyssins, og aukinn vígbúnaður Bandaríkj- anna muni neyða Rússa til að semja á þeim grundvelli, að Bandaríkin haldi yfirburðunum. Þeir, sem þekkja til sögu undanfarinna ára- tuga, mótmæla þessu sem þvættingi. Rússar hafi aldrei verið ófúsari til undanláts en þegar þeir hafa staðið höllum fæti. Þeir vilji ekki láta það sjást, að þeir telji stöðu sína veika. Það er von margra þeirra Evrópu- manna, sem vilja koma á samningum milli risaveldanna, að Reagan haldi áfram að fylgja SaIt-2 eftir kosn- ingarnar í haust, þótt hann lýsi yfir öðru nú. Til þess að svo geti orðið, þarf hann að verða fyrir verulegum þrýstingi frá Vestur-Evrópumönn- um. Ef til vill hefur fundurinn í Halifax gert nokkurt gagn, þvf að hann hefur sýnt Bandaríkjastjórn hvernig vindurinn blæs í Vestur- Evrópu. Það er fráleitt af Bandaríkja- mönnum að halda, að þeir geti lifað einangraðir í heiminum og þurfi ekki á góðri sambúð við neina aðra að halda. Bandaríkin og Vestur- Evrópa þurfa að halda saman, en það getur því aðeins orðið á heil- brigðum grundvelli, að Bandaríkin telji sig ekki hafa allan húsbóndarétt í Atlantshafsbandalaginu líkt og Sovétríkin í Varsjárbandalaginu. Að óbreyttri núverandi stefnu Bandaríkjastjórnar liggja leiðir Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu sundur. Bandaríkjastjórn þarf að gera sér Ijóst, að núverandi vígbún- aðarstefna hennar er hið mesta vatn á myllu Sovétríkjanna sem hugsast getur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.