Tíminn - 11.06.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.06.1986, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 11. júní 1986 Tíminn 5 ÚTLÖND . ' Afvopnunarráöstefnan í Stokkhólmi: Tíminn líður en verulegur árangur lætur á sér standa - Kanadíski varautanríkisráöherrann sagöi pólitíska hagsmuni geta eyöilagt fyrir samningum Stokkhólmur-Reuter Afvopnunarráðstefnunni í Stokk- hólmi var framhaldið að nýju í gær og hófst með viðvörun frá kanadísk- um ráðamanni um að þörf væri á mikilli samningaviðleitni næstu vik- urnar ætti ráðstefnan að hafa eitt- livað gildi. Jantes Taylor varautanríkisráð- herra Kanada sagði í ræðu við opnun næst síðustu fundalotu þessarar ráð- stefnu að pólitískir hagsmunir hcfðu eyðilagt fyrir diplómatískum samn- ingum. „Ráðstefnumeðlimir hafa forðast almenn atriði ogorðagjálfurog reynt að finna leiðir að ákveðnum og öruggum samningunt," sagði Taylor fulltrúum hinna 35 þjóða sem ráð- stefnuna sækja. „En þrátt fyrir góðan árangur síðustu vikurnar og mánuðina vofir yfir hættan á pólitískri tregðu og stöðnun,“ varaði sá kanadíski ráð- stefnugesti við. Stokkhólnrarráðstefnunni cr ætl- að að leita leiða til að draga úr hættunni á stríði í Evrópu. Hana sækja fulltrúar frá öllum ríkjum Evrópu að Albaníu undanskildri og fulltrúar frá Bandaríkjunum og Kan- ada. Ráðstefnunni lýkur þann I9. september næstkomandi. Bandarískur fulltrúi sagði árangur þann sem næðist á ráðstefnunni „standa og falla" með útkomunni úr þessari fundalotu. Flestir eru sammála um að spurn- ingin um tilkynningu, þ.e. að öll löndin komi sér saman um að láta hvert annað vita um vissar hernaðar- aðgerðir sínar, sé helsta atriðið sent komast þarf að samkomulagi um í nýbyrjuðum fundarhöldum. „Ef okkur tekst að komast að samkomulagi unt að láta vita um hreyfingar landherja og semja um innihald og takmörkun á tilkynning- um hugsa ég að samningar náist um önnur atriði." sagði áðurnefndur fulltrúi frá Bandaríkjunum. Meðal annarra íhugunarefna sem ráðstefnufulltrúarnir glíma við eru útgáfa á tímatöflum hernaðaræfinga sem aðrar þjóðir niyndu fá svo og leyfi til að fylgjast með æfingunum. Bandarísku fulltrúarnir á Stokkhólmarráðstefnunni eru bjartsýnir á að árangur náist. Sá sem brosir heitir Goodby. Bólivía: Hálft tonn af kókaíni í höndum lögreglunnar La Paz-Rcuter. Lögreglan í Bólivíu komst í feitt nú nýlega. Þá gerði hún upptækt rúmlega hálft tonn af kókaíndeigi sem er virði sem samsvarar sex milljónum króna fyrir hreinsun. Lögreglan komst yfir þetta geysilega magn um síðustu helgi þegar árás var gerð á lítinn flugvöll í Cochabamba- héraðinu í Mið-Bólivíu. Embættismaður sagði í símtali við fréttamann Reuters að eitur- lyfjalögreglusveit sem kallast „Hlébarðarnir" og eru studdir af Bandaríkjastjórn, hefðu fundið 592 kílógrömm af kókaíni um borð í lítilli flugvél sem var á flugbrautinni. Fernando Barthelmey innan- ríkisráðherra landsins tilkynnti nýlega um nýjar ráðstafanir til að berjast gegn eiturlyfjaframleiðsl- unni í Bólivíu, en þar er ein mesta framleiðsla í heimi á kóka- laufinu, hráefninu sem kókaín er unnið úr. Barthelemy sagði nýju lögin gera ráð fyrir einfaldari og þar af leiðandi styttri réttarhöldum yfir þeim sem grunaðir eru um eitur- lyfjasmygl. Refsingar í eiturlyfja- málum verða einnig hertar. Formósa: Moskvuförívændum hjá landsliðskonum Formósa-Rcufer Hin andkommúníska ríkisstjórn á Forntósu hefur gefið íþróttaliði frá landinu í fyrsta skipti leyfi til að heimsækja Sovétríkin og keppa þar á alþjóðlegu íþróttamóti. Stjórnvöld segja að íþróttir og stjórnmál eigi að vera aðskilin. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði að landslið Formósu í kvenna- körfubolta myndi taka þátt í heims- meistaramótinu sem haldið verður í Moskvu í ágúst. Kvennaliðið vann sér rétt til að keppa á mótinu með því að lenda í þriðja sæti á Asíuleikjunum í þessari íþróttagrein. Leikamir vom haldnir í Malasíu í síðustu viku. Eitthvað balndast þó íþróttir og stjórnmál saman hjá stjórnvöldum á Formósu því í síðustu viku bönnuðu þau að sýnt yrði frá leik Sovétríkj- anna og Ungverjalands í heims- meistarakeppninni í knattspyrnu. Ástæðan var sú að bæði liðin komu frá löndum þar sem kommúnisminn ræður ríkjum. Ráðamenn sögðu að einungis yrði sýnt frá leikjum komm- únistaliðanna þegar þau mættu liðum frá „frjálsa hciminum". Noregur: Gro til Caracas Osló-Reuter Að sögn talsmanns norsku ríkis- stjórnarinnar mun Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra að öll- um Iíkindum eiga viðræður við Ja- ime Lusinchi forseta Venezúela í Caracas þann 19. júní næstkomandi. Þar verður til umræðu olíufram- leiðslan í heiminum og vandamál henni tengd. Þetta mun vera í fyrsta skiptið sem valdamesti ráðamaður Noregs, sem er ekki innan OPEC (Samtaka olíuframleiðsluríkja) á viðræður við æðsta leiðtoga Venezúela sem er innan OPEC. „Stjórnin í Caracas hefur ekki gefið staðfestingu á hvenær fundur- inn verður en líklegast verður hann haldinn þann 19. júní," sagði Mort- en Wetland talsmaður forsætisráðu- neytisins. Brundtland hefur sagt stjórn sína reiðubúna til samstarfs við OPEC til að stöðva verðfallið á olíunni en einungis með því skilyrði að hin þrettán rfki bandalagsins sýni meiri vilja í þá átt að minnka framleiðslu- kvóta sinn. Fréttaskýring: Austurrísk stjórn- mál á krossgótum Reuter. Stjórnmálaforingjar sögðu í gær að austurrísk stjórnmál væru á krossgötum eftir sigur Kurt Wald- heims í forsetakosningunum síð- astliðinn sunnudag. Sigur Wald- heims þýddi að sósíalistar höfðu eftir sextán ára valdaferil misst forsetaembættið úr höndum sér. Foringjarnir sögðu að sigur Waldheims yfir sósíalistafram- bjóðandanum Kurt Steyrer gæfi til kynna að fólk væri orðið leitt á stjórn Sósíalistaflokksins (SPO). Fred Sinowatz kanslari Austur- ríkis sagði af sér í kjölfar kosninga- sigurs Waldheims. Sinowatz, sem er 57 ára gamall, mun þó enn um sinn leiða SPO en hinn nýi yfirmað- ur ríkisstjórnar sósíalista verður Franz Vranitzky, 48 ára, sem var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sin- owatz. Þjóðarflokkurinn (OVP) sem er í stjórnarandstöðu hefur krafist nýrra þingkosninga eftir úrslitin á sunnudaginn. Talsmenn flokksins, sem studdi Waldheim í kosninga- baráttunni, sögðu austurrískan al- menning búinn að fá nóg af stjórn SPO og öllum þeim hneykslismál- Sigur Waldheims í forsetakosning- unum í Austurríki síðastliðinn sunnudag getur átt eftir að hafa veruleg áhrif á austurrísk stjórnmál. um og spillingarmálum sem plagað hafa stjórn Sinowatz síðustu þrjú árin. Alois Mock leiðtogi OVP sagði ríkisstjórnina vera að falli komna og fimmta breytingin á þremur árum myndi engu bjarga í því máli. Heimildir innan SPO segja hins- vegar að Sinowatz hafi sagt af sér kanslaraembættinu til að einbeita sér að málefnum flokksins og búa hann vel undir kosningarnar sem áætlað er að halda í apríl á næsta ári. Sumir hafa hinsvegar enga trú á að ríkisstjórnin undir forsæti Vran- itzky muni auka vinsældir sínar á þessu tímabili. Vranitzky, sem tilheyrir hægri armi SPO, tók óvin- sælarákvarðanir er hann gegndi fjármálaráðherraembættinu og hefur því almenningsálitið ekki með sér þegar hann tekur við starfi kanslara næsta mánudag. Raunar hafa margir meðlimir SPO, og sérstaklega þeir sem eru á vinstri vængnum, þá skoðun að flokkurinn hafi ekki nema gott af því að komast í stjórnarandstöðu til að geta einbeitt sér betur að stefnumálum sínum og skoðana- flutningi. Sigur Waldheims gæti því ekki einungis dregið dilk á eftir sér hvað varðar uppgjör við nasistatímabilið heldur gæti hann snúið við valda- hlulföllum í austurrískum stjórn- málum. Kartafla gegn getnaði Wageningen, Holland-Rcutcr. Hollenskir vísindamenn hafa þróað nýja tegund af kartöflugrasi sem gæti verið ræktað í Evrópu til að sjá lyfjaiðnaðinum fyrir hráefni í getnaðarvarnarpillur. Vísindamenn við rannsóknarstöð- ina í smábænum Wageningen sýndu landbúnaðarráðherrum ríkja Evrópubandalagsins nýja kartfölugrasið í gær. Ráðherrarnir áttu reyndar óformlegan viðræðu- fund í gær og notuðu tækifærið til að heilsa upp á rannsóknarmenn- ina. Nýja kartöflugrasið er blending- ur af hinu venjulega kartöflugrasi og villtri tegund sem vex í Suður- Ameríku. Sú tegund inniheldur mikið af alkaloid solasodine sem einmitt er notað í framleiðslu getn- aðarvamarpilla. A tímabilinu 1. maitil 30. sept. Átímabilinu 1. júní til 31. ágúst Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18 00 fyrir brottför rútu til Rvk Þrið|udaga: Fra Stykkishólmi kl. 14.00 eftir komu rútu. Frá Brjánslæk kl 18.00 Til Stykkishólms kl 21.30 Fimmtudaga Föstudaga: Samatimataflaog mánudaga. Frá Stykkishólmi kl 14 00. eftir komu rútu. Laugardaga: Fra Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suöureyjar Fra Brjanslæk kl, 15.00 Til Stykkishólms kl. 19 00 Viökoma i inneyjum Á timabilinu 1. júli til 31. áqúst Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Miövikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjanslæk kl 14 00 Til Stykkisholms kl. 18 00. fyrir brottför rútu. Viökoma er ávallt i Flatey á báöum leiöum. Bílaflutninga er nauösynlegt aö panta meö fyrirvara. Frá Stykkisholmi: Hjá afgreiöslu Baldurs Stykkisholmi.s.: 93-8120 Frá Brjánslæk: Hjá Ragnari Guömundssyni Brjánslæk, s.: 94-2020.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.